FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Ásmundsson

Sigurður Ásmundsson

Profile picture of Sigurður Ásmundsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 488 total)
← 1 … 20 21 22 … 25 →
  • Author
    Replies
  • 24.06.2006 at 11:12 #555102
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Hæ benni.
    Hvað kom útúr heimsókn þinni í Heklu í gær? Ertu að fara að fá þér nýjan Pajero?





    23.06.2006 at 17:00 #555100
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég held nú að MR. Nissan sjálfur hljóti að hafa eitthvað með þessa ákvörðun að gera, því það er jú framleiðandinn sem borgar brúsan en ekki umboðsaðilinn.
    Svo er það nú staðreynd að þegar bíl er breytt fyrir 44" þá er aukið álag á þrifbúnað og vélbúnað, og einnig er vanalega fýrað aðeins upp í kolakatlinum.
    Þannig er megnið af búnaði bílsinns eitthvað breytt. Kannski ekki þurkumótorum, en á rafkerfið er búið að setja ýmsan búnað aukalega og td. altanator undir hámarksálagi yfirleitt.
    Hinns vegar fynnst mér blóðugt að ekki sé hægt að sannfæra MR. Nissan um að framleyða sjálfur þann aukabúnað sem til þarf til að breyta bílnum. Ég held td. að Mitsubishi framleiði ýmsan búnað sem notað er í Pajero þegar þeim eðalbílum er breytt fyrir 44". Flest allt nema milligírinn, boddýhluti og rafsuðuvinnuna. Ég veit allavega að það er í boði frá framleiðanda, hvort það sé notað er allt annað mál og virkar þar til það kemst up. Þá neita Mitsubishi örugglega ábyrgð líka ein og nissan.





    23.06.2006 at 00:15 #555042
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég hef heyrt að 2004-5 og 6 vélin sé ekki ennþá farin að skila sér inn til viðgerðar niður í umboð, nema hvað það þurfti að skipta um einhver hring í sveifarás á einhverjum vélum, sem kom annars ekki að frekari sök.
    Hinns vegar var ég niður í Breiti í dag að hitta vin minn. Þar var verið að vinna eitthvað ofaní húddi á patrol sem mér sýndist innihalda nýjustu týpu af vél. Var eins og það væri bilanaleit í gangi með vatnsslöngu og fleirra. Svipaðar aðferðir og ég hef sjálfur notað við að úrskurða látnar heddpaknngar.
    Ég var ekkert að trufla starfsmenn með spurningaflóði um þennan patrol, en þar sem þessi fyrirspurn er nú komin hérna á netið þá væri kannski ágætt að fá að vita frá þeim sem til þekkja, hvort þarna hafi verið biluð patrolvél af nýjustu kynnslóð.





    22.06.2006 at 23:53 #555080
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég veit ekki hvort ég á að viðurkenna þetta, en ég var niðurí IH að skoða patrol í dag. Það kveiknaði einkver patrol löngun þegar ég sá myndina af hraðamælinum í gær.
    Ég fékk einmitt sömu svör og Benni, að IH væri hætt að bjóða uppá 44" breitingu en bjóða ennþá uppá 38" breitingu með ábyrgð. 44" breitinguna verður maður að láta framkvæma sjálfur og því fellur bíllinn úr ábyrgð.
    Ekki dettur mér í hug að ábyrgjast nýjan bíl sjálfur og sérstaklega ekki bíl sem hefur undanfarið verið mjög mikið á skurðarborðinu. 2 ár er ekki langur tími til að fullyrða að bílarnir séu ekki lengur haldnir gömlum draugum, Heldur sýnir það kannski að þeir eru á réttri leið.
    En ég verð nú að viðurkenna að patrol hefur breist mikið frá því áður. Mér fannst fara vel um mig í bílstjórasætinu sem ég hef aldrei fundið fyrir áður í patrol. Þar er nú sæmilegt rými fyrir mann og fæturna á manni og fótstig og stýri eru orðin beint fyrir framan mann. Hinnsvegar fannst mér aftursætin ekki nothæf neitt annað en að rífa þau úr og fá aðeins betra farangurspláss, þetta eru svona sæti sem manni fynnst maður hýrast í, ekkert pláss fyrir lappir og sætið nánast jafn hátt gólfi.
    En þessu aftursætisskúmaskoti hefði ég alveg geta horft framhjá og fengið mér patrol ef ég fengi hann í ábyrgð.
    Kveðja siggias74
    ps. Toyota er líka hætt að bjóða uppá 44" breitingu, og þvi detta toyotur líka úr ábyrgð ef maður lætur breita þeim fyrir 44".
    Benni, pajero er málið.





    22.06.2006 at 01:14 #555048
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    ég tók líka eftir miklu ósamræmi á milli snúningshraða og hraða. mér datt í hug 2800 rph. er það ekki lausagangur í patrol, vel stiltum. Ég hélt líka að ómögulegt væri að ná þessum hraða á patrol, er hann bara ekki í kaðli aftaní landcruser eða pajero?
    En af hverju hristist patrol svona á þessum hraða? er þetta standardbúnaður, svona nudd í sætum?





    22.06.2006 at 00:43 #198130
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Lögreglan er með myndvélabúnað til að taka myndir og radarmæla til að sanna að bílar sem aka of hratt aki raunverulega of hratt. svo fær maður mynd af sér undir stýri með tölu neðst í hægra horninu sem segir hraðan sem maður mældist á. Með fylgir svo reikningur fyrir herlegheitunum.
    Nú eru menn farnir að spara lögreglunni bæði tækjakaup í svona myndavélabúnaði og vinnu við að mæla og taka myndir, með því að láta farþega taka myndir af mælaborðinu á ólöglegum hraða og setja inná netið með upplýsingum um hver ók bílnum. lögreglan getur svo bara sent viðkomandi reikninginn.
    Hann hlítur að fá afslátt.
    Löngum hefur verið sagt að löggan taki menn í raskatið þegar þeir ná mönnum á myndavélaradar. Hvað kallast þetta þá, sjálfsfróun?
    þetta er eitthvað sem ég get brosað yfir næstu daga. Takk kærlega fyrir skemtunina Haukur Þór.
    ps. myndin er svoldið mikið hreifð, hristist patrol svona mikið á 165 kmh?
    Broskveðja siggias74





    21.06.2006 at 14:32 #555020
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    í janúar 2005 var ekki búið að setja þungaskattin í olíuverðið, þannig að grá olía var helmingi ódýrari en græn olía. kveiknaði ekkert ljós þegar brúsinn var borgaður? :)
    sumu heldur maður útaf fyrir sig og segir ekki frá :)
    en auðvitað var pajero ekki bilaður bara mannleg mistök.





    21.06.2006 at 12:52 #555012
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Þurftir þú að láta draga pajero?





    21.06.2006 at 10:03 #555006
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    sjálfskiftingar þola ekki langan drátt þóg þær séu í nautral, því nautral er eins og kúpling á milli túrbínu og sjálfrar skiptingar þannig að slátrið í skiptingunni er allt á hreifingu og undir álagi ef bíllinn er dreginn á drifás. Jeppa er í lagi að draga því þá er hægt að setja í nautral í millikassa og aftengja þannig skiptingu frá drifásum.
    held ég, leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.





    20.06.2006 at 22:50 #554976
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Verði starfsmenn vegagerðarinnar varir við eitthvað misjafnt kalla þeir lögregluna til til að athuga með meinnt brot, taka skýrslu og sekta.
    Þeir hafa vald til að stöðva þig, og taka sýni. Ef þú virðir ekki stöðvunarbeiðni og eða neitar þeim um að taka sýni, lítur það út fyrir að vera eitthvað misjafnt og þeir kalla til lögreglu.





    20.06.2006 at 18:37 #554968
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Þar sem nú er búið að skrifa lögin um lögregluvald inná þetta spjall, mæli ég með að þau verði lesin.
    2 grein: Dómsmálaráðherra er heimilt í undantekningartilvikum að fela öðrum starfsmönnum lögreglu lögregluvald tímabundið til að sinna sérstökum verkefnum.
    7 grein: Þeir sem kvaddir eru lögreglu til aðstoðar lögum samkvæmt fara með lögregluvald á meðan þeir gegna starfanum.
    Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri fólu einmitt vegagerðinni að sinna eftirliti með vigtun, ökuritum og olíunotkun, lögreglu til aðstoðar og því hafa starfsmenn vegagerðarinnar lögregluvald þegar þeir sinna því starfi. Einnig er bifreið vegagerðarinnar sem er notuð í að sinna þessum málum útbúin bláum ljósum. Hinns vegar segir í samningi þessum milli Dómsmálaráðherra, ríkislögreglu og vegagerðarinnar, ef ég man rétt, að ef að upp kemst um lögbrjót skuli kalla til lögreglu til að fylgja því eftir með skýrslutöku og tilheyrandi.





    20.06.2006 at 01:10 #554848
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    þegar maður var krakki festi maður spil með þvottaklemmu á gaffalinn og lét það skrolla gjörðina á reiðhjólinu til að búa til töff hljóð.
    þetta er tækni sem er farið að nota á bíla unglingana í dag, þas opna pústið til að fá meira töff hljóð og fá 80 hestöfl í staðin fyrir 78 útúr hjondæ druslunni





    19.06.2006 at 06:22 #554844
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    það virðist fara alveg rosalega eftir eintökum hvað þeir nota mikið bensín, ATH nota ekki eyða.
    Minn er á 35" og notar svona 14 – 16 á 100ið í mestmegnis þjóðvegaakstri á 90+ kmh.
    Í hálendisferðum um vetur í meðalþungu færi og ekkert sparað (slegið hressilega í öll hrossin) um 30 á 100ið.
    í mestmegnis innanbæjarakstri er hann að nota 20+ á 100ið, hversu hár plúsinn er fer eftir hversu marga unglinga maður spælir á ljósum.
    kveðja siggias74 E1841





    16.06.2006 at 18:09 #554662
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Er ekki spurning um að hjálpa Tedda að koma bílnum á götuna og veita honum uplýsingar um það sem hann var að spyrja um.
    Svona slitsterk kvoða eins og er sprautað inní palla og á gangbretti, endist allavega forever, miklu lengur en bíllinn. Límist líka alveg á alla fleti þannig að útilokað er fyrir vatn og annað að komast undir og skemma. Þetta er frekar mjúkt efni og þolir mikið frost án þess að harna og eiga á hættu að springa. Þetta kostar líka slatta.
    Ég man ekki í augnablikinu hvað fyrirtækið heitir sem sprautar þessu á, en þeir sprauta þessu efni á gangbrettin sem Gunnar Ingvi í Brettaköntum smíðar á Pajero svo hann getur gefið þér upplýsingar.
    Kveðja siggias74 E1841
    ps. þetta er sprautað í nokkra millimetra þykku lagi og er svona gúmíkent, þannig að þetta er örugglega líka ágætis hljóðeinangrun





    05.06.2006 at 09:11 #553862
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Það vill nú svo skemtilega til að foreldrar mínir eru búnnir að eiga svona eðalvagna í 14 ár, og er ég búinn að ferðast svoldið í þeim og skal ausa úr mínum reynslubrunni hér.
    Þetta eru alveg eðalsterkir bílar með sína galla og kosti líka.
    Túrbínulausu vélarnar sem komu í fyrsta bílnum, voru reyndar 2,5 lítra, rokkuðu endalaust og slógu ekki feilpúst. 3 lítra vélarnar eru líka góðar og hægt að taka útúr þeim alveg svakalegt afl með auka bústi og olíu, á kostnað endingar. Þessar vélar eru hálf máttlausar eins og þær koma uppsettar frá framleiðenda, einhverjum hraðlygnum datt í hug að skrifa í skráningarskirteinið 165 hestöfl , 119 hestöfl í 2,5 lítra bílinn, sem er far of way frá sannleikanum í báðum tilfellum. 2,5 lítra bíllinn var að eiða í kringum 20 lítrum á 100ið og 3 lítra bíllinn eitthvað aðeins minna.
    Millikassarnir eru til eilífðra vandræða í þessum bílum, tolla ekki í neinum drifum undir átaki og eru ónýtir með vissu millibili.
    Ég hef kynnst þæginlegri sætum til að ferðast í, í langferðum en plássið frammí er svakalega gott, reyndar á kostnað aftursætis sem að mínu mati er ekki nothæft nema fyrir svefnpokan og nestisboxið, litlu barni er ekki einu sinn hægt að bjóða að hýrast í þessu skúmaskoti sem MR IZUSU kallar aftursæti.
    Ryð er eitthvað sem lifir góðu lífi í þessum bílum.
    Gírkassir góður og sterkur, drif og drifbúnaður endist ágætlega, miðstöðin er fín.
    Semsagt ágætis bílar með sína galla og kosti líka.
    kveðja siggias74





    02.06.2006 at 20:13 #553478
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Björgunarsveitin braut lög með að afhenda flugeld sem ekki mátti afhenda til almennings, heldur engöngu til sýninga. Engu að síður var dæmt vegna galla í flugeldinum.
    Hinsvegar hef ég nú fengið upplýsingar sem ég og fleirri erum búnir að bíða eftir.
    Bjögunarsveitirnar eru tryggðar fyrir þessum skaðabótadómi.
    Það var tryggingafélag hlutaðeigandi sem hvatti til þess að kært yrði í málinu.
    Að lokum þá þarf Landbjörg að fara fram á að fá þetta bætt frá framleiðenda ef það fæst.
    Ég er drulluhræddur við að þetta mál geti skaðað starfsemi björgunarsveitana á einn eða annan hátt ef tekjur af flugeldasölu dragast saman. Mig órar við þeirri hugsun að rekstur björgunarsveitana verði settur undir ríkissjóð. Það sér það hver heilvita maður hversu skammarleg fjárlög ríkisinns er til landhelgisgæslunnar og hvernig rekstur hennar er að þeim sökum. Hvernig verður ástandið í landinu ef þannig fer einnig fyrir björgunarsveitunum.
    Þess vegna vakti ég máls á þessu upphaflega og eins og mér hættir til svo frekar sé tekið eftir því sem ég segi, þá var ég annsi harðorður og tvírænn í upphafi og sagði kannski margt sem gæti sært hlutaðeigandi. Byðst ég afsökunar á því ef svo fór og óska hlutaðeiganda góðs bata og alls hinns besta.
    Kveðja siggias74 E1841





    02.06.2006 at 18:33 #553472
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Fyrirgefðu, ég ætlaði ekki að leggja þér orð í munn. Mér skyldist bara á þessu (oft er betra að þegja og sýnast gáfaður en mæla og taka af allan vafa:) Vonandi verð ég stoppaður af þegar ég fer að tjá mig um bílaviðgerðir sem ég hef ekki hundsvit á.) að þú værir að meina að við sem á móti þessum dómi og málaferli erum, ættum heldur að þegja en að upplýsa hversu vitlausir við erum. Ég hef þá sennilega mis.
    Annars er rétt að Ford greiddi skaðabætur fyrir bíl sem sprakk í loft upp, ATH Ford sem er framleiðandinn. Söluaðilinn þurfti ekki að borga skaðabætur og ekki heldur skipsstjórinn á skipinu sem flutti bílinn til landsinns sem bíllinn sprakk í. Ekki heldur starfsmenn á smurstöðvum, bónstöðvum, skoðunarstöðvum eða nokkur annar sem nálagt bílnum hafði komið síðan hann rann út af verksmiðjufæribandinu og þangað til hann sprakk.





    02.06.2006 at 13:55 #553468
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Það er nefnilega málið að maðurinn viðurkenndi að hafa meðhöndlað skottertuna rangt. Hann var bara nógog vitur að halda því fram að það hafi verið gert í öryggisástæðum. Hann segist hafa verið að skera hattinn ofanaf tertunni, hattinn sem er vörn gegn því að neistar geti borist í tertuna og tendrað hana ofaní hólkinn í stað með kveiknum undir hólkinn. Hann ber það jafnframt fyrir sig að ekki hafi verið leiðbeiningar á skottertunni sem hann gat farið eftir, sem er sennilega rétt þar sem skottertan átti ekki að fara í sölu til almennings. Hann segir jafnframt að hann skeri alltaf ofanaf skottertum til að koma í veg fyrir að skotin beygi af leið þegar þau skjótast úr skottertum (Þarna snýr hann klaufaskapnum sér í hag). Hinns vegar eru leiðbeiningar á skottertum sem seldar eru almenningi (allavega öllum þeim skottertum sem ég hef keypt) sem segja að ekki megi skera lokið af skottertum. Þannig er hann að mínu mati að gefa í skyn að það hefði ekki skipt neinu máli hvort leiðbeiningar hefðu verið á skottertunni eða ekki, þetta slys hefði samt orðið með þessum hætti. Tengdasonur hanns segist hafa gengið til hanns til að vara hann við að bogra ekki svona yfir, og er með því að segja að hann hafi séð tengdaföður sinn umgangast skottertuna rangt.
    En þetta er jú bara mín skoðun og skoðun verjenda í málinu sem eru að óla mati bara rugludallar sem þarf að þagga niður í áður enn þeir upplýsa hversu vitlausir þeir eru.





    01.06.2006 at 20:37 #198031
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Er FIB félag Íslenskra bifreiðaeigenda, eða félag Íslenskra bílaleiga?

    Í grein frá FIB sem birtist í fréttablaðinu í dag undir fyrirsögninni ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LEIGJA JEPPA Í FRÍINU Eru gerð góð skil á hvernig má spara á því að eiga fólksbíl og leigja jeppa í sumarfríinu, frekar en að eiga jeppa allt árið um kring.

    Eins og FIB setur dæmið upp.

    Heildarkostnaður við rekstur tveggja ára gamals fólksbíls með bensínkostnaði af 15000 km eknum á ári miðað við 8 lítra eyðslu á 100 km, tryggingum, bifreiðagjöldum, skoðunarkostnaði, þrifum, verðrýrnun og fjármagnstekjutapi eða vaxtakostnaði samasem 654,760 kr á ári.

    Heildarkostnaður við rekstur þriggja ára gamals landcruserjeppa með sömu kostnaðarliðaforsendum nema hann eyðir 11 lítrum á 100 km. samasem 975600 kr á ári.

    Leigukostnaður á suzuki vitarajeppa í þrjár vikur samasem 305,000 kr allt innifalið nema benzin.

    Heildarkostnaður við rekstur fólksbíls og þriggja vikna leiga á jeppa, samasem 959,760 kr á ári, eða 15,800 kr. Ódýrara en að eiga jeppa.

    Þarna fæ ég ekki betur séð en að sé alvarleg forsenduvilla, því það á eftir að kaupa bensín á jeppann, það á líka eftir að reikna með að 305,000 kallinn sem maður greiðir fyrir bílaleigubílinn er 100% verðrýrnun og það á líka eftir að reikna með að fjármagnstekjutap eða vaxtakostnaður 305,000 kallsinns er 16,660 kr á ári.

    Eins og ég fæ dæmið sett upp.

    Allir kostnaðarliðir fólksbílsinns eru þeir sömu nema reikna má með að færri kílómetrar séu eknir á kostnað bílaleigubílsinns. Segjum 10,000 km á fólksbílinn og 5,000 km á jeppann.
    Bensínkostnaður fólksbílsinns lækkar úr 138,720 kr í 92,480 kr. Heildarkostnaður lækkar þá úr 654,760 kr í 608,520 kr.
    Bensínkostnaður jeppans miðað við 5,000 km ekna og 11 lítra á 100 km er 63,580 kr.
    Kostnaður við að leigja bílaleigubíl er 305,000 kr.
    Fjármagnstekjutap að því að eyða 305,000 kr í stað þess að geyma þá á bankareikning er 21,350 kr.
    Heildarkostnaður við að eiga fólksbíl og leigja bílaleigubíl er því 608,520 + 305,000 + 63,580 + 16,660 = 993,760 eða 18,160 kr dýrara en að eiga jeppa.

    Hvað skyldi FIB hafa fengið greitt í styrki frá Hertz bílaleigu fyrir að birta svona rógburð þeim í hag.

    Kveðja siggias74 E1841





    01.06.2006 at 00:14 #553448
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Nei óli nú ertu kominn á grátt svæði. Menn verða ekki að leita réttar sinns þó að menn lendi í smá tjóni, sem er að flestu leiti manni sjálfum að kenna.
    Ég lenti einu sinni í rafmagnssprengingu, sem varð til þess að ég brann annarsstigsbruna á handabaki og handlegg upp að olboga. Einnig skarst framan í puttan á mér þannig að fremsta kjúka á einum fingri er lömuð ennþá í dag. Einnig fékk ég rafsuðublindu. Ég var frá vinnu í nokkra daga vegna þessa slyss og hefði getað verið frá vinnu í enná fleirri daga ef ég hefði viljað. Þessi tiltekna rafmagnssprenging varð hugsanlega af mínum völdum vegna þess að ég fór óvarlega með verkfæri í stórri rafmagnstöflu. Ég varð ekki að fara í mál við Rarik sem seldi mér rafmagnið, og ég varð ekki heldur að fara í mál við Landsvirkjun sem dreifir rafmagninu.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 488 total)
← 1 … 20 21 22 … 25 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.