Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.01.2015 at 22:15 #77589029.12.2014 at 20:36 #775491
Á morgun þriðjudag upp úr kl 11. verður opnað niður í Síðumúla fyrir þá sem eru í fríi milli jóla og áramóta og þjást af hreyfingarleysi. Unnið verður eitthvað fram eftir degi og hvetur nefndin alla þá sem rörtöng,hamri, borvél,sóp og kaffibolla geta valdið að mæta. Fyrirhugað er að halda áfram með ofnalögnina og annað sem til fellur
Kv Nefndin
22.12.2014 at 16:04 #774944Þakka þér fyrir Maggi og sömuleiðis, jóla og áramótakveðjur til ykkar allra sem vilja kannast við mig.
Kv Rúnar
18.12.2014 at 22:06 #77482017.12.2014 at 07:39 #774766Í kvöld er síðasta vinnukvöldið fyrir jól í Síðumúlanum. Einar verður með heitt á könnuni og garðborðið mun svigna undan hnallþóru einni ógurlegri. Nú er um að gera að mæta og taka á því við vinnu,kaffidrykkju og kökuáti 😉
kv Nefndin
16.12.2014 at 22:11 #774763Á morgun miðvikudag er síðasta vinnukvöldið fyrir jól.Einar verður með heitt á könnuni og einnig mun garðborðið svigna undan hnallþóru einni ógurlegri sem borin verður fram 😉 Nú er um að gera mæta og taka til hendinni við vinnu, kaffidrykkju og kökuát.
Kv Nefndin
16.12.2014 at 21:59 #774761Á morgun miðvikudag er síðasta vinnukvöldið fyrir jól.Einar verður með heitt á könnuni og einnig mun garðborið svigna undan hnallþóru einni ógurlegri sem borin verður fram 😉 Nú er um að gera mæta og taka til hendinni við vinnu, kaffidrykkju og kökuát.
Kv Nefndin
13.12.2014 at 22:01 #774719Það gekk vel í dag,pípulögnin kominn vel á veg,ofnarnir í salnum komnir á sinn stað og rafmagnsrennur í skrifstofu nánast uppkomnar. Einar Sól mættur rúmlega kl.9 að hella upp á kaffi.Fulltrúi vefnefndar (Jón Emil) mætti með piparkökur í mannskapinn og fékk í staðin að fara ruslaferð. Að sjálsögðu mætti formaðurinn hress og kátur en hann er á sjúkralista og því löglega afsakaður frá vinnu. Logi Már var mættur með snittvélina sína sem hefur verið til sýnis á Þjóðminjasafninu en hún sýndi það og sannaði“ lengdin skiftir ekki máli“ NEI ÉG MEINTI ALDURINN.;-). Þegar vinnudegi Loga var lokið litu menn á hvorn annan og hugsuðu ekki ég (snittvélin). Maður sá að Heiðar pípari er búinn að snitta fyrir lifstíð, ég lét lítið fyrir mér fara en Guðmundur Geir hafði haft það á orði að hann hafi unnið á snittvél á árum áður en hann hefði betur sleppt því. 😉 En að sjálsögðu hafði hann eingu gleymt. Árni „Baukur „Bergs kom eins og við var að búast. Árni setti upp eina 10 metra af rafmagnsrennum og notaði um ca 300 skrúfur í það og var að velta fyrir sér hvort að myndi ekki duga. 😉 Ekki má gleyma Friðrik gjaldkera en hann kom færandi hendi með hádegismatinn en hann fékk sömu örlög og Jón Emil og var sendur í ruslaferð. Að gefnu tilefni skal tekið fram kaffi og matartímin runnu ekki saman. Sjálfur var ég settur í að festa upp ofnunum í salnum og eftir að hafa sett þá upp er ég sannfærður að gluggarnir og gólfið hallar.
Að lokum ætla ég að minna á vinnukvöld á mánudaginn.
Kv nefndin
11.12.2014 at 23:45 #774711Jæja,nú á laugardaginn á að ráðast í að leggja ofnalögnina í salin. Okkur vantar mannskap með okkur í verkið. Það væri gott ef þeir sem ætla að koma taki með sér tangir en ekki nauðsýnlegt. Ef nægur mannskapur mætir er eitt og annað sem má gera,t.d hengja upp ofna,fara ruslaferð með klúbbkerruna og klára að einfalda veggi á salerni.Mæting er kl 10 á laugardagsmorguninn.Það verður heitt á könnunni að hætti Einars Sól og vonandi eitt með því.
kv Nefndin
10.12.2014 at 16:47 #77464806.12.2014 at 22:29 #77448003.10.2014 at 20:10 #77206703.10.2014 at 12:47 #772062Þakka fyrir hólið. AMC mótorinn fer í hann þegar verður búið að hressa upp á hann. En annars fer það eftir því hvað Logi“óákveðni“Ragnas ætlar að gera í vélarmálum ;-).Demparnir hafa 30 cm færslu.Að aftan er samslátturinn 12-13 cm en aðeins minni að framan.Sundurslagið að aftan er þá um 17-18 cm. Afturdemparnir halla aftur að ofan þannig að færslan á þeim er eitthvað meira en það sem kemur fram hér að ofan.
30.09.2014 at 21:05 #771906Jæja,þá er hann loksins kominn á hjólin. Hann á eftir að lækka eitthvað,gormarnir eiga eftir að jafna sig,vélin er þyngri sem fer í hann og lækka hann á grind.
kv Rúnar
28.09.2014 at 19:38 #771866Nú er nánast vinnan við hásingarnar búin. Wagoneerinn fer á hjólin á þriðjudaginn og heim í skúr. Næsta verkefni er að ganga frá hjólskálum,innribrettum og lækka hann á grind.
08.09.2014 at 23:31 #771534Hér eru myndir af afrekum kvöldins
Kv Rúnar
06.09.2014 at 19:26 #771494Er búin að stilla upp framhásingunni, er að smíða og púnta upp stífuturna ,festingar fyrir dempara á hásingu og gorma.
Kv Rúnar
03.09.2014 at 23:26 #771444Það var vaskur hópur sem mætti í Síðumúlann í kvöld. Næsta mánudagskvöld verður haldið áfram að hreinsa út og við hvetjum félagsmenn að mæta og taka þátt í vinnunni við að standsetja húsnæðið okkar.
nefndin
Viðhengi:
29.08.2014 at 23:15 #771265Þakka þér fyrir góðar ábendingar Gunnar varðandi samsláttarpúðanna. Bumpstoparnir fara undir þegar þar að kemur en þangað til verð ég að notast við þessa púða sem eru komnir undir. Þar sem þú ert búin að lesa úr þér augun um samsláttarpúða hvaða bumpstopara mælir þú með að ég noti undir Wagoneerinn. Heyrðu Kristján,í bingoferðunum hef ég bara séð JEEP á planinu hjá Setrinu,en reyndar man ég eftir einum Patta sem Jeepverjar voru á sem kom hálf haltur í bæinn eftir að hafa verið að þvælast fyrir JEEP en það er nú önnur saga ;-). Logi, Það þarf varla að taka það fram að Wagoneer-arnir eru LANGFLOTTASTIR 😉
Kv Rúnar
28.08.2014 at 23:08 #771241Þá eru demparafestingarnar komnar í.Næst er að sjóða þær á grindina.Framhásinginn verður stillt upp um helgina.
Kv Rúnar
Viðhengi:
-
AuthorReplies