FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Magnússon

Sigurður Magnússon

Profile picture of Sigurður Magnússon
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 393 total)
← 1 … 9 10 11 … 20 →
  • Author
    Replies
  • 03.10.2005 at 12:10 #196378
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Við skulum hafa augun opin
    http://www.visir.is/?PageID=90&NewsID=56664

    Hvítri jeppabifreið var stolið á Akureyri í nótt og óku þjófarnir sem leið lá suður til Reykjavíkur. Að sögn eiganda jeppans sást til bílsins í Hvalfjarðargöngunum klukkan 06:41 í morgun á suðurleið. Bifreiðin er af gerðinni Nissan Patrol, árgerð 1992. Jeppinn er á 38 tommu dekkjum.Skráningarnúmer bílsins er PU 267.

    Eigandinn biður þá sem geta gefið upplýsingar um jeppann að hafa samband í síma 898 2459 eða senda póst á netfangið trukkurinn@trukkurinn.is





    30.09.2005 at 19:19 #528166
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Sælir,

    litludeildarformaðurinn, klakinn, hefur verið iðinn við kolann og týnt til margan fróðleikinn sem við setjum jafnharðann inn á litludeildarsíðuna.

    Flokkurinn "Hagnýtt" á vefsíðu litludeildarinnar, geymir markt snjallt og er ykkur hérmeð bent á hann.

    admin kveðja :)
    Siggi





    27.09.2005 at 20:37 #528106
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    …óþarfi að ljóstra upp um samband okkar Gunds svona opinberlega.

    spott-akveðja, Siggi





    27.09.2005 at 20:13 #528100
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Jóhannes – hvað ertu að benda á … Gundi hlotnaðist EKKI sá heiður að draga minn eðalpatról … enda komst hann næstum aldrei framfyrir hann 😉

    Siggi mótorbani





    26.09.2005 at 23:42 #527926
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    þú ætlar varla að setja króm undir krúserinn ?

    Hagstál í Hafnarfirði húðar felgur fagurlega.

    Siggi





    26.09.2005 at 16:28 #527902
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Posted: July 05 2004,12:03 -segir þarna.

    Siggi





    26.09.2005 at 08:43 #527486
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    hvað það er sem aftasti bíll man eftir, en sem betur fer eru hér snjallir menn sem sjá í gegnum orðagjálfur um Gæði 44" toyotu … sem komst jú á leiðarenda á eftir 31" wrangler sem hafði sléttað brautina :)

    Patrol-inn stóð sig vel, að mínu mati, og er ég bara hæst ánægður með gripinn. Ég veit ekki með eyðsluna, hún var sennilega 100 – 110 lítrar 30klst. leið í mjög erfiðu færi og með ófáum klukkutímum með annan bíl aftan í (í fullum drætti) auk annars togs, bakks og viðsnúnings.

    Allavega fer aukatankur fram fyrir intercooler ísetningu :)

    Siggi





    25.09.2005 at 20:48 #527478
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Ekki auðnaðist okkur að komast á Kárahnjúka … en við erum allavega bún(ir) að fara Gæsavatnaleið :)

    Bestu kveðjur og kærar þakkir til Benna, Péturs og Erlings – sopinn var góður!

    Ég ætla að eftirláta Gundi að skrifa ferðasöguna og ég vona að hann segi nú eitthvað satt ….

    Myndirnar mínar, þessar örfáu, frá þessu mikla ævintýri er að finna hér [url=http://www.austurgata.net/gallery/view_album.php?set_albumName=album90:7ufspv9d]http://www.austurgata.net/gallery/view_album.php?set_albumName=album90[/url:7ufspv9d]

    p.s. smá statístík …
    13 bílar fóru
    11 komust til baka
    5-6 dekk þurfti að tappa
    1 bíll er með skemmdan afturenda eftir spotta





    21.09.2005 at 16:55 #196288
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Þetta þarf kannski að fara á forsíðu… og þá má eyða þessum þræði :)

    Vetrarlokun skála Ferðafélagsins
    Frágangsferðir hafa nú verið farnar í flesta skála Ferðafélagsins og gengið frá og þeim lokað fyrir veturinn. Skálum s! em nú þegar hefur verið læst eru Hrafntinnusker, Álftavatn, Hvanngil, Nýidalur. Hvítarnesi, Þverbrekknamúla og Þjófadölum verður lokað fyrir helgina sem og Hlöðuvöllum og Hagavatni. Landmannalaugar og Langidalur í Þórsmörk eru enn opnir og skálaverðir á báðum stöðum og verða fram í október og jafnvel lengur eftir umferð og aðstæðum. Með vetrarlokun munar um mestu að vatn hefur verið tekið af skálunum og þeim læst. Hægt er að nálgast lykla að skálum Ferðafélagsins og greiða fyrir gistiaðstöðu um leið.

    Ferðafélag Fljótsdalshéraðs læsir Kverkfjöllum og Snæfelli
    Ferðafélag F! ljótsdalshérðaðs hefur nú læst skálum sínum í Kverkfjöllum og Snæfelli fyrir veturinn.Skálar félagsins í Brúnuvík og Breiðuvík standa opnir yfir veturinn. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs hefur nú tekið upp nýtt netfang sem er ferdafelag@egilsstadir.is Heimasíða félagsins er sem fyrr http://www.egilsstadir.is/ferdafelag

    Ferðafélag Akureyrar læsir skálum í vetur
    Ferðafélag Akureyrar (FFA) mun læsa skálum sínum við Drekagil og í Herðubreiðarlindum veturinn 2005 ? 2006. Lokunin kemur til framkvæmda frá og með 18. september 2005. Þeir sem vilja fá gistingu í þessum skálum, geta fengið lykil gegn tryggingu hjá FFA. Vinsamlega sendið f élaginu tölvupóst með beiðni um gistingu á netfangið: ffa@ffa.is eða hringið í formann FFA, Ingvar Teitsson, í síma 462 7866, eftir kl. 19 á kvöldin





    19.09.2005 at 10:43 #526588
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    fleiri möguleikar :)

    [url=http://www.visir.is/?PageID=38&NewsID=54969:3si88v6f]http://www.visir.is/?PageID=38&NewsID=54969[/url:3si88v6f]





    16.09.2005 at 22:40 #526908
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    rakst á þessa síðu

    [url=http://www.moli.is/verslun/index.php?option=com_phpshop&page=shop.browse&category_id=259a91e7c90c63f1c5586c58bc18f825&Itemid=1:17fp0ovm]moli.is[/url:17fp0ovm]

    kv. Siggi





    12.09.2005 at 23:24 #196243
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Sælir,

    borgar sig að reyna að laga þesslags ? Það rauk nokkuð úr henni áður en það var skorið á reimina …
    Græjan er úr Patrol, okkur sýnist kúplingin vera farin – kannski er það bara allt … eða alltof mikið ?

    Eigið þið handa mér ráð ?

    Siggi





    10.09.2005 at 22:23 #525570
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    tja – til að ljúka þessu (vona ég), þá er veltikortið 300 kúlum þyngra í dag en bíllinn kominn í lag.

    Stöng og stimpill voru brotin þ.a. þessu var ekki viðbjargandi, fékk aðra blokk sem var svo tekin í nefið og skipt um allt sem hægt er að skipta um …

    Bíllinn er mikið þýðari, enda varla furða :-)

    Tindfjöll á morgun til að tékka þetta almennilega af.

    kv. Siggi

    P.s. einhver ódámurinn sá sér færi að sparka í liggjandi mann og fara inn í bílinn hjá mér þar sem hann svaf fyrir utan Vélaland (aðfararnótt föstudags) og ræna spilaranum (MP3 Pioneer spilari), einhver hefur verið þarna á ferðinni því verksumerki benda til þess að kvikindið hefur horfið í skyndi – en með spilarann. Ef einhvur félagi hefur verið á ferð og rámar í eitthvað þá væri gott að heyra af því …





    10.09.2005 at 22:06 #196239
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Sumum finnst kannski óþarfi að hafa svoleiðis í Patrol … en fyrst þetta er þarna þá langar mig til að hafa hann í 100% lagi.

    Bíllinn er 1994 árgerð og mælirinn hegðar sér þannig að hann hoppar og skoppar og dettur inn af og til – og oftast réttur í langan tíma ef ekið er á svipuðum hraða.

    Er þetta eitthvurt rafmagnsdót – eða einfaldlega barki?

    Spyr sá sem ekki veit.

    Siggi





    09.09.2005 at 19:53 #196235
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    bilun ??

    Hópast Jeppamenn í snyrtivörubúðir ?

    http://pesn.com/2005/03/17/6900069_Acetone/

    :-)





    02.09.2005 at 11:54 #526160
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    er litludeildarformaðurinn kominn á alvöru ?

    ….ef svo er þá er hann varla búinn að keyra hann mikið – fyrst hann er með þessi mótor komment :-)

    Siggi – mótorbani





    29.08.2005 at 10:47 #525562
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Vélaland tóku vel á móti okkur eins og við var að búast, nokkuð öruggir og sannfærandi um að þetta sé aðskilið mál og ekki við þá að sakast.

    Á morgun (þeir þurfa víst að klára annan Patrol ?!?!), kippa þeir vélinni úr og kíkja á þetta – kannski er ég heppinn og það er hægt að sjóða og skipta um stimpil – fréttir síðar.

    Takk fyrir hjálpina,

    Siggi

    p.s. auðvitað eru [url=http://www.austurgata.net//article.php?story=20050829102012679:3gil83il]ferðamyndir[/url:3gil83il].





    28.08.2005 at 22:08 #525556
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Heddið var planað, ventar og ventlasæti rennd, skipt um dísur, eitt glóðarkerti, vatnsdælu, tímareim og strekkjara (2stk) – svo er þetta bara eins og vísa reikningurinn … hellingur af línum sem safna sér saman.

    Það var ekki djúpt í ánum inn og úr mörkinni, fór ekki yfir stigbretti – þ.a. ég sé það ekki fyrir mér að hafa tekið inn vatn, í það minnsta ekki í gegnum loftinntakið – eru fleiri möguleikar ?

    [url=http://www.austurgata.net/up_files/00049.jpg:185r9efz]Svona[/url:185r9efz] lítur gatið út.

    kv. Siggi





    28.08.2005 at 21:14 #525552
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Það er gat á blokkinni – þ.a. hún er ónýt, spurning hvað meira er ónýtt ? Á ég t.d. heilt hedd og ventla ?

    Nágranni minn á vél þar sem tímastrekkjari fór – þegar slíkt gerist, fer þá blokkin líka ? Borgar sig að spá í þá lausn ? (þ.e. heddið mitt og sú blokk).

    Á einhver vél handa mér ?

    Svo þetta sem Vals segir, ég kem eins og glópur og bið um þá um að finna út hvað er að, lýsi vandanum og eftir mikið humm er greiningin heddið. Svo reynist heddið heilt þ.a. spurning er hvort þeir hafi skoðað þetta nógu vel – þar sem þetta er nokkuð stór aðgerð , eða hvað?

    Getur þetta gerst ef tímareimin fer ?

    En, í fyrramálið mæti ég til þeirra og væntanlega fæ einhver svör – ráðleggingar ?

    Siggi





    27.08.2005 at 22:38 #525542
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    gráta.

    Renndum í Þórsmörk til að fá okkur vínarbrauð og hittum skemmtilega á afmæli Útivistar – og fengum heitt kakó og meððí…

    Bíllinn allur annar, flaug upp skíðaskálabrekkuna og hitinn til friðs (steig aðeins þarna – en eðlilega held ég).

    Kominn á þjóðveg aftur sæl og glöð eftir átið, á furðumiklum hraða m.v. Patrol, músíkin í botni og þá heyrðist eitthvurt klangklang, lækkað í Bowie og gírað niður – við það jókst klangklang-ið og skyndilega snarbremsaði bíllinn og einhverjir málmhlutir skutust undan bílnum reykur og olía – og gat á blokkinni.

    400 kílómetrum eftir viðgerð – nú er maður bara leiður :(

    Ég vona að Vélaland kunni að kippa þessu farsællega í liðinn – án frekarri fjárhagsáreynslu fyrir mig … hvað getur hafa gerst ?? Hiti og olíuþrýstingur voru í góðu lagi, krafturinn aldrei verið meiri ?!?

    Siggi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 393 total)
← 1 … 9 10 11 … 20 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.