Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.02.2007 at 11:59 #581784
ég fékk um dagin bréf frá 4×4 á álfhólsveginn og sá ég að það bréf var stílað á búðarbraut og síðan breytt eftir endursendingu, en það bréf innihélt ekki litla miðan minn og leitaði ég að honum sérstaklega vel.
27.02.2007 at 11:42 #581778á ég þá ofsi, að láta færa mig yfir í móðurfélagið þar sem að vesturlandsdeildin er óstarfandi, og bíta í það súra epli að ég var svo vitlaus að ganga í vesturlandsdeildina á sínum tíma?
og svo smá vangaveltur.
ef ég er í vesturlandsdeildinni, er ég þá ekki gjaldgengur í stjórn og eða nefndir í 4×4, nema í vesturlandsdeildinni?
spyr sá sem hefur mikin áhuga á að starfa innan 4×4.
siggias
27.02.2007 at 10:37 #581774það sem þú agnes telur upp að eigi að gera til að útiloka ógreidda félagsmenn frá því að njóta fríðinda greiddra félagsmanna er alveg hárréttar aðgerðir að mínu mati, og það er sárt að sjá að þú þurfir að vinna svona mikla vinnu án þess að fá fyrir það greitt nema að hluta. það kemur því sem að ég er að tala um bara ekki neitt við, því ég hef greitt félagsgjöld og hef gert það núna í þrjú ár.
fyrsta árið mitt fékk ég ekkert félagskort og gat því ekki nýtt mér neina afslætti eða annað sem mér átti að standa til boða sem greiddum félagsmanni. annað árið fékk ég loks sent félagskirteini og miðan litla til að líma á, en það kostaði mikið þras og bréfaskriftir. á þessum tveim árum fékk ég sent 1 eintak af setrinu eða um páska á síðasta ári. samt var ég á þessu tímabili búsettur á sama heimilisfangi og ég var við skráningu í klúbbin.
í ágúst á síðasta ári flutti ég á höfuðborgarsvæðið og flutti ég bæði lögheimili skráð í þjóðskrá og breytti einnig skráningu hér á þessari síðu með réttu heimilisfangi.
í desember greiddi ég félagsgjald fyrir árið 2007, með dráttarvöxtum þó svo að eindagi sé samkvæmt orðum agnesar 31 janúar. ég hef ekki fengið sent ennþá litla miðan með 07, þannig að ég get ekki nýtt mér afslætti hjá hinum ýmsu verslunum og þjónustuaðilum sem mér ætti að standa til boða sem greiddum félagsmanni, reyndar hef ég fengið afslátt hjá skeljungi vegna þess að það fer rafrænt fram.
ég persónulega styð það að það sé herjað á ógreidda félagsmenn með aðgerðum, eins og að loka kortum, en ég skil ekki hvað ég hef gert af mér til að fá ekki það sem mér ber.
kveðja sigurður ásmundsson e1841
27.02.2007 at 09:55 #581770enda stóð ég í áðurnefndum bréfaskrifum og símtölum við stjórn vesturlandsdeildarinnar á síðasta ári, en ég get ekki séð að þetta hafi lagast neitt við það að móðurfélagið hafi tekið að sér að sjá um þetta fyrir vesturlandsdeildina
27.02.2007 at 09:50 #581766og ég las það fyrir ekki svo löngu að höfuðstöðvar 4×4 sjái um innheimtu fyrir vesturlandsdeildina og mig minnir tvær aðrar deildir
27.02.2007 at 08:26 #581762ég hef nú löngum verið skussi í fjármálum og borga yfirleitt ekki neitt á gjalddaga, en ég borga nú samt flesta mína reikninga fyrir eindaga og áður en þarf að fara að kosta í mig innheimtukostnaði. þessi reikningur frá f4x4 fyrir árgjald 2007 er nú samt sá eini sem ég þarf að borga dráttarvexti þó svo ég hafi greitt hann að mér fannst mjög tímalega, eða fyrir áramót, og ég er drulluhræddur um að einhver milljarðagróða bankastofnun fái þessa dráttarvexti en ekki f4x4 og þannig sé ég ekki gróðan sem benni talar um í þessu samhengi.
ég er búinn að senda nokkur mail og hringja nokkur símtöl útaf því að ég fæ aldrei setrið, og í fyrra fékk ég heldur ekki miðan litla fyrr en eftir mikið þras, þessi símtöl og bréfaskrif kosta og er innheimtukostnaður sem ég hef þarf að leggja út fyrir til að fá frá klúbbnum það sem mér ber sem greiðanda félagsgjalda. á ég að rukka klúbbin um þennan útlagða kostnað?
mér persónulega fynnst þú benni hljóma hálf heimskulega þegar þú segir í einni setningu að, að sjálfsögðu eigi að láta skussana borga en segir svo í næstu setningu að við eigum að sína stjórn biðlund því allir geti gert mistök.
keep up the good work
kveðja sigurður ásmundsson e1841
23.02.2007 at 13:19 #581974þín mun verða sárt saknað.
ég þakka fyrir alla þá vinnu sem þú hefur lagt af hendi í þágu okkar sem erum þyggjendur í f4x4.
kveðja sigurður ásmundsson e1841
21.02.2007 at 19:39 #581746ég tók einmitt eftir þessu að þegar ég greiddi félagsgjaldið í desember, að mig minnir ca. 20 dögum eftir gjalddaga, að þá voru fallnir dráttarvextir á reikninginn. þetta fannst mér heldur skítt þar sem að um félagsgjöld er að ræða sem að ég ræð hvort að ég greiði eða ekki, en ekki afborganir af skuldum eða skyldugjöldum. hvað gerist ef maður ákveður að spara þetta árið og borga ekki félagsgjöldin, fær maður þá endalausa vexti og innheimtukostnað til að borga samt sem áður?
annars hef ég ekki fengið litla miðan sæta sem að á að líma á félagsteinið og óska hér með eftir að fá hann sendan takk fyrir. einnig hef ég ekki fengið setrið síðan að ég held um páska í fyrra eða í um eitt ár. og ekki er það vegna þess að ég hef skráð rangt heimilisfang því að ég hef fengið annan póst frá f4x4 og heimilisfangið sem er skráð hérna á síðuna og í þjóðskrá er rétt.
nöldurkveðja siggias
14.02.2007 at 14:27 #580274þessar tölur sem þú gafst upp eru þær tölur sem gefnar voru upp með 2006 bílnum hjá ingvari helgasyni, sem var ekki með common rail og eru líka lægri en gefnar eru upp fyrir 2,5 vélina, bæði í hp og nm.
er Ingvar helgason að ljúga til um tölur á gamla bílnum, og er nýji bíllinn komin með common rail samt kraftlausari en 2,5 vélin?
14.02.2007 at 11:55 #580344eitthvað að aftan.
skoða bremsur, spyrnugúmí, þverstýfu og þverstýfugúmí og hjólalegur.
14.02.2007 at 10:19 #580270ég vil bara benda mönnum á að 3ja lítra patrolvélin er ekki með common rail innspítingu, heldur einhverju stjörnuolíuverki með einhverjum tölvufídusum. 2,5 lítra nissanvélin sem er í patfander og navara er með common rail innspítingu enda skila þær vélar meira afli og togi en 3ja lítra patrolvél.
12.02.2007 at 11:42 #580128gæti líka verið tregða í pústi. við það hækkar strax afgashitinn, og vélin gengur hraðar, en verður svo yfirþrýst og kæfir á sér.
10.02.2007 at 17:05 #580018já þetta er sko utanvegaakstur. hvar er þyrlusveitin hanns sýsla?
10.02.2007 at 14:26 #579914í danmörku er bannað að draga yfir höfuð með kaðli nema bara til losunar úr festum.
þetta viðhorf þykir mér alveg eðlilegt þar sem að bíll sem er vélarvana er líka nánast bremsulaus og stórhættulega þungur í stýri.
með dráttarstöng bremsar bíllinn sem verið er að draga með bílnum sem dregur en er þó mjög þungur og miklu þyngri en kerra má vera óskráð og bremsulaus.
Krókur er með bílinn sem dregin er á lofti að framan með þartil gerðum lyftu og dráttarbúnaði, og er þar að auki gerður til að mega draga þennan þunga sem einn bíll er, það gefur þeim samt ekki rétt til að aka á 110 en þeir þurfa ekki að vera á 30.
að klippa á teinið hjá þessum manni sem ekur á 105 km hraða með bíl í togi fynnst mér sjálfsagt mál því þetta er glórulaust lögbrot og lýsir algjöru kunnáttuleysi og virðingarleysi í umferðinni.
08.02.2007 at 21:19 #579384það eru ennþá sömu starfsmenn í aðalskoðun í hafnafirði enda blekið varla þornað á kaupsamningnum. ég býst nú við að það verði ekki einu sinni rekin skoðunarstöð í hafnafirði svona ef maður horfir nokkra mánuði fram í tímann.
áður en aðalskoðun kom til þá var verð á skoðun hærra en það er í dag þrátt fyrir alla verðbólgu í þau 14 ár sem aðalskoðun er búið að vera við líði. einnig vöru fundin til ótrúlegustu atriði til að setja útá til að menn þyrftu að koma í endurskoðun, svona eins og skoðunarmennirnir fengju þau fyrirmæli að skaffa fyrirtækinu 50 prósent meiri tekjum þas skoðunargjaldi og endurskoðunargjaldi af hverjum bíl. þar að auki þurfti maður að panta tíma með löngum fyrirvara í skoðun og samt að bíða fyrir utan skoðunarstöðina eftir fáránlegu númerakerfi þó maður pantaði tíma. það eru mér ofarlega í minni nokkrar nokkraklukkutíma biðir á planinu hjá frumherja.
08.02.2007 at 21:02 #579824er tannburstinn fjórhjóladrifinn? ég er bara að reyna að ná samhenginu.
07.02.2007 at 19:17 #579364það þótti óbryggðult trix í gamla daga að láta konuna klæða sig upp í eggjandi klæðnað, mála sig og helst lita hárið ljóst og láta þær svo fara með bílinn í skoðun ef vitað var um eitthvað alvarlegt að.
Kannski maður þurfi að fara að beita svoleiðis trixum aftur. það er bara verst að ég er ekki viss um að konan samþyggji að gera þetta í dag.
07.02.2007 at 17:30 #579348það muna nú held ég flestir eftir því hversu mikið verð á skoðun lækkaði þegar Aðalskoðun var stofnuð á sínum tíma í samkepni við frumherja. þannig að líkurnar á að skoðun hækki í verði við það að frumherji kaupi samkepnisaðilann eru nú nokkuð miklar.
07.02.2007 at 17:20 #579026Nú er ég búinn að velta þessu máli fyrir mér í dágóðan tíma, lesa bloggið hanns Ómars ásamt öllum kommentunum sem þar er að fynna frá bæði fylgjendum og andstæðingum þessarar hugmyndar um einkaveg um Kjöl. Einnig er ég búinn að lesa þessi 64 komment sem komin eru hér á okkar ágætu síðu f4x4 ásamt því að reyna að fylgjast með fréttum og umræðuþáttum um málið.
Það sem að mér fynnst allra undarlegast í þessu máli öllu er það að það virðist ekki koma neitt annað til greina en að gefa Jóa í Bónus og KEA mörgþúsund ferkílómetra landsvæði af almenningseign þjóðarinnar til að þeir geti lagt um landið veg og rukkað svo þjóðina fyrir að mega aka um veginn. Ef að þeir fá þetta landsvæði gefins á meðan aðrir hvort sem það eru húsbyggjendur eða bændur þurfa að borga allt frá tugum milljóna fyrir tíu hektara landskika uppí nokkra hundruði miljóna fyrir lóðir allt niður í nokkur hundruð fermetra, þá er nú aldeilis verið að mismuna landanum.
Mín uppástunga er að setja verðmiða á landið okkar og láta svo auðkífingana reikna út arðsemi þess að leggja sína eigin vegi þvert yfir hálendið. Ég er ansi hræddur um að þeir væru ekki svona spenntir fyrir slíkri framkvæmd ef þeir þyrftu að greiða nokkra miljarða í ríkiskassan fyrir landið sem þeir annars ætla að eigna sér.
Og það er ekki á nokkurn hátt hægt að líkja þessu við Hvalfjarðargöngin, því þau liggja ekki yfir neitt land þau liggja neðanjarðar eða réttast sagt neðansjávar.
Annars mæli ég með að allir lesi bloggið hanns Ómars og kommentin þar. Tryggvi linkar á bloggið hanns hérna aðeins ofar.
06.02.2007 at 20:37 #578994Þá bið ég Ómar afsökunar á miskilningi mínum, ég horfði á fréttina í svolitlum hávaða og heyrðist hann vera að lofa þessa styttingu á leiðinni.
-
AuthorReplies