Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.11.2013 at 16:53 #437564
Snjöll hugmynd. Set þetta á listann.
Kv. SBS.
11.10.2013 at 21:36 #379356Vefnefnd óskar Suðurnesjadeild til hamingju með nýja skálann. Við væntum góðs samstarfs á nýrri vefsíðu F4x4 og vefsíðu Suðurnesjadeildar.
Kv. SBS Vefnefnd.
09.10.2013 at 14:53 #379286Sæl(ir).
Jæja strákar. Er ekki allt í lagi. Húsnæði fyrir félsgs-starfsemi og verksæðispláss fyrir fjóra bíla gæti kostað 40 til 60 miljónir. Þetta útheimtir líka einn starfsmann til að sjá um reksturinn.
Annars er alltaf gott að vera bjartsýnn og eiga sér dagdrauma.
Við verðum að nota aðrar lausnir til að taka á móti nýjum félögum. Eldri félagar verða að vera félagslyndari þegar nýjir menn koma inn. Þegar ég fór að troða mér inn fyrir þröskuldinn mættu mér Grúbbur og Gengi sem ekkert vildu við mig ræða fannst mér. Þar inni voru einkafélagar sem hleyptu engum inn hjá sér og áttu jafnvel í samkeppni við hin gengin. Flest þessara Gengja eru með lokaðar einkasíður á Facebook sem engin annar getur fylgst með. Það er allt í lagi að vera með einkasíðu en menn verða að deila af reynslu sinni til yngri manna. Þar sem ég er í vefnefnd ætla ég að leggja mitt að mörkum til að skapa öllum pláss á væntanlegri nýrri vefsíðu.
Kv. SBS. ( Vegna misskylnings lagfærði ég síðustu málsgrein og gerði henni betri skil. )
08.10.2013 at 09:02 #379202Sæl(ir)
Sigurður B. Sigurjónsson og Sesselja Gísladóttir með miða á hátíðina.
Kv. SBS. R 2060
29.09.2013 at 00:51 #378968Jæja strákar! Hvernig gekk sept. haustlitaferðin hjá Litlunefndinni? Ég hef ekki séð eina einustu mynd frá ferðinni eða umfjöllun á spjallinu. Koma nú. Litlanefndin verður að standa undir nafni!! Þetta er ósköp eitthvað dauft.
Kv. SBS.
22.09.2013 at 15:53 #379022Lokað á flest alla nema reynda F4x4 félaga. Nema hvað! 😉
Kv. SBS.
21.09.2013 at 10:01 #379042Tek undir með Kristjáni. Flottar myndir Hjörtur! Einnig var Magnús (MHN) með glæsilegar myndir til sýnis á opnu kvöldi á fimmtudaginn var. Nú fer ný vef-myndasíða og spjall-vefur að detta í loftið hjá okkur og verður gaman að fá myndasögu klúbbsins í safnið.
Kv. SBS.
14.09.2013 at 23:22 #378939Þeir sjást ekki svona flottir bílarnir í Florens.
Kv. SBS.
[attachment=3:2ylc8mge]_MG_8106.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=2:2ylc8mge]_MG_7979.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=1:2ylc8mge]_MG_7983.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=0:2ylc8mge]_MG_8021.jpg[/attachment:2ylc8mge]
08.09.2013 at 14:47 #378872Því miður verður ekki farið í að setja strax inn á síðuna þær tvær nefndir sem ég nefndi hér að ofan. Það er umtalsverð vinna og stutt í að ný vefsíða komi. Þar að auki þarf að útbúa efni og fl. er tilheyrir nefndunum.
Kv. SBS.
05.09.2013 at 23:59 #378867Sælir félagsmenn.
Þetta líst mér vel á. Það verður farið í það ekki síðar en strax að stofna Ungliðanefndar og auðvitað Hústrukkanefndar-síðu hér á vefnum okkar.
Svona eiga menn að hugsa og vinna framm á veginn.Kv. SBS.
02.09.2013 at 09:19 #767239Sæll Jón.
Menn sem lesa spjallþræðina mikið sem er bara gott verða gálítið vinstri-snúnir. Ef þú ferð aðeins til hægri , svona um það bil á miðja síðu sérðu fréttadálkinn. Þar er tilkynning um fundinn í dag. 😉 Atburðadagatalið er dálítið þreitt hjá okkur.
Kv. SBS.
01.09.2013 at 22:48 #766057Sælir félagsmenn.
Vefnefnd ætlar að standa við básinn og hafa eitthvað til sýnis og fróðleiks. Vonandi verður hægt að sýna það sem verður komið af nýju vefsíðunni. Hafliði ætlar að útbúa Random mynda-flettingar úr myndasafninu okkar til að sýna á skjá. Fleirra á okkur vonandi eftir að detta í hug.
Kv. SBS.
25.08.2013 at 20:26 #378735Sæl/ir.
Ef þið eigið 3 til 4 góðar myndir úr stikuferð get ég sett þær inn á flettimyndirnar. Það verður vonandi til hvatningar til þáttöku. sbsh@islandia.is
Kv. SBS.
24.08.2013 at 18:09 #767141Velkomin MHN. Þú færð Getrauna-heiðurs-sæti á nýrri vefsíðu.
Kv. SBS.
18.08.2013 at 22:37 #767031Sæl.
Við hjónin þökkum fyrir frábæra 25 ára afmælishátíð. Ég sé það alltaf betur og betur hversu verðmætt er að eiga trausta og góða félaga. Hér er eitt augnablik í myndun og tókst að fanga það.Logi alltaf góður.
[attachment=5:mz83xgef]_MG_7580.jpg[/attachment:mz83xgef]
Fólk á öllum aldri frá á nýræðs og allan skallann niður.
[attachment=4:mz83xgef]_MG_7563.jpg[/attachment:mz83xgef]
Flugelsasýning í boði Einars Sól.
[attachment=3:mz83xgef]_MG_7598.jpg[/attachment:mz83xgef]
Ekta brennustemning.
[attachment=2:mz83xgef]_MG_7556.jpg[/attachment:mz83xgef]
Brennusöngur.
[attachment=1:mz83xgef]_MG_7540.jpg[/attachment:mz83xgef]
Nýja fánastöngin og fleirra kunnuglegt.
[attachment=0:mz83xgef]_MG_7497.jpg[/attachment:mz83xgef]
13.08.2013 at 13:06 #766995Sælir.
SBS mætir og eiginkonan. Gaman að sjá sem flesta. Áfram svo.
Kv. SBS.
06.08.2013 at 21:45 #766973Það er oft á helgum sem þessari sem sorgin ber óvænt á dyr hjá okkur. Ég votta aðstandendum Péturs Róberts Tryggvasonar og annarra sem eiga um sárt að binda í þessu hörmulega slysi mína dýpstu samúð.
Sigurður B. Sigurjónsson.
01.08.2013 at 23:48 #766903Sælir.
Þetta er glæsileg strákar!
Ég veit að þið gætuð hrist reisulegan skála í Nýjadal fram úr erminni eins og að teiga blá-fjalla-vatnið silfur-tært. Já, og verandi í einveru og djúpri fjalla og jökla-kyrrð sem Vonarskarðið færir okkur.
Það veit ég að okkar ástkæru og hljóðlátu félagar í stjórn FÍ féllu á bæði knén í djúpri lotningu við fætur ykkar á meðan á verkinu stæði. Já, það er best að taka það fram " Á meðan á verkinu stæði "Félagar í Ferðaklúbbnum 4×4. Verum allir stoltir af atorkusömum einstaklingum sem starfa innan okkar samtaka. Það er gríðar mikið álag á þeim sem leggja á sig mikla vinnu fyrir okkar hugsjónir og áhugamál.
Kv. SBS.
30.07.2013 at 23:52 #766893Sælir.
Var að setja inn myndir á facebook frá vinnuferðinni. Smella á myndina.
Kv. SBS.[url=https://www.facebook.com/profile.php?id=1716415164&sk=photos&collection_token=1716415164%3A2305272732%3A69&set=a.3235240696007.1073741843.1716415164&type=3:34zd5wdm][img:34zd5wdm]http://f4x4.is/phpbb3/download/file.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=file.php&id=8021&mode=view[/img:34zd5wdm][/url:34zd5wdm]
Og auðvitað komið inn á hið frábæra myndasafn okkar. 😉
[url=http://f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=329315:34zd5wdm][img:34zd5wdm]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=329603&g2_serialNumber=2[/img:34zd5wdm][/url:34zd5wdm]
29.07.2013 at 10:46 #766891Sælir.
Er nýkomin heim úr vinnuferð í Setur. Þetta var mikil ævintýraferð. Hiti og veðurblíða sem aldrei fyrr, þrumur og eldingar klukkutímum saman og rigningarúrhelli sem ekki hefur sést hér áður. Þetta staðfesti Einar okkar Sól og getum við treyst orðum hans sem ætíð. Það var ótrúlegt hvað vinnan gekk vel hjá þessu hörkuliði sem lagði á sig þessi handtök. Ég hrósa Skálanefnd fyrir ótrúlega gott skipulag á hverju einasta smáatriði.Ég tók á fimmta hundrað myndir og læt ég nokkrar fylgja hér með. Það var ánægjulegt hvað margir voru með myndavélar og áhugasamir við myndatöku.
Kv. SBS.[attachment=4:1o62jxgf]_MG_6887.jpg[/attachment:1o62jxgf]
[attachment=3:1o62jxgf]_MG_6990.jpg[/attachment:1o62jxgf]
[attachment=2:1o62jxgf]_MG_7262.jpg[/attachment:1o62jxgf][attachment=1:1o62jxgf]_MG_7271.jpg[/attachment:1o62jxgf]
[attachment=0:1o62jxgf]_MG_7278.jpg[/attachment:1o62jxgf]
-
AuthorReplies