Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.08.2006 at 08:13 #557928
megin munurinn á "33 og "35 er að "35 er einni tommu stærri radíus, annars eru þau jafn breið. Ef bíllinn þinn er með kanta fyrir "33 þá passa þeir líka fyrir "35 uppá breiddina. Horfðu bara aðeins á bílinn og sjáðu hvort þú hafir vel rúmlega tommu uppá að hlaupa allan hringinn á öllum dekkjum, þá sérðu hvort þú komir "35 undir. Annars er ekkert mál að breita Pajero ef þú þarft eitthvað aðeins til að koma "35 undir.
Pajerokveðja siggias74 E1841
15.08.2006 at 13:49 #557866aðeins einu get ég svarað 100% rétt og það er að það er ekki hægt að spyrja svona spurningar án þess að stofna til trúabragðastíðs.
Spurningunum skal ég reyna að svara trúverðulega.
Ég hef ekki verið þess heiðurs aðnjótandi að hafa átt allar þær bílategundir sem um er spurt, og ég stór efa að það finnist einhver sem það hefur.
Allir bílar hafa galla bara mismunandi marga og mismunandi dýra.
Musso er sennilega sá bíll í upptalningunni sem notar minnst af olíu við ákveðna vegalengd. Musso er hinnsvegar sá bíll sem virðist vera lang mest af mjög misjöfnum útgáfum og líkurnar af því að lenda á handónýtu eintaki eru mestar. Menn hafa aftur á móti verið að halda því fram að það sé hægt að sjá það á hver flytur bílinn inn hvort hann sé gallað eintak eða ekki því margir af mússó bílum eru fluttir inn af öðrum en Benna og þeir séu fluttir inn frá mörkuðum með lélegri standarda en evrópa.
Trúper er bíll sem hefur ekki verið framleiddur í 6 ár og er því frekar hár í verði þar sem nýrri bílar hafa ekki verið að yfirtaka þá gömlu á markaðnum. Annars er trúperinn ágætis bíll rúmgóður, þægilegur, hljóðlátur og fallegur.
Terrano (terror, terrable) segir ýmislegt. þóg er margt gott í Terrano bara ekki neitt í drifbúnaði og hjólastelli að framan, og algjör terror að fá varahluti.
Cherokee er amerískt og maður getur þolað það ef nægt er aflið til að maður fái notið einhvers. Cherokee með díselvél hefur ekki nægt afl og því er ekki neins að njóta.
4runner er góður bíll og sennilega kraftmestur af þeim bílum sem þú nefnir ef þú finnur hann 3. lítra dísel. Aðrar vélar frá toyota eru hálfgert drasl.
Landrover er sennilega sá bíll sem hefur flesta af þeim eginleikum sem þú nefnir mjög góður bíll sem gott er að keyra.
Annars ættiru líka að athuga LC90 og Pajero, af þessum bílum eru þeir sennilega liprastir í innanbæjarakstri, pajero 2,8 disel eiðir aðeins meira en LC90 3,0 dísel annars hörku bílar með hörku kram.
Ég vil taka það fram aftur að ég hef ekki átt allar þessar jeppategundir en er með alvarlega jeppadellu og forvitinn með eindæmum og hef prófað allt, þarfyrir utan eru þessar lýsingar bara mínar skoðanir.
Kveðja siggias74 E1841
09.08.2006 at 23:54 #557546patrolet
09.08.2006 at 16:58 #557452myndin sem linkað var á og síðan tekin út var að fynna í myndasafni hjá valdísi björk, eins og sést þegar smellt er á linkinn núna þá stendur neðst í villuboðasúpunni slóðin sem linkað var á.
annars sá ég þessa mynd áður en hún var tekin af vefnum og er þessi mynd tekin af sama stað og önnur mynd sem vísað hefur verið á í þessu spjalli. nema hvað þessi mynd var tekin úr meiri fjarlægð og því sáust förin eftir bílana og jarðvegurinn undir þeim. á þeirri mynd var ekki að sjá mörg för eftir marga bíla eins og klakinn segir. aftur á móti voru förin í þurrum jarðvegi og því varla sjáanleg, grófu sig ekkert niður heldur mörkuðu rétt svo munstrið úr dekkjunum. annars var á myndinni lítil þúfa í annars malarauðn og á þessari þúfu var gras og einhverjar fallegar háfjallajurtir og lá eitt hjólfar beint yfir þúfuna það var heldur óheppilegt.
ég hef ekki talið þetta athæfi að leggja vel útí kannt þegar ég stoppa, sem utanvegaakstur, en ég er samt oft skammaður fyrir að gera það af meðferðarfólki. þetta tiltekna atvik sem hér er karpað um flokka ég ekki undir utanvegaakstur og má deila um það hvort er eða ekki endalaust. hinnsvegar geta svona myndir sýnt manni eftirá það sem maður tók ekki eftir á meðan á stóð einsog þessi tiltekna gróðurþúfa sem varð fyrir barðinu á stórum dekkjum.
mæli ég eindregið með að þessi mynd verði sett aftur inn til að menn viti um hvað er verið að karpa, svo menn geti ekki farið undan í flæmingi með svellkaldar yfirlýsingar sem eiga sér ekki stoð.
kveðja siggias74 E1841
annars mikið djöfull hefði ég viljað vera í þessari ferð með ykkur, var einmitt á þessum slóðum í fyrra en þorði ekki gæsavatnaleiðina einbíla.
31.07.2006 at 20:18 #557114Það er nú gott til þess að hugsa að eftir nokkra tugi ára hefur maður ennþá samastað innan okkar mjögsvo góða klúbbs. Logoið er frábært.
31.07.2006 at 19:05 #557110Ég átti eitt sinn lödu sem rúsnesku vinnukonurnar fóru að haga sér nákvæmlega svona.
Vandamálið í það skipti leyndist í sjálfum vinnukonumótornum. en í vinkildrifinu eru snertur sem stjórna hvar mótorinn á að stoppa þegar vinnukonurna eiga að vera latar og eru líka sjálfheldur til að mótorinn fari alltaf í upphafsstöðu ef maður púlsar vinnukonurnar eina ferð.
Þessar snertur geta orðið óhreinar og leitt á milli, þannig að latar vinnukonur eru ofvirkar og mótorinn veit ekki hvar hann á að stoppa þegar hann á að stoppa, svo hann heldur bara áfram endalaust. Snerturnar þurfti bara að hreinsa með WD 40.
Líttu á þetta ég held að þetta sé samskonar í flestum vinnukonumótorum.
Kveðja siggias74 E1841
20.07.2006 at 00:00 #556588ég gæti ekki verið hlutlausari þar sem ég hef hvorki átt lc90 eða patrol. Hinns vegar hef ég í mörg ár skoðað allar tegundir bíla enda með bíladellu af bestu gerð, og hér er mín skoðun.
Patrol hef ég margoft prófað og ferðast með mörgum á fjöll og jökla. það verður ekki tekið af þeim að þeir fara helling í snjó líka bara "38 breittir. þeir eru nokkuð fallegir vel breittir og svoldið vígalegir að sjá, en útlitið blekkir. inní þeim er ekkert pláss lágt til lofts, nema high roof og þeir eru ekki margir til. eru svoldið eins og landrover að stýra þar sem stýri og fótstig eru ekki beint fyrir framan bílstjórann og miðjustokkurinn og svisslykillinn er alltaf í hnjánum á þér. hef til dæmis lent í því að drepa á patrol með því að svissa af honum með hnjánum í látum í miðjum skafli. aftursætið er ekki mönnum bjóðandi nema þeir séu lappalausir og afturhurðin er frekar lægri en í öðrum bílum.
Lc90 er öllu þægilegri að keyra, meira pláss fyrir alla inní honum, en það er ekki vegna þess að hann er stærri, heldur er bara allt sem inní honum er minna. semsagt hrárri að innan, en hærri til lofts. hann drífur heilan helling en mest allt undir honum er hálfgert drasl. drif, spindlar, stýrismaskínur, hrútshorn, kúplingar og meira að segja tekst toyota að framleiða ónýta felgubolta sem brotna við minnsta átak.
ég ek sjálfur á pajero og eru þeir ekki gallalausir, en af þessum bílum eru þeir plássmestir að innan með þægilegustu sætin og hæstir til lofts. af klafabúnaði eru mitsubishi einu bílarnir sem ekki eru sífellt í hjólastillingum vegna lélegra klafa og spindla. enda allt mun veigameira og sterklegri fragangur ef búnaðurinn er borinn saman við klafabúnað í öðrum bílum. bíllinn min er ekinn 250 þúsund og fátt annað verið gert en að skipta um olíu, dempara og bremsuklossa. er reyndar bara á "35 ennþá.
en veldu bara þenn sem fer best með þig, virkar best að prófa allt og jeppamenn eru þannig að engin er skilin eftir útundan þó hann sé á annari bílategund en hinir. bara þessi skemtilegi metingur stundum með smá skítkasti sem gerir bara jeppaferðir skemtilegri.
17.07.2006 at 13:28 #556400svona var þetta líka þegar ég bjó í danska konungsríkinu, þá var bensín og olía dýrara í höfn kaupmannsinns en í minni kauptúnum eins og odense. ódýrast var að versla eldsneyti syðst á jótlandi þar sem samkepni var frá gaulverjalandi.
17.07.2006 at 09:44 #556248að það sé löglegt að hafa kerrur svoleiðis útbúnnar, allavega hef ég séð bátavagn aftaní jeppa sem var útbúinn með framhásingu og begjum. hinnsvegar veit ég að þessi tiltekni vagn er ekki betri í drætti en venjuleg tveggja hásinga kerra sem er vel smíðuð, þas. með þyngdarpunktin í lagi. ég hef dregið hestakerru með 6 hestum í, dágóð þyngd í því, og bíllinn fann ekki fyrir því að eitthvað væri í eftirdragi öðruvísi en að vinnslan fór niður í vinnslu meðalgóðs disel hilux.
11.07.2006 at 22:39 #556044en konan fær næstum aldrei að keyra, svo það er allt í lagi. ég hef oftast fullkomna stjórn á hestunum enda hestamaður mikill.
11.07.2006 at 18:14 #556040jæja félagar, þarna tókuð þið það sem ég hélt að ég vissi um dísel og grófuð það með stoltinu mínu.
ég átti gamlan landrover sem var hættur að ganga sökum olíuvandamála. ég skipti um olíuverk og lagði honum fljótlega eftir það vegna þess að hann lagaðist ekkert.
Núna verð ég bara að fara og finna gamla landroversikrjóðinn minn, finna í honum hringrásardæluna sem ég vissi ekki að væri í honum og skipta um hana, þá kannski fer hann að ganga betur.
annars ferst mér betur úr hendi að eiga bensínbíl.
11.07.2006 at 00:04 #556026margir ef ekki allir eldri díselbílar eru ekki með dælu afturí tank heldur engöngu sog frá olíuverki sem sogar olíu í því magni sem olíuverkið þarf og er því ekkert bakflæði. margir nýrri díselbílar eru aftur á móti komnir með hringrásardælingu einsog bensínbílar og virka einsog áður er lýst af margfallt kunnugri mönnum en mér.
10.07.2006 at 22:10 #555986ég vil meiri olíu á eldinn
05.07.2006 at 09:48 #554052einu sinni fyrir ekki svo löngu var félag sem hét FR félagið og sá félagið um rekstur CB kerfis, skráningu félagsnúmera sem jafnframt var kallnúmer viðkomandi og hélt utanum reglur sem fylgdi notkun CB stöðva, félagið gaf einnig út félagaskrá með númerum viðkomandi, svona eins og símaskrá. man ég að þessi félagaskrá var nokkuð þykk sem er merki um hversu margir voru í félaginu.
Ein af reglunum var að rás 9 var neyðarkallrás og mátti ekki nota hana í öðrum tilgangi, einnig mátti engin kaupa eða eiga CB stöð nema vera félagsmaður í FR félaginu og hafa kallnúmer.
28.06.2006 at 23:41 #555498En samhvæmt því sem ég hef séð þá er ekki hægt að fá hann með 6,6 lítra vélinni fyrr en 2001 og svo er svakalega lítið framboð af honum 4 dyra full sice dobbel cap.
FORD 7,3 power stroke er hægt að fá frá 1998 og er miklu meira framboð af bæði F 250 og F 350 með stóru húsi og 4 dyra.
Þar sem fjármagn streymir ekki í mjög stórum straumum um mínar hendur, verð ég að velja það sem ég fæ fyrir sem lægstan pening, og 1998 FORD F 250 er mun ódýrari en Chevrolet silverado 2001.
28.06.2006 at 22:22 #198172Jæja félagar.
Ég er búinn að vera að spá í bílamálum undanfarið, samhliða því að langa í stærri dekk og meira breyttan bíl.
Ég er búinn að skoða ýmislegt og pæla mikið, og núna vantar mig smá hjálp og tæknilegar upplýsingar.
FORD F 250 – 350 er hluti af því sem ég er búinn að spá í.
Hver er meginmunurinn á þessum bílum? Get fengið þá báða með 7,3 power stroke og eini sjáanlegi munurinn er einfallt að aftan á F 250 og nokkrar milljónir í peningum.
Er F 250 eitthvað styttri og léttari? sleppur hann kannski sem fólksbíll í skráningu?
Er F 250 með eitthvað veikari drifbúnað?
Kveðja siggias74 E1841
28.06.2006 at 19:43 #555482að mikroskera miðjuraðirnar 2, þá hefur þú líka möguleika á að negla ystu raðirnar. Ég var með svona 32" dekk undir mínum fyrir breytingu, mikroskornar miðjuraðirnar og negldar ystu raðirnar og það voru gripmestu dekk sem ég hef nokkurtíman keyrt í hálku.
Kveðja siggias74 E1841
28.06.2006 at 14:08 #555342Til hamyngju benni, með þennan og að losna við LC hræið. Nú getur þú komið við uppí ölgerð og fengið 1000 lítra tank á pallinn, ég er nýbúinn að tæma nokkra svoleiðis, og sýnt mér bílinn í leiðinni.
kveðja siggias74 E1841
27.06.2006 at 16:25 #555166Ég hef séð einn patrol með þennan gas indjektion útbúnað og þá var gasinu sprautað inná soggrein langt á eftir túrbínu og millikæli. Þannig fæ ég ekki séð eldhættuna af yfirþrýstingsventlinum á túrbínunni.
25.06.2006 at 00:55 #555112Þó svo að patrol sé kraftlaus þá veit ég nú um nokkra brotna Patrolöxla. Ég veit líka um nokkuð fleirri brotna hiluxöxla þó svo að hilux sé enn kraftlausari en patrol.
En að ábyrgð og rúðuþurkumótorum. Minn fyrsti jeppi fyrir 14 árum síðan var Lada sport, sem ég keypti af foreldrum mínum 5 ára gamlan. Þau keyptu hann nýjan og áttu hann allt ábyrgðartímabilið óbreittan með öllu. Í þeirra eign á ábyrgðartímabilinu bilaði margt og er mér enn í fersku minni að tvennt var það sem ekki fékst bætt af ábyrgð. Það var rúðuþurkumótorinn og 5ti gírinn í gírkassanum, B&L báru það fyrir sig að þetta væri aukabúnaður í bílnum og því fengist þetta ekki bætt.
Þetta sýnir að þessi pólitík með að fella niður ábyrgð er ekki ný af nálini og ekki einskorður við IH þó svo að ég sé ekki að taka up hanskann fyrir það umboð.
jónsmessunæturkveðjur
Siggias74
ps. ég ætla út að spjalla við beljurnar, þetta er eina nóttin á árinu sem það er mögulegt, MUU.
-
AuthorReplies