Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.02.2012 at 09:44 #222385
Aðfaranótt föstudags var kerru félagsmanna F4x4 stolið í Hafnarfirði. Kerran er á 39,5 tommu Trexus dekkjum á átta bolta felgum. Nú taka félagsmenn sig saman allir sem einn og finna kerruna.
Vinsamlega hafið samband. Logi Már s. 8936560 eða Rúnar s. 8967078.
01.02.2012 at 23:26 #748574Tek þetta upp á næsta fundi vefnefndar á fimmtudag eða þriðjudag og ræðum hvað hægt er að gera.
Kv. SBS.
31.01.2012 at 16:43 #745653Já, já, ég veit að þetta eru alltof margar skipanir fyrir gullfiska. Það er heldur ekkert farið að vinna í myndahluta síðunnar. Þetta myndband sem ég gerði er fyrir þá sem hafa áhuga á innsetningu mynda á meðan beðið er eftir breitingum. Síðan eru fleirri til að auðvelda mönnum vinnu á síðunni. Vefnefnd fær oft spurningar hvernig eigi að skrá sig inn, hvernig eigi að setja inn fréttir, breita lykilorði og m. fl. Ég er að vinna við þessi myndbönd til að auðvelda vefnefnd og félagsmönnum umstangið. Þau eru kanski ekki faglega unnin enda þau fyrstu sem ég geri.
Ég þykist vita hvað þarf til að gera myndasíðuna þannig að öllum líki. Þetta Gallery bíður bara ekki upp á alla þá möguleika. Þá þarf að fara í forritunarsmíði sem tengist þessu myndasafni en það kostar að sjálfsögðu bunch of money.
Það er svo sem ágætt að fá tuðara, letingja og væluskjóður til að tjá sig því það þarf að sinna þeim líka. 😉 Svo er líka eitt sem hægt er að gera það er að leggja niður myndagallery klúbbsins og hafa síðuna strípaðan spjallþráð.
Kv. SBS.
30.01.2012 at 21:18 #745637Er hann þessi eini kanski orðin þeir allir? Eitthver hlýtir að hafa verið með myndavél. Ekkert mál að setja inn myndir. Myndband með leiðbeiningum er hér.
[youtube:3pbh091e]http://www.youtube.com/watch?v=AkodlHPPIIo&context=C350b503ADOEgsToPDskL5hBrDbmXZlx1BqALt6Tdy[/youtube:3pbh091e]
26.01.2012 at 19:56 #745599Ætla kjarkaðar Þorrablótshetjur að fresta ferð fram á Góuna?
Kv. SBS.
13.01.2012 at 22:37 #746793Sælar.
Ég ætla nú ekkert að fara að væla hér á spjallinu hjá ykkur eins og ég gerði hjá Föstum og félögum fyrir Þorrablótsferðina. Ég var að setja inn myndir úr nokkrum kvennaferðum á flettimyndirnar á forsíðu. Ef þið eigið eða hafið áhuga á að setja inn fleirri myndir megið þið senda þær á vefnefnd@f4x4.is
Kv. SBS.
09.01.2012 at 18:18 #745517Heyrði því fleygt að þessi ætlar að gera það gott á Þorrablóti.
Kv. SBS.[img:23jwg9m4]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=310226&g2_serialNumber=1[/img:23jwg9m4]
09.01.2012 at 15:01 #745511Þakka þér fyrir Birkir. Loksins fékk ég málefnalegt og gott svar.
Kv SBS.
09.01.2012 at 14:56 #745509Sæll Atli ,) Fastir og félaga verða ekki hetjur nema einhver væli.
Hvernig gekk annars hjá ykkur upp í Setur um síðastliðna helgi? Ein leiðindar spurning. Nei annars það er best að sleppa henni.
Kv. SBS. Gangi ykkur vel á blótið.
08.01.2012 at 01:57 #745493Heyrðu Benni.
Á ég ekki bara að lána þér Dúkkuvagninn. Í honum er stærðarinnar svíta sem rúmar sjö manns. Þar eru sex barir, stærðarinnar uppábúið rúm með öllum þægindum. Þar er útsýni í allar áttir hvert sem augað eigir. Það verður engin fastur með Dúkkuvagninn í farangursgeimslunni.
Kv. SBS.
07.01.2012 at 12:30 #745483Sæll Bjarki.
Lestu nú póstinn minn betur. Ég var ekki of seinn að skrá mig inn. Hefði getað verið með þeim fyrstu. Helginn var frátekin. Ég var ekki að tala um 65-70 heldur mögulega 55-60. Ég var ekki að ræða neinn klíkuskap langt frá því. Hefði kannski getað orðað fyrsta póstinn á annan veg. Ég er nú bara að kasta þessu fram sem hugmynd til að ræða. Auðvitað ráða Fastir og félagar þessu. Spjallþráðurinn er víst til að ræða málin ekki satt, já og góða skemmtun.
Kv. SBS.
07.01.2012 at 10:56 #745479Sælir.
Atli, það má segja að ég hafi orðið nokkuð svekktur að missa af blótinu í ár. Þessi helgi var bara frátekin í þetta skipti. Ég var í Þorraveislunni á síðasta ári og þótti ógleymanleg skemmtun. Ferðin upp í Setur bauð upp á færð og veðurfar sem flestir jeppamenn vilja upplifa. Fastur og félagar eiga auðvitað hrós skilið fyrir frábært skipulag. Það sem ég á við er að nýta skálann betur. Mig minnir að loftið fyrir ofan fremri skálann sé það hátt að hægt sé að ganga þar uppréttur að hluta til. Þar mætti vel koma fyrir borðum og stólum til að minnka álagið á neðri hæðinni. Menn vilja oft skipta sér í tvo hópa. Þeir sem vilja fara fyrr í svefninn nota þá stærra loftið.Trúlega verður skálanefnd að vera með í ráðum. Fjöldin 45 manns er bara of fáir. Þið Fastir félagar eruð líklega 10 til 12 með mökum. Svo er annar hópur sem eru fastagestir. Þeir gæti verið 10 til 14. Þá eru aðrir klúbbfélagar og makar þeirra eða vinir sem eru fastagestir líka sem fylla það pláss sem eftir er. Þessi 45 tala þarf mögulega að geta hækkað í 55 til 6o manns með betra skipulagi og dreifingu. Það er ekki hægt að hafna félagsmönnum sem vilja taka þátt í Þorrablóti ef áhugasamir fara eitthvað yfir 45.
Kv. SBS.
06.01.2012 at 01:16 #745471Sælir.
Já Hjörtur. Ég er ekki alveg að ná þessu. Skálinn tekur 67 manns en fjöldinn er takmarkaður við 45. Borðpláss og stólar eru til fyrir 50 -60 manns. Menn hafa oft hér áður fyrr nagað kjammann standandi, sitjandi út á skafli með súrslorið milli fótanna eða í versta falli á rúmskörinni uppi á lofti. Þetta er nú einu sinni Þorrablót en ekki samkunta fyrir gegnumbláar kuldaskræfur. Ég held að menn ættu að taka á móti þeim fjölda sem vill koma. Málið er að það eru alltaf til lausnir. Því miður Hjörtur vil ég ekki leggja það á nokkra að verða þeim samferða inn í Setur nema í mesta lagi annað hvert ár. Þeir hafa bara ekki efni á því. Tómar endurbætur og styrkingar. 😉
Kv. SBS og Dúkkuvagninn.
02.01.2012 at 21:45 #745425Nei Nei!! Það vantar bara öflugan húsbíl til að komast með meiri mat. 😉
Kv. SBS.
02.01.2012 at 21:38 #221880Best að smella bent á „YouTube“ tengilinn.
01.01.2012 at 17:15 #221861Best að smella beint á „YouTube“ tengilinn.
01.01.2012 at 17:12 #221859Best að smella bent á „YouTube“ tengilinn.
01.01.2012 at 17:09 #221858Best að smella bent á „YouTube“ tengilinn.
01.01.2012 at 17:06 #221857Best að smella bent á „YouTube“ tengilinn.
01.01.2012 at 17:03 #221856Best að smella bent á „YouTube“ tengilinn.
-
AuthorReplies