FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Þór Magnússon

Sigurður Þór Magnússon

Profile picture of Sigurður Þór Magnússon
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 115 total)
← 1 … 3 4 5 6 →
  • Author
    Replies
  • 07.08.2006 at 21:37 #557420
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, hvað hafa menn samt verið að setja á kassann?





    07.08.2006 at 16:54 #198331
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Veit einhver hérna hvað fara margir lítrar af gírolíu og drifolíu á Patrol 2.8L ’91?
    (nenni ekki að kaupa of mikið eða of lítið)





    21.07.2006 at 10:52 #198269
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir,

    Þar sem að ég er að fara flytja mig í bæinn fljótlega eykst hættan á að brotist verði í bílinn minn töluvert. Kem frá litlum bæ útá landi og var að spá hvort það væri ekki gáfulegt að splæsa í eitt stykki þjófavörn. Ég er á gömlum Patrol sem mér þykir nú vænna um en að honum verði stolið. Hef líka heyrt að það sé auðvelt að brjótast inn í þá, get líka svosem ímyndað mér það.

    Sé hjá Aukaraf að það er hægt að fá kerfi á 13þús, sem er alveg vel viðráðanlegt. Er ekki líka nokkuð einfalt að koma þessu fyrir?

    Eða er maður kannski bara enþá með þennan alræmda Patrol þjóf á heilanum sem hreinsaði allmarga Patta hér fyrir nokkru?





    11.07.2006 at 10:49 #556188
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Hvað rukkuðu þeir þig svo fyrir þessa aðgerð?





    11.07.2006 at 10:09 #198233
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir,

    Ég lenti núna um daginn í fremur ömurlegu klúðri. Ég var að skipta gömlu dempurunum út en vildi svo ekki betur til en að ég sleit boltann í efri demparafestingunni, rétt að taka það fram að ég er á Patrol ’91. Þannig að demparinn getur setið á járnbitanum en ekki er hægt að herða gúmmíin að.

    Helsta vandamálið er hversu djöfulegt það er að komast að þessu, festingin lengst uppí horni og ekki hægt að komast ofan af þessu nema skera burtu gólf, gormaskál og bita meðfram grindinni. Nú, eða lyfta boddíinu upp af grindinni.

    Hefur einhver hérna lent í svipuðu vandamáli? Þessi festing er alveg pikkföst við grindina? Hvergi hægt að berja úr eða losa?

    Kv.





    26.06.2006 at 21:32 #555258
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Ég held að sé búið að rakka þessa bíla óþarflega mikið niður. Ég veit ekkert og ætla ekki að tjá mig um hvernig þeir eru orðnir þegar 38"+ er komið undir en pabbi minn er buinn að eiga 3 musso 31" í röð síðastliðin 9 ár og aldrei hefur hann lent í neinu veseni, nema hann átti það til að læsa sér meðan hann var í gangi og auðvitað mannlaus.
    Reyndar hef ég heyrt að afturrúðurnar í þessum bílum séu mjög viðkvæmar og geti hæglega sprungið við mikinn hristing uppá fjöllum.
    Ég held að það hafi margið drullað yfir Musso því þeir vissu lítið um þá og voru bara hálfhræddir við þá.





    26.06.2006 at 10:27 #198147
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, veit einhver hérna hvað það kostar að ryðverja bíl? Ég er með Patrol gamlan. Bara svona cirka verðhugmynd.





    23.06.2006 at 09:44 #198137
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir,

    Veit einhver hérna hvort það er hægt að fá ARB framlás í Patrol eldri týpuna (minnir að lásinn heiti FD07) einhvers staðar ódýrara en hérna á einhvern 100þús kall.
    Er hægt að panta þetta að utan á einhvern ódýrari pening komið til landsins?





    20.06.2006 at 12:27 #554948
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    … að spyrja að einu, hversu langan tíma tekur þetta hjá þessum mönnum?





    20.06.2006 at 12:09 #198121
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Ég var að spá hvort það er einhver munur á stærri vatnskössum í Patrol frá GRETTI eða STJÖRNUBLIKK? Ég las einhvers staðar að það væri fleiri pípur hjá öðrum. Hvor aðilinn fær ykkar meðmæli? Er nefnilega í vatnskassahugleiðingum? Og þarf maður í báðum tilfellum að láta gamla kassann uppí eða stækka þeir hann? Hvernig virkar þetta hjá þeim.





    19.06.2006 at 14:00 #198114
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, ég er að spá í loftdælu og alltaf hef ég heyrt að Fini dælurnar séu langtum betri en aðrar loftdælur, þær dæla 180l/mín sem er mjög flott.
    Ég var að spá hvort hún komist líka ofaní húddið hjá mér, er með Patrol ’91 með 1 rafgeymi.
    Og líka það, er nokkuð mikið mál að beintengja hana og hafa rofa inní bíl í stað þess að vera geyma í tösku? Ætla nefnilega kannski að fjárfesta í loftlás á eftir þessu.





    14.06.2006 at 13:28 #198088
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, getur einhver útskýrt fyrir mér kosti og galla aukarafkerfis, ég hef aldrei verið með alveg á tæru hvað aukarafkerfið gerir nákvæmlega. Minna álag á rafgeyminn? Spyr sá sem veit ekki.
    Hvað kostar svo að fá sér aukarafkerfi?

    kv.





    14.06.2006 at 06:27 #554554
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Þetta er alveg þess virði að reyna.

    Það skynjar líka hvert einasta mannbarn að maður borgar ekki 30 þúsund krónur fyrir einn gluggafals ÁN rúðu í 15 ára gamlan Patrol eða eina drifloku á 60 þúsund. Óskiljanleg verðlagning hjá þeim í Ingvari Helgasyni.





    06.06.2006 at 23:42 #198055
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, ég er á Patrol 91 38″ og ég þarf að endurnýja í afturdempurum en hann er á orginal að aftan. Hann er á Koni að framan, þannig að það væri örugglega best að kaupa Koni að aftan líka.
    Er eitthvað misjafnt hvernig demparara maður kaupir eftir því hvernig bíllinn er breyttur? Hafiði hugmynd um verð á þessu? Einhvers staðar heyrði ég 90 þúsund allan hringinn, er það rétt?





    26.05.2006 at 22:23 #198007
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir félagar

    Ég var að spá hvar maður fær svona skyggni/der á Patrol, þ.e. eldri bílana, ég er með ’91. Hef séð nokkra með svona og kemur bara helvíti vel út. Veit einhver hvað þetta kostar?

    kv.





    18.05.2006 at 23:25 #552794
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Ég get ómögulega séð að það sé hagkvæmt fyrir mig, allavega ef ég er að reikna þetta í gegnum shopusa.is.

    Segjum að ég ætli að kaupa fínt mælasett þarna á summitracing sem kostar 279$ þá kostar það mig rúmar 50 þúsund kr komið til landsins.

    Kannski er ég að reikna þetta vitlaust?





    18.05.2006 at 00:16 #197975
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Hvar er best að versla mæla í bílinn? Mig vantar td. túrbínumæli, olíuhitamæli, vatnshitamæli og olíuþrýstingsmæli.

    Eru þessi mælasett í Bílanaust eitthvað sem er þess virði að kaupa? Þarf svo ekki að kaupa nema og senda sér.





    17.05.2006 at 19:52 #552610
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Þakka þér fyrir þetta. Þá er spurning um að fikra sig áfram með þetta, ekki er hægt að sjá einhverjar skýringarmyndir einhvers staðar af þessu?

    Kv.





    15.05.2006 at 21:31 #197966
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Sælir, er ekki hægt að kaupa eitt og sér rafkerfi fyrir Hella Rally3000 og Piaa þokuljós með relay, rofa og öllu sem þarf. Vitiði verðið og verslun sem selur þau?

    kv.





    15.05.2006 at 16:35 #552586
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Það er bara merkið framan á húddinu, stundum kallað montmerki. Á merkinu er svo framleiðandi bílsins.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 115 total)
← 1 … 3 4 5 6 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.