Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.04.2011 at 16:04 #728927
Hvað kallar þú viðhaldsfrítt Atli eiginlega?
Held að ég sé á öðru eða þriðja legusettinu að framan, eftir ca 300.000 km á 12"-17" breiðum felgum. Það kalla ég ekki neitt til að nenna að spá í
Er á þriðja settinu að aftan, sem mér finnst eiginlega mun furðulegra…BTW, Freysi og co reiknuðu einhverntíman út líftíman á framhjólalegubúnaði í þessum bílum, miðað við 14" breiðar felgur, og uppgefna endingu frá einhverjum framleiðandanum. Minnir að hann hafi sagt að niðurstaðan hafi verið einhversstaðar í kringum 500.000 km !
kv
Rúnar.
27.04.2011 at 15:17 #728921"Leyfilegt load" er væntanlega skilgreint sem max-constant load. Beygja í kömbunum telst vart til þess.
Annars skil ég ekki hvaða viðhald þú ætlar að minnka. Allavega myndi svona breyting ekki minnka neitt viðhald hjá mér, þar sem ekki er hægt að minnka eitthvað sem ekkert er.
Það sem drepur þessar legur er þegar vatn kemmst inn í þær (nú eða sjór eftir að bíllinn fær á sig brotsjóRúnar.
En þetta eru verulega skemmtilegar pælingar
26.04.2011 at 20:20 #728903uhhh, til hvers?
19.04.2011 at 13:31 #728045Eru menn ekki að dæma Vegagerðina full hart hér?
Er það ekki Umhverfisstofnun sem ákveður þetta orðið?
Allavega er kortið vel og vandlega merkt þeim ásamt vegagerðinni.kv
Rúnar.
04.04.2011 at 08:40 #72540946" Econolinerar eru greinilega stórkostlega ofmetnir
Álíka getumiklir og 35" slyddujeppar samkvæmt ofangreindu…
21.03.2011 at 17:51 #72399019.03.2011 at 16:47 #723954Hljómar eins og það sé kominn fullt af snjó.
Vegna risjóttar tíðar undanfarið ættu menn nú kannski svona að forðast stórar flatar lægðir í landslaginukv
Rúnar
10.03.2011 at 01:32 #722488Á bara ekkert nóu nýlegt track til að senda á þig. Orðið allt of langt síðan ég hef farið upp á fjall
Vertu viðbúinn alvöru veðri á sunnudaginnkv
Rúnar
08.03.2011 at 12:21 #722554Fini-dælan er nánast ódrepandi. Min er orðin 11 eða 12 ára (frá 1999 held ég), og ekki fengið neina sérstaka meðferð, og hún hefur aldrei virkað betur
kv
R.
05.03.2011 at 20:48 #722072oft pláss inn í framstuðaranum á nýrri bílum
05.03.2011 at 20:43 #721506Óskar, ef þú tekur alvöru tölfræði á þetta og reiknar út fjölda Patrola á fjöllum vs aðra, þá kemstu sennilega að því að jafn margir patrolar sökkva og aðrar tegundir
kv
Rúnar.
04.03.2011 at 14:00 #721630"Einfaldlega af þeirri ástæðu að það er ekki hægt að bjóða fólki upp á það að arka fótgangandi neðan úr byggð til þess eins að mæta vélknúinni umferð á síðustu metrunum".
Verður fólk þá rosalega pirrað af því að það var að arka eitthvað sem það gat ekið?
Er fólk að arka frá A-B til þess eins komast að B en ekki til þess að njóta þess að arka á milli A og B?
Er fólk ekki þá eitthvað að miskilja ferðamennsku yfir höfuð?Kveðja
Jeppakall sem elskar að arka milli A og B.
04.03.2011 at 11:02 #722064Þarf bara að vera það vel fest að þetta breytist ekki í tundurskeyti við árekstur.
03.03.2011 at 05:07 #721490Eitt sem mig langar að benda á af fenginni reynslu er að það þarf að skipta um flestar olíur tvísvar eftir svona. Þess hefði allavega vega þurft á gíkössum og drifum hjá mér. Allt vatnið næst ekki út við einfalda skiptingu.
kv
Rúnar.
01.03.2011 at 10:35 #7217603.2 lítra 200 hesta kolabrennsla með 470 torkum…. nammi nammi nammi…..
28.02.2011 at 15:36 #721462Titillinn á þessari frétt er bara snilld:
http://www.visir.is/annaladur-patrol-ad … 1110228957
kv
Rúnar
24.02.2011 at 22:17 #721028Er ekki leiðinlega langur afgreiðslufrestur á þessum rússnesku?
22.02.2011 at 10:39 #720684Ég vil nú meina að það séu tvær ástæður fyrir því að hér er lítið um að vera. Annarsvegar vegna þess að lokað var á utanfélagsmenn ( og allt barnalands vælið hvarf héðan um leið ), og hinsvegar einfaldlega vegna kreppunnar. Stór hluti manna hafa bara ekki efni á þessu sporti lengur.
Það að allt barnalandsvælið hvarf héðan og virðist heldur ekki hafa flust yfir á jeppaspjallið, hlýtur að þýða að þessir tveir hópar eigi í einhverjum samskiptaerfileikum…
kv
Rúnar.
22.02.2011 at 10:33 #720358Almennt í þessum felgufræðum þá er flegustærðir sem eru heiltölur ókónískar. Þannig er 16" ókónísk, en 16.5 í raun bara kónísk 16".
kv
Rúnar
21.02.2011 at 20:20 #720350Þetta er eiginlega ekki lengur spurning um 15 eða 16 tommur, heldur 16 eða 17 tommur.
-
AuthorReplies