FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060

Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060

Profile picture of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 1
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 908 total)
← 1 … 22 23 24 … 46 →
  • Author
    Replies
  • 26.05.2013 at 18:03 #766019
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæl/ir.

    Það væri hugmynd að auglýsa nefndir sem ætla að vera með áberandi bása á sýningunni, með myndrænum hætti, bæði hér og á Facebook f4x4 síðunni. Ég gæti útbúið þær ef áhugi er á. Mætti athuga með deildir líka.

    Kv. SBS.





    26.05.2013 at 15:42 #766017
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæl/ir.

    Nú þurfum við félagar allir að "Deila" auglýsingunni frá 30 ára afmælissýningu klúbbsins sem er á Facebook f4x4 yfir á ykkar Facebook síður.

    Kv. SBS.

    https://www.facebook.com/photo.php?fbid … =1&theater





    25.05.2013 at 16:27 #766169
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Rúnar. Það væri gaman að sjá myndirnar hér.

    Kv. SBS. Ps. Talaðu bara við stóra bróðir. 😉
    Myndirnar eru hér.

    https://www.facebook.com/photo.php?fbid … =1&theater





    22.05.2013 at 23:01 #765897
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Það eru margir hlutir sem ég er að hugleiða. Það eru random-myndirnar á forsíðu. Leitun að myndum eftir nafni eigenda eins og var á eldgömlu síðunni. Þá það að til sé listi yfir þá alla sem leita má eftir. Listi yfir nýjustu innsettu myndirnar. Listi yfir nýjustu umfjöllun um myndir. Kanski listi yfir mest skoðuðu myndirnar og svo mætti áfram telja.

    Eins og þið sjáið er hann nokkuð bjartsýnn húsgagna og innréttingasmiðurinn. 😉

    Nú er þess að meta sem vinnur fyrir okkur verkið hvort Fés – bókin henti eða hún ráði við þetta hjá okkur.

    Kv. SBS.





    22.05.2013 at 19:52 #765893
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Jæja. Góð viðbrögð. Það sem verið er að hugsa með myndaalbúmið er að geta "Líkað" á myndirnar. Einnig að geta skapað umræðu um hverja mynd eða myndamöppu. Þrátt fyrir þetta eiga menn að upplifa sig á vefsíðu F4x4 en ekki á Facebook. Mér skilst að mögulegt sé að vinir þeirra sem setja inn myndir og spjalla, geti fylgst með og jafnvel tekið þátt. Mér var sagt þar sem þetta var gert hafi umferð aukist sexfallt. Líklega ykist umferðin hér á myndagalleríinu sextíufallt. Þennan möguleika þarf að hugsa vel. Síðan eru videoin sem vista má líka eins og þau séu á síðu F4x4.

    Síðan er innsetningin á myndefninu. Menn þurfa þá ekki að kunna tvær aðferðir til setja það hér á síðuna.
    Ég hef verið að setja efni á Facebook síðu F4x4. Þegar ferðafrelsisbaráttan stóð sem hæðst fór talningin upp í 26,000 heimsóknir á einni viku. Stöku myndasería og myndbönd halda henni í 6 – 8000 heimsóknum. Nú hef ég ekki verið að setja inn efni í nokkurn tíma og er talningin innan við 1000.

    Nú geta talnaglöggir reiknað út breitinguna sem hér verðu ef þessi breiting kemir hér inn. Fb. umhverfið er fyrir unga sem eldri og forgamla. Ég er sannfærður um að umsókn félaga í klúbbinn muni stóraukast við velhugsaðar breitingar. Annars er þetta allt í huglægu ferli og gott að fá bæði jákvæð viðbrögð og neikvæð.

    Kv. SBS.





    22.05.2013 at 10:06 #765883
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæl/ir.

    Það geta allir fengið aðgang að spjalli F4x4. Menn þurfa bara að sækja um aðganginn. Við hliðina á flettimyndinni á forsíðu er, Ganga í klúbbinn. Þar er valmöguleiki, Gerast félagi í F4x4. Þar velja menn já eða nei, hvort menn vilja gerast félagar eða ekki. Það er að menn þurfa ekki að gerast félagar til að fá spjallaðgang.

    Nú eru á leiðinni miklar breitingar á vefsíðunni. Reynt verður að líkja eins og hægt er útliti eins og er á FaceBook. Byrjað verður á myndaalbúminu og síðan haldið áfram. Búið er að vinna töluverða undirbúningsvinnu til að koma þessu af stað. Stjórn klúbbsins leggur mikla áherslu á að þetta gangi fljótt og vel í gegn. Við erum jú allir í stjórn, deildum og nefndum að vinna fyrir félagsmenn. Þá eru allar hugmyndir vel þegnar en þessar breitingar hafa forgang núna.

    Kv. SBS. Vefnefnd.





    20.05.2013 at 16:53 #766099
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæl/ir.
    Ég hef verið að útfæra aðgengi á vefsíðunni að stjórn, nefndum og deildum. Þar er tekið fram hverjir hafa aðgang til að breita og lagfæra það sem þeirra deild eða nefnd viðkemur. Þeir eru merktir sem “ Publisher “ Allavega einn þarf að vera Publisher í hverri deild og nefnd. Hann hefur þá aðgengi til að setja inn fréttir og tilkynningar. Einnig það sem kemur hans deild eða nefnd við. Dagatalið er einnig þar inni.
    Hér er telgill að stjórn félagsins. https://old.f4x4.is/index.php?option=com_con … Itemid=241 Sem dæmi um nefndir er t.d. Skálanefnd og Umhverfisnefnd.
    https://old.f4x4.is/index.php?option=com_con … Itemid=132 og https://old.f4x4.is/index.php?option=com_con … Itemid=135
    Vesturlandsdeild er https://old.f4x4.is/index.php?option=com_con … Itemid=124 Þar er listinn óútfylltur. Nú bið ég allar deildir og nefndir að senda mér lista yfir þá aðila sem eru þar innan á vefnefnd@f4x4.is ásamt veffangi og símanúmeri. Síðan þarf að tengja aðila við vefgrúbbur deilda og nefnda. Þetta er mjög mikilvægt upp á allt samband innan klúbbsins.
    Kv. SBS vefnefnd.





    13.05.2013 at 16:01 #765749
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Heyrðu!! Kristján. Ef ég fæ ekki að vera inni með Lettann tala ég bara við hann Benna. Hann vill örugglega hafa Chevy sem næsta bíl við básinn hjá sér og allar Astro myndirnar á skjánum. Ætlið þið að taka séns á að Bílabúðin hæ…. við :)

    Kv. SBS.





    13.05.2013 at 12:28 #765745
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Jæja. Þetta er ágæt regla að sýna ekki sömu bílana og síðast. Ég ætlaði að gera Astroinn hæfan á sýninguna og ljósmyndir á skjá frá mér.

    Kv. SBS.





    12.05.2013 at 02:07 #765423
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Mér þótti vænt um á sameiginlegu kvöldi okkar félaga fyrir aðalfund þegar í samtali Hafliði buffaði mig einu sinni á vinstri og tvisvar á hægri öxl fyrir allt kjaftbrúkið hér á síðunni. Síðan tók hann utan um mig og sagði " mér þykir þrátt fyrir allt vænt um þig."

    Hafliði verður alltaf kær vinur minn og kann ég honum þakkir fyrir allt hans starf fyrir Það sem klúbburinn stendur fyrir og baráttu hans og okkar fyrir ferðafrelsi.

    Nú tekur við stjórn sem samanstendur af reyslumiklum orkuboltum er hafa unnið saman og slípað alla vankanta í samstarfi. Ég vænti mikils af þeirra ákvörðunum og starfi.

    Við félagsmenn megum ekki gleyma að við erum þáttakendur í baráttumálum Ferðaklúbbsins. Aðstoð okkar við stjórn, deildir og nefndir varðar framtíð jeppabreitinga, ferðafrelsis, virðingu fyrir viðkvæmri íslenskri náttúru og baráttu gegn ofstækisfullum einstaklingum sem halda að hálendið sé þeirra eigið. Barátta þessara eintaklinga er fyrirfram töpuð ef við höldum rétt á spöðunum.

    Kv. SBS.





    11.05.2013 at 03:17 #765419
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Hlynur! Ungur nemur gamall temur. Það má með furðu sæta að hörkumenn eins og þú ert og þínir ferðafélagar og allar grúbbur klúbbsins nenna ekki að lifta sínum litla fingri fyrir unga menn í því sem F4x4 stendur fyrir. Ég gamlinginn er ekki alveg að átta mig á því að þið rétt yngri, eruð ekki að skilja hvers vegna unglingarnir vilja ekki eiga samleið með þessum letingjum sem þið eruð! Þetta kemur nú samt vonandi.

    Kv. SBS.





    08.05.2013 at 16:55 #765395
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.

    Ég vil hvetja menn til að mæta með 2013 félagsskírteini. Þetta verður góður fundur.

    Kv. SBS.





    28.04.2013 at 14:07 #764823
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir félagsmenn.

    Vegna væntanlegs aðalfundar tek ég eftir að félagsmenn eru ekki kvattir til að hafa með sér gild 2013 félagaskírteini til að sýna við innkomu á fundinn. Ég sendi því póst á stjórn félagsins og spurði hvort ekki þyrfti að minna félagsmenn á að koma með 2013 félagaskírteinið sem veitti þeim rétt til setu á fundinum.

    Svarið frá stjórn var að menn þurfi ekki að sýna skírteini til að komast inn á fundinn. Ef þarf að ganga úr skugga um stöðu atkvæðaréttar fundarmanna getur fundarstjóri skoðað félagaskrána þar sem sést hverjir hafa greitt félagsgjaldið.

    Nú hef ég þá vitneskju vegna starfa í vefnefnd að það er vankvæðum bundið að prenta út félagaskrá greiddra félaga. Ég tel ekki rétt að fara nánar út í það hér. Ef þetta er ekki rétt hjá mér eða að búið sé að lagfæra þennan möguleika bið ég um að vera leiðréttur hér.

    Einfaldasta leiðin til að fundurinn sé löglegur er að félagsmenn sýni rétt sinn til setu á fundinum við komu, með gildu félagaskírteini. Að fletta upp öllum fundargestum samkvæmt félagaskrá eða tali tekur allt of langan tíma.

    Á síðasta fundi var engin krafin um gild skírteini né farið yfir hvort fundargestir hefðu rétt til setu samkvæmt félagaskrá.

    Lög F4x4. II. kafli Félagsfundur og stjórn 3. grein.

    Aðalfundur hefur æðsta vald félagsins. Hann skal halda árlega í maí mánuði.
    Fundurinn skal boðaður félagsmönnum skriflega með minnst sjö daga fyrirvara og með auglýsingu í blöðum. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og allar tillögur, sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélaginu sem hafa staðið full skil á gjöldum félagsins. Hinir sömu hafa einnig atkvæðisrétt á aðalfundi.

    Þeir sem eru aukafélagar minnir mig að hafi rétt til setu á aðalfundi og atkvæðarétt. Ég fann það að vísu ekki svona í fljótheitum en bið þá sem betur vita að koma því rétta á framfæri.

    Ég óska þess að félagsmenn sýni gild skírteini við komu á fundinn.

    Kv. SBS.





    26.04.2013 at 17:28 #765525
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Hústrukkar er alveg skelfilegt orð þegar við erum að reyna að breita ímynd klúbbsins til mýkra yfirbragðs. Ég er því með aðra tillögu og hún er " Dúkkuvagnaráð." Við Astroinn getum vel hugsað okkur að vera þar innan þess ráðahags.
    Kv. SBS.





    20.04.2013 at 10:55 #765513
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæll Eyþór.
    Hér eru menn að rökræða sem ekki eru sammála. Það kallast ekki tuð. Menn koma með rök fyrir sínu máli og síðan heldur umræðan áfram.

    Það sem ég hef komið hér á framfæri er að mínu viti staðreyndir. Stjórn, deildir og nefndir halda félaginu saman og eiga að vera leitandi eftir þörfum félagsmanna.

    Ég hef ekkert á móti nýjum félagsskap hústrukkamanna. Það er eins og engin hafi hugleitt það að skapa svona áhugahópum stað í félaginu og hér á síðunni. Það hefur verið mikið kvartað yfir því að ungir áhugasamir menn um jeppaabreitingar, ferðamennsku og ferðafrelsi séu samankomnir annarstaðar. Þá á ég við á Jeppaspjallinu. Þeir taka þá ákvörðun sjálfir og á eigin forsendum. Þá skulum við spyrja okkur að því hér í klúbbnum hvað veldur?

    Ég er áhugamaður um að stofna nýjan Spjall-flokk hér á síðunni fyrir svona áhugahópa eins og hústrukkaáhugamenn eru. Ungir menn hafa sín áhugamál í félaginu og það þarf að skapa þeim stað hér á spjallinu. Eins og þetta er núna er sviðið of lítið fyrir unga og eldri áhugamenn um jeppabreitingar, ferðamennsku og ferðafrelsi.
    Kv. SBS.





    19.04.2013 at 21:42 #765507
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæll Óskar.
    Mér þykir dapurt að standa í þessum leiðindar stælum. Ef opna á fyrir að geta stofnað nefnd fyrir einstaka áhugamál einstaklinga í klúbbnum þá sæki ég hér með um að fá að stofna Ljósmyndaáhugamannanefnd og líka Chevynefnd. Ég vil fá svar hjá stjórn hér á þessu spjalli um það mál.
    Síðan koma allir hinir með sínar bíltegundir, einka áhugamál og svo allar ferðafélaganefndirnar. Það er ekki með nokkru mót hægt að neita þessum félagsmönnum um að stofna nefnd. Hvað verður þá um fastanefndir? Líklega hverfa þær í aragrúa nefnda og verða marklausar. Þessar ákvörðun eru illa ígrunduð og gera klúbbinn að elliheimili.

    Kv.SBS.





    19.04.2013 at 19:11 #765495
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir félagsmenn.

    Mig langar að koma með stutta greiningu á hlutverki nefnda félagsins. Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að þylja þetta upp fyrir ykkur en hér kemur það nú samt. Í fastanefndarstörfum fellst að fara með helstu málefni tengd starfsemi klúbbsins. Ég les úr 9. greininni að starf fastanefnda sé að fara með helstu málefni tengd innri starfsemi félagsins. Þar á ég við þá starfsemi sem heldur félaginu saman og viðheldur eigum þess.

    9. grein.
    Innan félagsins og undir handleiðslu stjórnar starfa eftirfarandi fastanefndir sem fara með helstu málefni tengd starfsemi félagsins.
    Fastanefndir eru: Fjarskiptanefnd, Hjálparsveit Ferðaklúbbsins 4×4, Litlanefndin, Vef og uppýsinganefnd, Skálanefnd, Tækninefnd og Umhverfisnefnd.

    Stjórnskipaðar nefndir hafa sama hlutverki að gegna. Að auki verða þær að hafa fyrirfram ákveðinn tíma til að ljúka verkefni eða verkefnum sem tengjast starfsemi félagsins. Stjórn getur hvenær sem er lagt niður stjórnskipaða nefnd. Þetta þarf ekki að útskýra frekar.

    10. grein.
    Stjórn félagsins hefur heimild til að skipa stjórnskipaða nefndir til ákveðins tíma til að vinna að verkefni eða verkefnum er tengjast starfsemi félagsins. Skal stjórn skrifa sérstakt skipunarbréf þar sem fram kemur tilgangur nefndarinnar, nöfn nefndarmanna og hver starfstími nefndarinnar er. Stjórn getur hvenær sem er lagt niður stjórnskipaða nefnd.

    Stjórnskipaðar nefndir eru: Ferðafrelsisnefnd, Ferlaráð, Húsnæðisnefnd, Ritnefnd og Skemmtinefnd.

    Hér að ofan eru stjórnskipaðar nefndir sem eru búnar að lifa mis lengi. Engin þeirra hefur að mér sýnist fastmótaðan tíma til að klára sitt verkefni. Þessar nefndir eru eins og sjá má ekki samkvæmt lögum félagsins. Einhver verður því að bera fram breitingu á lögum um að gera allar eða sumar stjórnskipaðar nefndir að fastanefndum og leggja hinar niður eða endurnýja. Þessar nefndir eru ekki til þess fallnar að vera tímabundið verkefni.

    Þá er það ákvörðun stjórnar að stofna nýja nefnd sem yrði stjórnskipuð nefnd. “Hústrukkanefnd.” Hér er hópur félagsmanna með sitt ákveðna áhugamál. Ég sé ekki að sér áhugamál nokkurra félagsmanna falli undir lög um nefndir.

    Sú hugmynd hefur verið rædd innan vefnefndar í langan tíma að stofna “flokk” sem svipar til möguleika nefnda og deilda, að eiga samskipti í myndum og máli. Fyrsta hugmynd var hjá okkur að kalla flokkinn “Hópar.” Hústrukkar gæti orðið fyrsti hópurinn þar inn. Síðan kæmu fleirri hópar með önnur áhugaefni.

    Það er mikilvægt fyrir félagið að hafa allt innra skipulag í föstu formi og nákvæmlega eftir lögum þess. Ef það er ekki gert en öllu hrært saman fer allt kerfið að ryðlast og upp koma ósætti milli manna. Með nýrri og endurbættri vefsíðu er þetta léttur leikur og verður vonandi öllum til ánægju.
    Ég tel það ábyrgðarhluti sem vefnefndarmanni að taka þátt í orðnum gjörningi og kem ekki til að koma nálægt neinu sem varðar þessa svo kölluðu stjórnskipuðu Hústrukkanefnd.

    Kv. SBS.





    18.04.2013 at 18:18 #765437
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Ómar er fínn, skemmtilegur og jákvæður karl sem allir kunna vel við. Hann er einnig batnandi og með þannig mönnum er best að lifa. Það góða við skrifin hjá Ómari er að það er auðvelt að þýða og skylja þau á ýmsa vegu. Ómar passar sig líka á því að fá ekki óheppilega sterkan straum í sig. Þess vegna þarf ekki að ávíta hann fyrir óviðeigandi skrif og talsmáta. ;/
    Kv. SBS.





    18.04.2013 at 11:47 #765431
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæll Ómar.
    Ég færði þráðinn úr "Innanfélagsmálum" og yfir í "Klúbburinn". Þar er best að hafa hann svo allir sjái.
    Kv. SBS.





    16.04.2013 at 11:33 #765009
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæll Sveinbjörn.
    Ég get bætt á mig vinnu fyrir klúbbinn vegna sýningarinnar. Það má vera hvað sem er nema kannski í mannlegum samskiptum. Þar er ég dálítið erfiður. 😉 Vinnsla með myndir og útfærsla með þær kemur til greina og margt fleirra. Svo hvet ég félagsmenn til þátttöku.
    Kv. SBS.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 908 total)
← 1 … 22 23 24 … 46 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.