Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.01.2013 at 20:01 #762769
[u:2pq5k8qf][b:2pq5k8qf]Heilshugar sammála.[/b:2pq5k8qf][/u:2pq5k8qf]
18.01.2013 at 08:47 #762689Tek heilshugar undir þessar tillögur. Nú er að sýna samtakamátt sinn. Ef þessar aðgerðir bera ekki árangur heldur baráttan áfram ef lögin fara óbreitt í gegn. Heilsíðu-auglýsingar í tveimur dagblöðum með þeim lagagreinum sem beitt er gegn okkur verða að koma þar fram ásamt fleirru.
[u:8cxrc48j][b:8cxrc48j][color=#BF0000:8cxrc48j]Áfram nú félagar í Ferðaklúbbnum 4×4[/color:8cxrc48j][/b:8cxrc48j][/u:8cxrc48j]
Kv. SBS.
16.01.2013 at 00:08 #762681Ekki jókst tiltrú mín á hátvirtum ráðherra Svandísi Svavarsdóttur við þessa áheyrn. Miðað við þær lagagreinar í þessum lögum sem beitt er gegn okkur jeppamönnum sem erum allir náttúruverndarsinnar hélt hún fram á hinu háa alþingi að samráð hafi verið haft við þessi félagasamtök og fleirri. Ég hef nú ekki heyrt annað en það hafi vart verið hlustað á okkar framámenn um ferðafrelsi og það sem var ritað til breitinga hafi ratað beint í ruslafötina. Síðan stendur hún þarna gljúp í ræðustólnum og fræðir okkur á því að við séum ómissandi náttúruverndarsinnar upp til hópa og unnið fjölmörg verk til náttúruverndar. Miðað við þær lagagreinar sem hún slengir framan í okkur er það ekki hennar sannfæring.
Þótt Sjálfstæðismenn séu ekki hátt skrifaðir hjá mér vonast ég eftir að þeim auðnist að koma með réttmætar breitingatillögur við frumvarpið því heilsteypt samkomulag er grundvöllur að náttúruvernd og ferðafrelsi. Annars er þessi lagabálkur að miklu leiti ónýtur. Greinilegt er að Guðlaugur Þór er okkar maður í þessum efnum.
Kv. SBS.
15.01.2013 at 20:09 #762559Þótt ég sé í vefnefnd þá ætla ég að tjá mig hér um nokkur atriði varðandi síðuna.
Það fyrsta sem þarf að gera er að nýta alla breiddina sem stærri skjáir bjóða upp á til að lifta því upp sem neðar er og menn nenna ekki að skrolla eftir.
Það þarf að sækja það sem menn óska eftir varðandi síðuna. MHN. okkar ágæti, heimsótti mig upp á verkstæði og ræddi við okkur Rúnar formann skálnefndar um hans óskir um vefsíðuna. Það endaði þannig að við vorum allir sammála um hvernig spjallið ætti að virka. Einfallt og leiðandi til þess sem menn vilja að komi næst eftir að smellt sé á tengil. Magnús er fullur áhuga á þessari vinnu sem hann hefur verið að gera og gerir það af ánægju og áhuga. En hann kemur ekki nálægt síðunni fyrr er búið er að skapa honum viðunandi aðstöðu efst eða ofarlega á síðunni. Þar vill hann vera með sínar gátur ásamt öðru afþegingar- og skemmtiefni sem allir geta tekið þátt í. Annað efni verður að hafa sinn tíma til að þróa.
Þá er það myndasíðan.
Ég kom í vefnefnd til að hressa upp á Galleríið. Árangurinn er nú ekki betri en það að hún er verri en hún var þegar ég kom hingað fyrst fyrir tveimur árum.
Nú er ekkert annað í stöðunni en að setja myndagalleríið í forgang. Þar verður stjórn að taka þátt í og klára þennan heildarpakka. Ef vefnefnd ræður ekki við verkefnið verður að kaupa mannskap í það. Þetta þarf að gera núna strax!!!
Freyr, það er hægt að flytja fleirri myndir í einu í hverja möppu. Það er gert með því að velja í ferlinu langa og leiðinlega "upload applet". Ég hef flutt yfir 200 myndir í einu inn á síðuna. Mig minnir að hver þeirra megi ekki vera stærri en 2 mb. Síðan eru milljón smá og stærri atriði sem þarf að breita og lagfæra.
Agnar Ben. Þetta er góð samantekt. Sammála ykkur báðum.
Kv. SBS. Nóg í bili.
15.01.2013 at 11:36 #762119Það er gott að einstaka láta sér lynda karlagrobbshúmorinn í mér. Góða ferð uppeftir og eigi þið skemmtilega Þorrahelgi.
Kv. SBS.
14.01.2013 at 21:40 #762553Já þetta er erfitt ástand bæði í þjóðfélaginu og hér í klúbbnum. Það sem hefur farið verst með kúbbinn og félagslífið er hversu margir gamlir virkir félagar hafa horfið héðan frá síðunni og úr nefndarstörfum. Mér sýnist það vera vegna þess að menn eru ekki sammála um stefnu eða vinnutilhögun stjórnenda klúbbsins. Stjórnendur mega ekki gleima því að áhugasamir einstaklingar í nefndun og deildum eiga að vera stefnumótandi og tillit til þeirra tekið. Það þarf að hlusta á þá, hvetja og byggja upp.
Ef ég tek sjálfan mig sem dæmi. Þá er ég orðin mjög þreyttur á gangi mála í vefnefnd. Ég hef komið með tillögur til stjórnar til úrbóta sem við í vefnefnd höfum sent á tölvupósti til þeirra. Þessum póstum er varla eða ekki svarað nema þá mjög stuttlega og síðan er málið dautt.
Þar sem ég sé um nokkra þætti hér á síðunni og ver til þess miklum tíma er ég mjög ósáttur við slíkar málalyktir.
Ég hef undanfarna mánuði verið komin á fremsta hlunn með að segja mig úr vefnefndinni vegna doða flestra í kringum mig. Ég flýt ennþá á þeirri ágætu hugmynd að telja upp að tíu áður en sú ákörðun er tekin.Í vefnefnd þurfa að vera að minnsta kosti 7 aðilar sem sjá um alla þætti síðunnar. Vefsíðan er hjarta klúbbsins þar sem nær öll tjáskipti félagsmanna fara fram. Ég ætla að taka svo stórt upp í mig að halda því fram að ef ég hætti í vefnefnd frýs þessi síða í langan tíma.
Kv. SBS. Sem reynir að vinna klúbbnum til hagsbóta og sjálfum sér til ánægju.
14.01.2013 at 14:55 #762109Ég veit ekki hvað Kviðfastir og félagar hafa með kvennfólk að gera á Þorrablót. Er ekki nóg fyrir þá að eiga á hættu að verða kviðfastir í skafli á leiðinni upp-eftir en ekki líka uppi á háalofti.
Kv. SBS.
13.01.2013 at 21:47 #762091Óskapleg deyfð er yfir þessum Þorra þræði! Eru menn farnir að hafa áhyggjur af að 45 séu of margir í skálann? Ef svo er gæti ég ýtt Dúkkuvagninum upp eftir. Þar er pláss fyrir fimm. Ég gæti síðan trítlað upp á víðáttu Hofsjökuls með hákarl, harðfisk og brennivín og lagt mig þar á meðan Þorraþrælar kýla vömbina í plássleysinu.
Svo er nú eitt. Það eru bara þrír af fjörutíu og fimm greiddir félagsmenn á þessum lista. Skálanefnd ætti þá að mér sýnist að fá vel inn á skálann. 😉 Greiddir félagsmenn fá einir afslátt af gistingu. Það er engin furða að erfitt sé að ákveða verðið.
Kv. SBS.
11.01.2013 at 00:23 #762565Þetta fer þannig fram. Þegar sótt er um félagsaðild fær vefnefnd póst um umsókn viðkomandi. Síðan er opnað fyrir skrifrétt hans á spjall og auglýsingar.
Ég sendi síðan félagsbeiðnina í pósti á skrifstofu F4x4. Skrifstofan sendir síðan tölvupóst til viðkomandi með beiðni um greiðslu félagsgjalds. Þar er gefið upp reikningur og upphæð.
Þegar skrifstofa hefur fengið staðfestingu um greiðslu er honum gefið félagsnúmer. Það er síðan sent á vefnefnd sem skráir það í félagatalið. Síðan fær viðkomandi félagsskírteinið sent heim með tilheyrandi afsláttum.Kv. SBS. Vefnefnd.
10.01.2013 at 19:40 #225325Sælir félagsmenn í F4x4.
Ég tók að mér það verkefni að taka á móti og senda áfram til skrifstofu skráningu nýrra félagsmanna. Einnig þeirra sem vilja fá spjall- og auglýsingarétt hér á síðunni.
Frá því í maí 2012 hef ég haldið saman lista yfir þá sem sótt hafa um félagsaðild. Samtals eru þetta 126 einstaklingar.
Mig langar að setja hér upp lista þeirra eftir deildum.Eyjafjarðardeild …. 3
Húnvetningadeild .. 2
Skagafjarðardeild .. 1
F4x4 Reykjavík …. 37
Austurlandsdeild … 4
Suðurlandsdeild …. 2
Hornafjarðadeild … 2
Húsavíkurdeild …… 4
Suðurnesjadeild …. 4Samtals eru þetta 59 nýjir félagsmenn.
Það eru síðan 67 umsækjendur sem ekki hafa klárað ferlið með greiðslu til að gerast félagar í Ferðaklúbbnum 4×4. Það er rúmlega helmingur þeirra sem sótt hefur um.
Ég set þetta hér upp til fróðleiks og til íhugunar um hvers vegna umsækjendur klára ekki ferlið.
Kv. SBS. Vefnefnd.
10.01.2013 at 08:24 #762473Jæja! Magnús. Alltaf hress karlinn.
09.01.2013 at 17:52 #762469Sæll Magnús.
Ég verð að viðurkenna að það var ekki farið rétt í þetta. Það átti ekki að taka spurningarnar úr kassadálkinum fyrr en hinn væri tilbúin. Þannig er að við erum að búa til nýjan kassa fyrir ýmislegt skemmtiefni. Það tókst ekki að klára það í gærkveldi. Hann er gerður þér til heiðurs fyrir framlag til síðunnar. Þar er líka hugsað ýmislegt fróðleiks og frásagnaefni sem menn hafa áhuga á að setja inn. Ég vil hrósa þér fyrir fræðandi spurningar og hvet þig til að halda því áfram. Við höfum allir ánægju af þínu vandaða framlagi. Þú verður að afsaka þetta. Neðar á síðunni er kassi er heitir "Getraunir" Ef smellt er á hann koma allar spurningarnar þínar fram. Þar er hægt að halda áfram spjalli um hverja fyrir sig. Það er eitthver galli í kerfinu sem tekur lengri tíma að vinna úr.
Kv. SBS.
05.01.2013 at 12:54 #22528522.12.2012 at 13:34 #22521722.12.2012 at 12:56 #761835Þakka þér fyrir Magnús minn. Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Þakka þér einnig fyrir það líf sem þú hefur gefið síðunni okkar.
Kv. SBS.
16.12.2012 at 01:51 #761627Það vakna ýmsar vangaveltur varðandi þessar pælingar.
Að mínu mati er það eingöngu á færi fagmanna og reynslubolta að breita verksmiðjuframleiddum fjórhjóladrifnum bíl í öflugra farartæki sem uppfyllir allar öryggiskröfur. Það er ekki eingöngu tilsögn í breitingum heldur lærdómur, þekking og reynsla í öllu þessu ferli. Ég þekki það í mínu verklega fagi að menn ganga ekki inn full menntaðir.
Byrjunin er að sjálfsögðu þessi "pæling" og löngun til að nema, bjarga sér og koma sér áfram. Ýmis námskeið varðandi þetta fag verður til að viðhalda þekkingu til að breita farartækjum. Það viðheldur líka ferðafrelsi okkar íslendinga. Það kemur líka í veg fyrir að þekkingin falli í gleimsku og svo fr.v. og svo fr.v.
Kv. SBS.
15.12.2012 at 08:18 #225171Halldór Freyr.
13.12.2012 at 22:30 #761597Þetta er frábær kynning og er áhugasömum skipuleggjendum til eftirbreitni. Góð hugmynd og framkvæmd!! Það er ekki nóg að fá góðar hugmyndir en framkvæma þær ekki. Þessi er nú þegar farin að skila árangri. Til hamingju.
Kv. SBS.
13.12.2012 at 21:34 #22516013.12.2012 at 21:31 #225159 -
AuthorReplies