Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.11.2005 at 13:19 #532408
það sem átt var við var að festa viftuna þannig að hún snérist alltaf og reiddi ekkert á kúplínguna … en ég hafði ekki hugsað þetta alla leið m.t.t. vatnaaksturs – í þeim tilfellum væri kannski betra að hafa hana alveg fasta ;).
14.11.2005 at 22:28 #532426gamli, ég undrast tegundarvalið – hélt þú hefðir séð ljósið eins og fleiri mætir litludeildarfélagar 😮
Hvernig væri að týna til hvað gripurinn inniheldur … til viðbótar við stýri og 3-4 dekk.Siggi
14.11.2005 at 16:03 #532396Ég skipti um vatnskassa um daginn og sé ekki fyrir mér hvernig hægt væri að hækka hann svo mikið – né átta ég mig alveg á tilganginum?
Er húdd-skóp kannski það sem þú ert að leita eftir? Ég hef verið að velta því mikið fyrir mér – þannig fengist meir i öndun ofan í og úr vélarhúsinu.
kv. Siggi
p.s. Haffi stakk sér á milli, hvað með að festa viftuna – er það "óæskilegt" ?
12.11.2005 at 21:49 #532200Hygg að þessi könnun hefði verið marktækari ef menn fengju að velja fleiri en einn kost – t.d. 1-3 sæti.
Afslættir (aldeilis búinn að fá mitt félagsgjald til baka), félagsskapur, aðgengi að skálum, breyttir jeppar, ferðir – úps þarna er ég kominn yfir 3 sæti. En að nefna eitt atriði ofar öðrum er erfitt.
Siggi
10.11.2005 at 11:33 #531648"Ég er ekki sammála því að vefurinn sé það stórgallaður að það þurfi að kosta til fleiri milljónum til að fá hann góðan"
Ertu þá ekki búinn að svara því að lagfæring þurfi ekki að vera svo dýr?
Þannig að fyrir "nokkur hundruð þúsund" krónur mætti láta laga stóran hluta þeirra atriða sem mest er kvartað yfir ? -og, við myndum "eignast" forritara/fyrirtæki sem hægt væri að leita til ef upp kæmi galli í kerfinu.
Auðvitað er þetta ekki það sem lagt var upp með – en til þess að flokkurinn "Það sem betur má fara" verði ekki of stór hygg ég að snjallt væri að vefnefnd kanni hjá nokkrum forriturum/fyrirtækjum hversu stóra peninga sé verið að ræða um – eins og þú segir, líftíminn er ekki langur … en telur þó í árum. Eftir slíka könnun væri þá hægt að sýna fram á að þetta sé annaðhvort skítbillegt og menn lagi það sem laga þarf – eða fokdýrt (lesist milljónir) og best að bíða eftir f4x4 versjón 3
Útfærslu framtíðarvefsins getum við bara látið okkur hlakka til
Siggi
10.11.2005 at 09:39 #531638Akkúrat það sem ég sagði Ýktur, nema hvað það fylgdi engin ár þessum bát (algengast eru fleiri en ein ef báturinn á að bera fleiri en 5).
Auðvitað er sjálfsagt að hampa því sem vel var leyst, t.d. innlestur eldri gagna og mynda, möguleika á að hengja gamla dótið aftan við notandanafn o.fl. skemmtilegir fídusar sem virka.En við erum komin í sömu stöðu og áður – þ.e.a.s. að treysta á sjálfboðavinnuna ("þar sem laun heimsins eru ekkert nema vanþakklæti").
Þess vegna tel ég að klúbburinn verði að leggja í þann viðbótarkostnað að laga þessi stóru mál sem menn kvarta sem mest yfir – og þá admin-tólin líka, svo þeir sem hafa yfirumsjón með vefnum þurfi ekki mikið að hamast í hlutum til að lagfæra einhver smámál.Samanburðurinn við Trúðasíðuna er óheppilegur, en mörg stór vefsvæði byggja á opensource kerfum (spjall og myndaalbúmum) eins og þú vel veist.
kv. Siggi
09.11.2005 at 23:22 #531606þessvegna erum við á jeppum með ýmsum endurbótum, stærri dekk, læsingar, lágt drif, extra lágt drif o.s.frv.
Siggi
09.11.2005 at 22:23 #531602þú hefðir alveg mátt bíða með þetta komment þangað til Gundur var búinn að selja 😀
Siggi
09.11.2005 at 22:20 #531630okkar – vefurinn f4x4.is og hið dásamlega vefkerfi (admin tól sem önnur).
Eik og fleiri mætir menn voru löngu búnir að benda á möguleikan á að nota önnur kerfi sem eru "ókeypis" og hafa alla þá möguleika sem klúbburinn þarf á að halda. Mótrökin voru m.a. að fyrri vefur hefði verið í höndum sjalfboðaliða, sem unnu verkið möglunarlaust og yfirleitt án mikilla þakka, og því væri best að fara í heildarlausn sem gæti allt og reksturinn væri í höndum vandaðra manna sem gætu viðhaldið kerfinu – gegn sanngjarnri þóknun.
Þetta er gott og blessað og mjög algengt i sjálfu sér – en því miður gekk þetta ekki fullkomlega eftir
Eftir því sem mér hefur tekist að lesa út að þá er umsjón og endurbætur á kerfinu alfarið í höndum vefnefndar – og "kastatilhöndum" (betur þekkt sem Castor) koma ekki nærri þessu lengur – er það rétt?
Ég veit ekki hvort réttlætanlegt væri að fleygja þessu öllu og setja upp eitthvert vefumsjónarkerfi sem kostar "ekkert" og rekur sig nánast sjálft… En klúbburinn verður (því miður) að setja meiri aur í þetta verk og fá Hæfa forritara til að snikka til marga agnúa, eins og t.d. að birta hluta (eða allan) þráðinn fyrir ofan þegar viðbót er skrifuð inn, laga innsetningu mynda o.fl. o.fl.
Þetta eru bara mín "tvö sent", í sjálfu sér er margt gott komið og kannski þarf ekki svo mikið til að dekka 80% af því sem er helst að hrjá okkur notendurna – agalegt að vera hérna megin við borðiðHin 20% kunna að vera of dýr til að það borgi sig að leysa þau mál – en það er aldrei að vita.,,
Bottom line að mínu mati er sum sé að setja "eilítið" meiri aur í verkið og reyna að dekka þau atriði sem mest er kvartað yfir.Siggi
09.11.2005 at 22:02 #531598Hlynur – það fá allir að koma með, þú líka
…og nei Óskar það eru ekki allir á 38+ -þó við séum ófáir sem höfum ákveðið að fara í þann gírinn, t.a.m. formaður litludeildarinnar.Siggi
09.11.2005 at 14:22 #531592Sæll,
neinei – litladeildin er með ferðir fyrir menn á öllum dekkjum, og er formaðurinn meir að segja búinn að lofa ferð í þessum mánuði.
[url=http://slydda.a47.net:13fxmdcl]http://slydda.a47.net[/url:13fxmdcl]
kv. Siggi
08.11.2005 at 09:57 #530932Sennilega er snjallast í svona stöðu að hripa hjá sér bílnúmerið og fá lögguna til að tékka af hvort þau stemmi við þessa gerð af bílum – okkur kemur lítið sem ekkert við hverjir eiga bílinn, en ef númerið er t.d. af yaris þá er mögulega komin vísbending…
Siggi
p.s. var reyndar búinn að gleyma, á vefsíðu Umferðarstofu [url=http://www.us.is:327pnjmn]www.us.is[/url:327pnjmn] er hægt að fletta upp ökutækjum og sjá hvaða gerð og litur er á þeim – fyrir neðan "Innipúkinn í umferðinni" er sá möguleiki.
04.11.2005 at 17:48 #530892…
03.11.2005 at 13:49 #530848Eru skrárnar í þessum bílum þannig að hægt sé að opna með lykli milli bíla ?
Þegar farið var í bílinn minn í haust þá sást ekkert á honum – sem benti til að annaðhvort hafði gleymst að læsa (sem fullyrt var að hefði ekki gleymst) – eða þá að auðvelt er að "dírka" þá upp.
Kannski þeir sem hafa lent í þessu geti upplýst okkur hina ? Var t.d. eitthvað átt við sviss til að koma þeim í gang, stýrislás brotinn o.s.frv. ??Siggi
03.11.2005 at 13:44 #530672Ef einhver leið er að lesa úr [url=http://www.tollur.is/upload/files/85_kafli%283%29.pdf:1rmb6epy]þessu[/url:1rmb6epy] þá virðast VHF tækin falla undir 8527.9002 sem ber 0% toll, versta tilfelli er 7.5% – sem er náttúrulega sáralítið.
Þ.a. 15.000 + flutningur er sennilega nærri 20þ + tollur (7.5%?) + vaskur (24.5%) + umsýsl flytjanda (2þús?) sem leggur sig út á nærri 29 þús.
Þá er bara spurning um f4x4 afsláttinn hversu langt er þarna a milli … en Geiri er náttúrulega að fá PC kapal með – sem er eitt af þessu dóti sem fær oft á sig fáranlegan verðmiða í hillum búða
Siggi
31.10.2005 at 16:40 #530372Sæll Vals – varstu ekki að spjalla á VHF tíðninni þarna bæjarhluta í millum.
Mér sýnist þessi [url=Yaesu VX400]VX400[/url] stöð vera bísna snjöll – þar sem hún er bæði VHF og UHF – er þetta dýrt tæki ?
Mér þykja hinsvegar þessar litlu UHF stöðvar dauðleiðinlegar, eru yfirleitt útum allt (eða neðst undir öllu) og afar algengt að þeir sem eru komnir yfir hæðina heyra ekki baun í þeim hinum sem eru hinumeginn – en nást þó ágætlega á CB.
Þeir sem ég ferðast oft með eru ákaflega hrifnir af þessu tæki … en eru líka með CB til vara (hafa ekki allir þróast í VHF).kv. Siggi
27.10.2005 at 23:58 #530110um eina vél af og til í þessum rekstri ? Mér hefur heyrst að þegar ónefndir bíltegundareigendur séu búnir að leggja saman drif og öxla að þá séu einhverjir hundrað kallar í vél ekkert svo svakalegt ?
Bara mín 2 cent,
….enda það eina sem ég á eftir síðust aðgerðSiggi
27.10.2005 at 12:47 #530032Vefsíðan hennar er hér [url=http://slydda.a47.net/:27kef66y]http://slydda.a47.net/[/url:27kef66y]
Mér persónulega þykir engin ástæða til að stilla málum þannig að bílar á stærri dekkjum fái ekki að fara með – enda var það aldrei markmið deildarinnar að búa til einhvern sérhóp, sbr. [url=http://slydda.a47.net/article.php?story=20050927203848547:27kef66y]fundargerð[/url:27kef66y] frá stofnfundi.
kv. Siggi
05.10.2005 at 11:23 #528692(mjög) gamlir tölvukallar kannast við þetta format …
IMG
IMG files were originally designed to work with the GEM Paint Program.
IMG files handle monochrome and gray level images.
The VENTURA Publisher application, working in the same GEM environment, also supported the IMG file format.
In order to maintain compatibility, various other desktop publishing applications have added support for importing and exporting this format (although usually not processing it).Characteristics:
IMG – Old Style format supports 1, 4, 8 bits per pixel.
IMG – New Style format supports 1, 4, 8
IMG – Ventura 4.0 format supports up to 256 levels of gray, and up to 24 bits per pixel.
Some applications read only 1 bit per pixel in both the new and old IMG styles...en að nokkur sé að nota þetta lengur – ólíklegt
Þetta [url=http://www.tucows.com/preview/194967:hiqqhl2j]tól[/url:hiqqhl2j] segist geta convert-að þessum skrám.
03.10.2005 at 12:45 #528442[img:3jqiexz3]http://www.mbl.is/frimg/2/62/262563A.jpg[/img:3jqiexz3]
-
AuthorReplies