Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.02.2007 at 19:48 #199704
Sælir,
datt í hug að það gæti hent einhverjum að þessar línur séu til hér.
Ég varð fyrir því óláni að einn pinninn á loftlokanum sem stýrir soginu á afturlæsingunni brotnaði. 5 tonna limið límdi ekki baun þ.a. nú voru góð ráð Dýr.
Ég ætla ekkert að minnast á IH, en Jeppapartar upp á Tunguhálsi kváðust geta gert við þetta fyrir 10-15 þús., sem mér fannst helst til dýrt (en kostur í stöðunni – þannig séð).
Eins skilst mér að hægt sé að nota rofan sem er festur við loftinntakið (og blinda allt draslið) – en mér fannst það vera síðasta leiðin.
Landvélar áttu lausnina, fyrir litlar 7.600 krónur leystist málið.
Til fróðleiks og auðveldunar:
vörunúmer, lýsing, fjöldi
62001062 Undiplata tvöfold, 1
62001060 Loki, 2
13840402 Slöngutengi 6mm, 3
13406602 Tappi, 1
62338010 Hljóðdeyfir, 2
Ég hreinsaði gamla dótið af festingunum, beygði til, boraði 2 göt og festi allt klabbið saman – var svo hittinn að tengja strauminn réttan þ.a. allt small þetta á hinn besta veg
Siggi
p.s. ég á einn orginal rafloka (eru 2) sem er í lagi – fæst fyrir 1 kippu 😉
11.02.2007 at 23:35 #579802þráðurinn ?
Er haugur af frúm horfinn á fjöllum ??
Eru ekki einhverjar frásögur??? – eða er mönnum yfirleitt sama 😮
Siggi.
09.02.2007 at 00:48 #579750sekur
09.02.2007 at 00:38 #579746þú veist að maður byrjar á því að gúggla áður en maður RFM
S.
… en ég endaði á að tengja þetta inn á háuljósin
09.02.2007 at 00:34 #579742elsku kallinn minn – ég hef ekki unnið í þeirri sjoppu í nokkur ár – og að spyrja einhvern þar um breytingar er ekki endilega ávísun á svör…
En ég get lagað punktastöðuna hjá þér – niður eða UPPSiggi
08.02.2007 at 20:27 #579736ekki legg ég í að styggja skoðunarmenn með þessu til viðbótar
rofahugmyndin er góð.
Siggi
08.02.2007 at 13:46 #199620Jæja þá er ég búinn að skrúfa afmælisgjöfina frá því í haust á toppinn – loksins.
Smá vangaveltur um tengingarnar. Skv. teikningunni frá ipf þá á að tengja inn á háuljósin, ég hafði hugsað mér að fara einfaldlega í stöðuljósin og geta þá kveikt hvenær sem er (galli við þessi ljós að það er ekki gaumljós sem sýnir hvort þau séu á eða af).
Hvaða skoðun og ráðleggingar eigið þið handa mér ?
kv. Siggi
27.01.2007 at 20:10 #577614að búa sig ?
Vantar þeim fleiri "stærri" bíla (m.v. lúdda er allt smátt vitaskuld).
Siggi
27.01.2007 at 19:12 #577604er komin ástæða handa mér að henda sleifinni úr pottinum, panta pizzu handa heimilisfólkinu, og hendast af stað ?
Áttu ekki til meiri lýsingar lella ?
Siggi
24.01.2007 at 18:55 #576822Barbara! Mér hefur dottið í hug hvort ekki væri hægt að sleppa því og fara bara yfir lækinn – Reykjanes er uppfullt af áhugaverðum slóðum … spurning um hvort litladeildin skelli sér ekki þangað ? Sjá t.d. hjá vini þínum honum [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5091:24lv7x47]Tryggva[/url:24lv7x47]
Siggi
p.s. spurning hvort við séum gjaldgeng … m.v. tal um dekkjastærðir eftir síðustu ferð 😮
24.01.2007 at 10:52 #576942Þetta væri spennandi að eignast: [url=http://cgi.ebay.com/NISSAN-PATROL-GQ-Y60-WORKSHOP-MANUAL-ON-CD-W-W_W0QQitemZ250077094399QQihZ015QQcategoryZ102571QQcmdZViewItem:2cqa4gkw]á ebay[/url:2cqa4gkw]
Siggi
23.01.2007 at 13:26 #576672Mögulega á Fjallasport eða Benni þetta til, en hér er einhver hafsjór – þú þarft reyndar að mats-a bílinn við amríkuversjónir af hásingum: http://www.4x4parts.com/public_html/shop/
Siggi
19.01.2007 at 08:45 #199437Sælir, ausið nú úr visku brunnum….
Mér voru færðir öndvegis kastarar og var að velta því fyrir mér að skella þeim á toppinn. Dugar mér skíðabogi ? Eða fæ ég einhversstaðar ljósabogafestingu á skikkanlegum prís ?
Suma sé ég vera með tvo skíðaboga hlið við hlið – er það kannski bara vegna þess að Bílanaust selur þá í pörum ?kv. Siggi
17.01.2007 at 23:10 #574576breytast ekki allir bílar í óþekkta tegund eftir að Lúther er búinn að fara höndum um þá ?
Siggi
16.01.2007 at 22:54 #575776Maggi – hér er breytingin sem var gerð í dag:
16.01.2007 Eiginþyngd = 2140; Heildarþyngd = 2700 Gerðarbreyting
Þá lítur þetta svona út:
Eiginþyngd: 2140
Burðargeta: 560
Heildarþyngd: 2700
Þyngd hemlaðs eftirvagns: 2700
Þyngd óhemlaðs eftirvagns: 750kv. Siggi
16.01.2007 at 12:02 #575764Minn er 38" breyttur
Eiginþyngd: 2240
Burðargeta: 460
Torfærubifreið: Já
Heildarþyngd: 2700
Þyngd hemlaðs eftirvagns: 2700
Þyngd óhemlaðs eftirvagns: 750svona líta upplýsingar út í bílagrunninum og eru þyngdartölurnar byggðar á breytingaskoðunarmiðanum:
Gerðarbreyting: Breidd = 2150; Eiginþyngd = 2240; Hjólbarðar 1 ás = 38X15,50R15; Hjólbarðar 2 ás = 38X15,50R15
kv. Siggi
16.01.2007 at 08:32 #575750UST er ekki rétt skammstöfun á bílaumsýslustofnunninni – heldur er hin rétta US (Umferðarstofa) – [url=http://www.us.is:1ayeed22]http://www.us.is[/url:1ayeed22]
Eins hafa Hafnfirðingarnir í Aðalskoðun verið afspyrnu ljúfir við skoðun á breyttum jeppum, þó ekki svo að þeir hleypi hvaða vitleysu í gegn sem er ….
Siggi
p.s. UST er vitaskuld [url=http://www.ust.is:1ayeed22]Umhvefisstofnun[/url:1ayeed22] – sleppi öllum kommentum.
14.01.2007 at 20:27 #575414ég var við Keldur og heyrði í einhverjum nærri Þursaborgum seinnipartinn í dag, heyrði ekki nægjanlega til að segja hvort þeir hafi verið í einhverjum vandræðum – en einhver las upp punkta og átti 4km í þann sem var við borgirnar.
Þetta hjálpar ekki neitt væntanlega…. nema þér kannski að komast af stað
[HTML_END_DOCUMENT] – bull í mér – þeir hafa varla ætlað yfir Langjökul heim … eða hvað ?
Siggi
13.01.2007 at 02:32 #575026Verð að benda ykkur á ferð jeppaklúbbs Ferðafélags Íslands – [url=http://www.simnet.is/gop/g_vinir/ferdir/farplan.htm:1dl02diu][b:1dl02diu]hér[/b:1dl02diu][/url:1dl02diu]
kv. Siggi
12.01.2007 at 09:26 #575078í Rúmfatalagernum sá ég svona júníversal stýringu á 500 kall – ekki stór fórn…..
S.
-
AuthorReplies