Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.09.2006 at 14:14 #561546
bílnum mínum langar í stærri skó og það er verkefni sem mig hlakkar alveg svakalega að takast á við. áætlað er að hann verði orðin vel skóaður fljótlega eftir áramót.
26.09.2006 at 14:07 #561498en ég efa að það sé dana 44 undir þessu, frekar 27 eða 30 eins og er orðin standard í flestum bílum frá jeep.
26.09.2006 at 14:03 #561358ha!! var for(d)maðurinn að taka forskot á rjúpnaveiðina?
26.09.2006 at 11:22 #561518þetta var góð og gleðileg lesnig. fylgjum þessu eftir með góðri vefsíðu og starfsemi.
siggias74 E1841
26.09.2006 at 10:53 #561434þessi þráður heitir svo mikið sem (nóg af skítkast). ég held að einhverjir hafi miskilið tilganginn. ég held að þráðurinn hafi átt að höfða til þess að það væri komið nóg af skítkasti, en miðað við skrif flestra sem á undan hafa skrifað hafa þeir skilið sem svo að þráðurinn ætti að innihalda nóg af skítkasti.
ég held að þið séuð að hengja heilan hóp jeppamanna sem kalla sig utangarðsmenn, fyrir gjörninga nokkra manna í hópnum. ég veit t.d ekki betur enn einn utangarðsmaður hafi ferðast í sátt og samlindi með for(d)manninum og fleirum stjórnarmeðlimum um helgina.
ég persónulega styð stjórn okkar ágæta félsgsskapar og þeirra ákvarðanir til að gera sitt vinnuumhverfi betra og þennan vef skemmtilegri.
ef að hinnsvegar þessi þráður ætlar að halda áfram á þessari braut sem hann er með skítkasti útí menn sem búið er að útiloka af síðunni og geta ekki svarað fyrir sig. þá hefur tilraun stjórnar til að gera síðuna skemmtilegri, með því að útiloka ákveðna menn, mistekist.
Kveðja siggias74 E1841
25.09.2006 at 11:43 #561102verkfræðingurinn og vinur hanns voru jafn misjafnir og þeir eru margir.
oftar en ekki kiptu munnvikin mín uppávið við að lesa grínið sem frá þeim kom, en stundum mátti stoppa við og fynna eitthvað annað að grínast með og sumt annað mátti hreinlega kyrrt liggja.
hinns vegar fynnst mér að ekki eigi að skítkastast útí þá sem ekki hafa tækifæri til að svara fyrir sig, það er ennþá verri framkoma, en sú sem þeir félagarnir voru gerðir útlagir af spjallinu fyrir.
allir í skóginum eiga að vera óvinir og kunna að lifa við það.
25.09.2006 at 09:29 #561166ég með rugluna. tókst loksinns að fá formúluna hanns gumma til að virka
21.09.2006 at 17:26 #560944til þess að hugsa að nú halda allir þeir sem hlíddu á síðdegisþátt bylgjunnar að pajero mengi rosalega mikið. fæstir fá hinnsvegar að vita að þarna var á ferð toyota, dulbúin sem eðaljeppi.
er ekki hægt að setja lög sem banna slíkan dulbúning, sem gerir ekkert annað en að skemma orðspor eðalbíls.
20.09.2006 at 18:54 #559380olíufélög í danmörku bjóða ekki uppá neina fría þjónustu eða aðstöðu. sumar bensínstöðvar eru með ryksugur fyrir utan, en maður þarf að borga í þær. hvergi eru þvottaplön en sumstaðar eru þvottastöðvar sem maður þarf að borga í. fæstar selja olíur og bílavörur, en flestar selja nammi, bakkelsi, klámmyndir, blöð og pulsur.
20.09.2006 at 14:36 #560660ég keypti á sínum tíma usb í com breyti í íhlutum en rikki benti mér á að versla það þar, þeir hefðu reynst best.
þessum usb í com breyti þurfti ég að installa í tölvuna og gekk það vel fyrir sig með plug and play.
hinnsvegar kannast ég aðeins við þessa geðveiku mús sem um hefur verið rætt hér að ofan. og hef komist að því að ef ég set gpsið í samband í annað usb port en það sem notað var þegar ég installaði breytinum þá verður músin geðveik. ef ég hinnsvegar nota sama port þá skiptir engu máli hvort kveikt er á tölvu eða gps eða nobeltek fyrst. mjög athyglisverð fræði.
20.09.2006 at 13:46 #559374það vill nú svo vel til að ég var í kongens köbenhavn í gær og undanfarna daga og stúdderaði mikið olíu og bensínverð.
bensínlíterinn er einsog fram kom að ofan í kringum 111 krónur íslenskar miðað við gengi í dag. olíulíterinn er afturámóti í kringum 105 krónur eða 6 krónum ódýrari en bensín.
það skal hinnsvegar athuga að engin bensínstöð í danmörku bíður uppá þjónustu þannig að bera verður þetta verð við verð án þjónustu á íslandi eða 117,2 á bensín og 117,9 á olíu, hjá olís.
olían í danmörku er 12 krónum ódýrari í danmörku en hér.
12.09.2006 at 11:59 #559938það er grátlegt að vita af því og þurfa að segja frá því að ekki eru allir ökumenn sem hafa það markmið að keyra ekki á og láta ekki keyra á sig.
ég hef heyrt um það rætt meðal ónefndra bílabraskara á ýmsum aldri að ein ákveðin gata í grafarvogi sé tilvalinn í að lenda í árekstri í rétti ef maður vill fá t.d réttingu og sprautun útúr tryggingunum af því að bíllin var kominn með svo margar hagkaupsbeygglur sem annars fást ekki bættar. þessi gata hefur engar biðskyldur aðeins hægrireglur, og ótrúlega margir ökumenn kunna ekki hægriregluna. þetta hafa menn notfært sér á óheiðarlegan og stórhættulegan hátt.
12.09.2006 at 11:28 #559932hundruðir íslendinga yfir 24ra ára aldri, t.d kunna ekki að keyra hringtorg. allir þessir ökumenn mega kenna ungum ökumönnum í æfingarakstri að keyra hringtorg, bara ef þeir skrá sig sem leiðbeinanda viðkomandi lærlings fyrst.
12.09.2006 at 11:04 #559882æfingarakstur er að öllu leiti nauðsinlegt. hinnsvegar er það mér óskyljanlegt að ekki þurfi að gangast undir einhverskonar próf til að verða leiðbeinandi hjá þeim sem eru í æfingarakstri. lunginn af íslenskum ökumönnum eru góðir ökumenn, en ekki allir. hinir sem alls ekki eru góðir ökumenn og aldrei geta lært að keyra bíl, þeir geta líka orðið leiðbeinendur.
ég vil benda á að það atvik sem þetta spjall byrjaði á og er búið að fjalla um, þ.a.s að ungur ökumaður í æfingarakstri hafi sneitt báðar akreinar á hringtorgi og sett aðra ökumenn í stórhættu er ekki því að kenna að æfingaraksturinn fór fram á breyttum jeppa. heldur er það leiðbeinandanum að kenna.
12.09.2006 at 10:49 #559922að vera fljótur að lesa aðstæður og læra af reynslunni er ekki það sama og að læra af mistökum.
það vill enginn að allir ökumenn læri af mistökum, þá eru allir að lenda í óhöppum alla daga, lenda bara aldrei í samskonar óhöppum tvisvar.
að læra af reynslunni og vera fljótur að lesa aðstæður gerir ökumann að virkilega varkárnum og góðum ökumanni, margfallt betri ökumanni heldurenn þeim sem les bók um það hvernig á að keyra og fer svo útí umferðina og heldur að hann sé fullmótaður ökumaður.
þó svo að ég sé búinn að vera með bílpróf í 15 ár og tjónlaus í 14 ár þá fer ég samt hægt og varlega þegar ég t.d. keyri vegslóða sem ég hef aldrei keyrt áður, vegna þess að þar eru aðstæður sem ég þekki ekki.
ég skrifaði líka áður að þar sem maður læri af leiðbeinanda sínum er alveg fáránlegt að hver sem er geti verið leiðbeinandi í æfingarakstri. allir þeir sem kunna alls ekki umferðareglur eða að keyra bíl geti verið leiðbeinandi hjá þeim sem eru í æfingarakstri. þetta atvik sem þessi þráður hófst á, þ.a.s að ungur ökumaður í æfingarakstri á breyttum bíl sneiddi báðar akreinar á hringtorgi, er ekki því að kenna að hann var á breyttum bíl, heldur er það leiðbeinandanum að kenna.
12.09.2006 at 09:58 #559916heldur mjög vel meint. þú ert þá ekki orðin nóg og gamall til að falla í þann hóp sem ég var að tala um. enn punkturinn sem ég var að benda á var sá að ef engum væri treystandi til að aka breittum bíl frekar en vörubíl og rútu, nema taka 300.000 króna meirapróf þá væru allir þeir sem í umferðinni eru búnnir að vera í 50 ár án slíks prófs stórhættulegir. en svo er bara alls ekki.
12.09.2006 at 09:26 #559910er þú ekki brandur einn af þeim sem hafa í gegnum tíðina fengið að aka öllum gerðum af ökutækjum án þess að hafa nokkurntíman tekið próf til að öðlast réttindi? hefur það ekki gengið stórslysalaust fyrir sig?
bílpróf, meirapróf eða réttindi til að aka breyttum jeppum. menn eru eins misjafnir og eintökin eru mörg og það er alveg sama hversu marga ökuskóla sumir fara í þeir verða aldrei góðir bílstjórar. aðrir eru betri bílstjórar 17 ára, enn ökukennararnir í ökuskólanum.
að verða góður bílstjóri er fyrst og fremst að vera fljótur að læra af aðstæðum, ekki skólabókum.
að hækka bílprófsaldurinn er ekki endilega lausn á því vandamáli sem íslensk umferðarmenning á við að etja. miklu frekar væri að gera bílprófin og ökuskólann þannig úr garði að hægt sé að grisja úr og fella þá einstaklinga sem ekki eru tilbúnir að fara útí umferðina. í dag er þetta byggt upp þannig að allir nái prófunum sama hversu óhæfir ökumenn þeir eru.
að veita hverjum sem er leyfi til að vera leiðbeinandi í æfingarakstri er líka fáránleg hugmynd, því maður lærir jú af þeim er kennir manni. margir ökumenn eru algjörlega óhæfir til að aka bíl, kunna fá umferðarskilti og engar umferðarreglur. þessir óhæfu ökumenn mega vera leiðbeinendur í æfingarakstri. og þá erum við komnir að því sem þessi umræða hófst á. hvort að egi að leifa æfingarakstur á breytta jeppa og hvort að egi að þurfa meirapróf á breitta jeppa. það er nefnilega ekki jeppanum að kenna að ungur ökumaður í æfingarakstri sker báðar akreinar í hringtorgi, heldur er það leiðbeinandanum að kenna.
kveðja siggias74 E1841
11.09.2006 at 15:35 #559862ég varð fyrir því í gærkveldi að reyndur ökumaður á toyota fólksbíl ákvað að nota tvær akreinar við að aka í gegnum hringtorg uppí mosó, að ekki varð slys var ekki honum að þakka.
það þarf ekki óreynda ökumenn á jeppa til að haga sér eins og hálfvitar í umferðinni.
06.09.2006 at 17:09 #559324ég hef verið að taka að mér bílarafmagn ýmiskonar fyrir lítinn péning. er með talsverða kunnáttu á þessu sviði.
þér er velkomið að hafa samband ef þig vantar að láta leggja eitthvað eða tengja eitthvað.
siggias74 E1841
05.09.2006 at 08:02 #559336ölgerðin er að selja plasttanka bæði 600 lítra og 1000 lítra. líka allar stærðir af brúsum. plasttankarnir eru í járngrind til að styrkja þá.
kveðja siggias74 ölsmakkari
-
AuthorReplies