Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.08.2003 at 07:49 #475254
Voru ground hawkarnir þínir ekki bara ornir gamlir og fúnir?
Ég er á ground hawk dekkjum á veturnar núna, og verð að segja að þetta eru bestu snjódekk sem ég hef prófað, og hef nú prófað slatta af tegundum.
Rúnar.
08.08.2003 at 15:38 #475360Heyrði einhversstaðar að eitthvert árið hefði Ford komið með svona sealed-for-life, no service needed, hjólnöf. Þ.e.a.s. að hjólalegurnar eru lokaðar og ekki hægt að þjónusta þær.
Gallinn við þetta system er sá sami og við önnur svona sealed-for-life system, er að "life" parturinn í erfiðum aðstæðum er yfirleitt verulega stuttur.
Eru ekki einhverjir sérfræðingar þarna úti sem eru með þetta allt á hreinu?
Rúnar.
08.08.2003 at 15:30 #475310Eitt gott verkstæði er efst í boganum á Súðavoginum. Man bara ekki hvað það heitir.
Mjög góðir í öllu svona stöffi.
Rúnar.
07.08.2003 at 15:03 #475344Hvar kemur maður svoleiðis dælur fyrir, svo það sé auðvelt að nota hana á ferð?
Eru þær til með handfangi sem maður færir upp og niður til að dæla?
kv
Rúnar.
07.08.2003 at 11:59 #475336… bara flest
kv.
Rúnar.
07.08.2003 at 11:31 #192777Hvar fást ódýrustu og bestu olíudælurnar fyrir aukatanka?
kv
Einn í breytingum.
07.08.2003 at 09:23 #475242Menn fljúga nú ekki alltaf útaf þegar hvellspringur á þessum börðum. Allavega af þeim skiptum sem ég veit um og hef orðið vitni af þá fóru menn allavega ekki útaf. Beggi og Soffía tóku þó eitthvað flug ef ég hef heyrt þá sögu rétt.
Rúnar.
06.08.2003 at 17:09 #475314Byrja á því að hreinsa spíssana með því að setja hreinsiefni í dieselinn. Fæst víst eitthvað gott stöff í Stillingu (ca 1500 kr).
Ef bíllinn er kominn vel á annað hundrað þúsundin eða meir, væri reyndar sniðugra að láta Framtak endurnýja dísurnar (30 – 40 þúsund)
Ef þetta dugar ekki, þá er líklega eitthvað annað að!
Rúnar.
05.08.2003 at 09:31 #475232Hef séð þetta gerast á Ground Hawk, 38" Dick Cepek og Papa Jones dekkjum.
Hljómar eins og Ground Hawkinn sé viðkvæmari fyrir þessu, en þetta fyrirbæri (seperation of belts) er skillt öllum gúmidekkjum!
Einhvernvegin hef ég nú alltaf talið að Ground Hawkinn og Mudderinn séu með sama belginn (tæknilega séð sama dekkið), bara sitthvort mynstrið. Belgurinn á þeim báðum lítur allavega jafn illa út…
Kveðja
Rúnar.
05.08.2003 at 08:57 #475228Þetta getur gerst á öllum dekkjum, á ekkert sérstaklega skilt við Ground Hawk frekar en Michelin 175/70, þó svo að eflaust geti einhverjar dekkjagerðir verið eitthvað viðkvæmari fyrir þessu en aðrar…
Ef ekið er "of hratt" á lágum þrýsingi þar sem ekki er nægjanleg kæling, þá geta strigalögin í dekkjunum skemmst, losnað um strigalögin, þau einfaldlega slitnað í sundur. Svo verður svona búmsarabúmm við tækifæri. Ef dekk hitnar eitthvað að ráði í akstri þá er líklega of lítið loft í því.
M.ö.o. þegar menn eru að keyra á malbikinu þá er best að hafa nóg af lofti í börðunum. Það þarf að fylgjast með þrýstingunum, því oft sígur úr þessum dekkjum loftið.
Svo geta myndast skemmdir í hliðum dekkja af öðrum orsökum, sem enda með búmsarabúmmi.
Kveðja
Rúnar.
18.07.2003 at 09:21 #474908Fyrir þínar þarfir myndi ég frekar mæla með Ozi. Ozi var upphaflega smíðaður út frá gps tækjum, þ.e.a.s. til að plana leiðir og skoða heima hvert þú fórst og svoleiðis. Navtrec var smíðaður sem siglingartæki fyrir skip, ætlaður upp í brú til að sigla eftir, án þess að þurfa mikil gagnasamskipti (önnur en nmea 183) við hin mismunandi GPS tæki.
Ozi er þrusu forrit og með meiri stillingarmöguleikum. Honum vantar hinsvegar sjálfvirka samskeytingu á kortum sem navtrekinn hefur, og er því ekki eins góður til að keyra eftir.Rúnar.
10.07.2003 at 15:00 #474802Fór hann um síðustu helgi.
Hann er frekar auðfarinn. Sandarnir fyrir norðan Mýrdalsjökul eru sléttir og hægt að standa fákinn þar yfir. Parturinn Fljótshlíð-Hvanngil er svipaður og fjallabakur nyðri, en vegurinn þar er í góðu ástandi núna.
Hólmsáin er frekar slæm núna (töluvert vatn allstaðar þarna núna vegna rigninganna undanfarið). Vorum með óbreyttann Chreeroke með okkur og þorðum ekki annað en að draga hann yfir. Vatnið náði upp að framljósum á honum. Aðrar ár eru ekkert vandamál.
Hægt er að sleppa að fara yfir Hólmsánna með því að fara svokallaða Öldufellsleið, og er þá beygt til hægri "af syðri fjallabak" rétt vestan við Hólmsána, og ekið vestan hennar niður að Hrífunesi. Þessi leið er að mínu mati miklu fallegri og skemmtilegri en flestar aðrar þarna. Og þá er alveg gargandi snilld að hjóla niður hana á fjallahjólum
Þá er líka snilld að lengja túrin pínu og fara um Hungufit, norðan Tindfjalla, eða bara eiga það inni þar til næst.
Kv.
Rúnar.
09.07.2003 at 15:41 #473992Ég held að 17" felgurnar séu ekki kóniskar eins og 16.5", þannig að hún ætti að henta mun betur. Svo veitir örugglega ekkert af fullvaxta bremsudiskum undir svona dekk, diskum sleppa ekkert undir minni felgur.
En að sjálfsögðu gæti ég haft fullkomlega rangt fyrir mér.
Rúnar.
08.07.2003 at 11:31 #474742Að auki tók pínu þátt einn MB-Ateco, og hann bilaði ekkert heldur
Kveðja
Rúnar
07.07.2003 at 12:42 #474734Heimsguleg var þessi athugasemd með ódæmum, og ekki von á öðru. Enda hefur maður heyrt það frá ónefndum heimildarmönnum að Patrolman sé nebnilega með einsdemum heimsgur.
Rúnar.
03.07.2003 at 10:05 #474626Mér þykir 0.5 – 1.0 gráður vera lítill spindilhalli fyrir breyttan bíl. Minnir að orginal séu hásingarbílarnir með í kringum 3 gráður. Þá eru sumir að auka hallan meira en þetta við breytingar.
Meiri spindilhalli leiðir til meiri stöðugleika í stýrinu, en einnig til sterkari "return to center" krafta, sem og meiri togkrafta þegar ekið er í framdrifinu.
Rúnar.
25.06.2003 at 14:49 #474466Hef einmitt heyrt menn bölva þessum gormum vegna þess að blaðfjaðrirnar fóru að brotna í tíma og ótíma eftir að þeir voru settir í. Það er líklega vegna óæskilegs vindings, sem má stoppa með stífum.
Rúnar.
24.06.2003 at 13:05 #474422Allir nýjir LCD skjáir eru TFT. Og jú, TFT skjárnir eru miklu skýrari, sérstaklega í mikilli birtu og þegar horft er á þá frá hlið.
Rúnar
23.06.2003 at 14:18 #474370Þú verður bara að mæla þetta og fara svo að leita. Það er ekkert víst að það sé neitt til sem lengir svona mikið.
Mældu þetta bara of farðu svo á einhverjar partasölur og grúskaðu.
Rúnar
18.06.2003 at 15:41 #474232Ekki gleyma því að núna er svona doltið sólbráðarfæri, og í svoleiðis færi er oft bara betra að vera á minni dekkjum en stórum. Og hrúgu af hestum er sérstaklega gott að hafa því (sem 120 bílinn vantar víst ekki
Þannig að Arcticinn á sínum griplausu ofvöxnu gleðigúminum ætti nú eiginlega bara að vera stolltur yfir að hafa haldið í við 120 bílana. Sólbráð er jú það leiðinlegasta færi sem hægt er að bjóða 44" gleðigúmíum.
Rúnar.
-
AuthorReplies