FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Ásmundsson

Sigurður Ásmundsson

Profile picture of Sigurður Ásmundsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 488 total)
← 1 … 3 4 5 … 25 →
  • Author
    Replies
  • 21.01.2008 at 18:41 #610330
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Hérna er skotið hægri, vinstri og þessi ferð og allt skipulag í kringum hana krítiserað löngu áður en ferðin er farin.
    Ég er algjörlega sammála því eftir þessa ferð að eftir sem hópurinn er stærri þá fer hann hægar yfir. Því ráðlegra að minni hópar geri sín eigin ferðaplön og heildin hittist svo á áfangastað.
    Eins og Stefanía bendir á þá stjórnast fjöldi þáttakenda í svona ferð af mörgum þáttum, meðal annars skálaplássi. Það var opinberað í upphafi að skálar í Kerlingafjöllum væru orðnir fullir og því kæmust ekki fleirri með. Því skyl ég ekki þá umræðu sem hér hefur farið fram, þetta er nákvæmlega sama staða og kemur upp í flestum þeim ferðum sem skipulagðar eru af klúbbnum, hvort sem um nýliðaferðir eða annað er að ræða. Að taka því sem móðgun þegar auglýstur er áætlaður tími á athöfninni við miðjuna og að hver sem er megi mæta, er mér einnig óskyljanlegt. Það er fullt af skálum allt í kringum Hofsjökul og hver sem er hefði getað skipulagt frábæra ferð og jafnvel miklu betri ferð heldur en að hanga í röð yfir 20 bíla sem meira og minna eru með brotin drif, læsingar eða felgur og ferðahraðinn því undir 1 km/h. það er nefnilega mikill miskylningur að halda að meðlimir stjórnar og nefnda búi yfir besta bílaflota landsinns. Gott dæmi um það er að aðeins einn bíll stjórnarmeðlims var gangfær um þessa helgi, og þeir bílar sem voru með eilíf vandamál voru í eigu nefndarmanna.
    Kveðja Siggi
    PS. Benni þar sem að ég ber titilinn sófariddari klúbbsins, allavega fram að næstu árshátíð, langar mig að svara þessu innslagi frá þér.
    Ég fór í þessa ferð og mynnist þess ekki að ég hafi verið til mikilla trafala:)





    21.01.2008 at 17:01 #610908
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég vil þakka öllum ferðafélögum helgarinnar fyrir frábæra ferð og sérstaklega Þorgeiri fyrir að vera úrvals kóari, ég lærði markt af honum, en ég bjargaði honum úr tábrotnum Dodge Ram.
    Ég ætla ekki að skrifa neina ferðalýsingu enda flest það komið fram sem koma þarf fram, þó langar mér að minnast á síðustu metra ferðarinnar, þar sem ég og Þorgeir á 38 pajero, Róbert með restina af fjölskyldunni hans Þorgeirs á 38 patrol, Maggi og Íris á 44 patrol og svo unga fólkið á 38 Tacoma (sem ég man því miður ekki nöfnin á) rákum lestina. Frábær hópur sem læddist þetta af öryggi í gjörsamleg ónýtum förum eftir hina heilögu þrenningu (Formannshjónin, TNT og Algripshjónin) sem voru bundin saman alla leiðina heim vegna óteljandi vandamála í þeim síðastnefndu. En svona til að lýsa í stuttu máli aðstæðum þá voru förin eftir síðasta bíl á undan okkur eins og skotgrafir enda harðpumpað í öll dekk og bíllin framdrifslaus og lágu þvers og kruss útaf og útum allt. En eins og gengur og gerist með bíla í snjó þá leita þeir alltaf í för og fór mestur tíminn og vinnan í að hjakka sig upp úr skotgröfunum svo maður endaði ekki útaf.
    En eins og ég áður sagði þá fórum við þetta af öryggi, engar bilanir og hæfilega margar festur. Frábær hópur sem kvartaði ekki yfir neinu og komumst öll til byggða undir morgun.
    Kveðja Siggi sófariddari.





    17.01.2008 at 08:44 #201640
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Það verður opið hús í mörkinni í kvöld.
    Ég sé til þess að á könnunni verði bleksterkt kaffi til að dreypa á.
    Ef einhver á myndefni frá merkisviðburðum undanfarinna vikna sem gaman væri að deila með öðrum klúbbsmeðlimum er tilvalið að mæta með myndefnið í mörkina í kvöld.

    Kveðja
    Siggi
    Ritnefnd.





    09.01.2008 at 00:54 #609702
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Sá sem hefur augastað á að verða næsti útnefndi sófariddari ferðaklúbbsins fær slóðrík fyrir hnakk, má vera notaður og vodkapela, má ekki vera notaður.
    Heppinn hugsanlegur eigandi má vera nokkuð öruggur með að komast aldrei á fjöll. Hann þarf að vera frekar laginn við að skipta um gírkassa og millikassa og verður að vera lipur að skríða því ekki er hægt að komast afturí nema skríða aftur á milli framsætanna.
    ps. ég held að nýr eigandi væri betur settur með vodkapelann sjálfur. Fær hann ekki afslátt, notaður hnakkur og málið er dautt.
    Heimildaskrá.
    S eins og sætur
    l eins og liðugur
    ó eins og óður
    ð eins og ðe kreisí bastard
    r eins og rennilegur
    í eins og heyrist í hurðalömunum
    k eins og kemst allt
    u eins og unglamb
    r eins og ríkur af stað.





    09.01.2008 at 00:16 #609692
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Þú ert semsagt farinn að leita þér að jeppa, búinn að gefast endanlega upp á því að komast ekki yfir Hellisheiði án bilana.
    Gangi þér vel að finna bíl með einn eiganda á ári, sem hefur verið reykt í frá upphafi, með útvarpi og segulbandi sem staðalbúnaði og opnanlegan afturhlera.
    Kveðja Siggi





    08.01.2008 at 18:39 #609596
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    samkvæmt pésanum sem fylgdi með nroute sem ég keypti mér fyrir jól á það að gerast átómatik þegar maður les punkta á milli tækja. En spurningin er hvað gerist ef punkturinn er settur inn handvirkt, stendur ekki svo mikið um það í pésanum, en ég get ímyndað mér að þá seti maður punktana inn með tækið stillt á Hjörsey 1955 og breyti svo stillingunum yfir í WGS84 og barbabrella.





    07.01.2008 at 12:00 #609192
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Að jeppamenn færu að mótmæla háu eldsneytisverði yrði svipað árangursríkt og ef offitusjúklingur færi að mótmæla háu verði á pizzum.
    Stjórn 4×4 stóð fyrir lækkun eldsneytisverðs til félagsmanna þegar þeir sömdu við Shell um að lækka álagninguna til félagsmanna.
    Það er mín skoðun að stjórn eða ferðaklúbburinn eigi ekki að standa fyrir mótmælum sem slíkum á nafni klúbbsins, heldur taka frekar þátt sem stuðningsaðili í mótmælum td. flutningsaðila, þar sem að hækkun olíu stuðlar að hækkun á öllum þeim vörum sem flytja þarf og kemur þannig við buddu okkar jeppamanna sem og annara íslendinga.
    Skattlagning ríkissjóðs á eldsneyti er allt of há og má sjá á tölum að einungis 1/5 af þeim tekjum sem ríkið hefur af eldsneyti fer til vegamála. Rök þau sem einu sinni voru gefin fyrir þessari skattlagningu voru þau að þannig væri meiri jöfnuður í þjóðfélaginu vegna þess að efnaðari menn ættu eyðslufrekari bíla. Að öðrum kosti þyrfti að jafna þessar tekjur ríkisins jafnt á alla, ríka sem fátæka. Þessi rök eru fjarstæða og ýtir frekar undir það að einungis ríkara fólk megi ferðast útfyrir það svæði sem er fært yaris. Þar að auki hækkar þessi mikla skattlagning á eldsneyti vöruverð almennt, sökum hærri flutningskostnaðar.
    því er ég sammála mörgum hér að jeppamenn sem og allir aðrir landsmenn þurfi að standa höndum saman um að berjast fyrir því að skattlagning á eldsneyti verði færð niður um 4/5 eða niður í þá fjárhæð sem fer til vegamála. Ég er hinnsvegar ósammála því að ferðaklúbburinn 4×4 eigi að standa í slíkum mótmælum á nafni klúbbsins eða stjórnar hanns.
    kveðja Siggi





    05.01.2008 at 10:57 #609038
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    svona usb mús þarf straum frá tölvunni, er ekki með eigið power supply. því dettur mér í hug að usb tengin séu stillt á að spara straum og því virki usb músin ekki.
    prófið að "control panel" "system" "usb controlers" "usb root hub" hægriklikka "properties" þar getið þið flett upp á power þá sjáið þið hvort usb tengið er að gefa músinni straum, ef 0 mA þá enginn staumur. þá getið þið flett uppá "power management" og tekið hakið úr "turn off to save power" prófið svo.
    kveðja siggi





    03.01.2008 at 10:28 #607960
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Á sá hinn sami þá líka að bera tapið ef auglýsingasala er undir væntingum? Á hann þá líka að sjá um innheimtu auglýsingatekna sjálfur?
    Að selja auglýsingar og safna styrkjum fyrir klúbbinn er eitt það erfiðasta verkefni sem ég hef lent í. Maður var rétt nýbúinn að selja auglýsingu til fyrirtækis, þá var valtrað yfir fyrirtækið hér á spjallinu og í kjölfarið dró fyrirtækið auglýsingakaupin til baka. Einnig lenti ég í því að svara fyrir skítkast og afhroð sem hin ýmsu fyrirtæki hafa þurft að sitja undir hér á spjallinu í gegnum tíðina.
    þess vegna segi ég að auglýsingasala fyrir þetta Setur fór langt fram úr væntingum og ekki verður hægt að treysta á að sum fyrirtækin kaupi auglýsingar aftur. Þó fer það eftir því hvernig yfirskítkösturum klúbbsins tekst til að drepa mannorð fyrirtækja á þessu ári, en þeim gekk ágætlega til í lok síðasta árs.
    Þar fyrir utan má reikna með að ef einhver aðili hagnast á eða hefur tekjur af útgáfu Seturs þá fái hann virkilega að kenna á skítkösturum klúbbsins sem aldrei fyrr.
    kveðja
    Siggi





    03.01.2008 at 07:23 #608418
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ef að honum hefur verið stolið þá er það allavega nokkuð ljóst að þjófurinn hefur ekki komist inn um afturhlerann.
    Af reynslu síðustu langferða þeirra félaga Ofsa og Slóðríks má líka ætla að hann komist ekki langt, væntanlega með brotin drif millikassa og gírkassa skammt utan bæjarmarka.
    Nýjarskveðja siggi





    02.01.2008 at 14:21 #607942
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Útgáfa Setursins hefur verið rekið með bullandi tapi fyrir klúbbinn undanfarin ár og raddir sem vilja leggja þetta bákn niður verða sífellt háværari. Þess vegna ákváðum við að fara í þetta verkefni með fyrirvara um að það væri ekki gert með tapi.
    Að borga utanaðkomandi aðila fyrir að gera Setrið get ég ekki ímyndað mér að væri annað en nokkra milljóna króna útgjöld fyrir klúbbin, sem seint væri hægt að réttlæta.
    Þrátt fyrir rífandi góða auglýsingasölu gerði það lítið meira en að borga prentun og dreifingu.
    Nánar ætla ég ekki að fara útí fjármál ritnefndar eða klúbbsins á opnum vettvangi, farið verður yfir þetta á aðalfundi í vor.
    kveðja
    Siggi
    Ritstjóri





    01.01.2008 at 23:20 #608488
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    alltílagi að eyðinleggja hvern þráðinn á fætur öðurm með drullu og leiðindum af því að gísli þ gerði það einhverntíman.
    er ekki kominn tími til að hér rúlli skítkastlaus þráður.
    alltílagi að láta skoðun sína í ljós um hversu viturlegt það var að halda á jökul undir þessari veðurspá, enda þráður um það efni komin í 30 pósta hér undir öðru nafni. þessi þráður byrjaði sem þakkir fyrir hjálpina við að ná í bílana og upplýsingar um gang mála. spurninginn hvaða vettvang maður notar til að drulla yfir ákvarðanatökur og skoðanir fólks.
    annars til hamyngju með að svaðilförin endaði vel og gangi ykkur vel að nálgast síðasta bílinn
    Nýárskveðja siggi





    01.01.2008 at 20:22 #607938
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    það er alrangt Pálmi að stjórn hafi séð alfarið um þetta Setur. Setrið er búið að vera í fullri vinnslu ritnefndar síðan í mai, eða þegar ritnefnd samþykkti tillögu mína um að gefa út veglegra rit en hingað til, ef til þess fengist styrkur í formi auglýsinga.
    Strax í júlí var það ljóst að auglýsingasalan sem ritnefndin stóð fyrir, hefði farið fram út öllum vonum og hráefnissöfnun fór af stað. Notaði ég lungan úr sumarfríinu mínu í að skrifa og sanka að mér upplýsingum frá nefndum og deildum með mikilli hjálp starfsmanns klúbbsins. Efni sem leitað var eftir barst seint og sumt aldrei og þegar líða fór að landfundi ákváðum við að setja ritið í uppsetningu og prentun með því efni sem komið var, sem við gerðum. Því miður vorum við lent á háannatíma prentsmiðjunar sem gerði það að verkum að útgáfan tafðist enn frekar eða um 4 vikur til viðbótar.
    Þegar hérna er komið til sögu var próförk send til ritnefndar og stjórnar og þótti litlaus og ekki innihalda nóg og mikið af skrifuðu efni. Nú var tíminn orðin mjög naumur og við að falla á tíma við þá sem höfðu keypt auglýsingar í ritið og félagsmenn sem margir voru bíðandi langeygir eftir næsta Setri.
    Þarna tók Jón Snæland af skarið og hóf að sanka að sér meira efni í blaðið. Ég og Jón settumst svo niður fyrstu vikuna í Desember og skoðuðum það efni sem bæst hafði við til viðbótar, samþykktum herlegheitin og sendum allt í uppsetningu í annað sinn og prentun í framhaldi af því mánudaginn 17 Des. Starfsmaður klúbbsins fór svo miðvikudaginn 19 Des og leysti blaðið úr prentun og setti í pökkun og póst.
    Eins og sjá má á þessari atburðarás gekk allt mjög hratt á siðustu stundu og var Jón driffjöðurin í því og á heiður og þakkir skyldar fyrir.
    Þetta er í fyrsta skipti sem ritnefndin ræðst í svona stórt verkefni og má segja að vaðið hafi verið útí óvissuna. Núna á nýju ári verður svo tekin ákvörðun um það hvort svona stórt og veglegt Setur verði gefið út aftur og ef ákvörðunin verður sú þá vitum við allavega hvað við erum að gera, hversu mikil vinna og mikill tími fer í það og síðast en ekki síst hvenær ógjörningur er að komast að hjá prentsmiðjum fyrir jólabæklingum. Einnig verður gaman að geta leitað til þín Pálmi eftir hjálp því öll hjálp er miklu meira en vel þegin.
    Nýárskveðja
    Siggi
    ritstjóri Seturs.





    30.12.2007 at 17:47 #608128
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    ég heyrði bestu sögu sem ég hef heyrt nokkurntíman í Kringlunni, þeirri ágætu verslunarmiðstöð, í hádeginu.
    þar voru tvær ungar stelpur að tala saman og sagði önnur að pabbi sinn hefði farið í alvöru flugelda og verslað fyrir áramótin slatta af dóti í gær. í nótt fylltist kjallarinn á húsinu þeirra af vatni og kalla þurfti til björgunarsveit til að hjálpa til við að bjarga því sem bjarga varð í húsinu. í dag er pabbinn að drepast úr samviskubiti yfir því hvar hann verslaði sína flugelda fyrir þessi áramót.
    þessi saga sýnir að björgunarsveitir eru langt því frá að vera eintómir strákar með ævintýraþrá sem vita ekkert skemtilegra en að komast frítt út að leika sér á tækjum björgunarsveitana eins og einhver orðaði fyrr í þessari umræðu.
    væntanlega verslar þessi maður hjá björgunarsveitum að ári.





    24.12.2007 at 16:38 #607648
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég vil nota tækifærið og þakka sérstaklega Nessu og Ofsa fyrir hjálpina við að koma þessu Setri heim og saman. Einnig vil ég hrósa Birgi fyrir að láta þetta líta svona vel út. Að lokum vil ég byðja Skagfirðinga afsökunar á að þeir eru ekki á listanum yfir landsbyggðardeildirnar, vegna þess að þeir komu með yfirlýsingar á landsfundinum um að þeir ætluðu að yfirtaka móðurfélagið, kom þessi villa til :)
    jólakveðja
    Siggi Ritstjóri.





    24.12.2007 at 16:32 #607538
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    gleðileg jól allir jeppamenn og konur, takk fyrir samstarf og samverustundir á árinu.
    kveðja Siggi





    21.12.2007 at 12:05 #607450
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    mig minnir að þeir séu 1 1/2 tomma
    reyndar eru til nokkrir pajeroar, aðalega þó eldri bílar 91 til 95 sem eru lægri á boddý þas. að sumir bílar og flestir nýrri voru fluttir inn með boddýlift frá verksmiðju. minn bíll er svoleiðis, athugaðu það áður en þú ferð eftir mínum ráðleggingum





    21.12.2007 at 10:48 #607446
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    þegar ég setti 35" undir pajeroinn minn, skrúfaði ég upp um nokkra hringi að framan, setti klossa frá málmsteipunni Hellu að aftan kostuðu 8000 kall. lamdi nokkrum höggum með slaghamri í frambrettið að neðst ca. 3 cm, mæli þó með að klippa þessa 3 cm burt, kom svolítil spenna í brettið þegar ég var búinn að lemja það til. klippti ca. 3 cm úr stuðarahorninu að framan og that´s it. tók ca. 4 klukkutíma.





    18.12.2007 at 09:10 #606974
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    spurt var hvað ætla klúbbsmeðlimir að fá sér sem öryggisfjarskiptatæki þegar slökkt verður á NMT símkerfi.
    nokkuð ljóst er að einar og benni ak…… ætla ekki að fá sér tetra.
    mér finnst það aftur á móti bara frábært að neyðarlínan skuli bjóða okkur uppá þennan möguleika að fá að nota þetta kerfi ef við höfum áhuga á því, það er langt frá því að vera sjálfsagt. það skildar engin okkur að nota kerfið þó svo að möguleikin sé til staðar. það skildar okkur heldur engin annar en neyðarlínan að nota kerfið ekki og því segi ég til ykkar postulana stop the crap.
    ríkið eða ríkisstofnun eins og neyðarlínan má ekki undir nokkrum kringumstæðum veita almenningi aðgang að símkerfi í samkeppni við einkarekin símfyrirtæki. en að fá aðgang að talstöðvarkerfi eins og tetra sem verður með nokkuð góða dreyfingu, stöðuga áhlustun af neyðarlínunni og því milliliðalaust neyðarútkall með nákvæmri staðsetningu er að margra mati nauðsinlegt. ef að þið postularnir viljið ekki nýta ykkur það þá er það bara ykkar mál ekki satt.
    ekki er verra að hafa möguleikan á að hringja líka í þig benni og segja þér að baka pönsur, þegar maður er á leið til akureyrar yfir hálendið. þú bara ekki frekar en nokkur annar þarft að vita hvort að maður hringir úr tetra talstöð eða irriterandi annarskonar símtækjum.
    kveðja siggi
    ps. ég fæ mér ekki tetra nema þá bara til að spandera péningum í vitleysu eins og allt annað í okkar sporti.





    17.12.2007 at 20:06 #606944
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    getur einhver sagt mér hvað í okkar skemtilega áhugamáli er ekki péningasóun. ég er sammála einari um að Tetra sé péningasóun en það eitt finnst mér auka líkurnar á að maður fái sér eina slíka, þó svo að dekkunin verði undir væntingum eða lokað á notkun í tíma og ótíma sökum neyðaraðgerða. CDMA verður örugglega líka keypt einhverntíman, þó að kerfið verði aldrei virkjað á íslandi, þá verður það bara enn meiri péningasóun. VHF kerfið okkar hinnsvegar er til staðar og það virkar mjög vel, komin á það mikil reynsla og notendum sífellt að fjölga, rásum er líka að fjölga sem ætti að svara meiri notkun. því vil ég að við hugsum vel um okkar góða kerfi og höldum því við, það kemur aldrei neitt annað kerfi sem býður uppá fjöldasamtöl kristaltært, margar rásir, alltaf opið og nær á mjög stóru svæði til byggða ef eitthvað bjátar á. HF dekkar kannski betur en yfirleitt þarf mikla athygli til að skylja hvað er verið að segja og aðeins ein rás sem leifilegt er að nota þannig að ef notendum fjölgar þá verður kerfið ónothæft.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 488 total)
← 1 … 3 4 5 … 25 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.