Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.05.2007 at 10:06 #590674
ég fæ nú ekki betur séð en að það standi í þessum sáttmála að baugur fái að byggja kjalveginn sinn. blessuð sé mynning ferðalaga umhverfis kjöl án þess að baugur fái 2500 kall á bíl.
23.05.2007 at 19:20 #591464í vinkildrifinu í þurkumótornum er skífa með snertum sem nema staðsetninguna á þurkunum og stjórna letingjanum og hvar þurkurnar stoppa. þessar snertur þarf að pússa upp og þrífa, mjög einföld aðgerð. lokið skrúfað af vinkildrifinu með nokkrum skrúfum og draslið þrifið með WD40, ef snerturnar eru þeim mun ljótari má bregða á þær fínum sandpappír.
12.05.2007 at 13:12 #590646Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem lagt hefur fram skýr drög að því hvernig egi að skipuleggja hálendið, hvaða svæði egi að láta ósnortin og hvaða svæði eru fýsilegur kostur m.a. virkjanaframkvæmda. Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem opinberlega lagðist gegn áformuðum kjalvegi Norðurvegar ehf. Samfylkingin, Vinstri græn og framanaf forustusauður Íslandshreifingarinnar mæltu með þeirri framkvæmd, en Ómar Íslands skipti um skoðun á síðustu stundu. stjórnarandsstöðuflokkarnir hafa ekki lagt fram neitt um hvar egi að virka fyrir hugsanlegt netbú Microsoft og fyrir hugsanlega gagnageymslu Yahoo sem saman eru álíka orkufrek og meðal álver, semsagt orkuframleiðsla Kárahnúkavirkjunnar. Vinstri grænir hafa alla tíð lagt sig á móti bjórframleiðslu og mótmæltu því á sínum tíma að bjórsala hæfist á Íslandi, og líka eini flokkurinn sem ekki þorði að sýna sig í mötuneyti Ölgerðarinnar fyrir þessar kosningar.
Núverandi stjórnvöld hafa lagt drög að því að leggja nýjan sæstreng til Íslands sem gerir það að verkum að möguleikar Microsoft og Yahoo á Íslandi eru raunverulegir. núverandi stjórnvöld hafa gert umhverfi atvinnureksturs þannig að stórfyrirtæki vilja alveg eins vera á Íslandi einsog annarstaðar. núverandi stjórnvöld hafa byggt upp blómlegan atvinnuveg og atvinnumöguleika á Íslandi, miklu meira en bara álver. hérna blómstra fjármálafyrirtæki, hátæknifyrirtæki, útgerðarfyrirtæki, afþregingarfyrirtæki og hingað hafa erlend stórfyrirtæki, bæði mengunarspúandi og algjörlega ómengandi, áhuga á að byggja upp starfsemi.
ekkert stopp X-B
10.05.2007 at 10:49 #590800abs bremsukerfi er vandmeðfarið og það er varasamt að aftengja vökvalagnir. abs kerfið byggist upp á háþrýsting og því er ekki nóg að lofttæma eins og gamla toyotudruslu. það þarf að mynda upp þrýsting í kerfinu og í ventlaboxinu fyrir absið. þetta er hægt með mikilli lagni og góðri loftpressu eða kolsýrukút. þú átt að geta fundið, annaðhvort hjá umboði eða á netinu upplýsingar um hvernig þetta er gert. ég gerði þetta einu sinni á hondu sem ég átti og fékk ég upplýsingar hjá hondaumboðinu í danmörku um hversu mikin þrýsting átti að setja á kerfið og í kvaða röð átti að hleypa af ventlaboxinu.
þetta er vinna fyrir þrjá menn, einn á bremsupedal, einn á ventlaboxið og einn á hjólin. sá sem er á ventlaboxinu stjórnar líka þrýstingnum inná kerfið.
í grófum dráttum er þetta þannig að þegar loftdælan eða kolsýrukúturinn hefur verið tengdur með þrýstingsmæli inn á einn ákveðin nippil á ventlaboxinu og þrýstingur settur á samkvæmt uppskrift. þá er pumpað einsog á venjulegum bremsum og lofttæmt en um leið er tiltekin ventill á ventlaboxinu stilltur þannig að réttur þrýstingur sé á móti og örugglega allt loft fari af ventlaboxinu. eins og ég áður sagði er þetta allt gert í réttri og ákveðinni röð samkvæmt upplýsingum sem þú byrjar á að afla þér.
bremsukveðjur siggias74
09.05.2007 at 11:15 #590638Spurningunni um það hvað maður á að kjósa á laugardaginn verður seint svarað fyrir aðra en mann sjálfan, og verður hver að kjósa eftir sinni sannfæringu. Þó hef ég séð að fyrir þessar kosninar virðist vera meira um óeðlilegan rógburð á málefni og að hluta til einelti í garð hinna flokkana sem í framboði eru, til að þvinga fólk til að kjósa ákveðna flokka sem í dag skipa minnihluta þingheims.
Hvern einasta dag má sjá blaðaskrif, eða heyra viðtöl við stjórnmálamenn og aðra frambjóðendur, sem snúast eingöngu um að skíta út Íslandshreifinguna og framsóknarflokkinn. Menn sem vanalega hafa hátt í viðtölum, froðusnakkar á alþingi og fyrrverandi ráðherrar koma hver á fætur öðrum og leggjast eins lágt og komist verður í að grennja út atkvæði á kostnað annara með dylgjum og óheiðarleika. Í gær grennjaði yfirfroðusnakkurinn, sjálfur Össur Skarphéðinnsson í viðtali á útvarpi Sögu, yfir því að íslandshreifinginn væri að eyðinleggja möguleika samfylkingarinnar á því að fella ríkisstjórnina og biðlaði til Ómars að draga framboðið til baka til að skemma ekki fyrir stjórnarandstöðunni. Samskonar biðlun til Ómars hefur áður komið úr röðu Vinstri Grænna, á sömu forsendum.
Frambjóðendur Vinstri Grænna komu fram í viðtali fyrir ekki svo löngu og grenjuðu yfir óheiðarlegum loforðum og slagorðum Framsóknarflokksinns, sömu frambjóðendur og hafa þó alla kosningabaráttuna notað meðal annars óvinsælasta slagorð í auglýsingaherferð á íslandi, geng Framsóknarflokknum og hafa líka skrumstælt slagorð framsóknarflokksinns þeim í óhag, samanber ,af hverju ekki ríkisstjórn með ZERO framsókn, og ,spillingu áfram-ekkert stopp,.
Í blaðinu í dag er grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrverandi félagsmálaráðherra, þar sem hún úthúðar Framsóknarflokknum fyrir það meðal annars að á síðasta ári hafi þeir hækkað tekjumark örorku og ellilífeeyrisþega og þeir lofi að hækka tekjumarkið enn frekar á næsta kjörtímabili. Þetta telur hún hreinasta kostningasvindl og Framsókn sé alls ekki trúandi til að standa við þetta því þeir hafi svikið áður gefið loforð um að tekjumark yrði hækkað árið 2009, með því að flýta því.
Fyrir þá sem eru ungir og muna ekki tólf ár aftur í tíman, og líka fyrir þá sem eru gamlir og muna ekki tólf ár aftur í tíman, þá langar mig að rifja upp svolítið sem gerðist þar á undan í félagsmálaráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur.
Fyrir fimmtán árum síðan fór ég að búa og tók mér húsnæði á leigu, þá var til kerfi sem hét verkamannabústaðakerfi og er meðal annars stór hluti árbæjarinns byggður upp í því kerfi. Einnig var hægt að fá leigt húsnæði á almennum markaði á viðráðanlegum kjörum fyrir alla, aðalega vegna þess að verkamannahúsnæðiskerfið hélt að hluta til niðri leiguverði, og einnig vegna þess að almenni markaðurinn var afskiptalaus af hálfu ríkisinns. Þá lagði Jóhanna nokkur til að leggja niður vekamannabústaðakerfið og hefja ríkisafskipti af almenna markaðinum með skattlagningum og endurgreiðslukerfi í formi húsaleigubóta. Þetta lagðist ekki vel í marga í þingheimi og varað var við því að þetta yrði til þess að húsaleiga yrði það há að erfitt yrði fyrir þá tekjulægstu að standa skil á húsaleigu. Þetta náði samt samt í gegn og varð að lögum. Og fyrir þá sem halda að síðurstu 3 til 4 ár hafi húsaleiga hækkað mikið á Íslandi þá skal ég segja ykkur að í kjölfar þessara breytinga sem Jóhanna lagði til þá hækkaði húsaleiga á einu bretti um 75 til 80% og hafa kjör þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu aldrei versnað jafn mikið á einu bretti og gerðist þarna fyrir tilstilli þeirra sem jöfnuð vilja í þjóðfélaginu. Þetta varð meðal annars til þess að tími Jóhönnu Sigurðardóttur kom aldrei.
Einnig var undir stjórn jafnaðarmanna sem þá hétu Alþýðuflokkurinn en nú heitir samfylkingin, ráðuneyti nokkurt er kallast heilbrigðisráðuneyti. Þar var líka í stjórnartíð jafnaðarmanna fyrir tólf árum síðan lagðar niður niðurgreiðslur ríkisinns á tannréttingakostnaði barna. Eitt af því sem jafnaðarmenn lofa á komandi kjörtímabili að koma á ef þeir fara í ríkisstjórn er að niðurgreiða tannlæknakostnað, og tala um þvílíkur ójöfnuður fellst í að gera það ekki, ójöfnuðurinn sem sjálfur jafnaðarmannaflokkurinn kom á á sínum tíma.
Einnig voru í heilbrigðisráðherratíð hafnaðarmanna, ástandið á spítölum landsinns með því versta sem þekkst hefur, biðlistar og fjárskortur sem aldrei fyrr og síðar. Þetta er flokkurinn sem vill að við treystum sér til að koma á jöfnuði í þjóðfélaginu.
Háttvirtur formaður jafnaðarmanna sjálfur kvennskörungurinn Ingibjörg Sólrún talar látlaust um hverjum er treystandi og hverjum ekki, eitt er víst henni er ekki treystandi og sýndi hún það þegar hún hætti sem borgarstjóri og sveik þar með sitt eigið loforð til borgarbúa. Þetta er augljóslega eina ástæðan fyrir því að í skoðanakönnunum er samfylkinin í hennar kjördæmi engöngu með 12% fylgi og sjálfstæðisflokkurinn með 60% fylgi.
Samfylkingin leggur einnig til og lofar jafnrétti kynjana, flokkurinn sem í dag kom út í skoðanakönnun með versta niðurstöðu hvað varðar jafnrétti í þingflokknum og forustusætum hanns. Aðeins ein kona á móti fimm körlum í forustusveit flokksinns og 56 konur á móti 68 körlum í þingflokknum. Þetta er flokkurinn sem vill að við treystum sér til að koma á jafnrétti kynjana.
Hverjum treystir þú?Siggias74
X-B
09.05.2007 at 08:54 #589440vírar sem tengjast í gegnum perur til jarðar mælast nefnilega sem jörð með ohmmæli, svo lengi sem perurnar eru heilar.
08.05.2007 at 10:16 #590598barbara, hvað eru þumalskrúfur?
kveðja siggi vitlausi, sem veit ekki hvað þumalskrúfur eru
08.05.2007 at 09:51 #590594enda vissi ég það alveg fyrir, þurfti ekkert að taka þetta próf. það er samt gaman að sjá þegar maður er samkvæmur sjálfum sér.
exbékveðja siggias74
08.05.2007 at 07:58 #589436átt þú ekki að vera að smíða brýr með villa frænda, svo að við hinir getum ekið um landið okkar á þjóðvegi 1.
þú hefur örugglega gert einhverja djö….. vitleysu þegar þú tengdir tækið í bílinn, skamm skamm. þú átt þér þó til málsvarnar að hafa verið að skipta helvítis sóní tækinu út með eðal pæjóner og hafa gert það á þessum árstíma þegar bjart er úti og engin þörf fyrir kastara.
vírakveðja siggias74
02.05.2007 at 18:17 #590000þar sem að ég er með vhf stöð.
ég þarf að greiða 2300 kall til ust fyrir að fá að skjóta gæs í túninu hjá foreldrum mínum, það er péningur sem ég get ekki séð að komi mér nokkurstaðar til hagsbóta.
það er margupptalið í þessum þræði allt sem er mér til hagsbóta fyrir félagsgjald í f4x4 og sé ég ekkert eftir því að greiða minna en ég áður gerði fyrir veru mína í félagsskappnum. ég er samt í hópi með þeim sem aldrei hef notfært mér skála félagsinns, fer mjög sjaldan í ferðir og aldrei farið á árshátíð eða sumarhátíð. þó sé ég fram á að geta fljótlega minkað við mig vinnu og farið að sinna áhugamálinu betur.
af öllu því sem upp hefur verið talið að sé inni í félagsgjöldunum er þó fréttaritið setrið til bölvaðra vandræða fyrir mig, því af einhverjum ástæðum fæ ég bara aldrei setrið og er ekki búin að sjá neitt af því sem út kom nú í mánuðinum frekar en önnur setur sem komið hafa út á þeim þremur árum sem ég hef verið í klúbbnum. ég hef margoft imprað á þessu og fengið samúð og afsökunarbeiðnir, en samt fæ ég aldrei setrið. undarlegt! ég var meira að segja að spá í að bjóða mig fram í ritnefnd þar sem að þar vantar kandidata, það gæti verið eina leiðin fyrir mig að fá þetta ágæta rit að skrifa það sjálfur.
seturslaus siggias
02.05.2007 at 17:32 #590172ég sá einn svona fj cruser á götunni um helgina. einlitur svartur með svartar rúður, það fór honum nokkuð vel.
30.04.2007 at 20:33 #589662í top gear í gær var verið að prufuaka benz með 4,3 lítra vél með tvin turbo, heil 520 hross sem sú vél skilaði og sparneytnari en toyota prius, með bensín/rafmagnsvél.
hvar eru díselkallarnir núna?
30.04.2007 at 17:54 #589874ég skil ákvörðun þína mjög vel og er þetta nákvæmlega sama ástæða og veldur því að ég hef ekki gefið kost á mér í nefndir innan klúbbsinns eins og ég ætlaði svo sannarlega að gera.
vonandi fer allt á besta veg og í stjórn og nefndir veljast menn sem hlúta öllum lögmálum hinna heilögu, svo komandi ár verði friðsælt og gott.
29.04.2007 at 18:39 #589676þar sem að ég bjó í danmörku í nærri 5 ár, þá fékk ég nokkra innsýn í hvernig farsímakerfi þar eru uppbyggð.
í danmörku er "allt landið" dekkað með 900 mhz gsm kerfi og svo á stórbæjarsvæðum er dekkun með 1800 mhz gsm kerfi. í kerfinu eru þó glufur og dauðir blettir eins og sjá má [url=http://telia.dk/privat/produkter/mobil/daekning/:xwcor2xe][b:xwcor2xe]á þessu korti[/b:xwcor2xe][/url:xwcor2xe] þar sem öll gráu svæðin eru dauð svæði og öll ljósbleiku svæðin eru það slöpp að ekki er reiknað með að náist með síma innandyra, eða innan úr bíl eða lest.
ekki er hægt að nota sérþjónstur símfyrirtækja nema þar sem er 1800 mhz gsm kerfi, semsag á kaupmannahafnarsvæðinu í odense og austurströnd jótlands.
þegar maður ók um danmörk var alveg ótrúlegt hversu oft síminn datt út. þá sérstaklega á mið og norðurjótlandi og suðurfjóni. þó erum við þar að tala um byggð svæði og danskt landslag.
miðað við hversu erfitt er að dekka danmörk með gsm neti þá fynnst mér ísland nokkuð vel dekkað, þó langt sé í land með að óbyggð svæði og fámenn svæði séu dekkuð. þetta virðist þó vera á áætlun að gera betur í bæði farsímamálum og nettenginum.
að mínu mati hefur því sturla nokkuð rétt fyrir sér, og nöldrið í blessuðum stengrími vinstri græna kannski rétt líka en þó eins og allt annað sem vintri grænir eru að lofa fyrir þessar kostningar hlutir sem búið er að negla fast á áætlun eða bjóða út til framkvæmda nú þegar.
áfram x-b
26.04.2007 at 08:32 #589430ég myndi taka rafgeymin úr og rafgeymasætið losað úr með 4. boltum. þar undir eru nokkur víraöryggi, þas ekki öryggjabox heldur bara öryggi á vírum. þar er einmitt öryggi sem er fyrir park og mælaborðsljós. þetta var svona í 93 módeli af mmc sem ég gerði einu sinni við, það er kannski búið að breyta þessu í nýrri bílum en einföld aðgerð og vert að reyna.
annars ætti bíllinn að vera í ábyrgð ef hann er ekki ekinn þeim mun meira, og gott að fara í heklu og níðast á þeim, ef bilunin er ekki þeim mun einfaldari.
kveðja siggias rafmagnaði
17.04.2007 at 12:47 #587940hérna ert þú guðjón farin að sjá hillingar í díselbrælunni.
þú gefur upp réttar tölur fyrir 5,7 hemi orginal en gefur svo upp tölur fyrir tjúnaðan cummins og ruglar svo saman Nm og lb/ft cummins er gefin upp samkvæmt þessari síðu [url=http://dodgeram.org/tech/dsl/Facts/96specs.html:syt015re][b:syt015re]hér[/b:syt015re][/url:syt015re] í sjálfskiptum bíl 175 hp og 375 lb.ft og hámarks snúningsvægi 2700 rpm. á 1500 rpm er hún að skila 425 lb.ft togi en enungis 130 hp.
eins og sjá má á þessari síðu
[url=http://www.allpar.com/mopar/new-mopar-hemi.html:syt015re][b:syt015re]hér[/b:syt015re][/url:syt015re] um 5,7 og 6,1 hemi vélarnar þá skilar 5,7 hemi eða 350cid 345 hp og 375 lb.ft og hámarkssnúningsvægi er 6000rpm. 6,1 hemi eða 383cid 425 hp og 420 lb.ft og hámarks snúningsvægi um 5000 rpm.
ég vel hiklaust bensín þegar ég sé þennan samanburð. einnig hef ég samanburð af egin raun í aksjón. bæði hef ég átt og ekið diselbílum og bensínbílum af sömu stærðarflokkum og þá af léttari gerðinni og millivigt. ég hef enga reynslu af vörufluttningabílum og ég efast ekki að díselrokkur er betri kostur í slíka bíla.
15.04.2007 at 10:56 #5873644,3 vortec er með innspítingu og tölvum, þannig að það er ekki það sem þú ert að leita að. ég mæli með 383 chevy small block. fislétt vél flestar með blöndung. 350 – 400 hestar 550 nm tog. þetta er sú bensínvél sem skilar mestu miðað við þyngd og stærð. hún er byggð upp á 350 blokk og bori en með sveifarás úr 400, sem gerir hana slaglengri og torkmeiri. hún heldur samt smurgöngum og kæligöngum sem ekki er í 400 vélinni þar sem að þar er búið að stækka borið á kostnað olíu og kælivatns ganga sem líka þurfa að rúmast fyrir í heddinu. suðuvandamál var alltaf viðloðandi 400 vélina en þekkist ekki í 383 ef allt er rétt monterað.
13.04.2007 at 08:07 #587828frábær umræða.
af hverju er yfirleitt ekki sett lolo í bensínbíla, en alltaf í díselbíla? þegar díselbíllinn togar svo svakalega að hann ætti að labba hvað sem er án lolo.
af hverju er langsöluhæsti díselbíllinn 2,8 patrol þegar það er vél með gamla og lúna hesta og ekkert tog? kaupa menn sér bíl með ónýta vél og réttlæta það með því að 6 lítra dísel sé svo góð?
það er engin að rengja það að það er til haugur af góðum díselvélum. þær eru bara flestar stórar, þungar og fokdýrar. þessi umræða byrjaði á því að spurt var hvort ætti að setja bensín eða dísel í hilúx. að mínu mati og margra annara er bensín ekki spurning í þessu tilfelli, léttur bíll þarf létta og kraftmikla vél. v6 toyotavél er ekki í þeim flokki.
hérna koma fullt af mönnum og segja að það sé ekki spurning að setja dísel í hilux 6 lítra ford eða 6,6 lítra duramax séu svo góðar. þessi skoðun sannar að díselkallarnir sjá bara hillingar í gráum díselmökknum úr egin bílum og réttlæta það að aka um á grútmáttlausum grútarbrennurum sé best af því að við sjóndeildarhring sé svo góð díselvél. þetta minnir á ýmis trúarbrögð, að lifa eftir því sem er hinumegin við móðuna.
kveðja siggias trúleysingi.
12.04.2007 at 13:40 #587792það er gaman að sjá þegar menn tapa sér í pælingum um það hvort sé betra í jeppa, bensínvél eða díselvél.
niðurstaðan er alltaf sú sama, bílaeigendur skiptast í tvo hópa, annars vegar menn sem sjá ekki sólina fyrir díselrokkum og sjá bensínvélum allt til foráttu. og svo hinir sem aka um á bensínbílum og þurfa ekkert að hafa áhyggjur af túrbóþrýsting, afgashita og öllum öðrum leiðindarvandamálum sem fylgja díselvélum.
hérna segja menn að ekki megi bera saman epli og skemmda banana og bera svo saman annars vegar 6 til 7 lítra díselvélar upptjúnaðar eins og hægt er með tölvukubbum og túrbínum og venjulegar 4 til 5 lítra bensínvélar orginal og túrbínulausar og segja að ekki sé hægt að láta sér dreyma um að ná bensínvélunum í 500 hesta og sama tog og díselvélar.
nýja útfærslan á gömlu 383 chevy sem er 5,7 lítra vélin í nýja jeep, er að skila sambærilegu og 6 lítra díselvélin í fordinum hanns benna formanns, og er samt ekki að nota nema 15 lítra af bensíni á 100 km í venjulegum akstri. hún er líka túrbínulaus þannig að hægt er að fá meira útúr henni. þetta er vél sem er 200 kílóum léttari en 6 lítra disel og reikna ég með að hún þurfi einhverju milljónum króna minna viðhald til að duga 200 til 300 þúsund kílómetra akstur.
það er af sem áður var að díselvélar dygðu milljón kílómetra akstur nánast án viðhalds og bensínvélar voru góðar ef þær náðu 200 þúsund km. núna eru bensínvélar yfirleitt endingarbetri en díselvélar, en á móti eru díselvélar orðnar sambærilegri í hestöflum léttleika og eyðslu.
akureyringurinn segir að gæði góðra díselvéla megi meta útfrá því að þeir sem fá sér land crúser með díselvél detti ekki til hugar að skipta yfir í bensín. þetta er að mörgu leiti rétt, en það eru líka til menn sem eiga land crúser með 8 gata bensín og dettur ekki til hugar að skipta yfir í dísel.
hér var nefnt að léttleikin skipti máli. auðvitað gerir hann það, menn smíða sér stakk eftir veksti. það væri óðs manns æði að ætla að setja 6 lítra díselvél í hilux. bíllinn væri alltaf á nefinu með 500 kíló í húddinu. 5,7 lítra bensín væri BARA GAMAN að hafa í hilúx, þá væri líka hægt að hafa tengdamömmubox fullt af drasli á toppnum og bíllin væri samt léttari en með 6 lítra díselvél og eyddi minna eldsneiti.
kveðja siggi bensínkall og hef bara gaman af því.
11.04.2007 at 08:22 #584804gamli sauðkræklingurinn og þórður hafa alveg hárrétt fyrir sér.
ég lenti í tjóni fyrir 16 árum síðan, þar sem að í blindhríð við skullum beint framan á hvorum öðrum, ég og annar ökumaður, þetta var að mínu mati alveg púra 50/50 tjón og var dæmt þannig í byrjun. en hinn ökumaðurinn kærði úrskurðinn og reyndi allt til að fá dæmt sér í hag, laug því meira að segja að hann hefði verið kyrrstæður en öll gögn bentu til að svo hefði ekki verið. einnig vildi hann meina að ég hefði farið yfir á hanns vegarhelming en aftur bentu öll gögn til að svo hefði ekki verið. í þriðju tilraun tókst honum að fá sér dæmt í hag útá það að ég var á ónegldum dekkjum, þó svo að engin hálka hafi verið á vettvangi, bara afþví að það var miður febrúar.
þannig að ég tala af egin raun.
-
AuthorReplies