Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.02.2013 at 09:15 #764007
Sæll.
Já ég veit að þetta er mjög pirrandi. Það hefur trúlega eitthvað með Java að gera. Ég fékk svona meldingar fyrst þegar ég fór að setja inn myndir gat þá eingöngu notað Explorer vafrara.EF þetta gengur ekki hjá þér væri best að bíða í einn til tvo mánuði. Þá verða miklar breitingar á síðunni okkar.
Þótt okkur hafi gengið illa að efna loforðin þá er ég fullviss að komandi breiting standi.
Kv. SBS.
27.02.2013 at 23:10 #225541Reglur um SMÁ-AUGLÝSINGAR
Vinsamlega notið eftirtalin forskeyti í titil auglýsingar.
Ekki skal nota “ Til sölu “ heldur forskeitið “ Ts: „
Ekki heldur “ Óska eftir “ heldur “ Óe: „
Ef þetta er gert fæst pláss fyrir lengri texta í titl auglýsingar.
Texti í titli hefur takmarkaðan stafafjölda svo ekki verði úr tvær línur.
Tvær línur valda því að færri komast að í einu í auglýsingaplássinu. Auglýsandi hefur 4 kl. tíma (innskráður) til að lagfæra titil og annan texta.
Auglýsendur verða að vanda réttritun. Hástafir eingöngu eru ekki leyfðir.
Að auglýsa sama hlutinn oftar en einu sinni í glugganum er ekki leyft.
Auglýsendur eru beðnir að fara eftir þessum reglum um ókeypis auglýsingar hjá Ferðaklúbbnum 4×4.
Kv. Vefnefnd.
27.02.2013 at 22:49 #764003Sæll Hilmar.
Myndainnsetning fer vonandi að breitast fljótlega til hins betra og öll umgjörð Myndagallerísins.
Hér er tengill inn á myndband ef þú hefur vilja til að skoða það.
[url:rzaiblrf]http://f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=16&t=30840[/url:rzaiblrf]Kv. SBS.
26.02.2013 at 10:37 #763971Nei! ha hvað!! Fá síðustjórarnir smá spons.
Þeir eru greinilega að verða víðsýnni en áður.
Jæja fyrst hlutirnir eru aðeins farnir að róast í bili langar mig að biðja auglýsendur að uppfylla óskir okkar um formálann í auglýsingunum. Það er að byrja formálann alltaf á " Ts: " sem er til sölu og " Óe: " sem er óska eftir. Einnig að hafa formálann það stuttann að hann taki bara eina línu. Ef það er gert geta fleirri verið sýnilegir. Auglýsingu er hægt (innskráður) að leiðrétta 4 tímum eftir að hún er sett inn. Það sparar mér vinnu og tíma við að leiðrétta formálann í auglýsingunum. Með fyrirfram þökk.
Kv. SBS.
25.02.2013 at 09:46 #763953Það er nú ekki rétt að taka þennan þráð undir þessa umræðu. Þetta með auglýsingarnar var ákveðið af einni upphafsstjórn klúbbsins. Allar stjórnir þar eftir hafa viðhaldið þessu fyrirkomulagi. Þetta er ekki í valdi vefnefndar einnar að ákveða þessar breitingar. Ég vil biðja menn að bíða eftir breitingum og uppfærslum sem eru væntanlegar. Þar verður allt gert til að þókknast mönnum. Ég ræði þetta ekki ferkar hér á þessum þræði.
Kv. SBS.
24.02.2013 at 21:35 #763947Hilmar þetta er ekkert mál. Þegar þú skrifar þráð veldu neðar á síðunni "Bæta við viðhengi" og síðan "Choos file" þá velur þú myndaskrárnar frá tölvunni og síðast "Bæta við skrá" og myndirnar komnar. Ekkert mál.
Ég sé nú að annað er video. Það verður að vista annarstaðar og tengja hingað á síðuna. Mjög margar myndir hér á spjallið hentar varla. Þá eru tenglarnir hentugri. Vonandi lagast myndagalleríið hjá okkur. Svo er nú eitt að senda myndtengil frá facebook síðu sinni til vefnefndar vefnefnd@f4x4.is ef menn eiga góðar myndir. Þá get ég sett þær á fb. síðu F4x4. https://www.facebook.com/f4x4.is
Kv. SBS. Frábærar myndir. Ég ætla að taka mér það Bessleyfi að birta þær á Fb. síðu F4x4. Þú lætur mig vita ef þér mislíkar.
24.02.2013 at 21:09 #763941Sælir.
Við fyrstu sýn virtist mér þessi þráður byrja frekar ögrandi. En að betur athuguðu máli er hann það alls ekki. Ég hef áður bryddað upp á því á vefnefndarfundi að við tengdum þessar tvær síður saman með tenglum frá annarri yfir á hina. Eins er hægt að gera eins og hér er gert að vitna til atvika eða atburða þeirra sem ekki vilja vera hér meðan síðan er eins og hún er.Það er nú eins og það er að ungir hverfa að heiman frá gamlingjunum og leita sér nýrra átthaga. Þá verðum við þessir eldri að gera umhverfið heimilislegra svo við fáum fleirri heimsóknir þeirra sem fóru. Mér þætti nú vænt um að stjórnendur Jeppaspjallsins tjáðu sig um þessa tengla-hugmynd hér á þessum þræði. Það kvikna kannski fleirri heppilegar hugmyndir.
Kv. SBS.
24.02.2013 at 20:02 #748604Sælir.
Það er fullur vilji hjá vefnefnd og stjórn að lagfæra síðuna. Við erum saman að vinna og skipuleggja grunnatriði sem þarf til að koma á fljótvirkari virkni og nýjum uppfærslum til að gera síðuna notendavænni. Þá eru þessi atriði sem hér eru ofan meðtalin.Vefnefnd er búin að hafa samband við tæknimenntaðann mann sem hefur víðtæka þekkingu á grunnatriðum og lausnum í vefsíðugerð. Hann er sá sem útbjó ferðaferlsissíðuna fyrir átakshóp um ferðafrelsi. Sú vinna verður ef til kemur greidd af klúbbnum. Vefnefnd væntir góðs af því samstarfi.
Þetta ferli hjá okkur er á byrjunarreit. Eitt af þessum atriðum sem þarf að aðskilja er spjallið og auglýsingar. Síðan er að sjálfsögðu myndagalleríið sem þarf að líkjast sem mest Facebook innsetningu mynda og öllu viðmóti til skoðunar. Mörg atriði önnur eru til skoðunar.
Ég set þetta hér fram sem ómenntaður í þessum fræðum. Stundum skilst það betur en þegar menntaðir tjá sig um þessi efni. Bergur og Bragi bæta kannski við þetta ferli frekar eða þegar þörf er á.
Kv. SBS. Ps. Ég ætla að breita formála þessa spjalls sem mætti verð heppilega betur orðaður til samvinnu okkar allra.
22.02.2013 at 00:12 #763901Þessi mynd er gersemi. Þarna er gamli skólabíllinn frá því ég var í barnaskóla. Gísli Eiríksson! Man vel eftir honum. Keyrði okkur krakkana í Austurbæjarskólann í nokkur ár. Frábær karl og góðar minningar.
Kv. SBS.
21.02.2013 at 10:34 #763297Sælir.
Það er satt Atli. Ég má stundum passa mig líka. Þú ert líklega að tala um karla-grobbs-húmorinn í mér á Þorrablóts-þræðinum ykkar. Einnig var ég töluvert önugur vegna gangs mála hér áður fyrr í vefsíðumálun eins og menn eru hér núna. Það er nú bara svo að í fjölmennum klúbbi eins og við erum í og fáar hendur við vinnu að hlutirnir ganga seint. Svona til að menn átti sig á reglum spjallsins sem er grafið þar sem fáir vita um þá er tengill á þær hér. [url:2rhzgtfe]http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=859&Itemid=238[/url:2rhzgtfe] Svo vonum ég að spjallið verði notað og menn viðhaldi skoðunum sínum hér.
Kv. SBS.
20.02.2013 at 14:34 #748580Ég skal reyna að fylgja þessu máli eftir einu sinni en. Vefnefnd þarf að bera þetta undir stjórn klúbbsins með útstrikanir eða að auglýsingar hverfi. Málið er að það eru allir mjög uppteknir vegna ferðafrelsisbaráttunnar og núna vegna afmælisársins. Þeir eiga eftir að lesa þessar kvartanir og eiga þess vegna að vera betur undirbúnir. Aðvitað eiga menn að leita eftir vilja félagsmanna lesa úr og skipuleggja. Ef það er ekki gert myndast svona þræðir eins og þessir tveir sem eru í gangi núna og almenn óánægja í samskiptum.
Kv. SBS.
20.02.2013 at 11:44 #763291Við skulum viðhafa almenna mannasiði hér í textanum. Svona lagað getur haft í för með sér að klúbburinn verði vefnefndarlaus. Þetta er verkefni fyrir að lágmarki fimm manns ef vel á að vera. Ég held að menn ættu aðeins að kæla sig niður. Á þessu afmælis-ári er mikið um að vera hjá klúbbnum og vantar mannskap í ýmsa sjálfboðavinnu vegna þess. Ég veit að þú og þínir félagar hafa oft tekið til hendinni svo um munar fyrir klúbbinn.
Kv. SBS.
20.02.2013 at 10:28 #763287Sæll Kristján.
Svona orðbragð og munnsöfnuður finnst mér mjög óviðeigandi hér á spjallinu. Ég er til í að samþykkja lokun á þig í einhvern tíma frá spjallinu ef það verður borið upp á fundi. Við erum þrír í vefnefnd og þurfum að vera samþykkir öllum breitingum á síðunni. Það er verið að gera tilraunir með efni sem varðar klúbbinn á mjög þröngu svæði síðunnar. Það vill svo til að tími er mjög takmarkaður hjá vefnefnd. Vefnefnd gerir margt annað fyrir klúbbinn en að breita síðunni. Það er verið að finna launaða menn til að sjá um vinnu sem við komumst ekki yfir eða höfum ekki þekkingu á svo sem forritara og fl. Við erum ánægðir ef menn segja sitt álit hér á spjallinu en með öðrum formerkjum.
Kv. SBS.
09.02.2013 at 20:38 #763459Sæll Theodór.
Þú smellir á "Umræður Deilda" síðan á "Austurlandsdeild" og þá " Nýr þráður. Ég færði þráðinn þinn á deildarspjallið.
Kv. SBS.
08.02.2013 at 23:23 #763027Þeir sem ekki vita af eða eiga ekki tengil á vefsíðu Ferðaklúbbsins 4×4 á Facebook þá er hann hér. http://www.facebook.com/f4x4.is Vefnefnd er að þróa þessa síðu samhliða aðalsíðu klúbbsins. Innsetning á öllu efni er eingöngu innsett af stjórnendum síðunnar. Atriði sem fylgja Facebook s.s "[u:w69whd8o]Líkar þetta[/u:w69whd8o].[u:w69whd8o] Skrifa ummæli[/u:w69whd8o] og [u:w69whd8o]Deila[/u:w69whd8o]" er öllum kleift. Ef menn vita af góðum myndum eða videoum af lífi okkar jeppamanna um fjöll og firnindi sem allir njóta og hafa gaman af er hægt að senda tengil á efnið með leyfi eiganda á vefnefnd@f4x4.is Efnið verður að vera styllt á "Puplic" (Það sem er öllum sýnilegt.) Síðan megið þið deila eða láta vini ykkar vita af vefsíðunni.
Kv. SBS.
02.02.2013 at 22:08 #763273Sendi póst á vefnefnd í einum grænum.
Kv. SBS
31.01.2013 at 09:52 #225492Hin árlega og sívinsæla kvennaferð F4x4 verður helgina 8.-10. mars. Að þessu sinni verður farið í Setrið, skála F4x4. Dagskrá er spennandi og með svipuðu sniði og undan farin ár td. laugadagsbíltúr, sleðakeppni, náttúrubað, happdrætti og önnur skemmtiatriði . Kostnaði verður stillt í hóf og er áætlaður um 7000 kr og er þar gert ráð fyrir gistingu, merkingu á bíl og mat föstudags- og laugardagskvöld. Greiða þarf 5000 kr staðfestingargjald fyrir 20. febrúar inn á reikn; 0319 26 004654, kt. 170272-5799.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Hjördísi hjordis@vso.is, eða í síma 6950934 eða hjá Ingu ingaingimundar@gmail.com eða í síma 6594656.
Sjáumst hressar. Fylgist með spjallinu hér, eftir því sem fleiri upplýsngar verða settar inn.Kveðja fjólubláu fjallagyðjurnar.
27.01.2013 at 18:25 #763013Ég er búin að setja upp í töflureikni tímasettan árangur í undirskriftum á ferðafrelsi.is. Ég hef sett þetta inn á Fb. ferðafrelsi og síðu Fb. F4x4. Samkvæmt þessum tímasettu tölum er hægt að sjá hvenær við þurfum að herða baráttuna eða slaka á. Eina til fjórar birtingar á dag. Því ætla ég að halda áfam til 8. feb. Vona að þessar upplýsingar komi að gagni.
Sunnud. 27. kl. 09,00. Undirsk. 6.724. Pr. min 1,38. Föstud. 08. 07,00 áætl. 31.877.
Sunnud. 27. kl. 12,00. Undirsk. 6.927. Pr. min 1,37. Föstud. 08. 07,00 áætl. 31.666.
Sunnud. 27. kl. 18,00. Undirsk. 7.430. Pr. min 1,38. Föstud. 08. 07,00 áætl. 31.701.
Sunnud. 27. kl. 22,00. Undirsk. 7.686. Pr. min 1,36. Föstud. 08. 07,00 áætl. 31.398.
Sunnud. 27. kl. 24,00. Undirsk. 7.902. Pr. min 1,37. Föstud. 08. 07,00 áætl. 31.608.
Mánud. 28. kl. 18,00. Undirsk. 8.602. Pr. min 1,26. Föstud. 08. 07,00 áætl. 28,989.
Mánud. 28. kl. 24,00. Undirsk. 8.882. Pr. min 1,23. Föstud. 08. 07,00 áætl. 28,422.
Þriðjud. 29. kl. 21,00. Undirsk. 9.682. Pr. min 1,14. Föstud. 08. 07,00 áætl. 26.368.
Þriðjud. 29. kl. 24,00. Undirsk. 9.852. Pr. min 1,14. Föstud. 08. 07,00 áætl. 26.272.
Miðvikud. 30. kl. 23,52. Undirsk. 10.671. Pr. min 1,06. Föstud. 08. 07,00 áætl. 24.461.
Fimmtud. 31. kl. 24,00. Undirsk. 11.412. Pr. min 0,99. Föstud. 08. 07,00 áætl. 22.824.
Föstud. 01. kl. 21,39. Undirsk. 11.868. Pr. min 0,93. Föstud. 08. 07,00 áætl. 21.357.
Laugard. 02. kl. 22,30. Undirsk. 12.140. Pr. min 0,85. Föstud. 08. 07,00 áætl. 19.563.
Sunnud. 03. kl. 23,00. Undirsk. 12.362. Pr. min 0,78. Föstud. 08. 07,00 áætl. 18.049.
Mánud. 04. kl. 24,00. Undirsk. 12.530. Pr. min 0,73. Föstud. 08. 07,00 áætl. 16.707.
Þriðjud. 05. kl. 24,00. Undirsk. 12.770. Pr. min 0,68. Föstud. 08. 07,00 áætl. 15.717.
Lok undirskiftar breitt frá föstud. til mánudags.
Fimmtud. 07. kl. 23,20. Undirsk. 13.165. Pr. min 0,61. Mánud. 11. 24,00 áætl. 16.713.
Föstud. 08. kl. 24,00. Undirsk. 13.693. Pr. min 0,59. Mánud. 11. 24,00 áætl. 16260.
Laugard. 09. kl. 24,00. Undirsk. 14.100. Pr. min 0,58. Mánud. 11. 24,00 áætl. 15759.
Sunnud. 10. kl. 23,40. Undirsk. 14.340. Pr. min 0,55. Mánud. 11. 24,00 áætl. 15136.
Mánud. 11. kl. 24,00. Undirsk. 15.502. Pr. min 0,57. Mánud. 11. 24,00 áætl. 15502.[u:1qv3vawh]Takmarkið skal vera 16.000 undirskriftir.[/u:1qv3vawh]
Fb. síða F4x4 hefur heldur betur tekið kipp í virkni. Vikuna 14. til 20. jan. voru 560 heimsóknir á síðuna.
Hinsvegar tímabilið 21. til 27. jan. voru heimsóknir komnar í 10.367.
Ég er á því að þessar tvær síður okkar geti unnið mjög vel saman.Í dag 30.jan. sýnir teljarinn frá 22. til 28. jan. 25.648 heimsóknir. Góður stígandi.
Kv. SBS.
18.01.2013 at 20:57 #762743Og ég sem hélt þeir tækju eingöngu í nefið.
18.01.2013 at 20:12 #762569Sæll Reynir.
Ég athugaði tölvupóstfangið sem er hérna hjá okkur og það er " UID-4382@f4x4.is " og er óvirkt. Sendu skrifstofu og vefnefnd póst um rétt tölvupóstfang og skýrðu mál þitt. f4x4@f4x4.is og vefnefnd@f4x4.is.Kv. SBS.
-
AuthorReplies