Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.12.2005 at 20:24 #535968
er Geiri grænn af öfund
14.12.2005 at 19:55 #531078Númerið á þessum þjófsbreytta er alvöru Patrol númer
Skráningarnúmer: YL055
Tegund: Nissan
Undirtegund: Patrol
Litur: Rauður / Brúnn
Fyrst skráður: 09.07.1991Eigandi þessa er reyndar skráður með búsetu í Reykjavík og ekki af réttu kyni … m.v. fréttina.
En það væri ekkert vitlaust að birta í það minnsta nafn af þessum gaur, mynd kæmi sér vel með.
Allavega getur manni létt þessa dagana – að þurfa ekki að horfa á alla Patrol bílstjóra með grunsemdar augum … og fá sama augntillit til baka.
Ég vona bara að þessi “jólagjöf“ verði eigandanum ekki of kostnaðarsöm í lagfæringum.
kv. Siggi
13.12.2005 at 11:02 #535758"Þegar við fórum í Nýjadalinn og hringuðum Tungnafellsjökul suður Vonarskarðið þá var hann með 44 lítra meðan disel dósirnar voru með allt upp í 58 lítra."
Ekki segi ég Gund ljúga … en hvernig má það vera að dísilbílarnir eyði þetta miklu meir en bensín – nú hafa menn haldið því fram að dísillinn sé samkvæmari sjálfum sér undir álagi ?
Mér þykir minn eðalvagn vera í hærri kantinum í eyðslu – en er samt nokkuð í takt við umræðurnar hér á vefnum … og nú þegar bensínið er víðast ódýrara en dísillinn á maður þá að skipta í bensín bíl ??
Ég sé hinsvegar vel afhverju Gundur keypti toyotu aftur … hann hefur farið vinstra meginn frammúr þann daginn
Siggi
12.12.2005 at 18:20 #535682er akkúrat lýsingin … ímyndaðu þér að reyna þetta með ónýtan rafgeymi….
Ef enginn þekkir þetta akkúrat – þá spjalla ég við ljónsungana.
Handdælunni man ég aldrei eftir …Siggi
12.12.2005 at 15:24 #535672tja, þú segir nokkuð – sennilega hefur verið ca. 1/3 eftir 30+ lítrar … án þess að ég hafi það nákvæmlega.
Ég man ekki hvernig staðan var í hin skiptin – en mögulega eitthvað áþekkt
Siggi
12.12.2005 at 10:39 #196843Sælir,
í gegnum tíðina hef ég lent í því að ef ég legg bílnum (Patrol 2.8 árg. 94) þannig að nefið vísi upp (hallinn þarf ekkert að vera svo mikill), að þá er eins og öll olía renni aftur í tank og bílgreyjið er heillengi að hafa sig í gang aftur.
Þekkja menn þetta – og eru einhver ráð ?Þetta gerist svo sem ekki oft – að ég leggi bílnum svona … en er ákaflega hvimleitt ef ég gleymi mér – er reyndar snöggtum skárra eftir að ég fékk mér nýjan geymi .. þ.a. ég get startað oftar en tvisvar
kv. Siggi
07.12.2005 at 23:25 #196813Vefstjórn – hvað kom fyrir Smáauglýsingarnar … þær ná yfir á þarnæsta skjá ?!?
Siggi
07.12.2005 at 23:22 #535054hjá honum Óskari Agnar, en spurningarnar snúast um hversu mikið þarf að hræra í 38" breyttum bíl til að hoppa upp á 44" -urnar.
En sjálfsagt er það eitthvað misjafnt eftir því hvernig bílunum hefur verið breytt.
Minn er t.d. allur síkkaður – engir klossar undir gormum – hvursu mikla klossa get ég sett án þess að setja allt úr skorðum ? 60mm, 100mm, meira ?? er óhætt að lyfta bílnum þannig ?
Body lyfta – er óhætt að lyfta með plastklossum? Sambland af slíku og gorma?? Er mikið mál að lyfta bodíinu á Patrol, ég gerði það á mínum gamla Terrano – það var ekkert mál, úr með alla bolta tjakka og skella klossum á milli og skrúfa saman aftur (þurfti að lengja nokkrar leiðslur – en ekkert óyfirstíganlegt).
Hvað með alla þessa stífu og spindil halla svo ég tali nú ekki um tvískipt drifsköft og snúningar á hásingum??Draumapælingar
Siggi
06.12.2005 at 13:02 #535046Er einfaldara að lyfta boddí-inu heldur en að síkka og lengja stífur? …ef reiknað er með að nota klossa undir gorma.
Siggi
03.12.2005 at 02:27 #534676Er það nú alveg visst – hygg jafnvel að þú sért að rugla saman árstímum.
Ferðir f4x4 að vetri eru yfirleitt og almennt miðaðar við stærri dekk, nema ferðir litludeildarinnar – og fátt eitt hægt að gera nema að berja höfðinu við stein.
Litladeildin er visst andsvar og hefur það að markmiði að koma "öllum" á fjöll – en meðvitað tekur hún meir mið af aðstæðum og veðri, sem félagar á stærri bílum (og dekkjum) geta leift sér að hunsa – upp að vissu marki vitaskuld.
Þó að minnadekkjaðir og/eða breyttir bílar séu í minnnihluta í litludeildinni þá á það ekki að hafa slæm áhrif á markmið deildarinnar – eða etv. betur – ferðarinnar. Ef það gerist, þá hefur eitthvað gleymst.
Ég er á þeirri skoðun að minni og stærri eiga að ferðast saman – ef vilji er fyrir hendi! -mögulega vilja menn ekkert með "minni dekkjakalla í eftirdragi" – en þá eru þeir ekki að ferðast með réttri deild
En, ef þú skoðar eldri þræðina á f4x4, þá liggur það kýrskírt fyrir að þetta er ekki ferðafélag – heldur ferðaklúbbur … hver sosum skilningsmunurinn er …. en alllavega, þá ber klúbburinn engar ábyrgðir á einum eða neinum ferðum.
Siggi
03.12.2005 at 01:19 #534672[url=http://litladeildin.a47.net:35b6gw8s]http://litladeildin.a47.net[/url:35b6gw8s]
kv. Siggi
03.12.2005 at 01:13 #534666er með 1994 módel – þar er kvikindið 95 lítrar.
kv. Siggi
02.12.2005 at 22:08 #534626? hvað meinarðu – nokkrir dagar til stefnu ???
Auðvitað væri maður til í sona alvöru aðstöðu … en @ what price ?
Siggi
p.s. var að lesa fréttina .. COMMON! klárt á þriðjudaginn … ég myndi fella liðið . <- Punktur
24.11.2005 at 22:14 #531302ég er búinn að borga, dráttarvaxtalaust, soldið langt síðan, en hef ekki fengið neitt svona merki – er þetta ekki bara upp á punt?
Siggi
24.11.2005 at 22:06 #533884alveg sammála, fela er bull – eðlilegra að henda úreltum auglýsingum … hinsvegar er ég farinn að trúa því að þetta sé allt haugalýgi um heddin í Patrol.
Félagar, björgum geðheilsu Lellu og hringjum og spyrjum um Patrol (gáfulega þó …)Siggi
24.11.2005 at 21:37 #533894flott hugmynd …
slatti á litludeildarsíðunni 😉
og – ef þú vilt virkilega "gera eitthvað gagn" (kankvísi hér) – eða sniðugt, hvernig væri að fá Setrin inn á pdf formi ? Taka svo fróðleiksgreinar og setja undir … fróðleikslink – en skelltu nefndar síðunum fram(ar) fyrst þú ert að krukka í þessu.kv. Siggi
24.11.2005 at 17:02 #532854Hér er heillaráðslisti litludeildarinnar, [url=http://litladeildin.a47.net/article.php?story=20050930122030331:2e5um129]pökkunarlisti[/url:2e5um129].
kv. Siggi
19.11.2005 at 22:46 #532618Eru einhverjar sagnir af ferð litludeildarinnar í dag? …eða eru þeir kannski allir týndir ?
Siggi
19.11.2005 at 05:37 #533072hversu lengi má ég vonast til að lúlla áður en Einsi mágur hringir??
Sennilega verður allt komið í "kleinu" áður en það gerist ?!?
Siggi
19.11.2005 at 05:33 #532190…daginn
Láttu ekki svona, ef við fylgjum reglum og reglugerðum þá máttu ekki vera íllur, reglur eru reglur og hana nú.
kv. Siggi
-
AuthorReplies