Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.06.2008 at 11:09 #624476
Held að -TE vélin hafi alltaf verið í lc90. -T vélin var í 4runner og einhverjum gerðum af 70 crúiser.
E stendur fyrir Electroniskt olíuverk.kv
Rúnar.
11.06.2008 at 08:44 #624258Hvort tekur meira á sig kassi sem liggur á jörðinni, eða sami kassinn meter fyrir ofan jörðina (og hleypir því lofti undir sig)? Væri svolítið gaman að spá í það.
Annars held ég að mjúk og svög fjöðrun sé neikvæð upp á hliðarvind að gera. Þegar hjólhýsinu hallar þá færist þyngdarpunktur þess utar og minni kraft þarf til að það velti (á við um bíla líka). Efast um að loftmótstaðan minnki neitt að ráði, ef eitthvað.
En þetta er náttúrulega bara eitthvað sem ég held, en veit ekki !
kv
Rúnar.
05.06.2008 at 16:53 #624098Ég er með sérsmíðað állok yfir pallinum hjá mér, sem er um 15 cm á hæð, og ég setti tvö þokkalega góð göt framan á lokið og svona dæmigerðar litlar loftræstigrindur yfir þau svo ekki færi bleyta inn.
Til að losna við slagan þarf bara að vera loftræstingu á rýminu. Ég fór aldrei út í að tengja saman pallinn og húsið á bílnum, en með því má ná yfirþrýsting í pallinum.
kv
Rúnar.
05.06.2008 at 16:32 #624094Ég keypti þéttilista í Bílasmiðnum og setti á. Festi þá á állista sem ég límdi í kringum hleragatið. Náði þessu algjörlega þéttu, og lenti því í að pallurinn slagaði allur. Það hætti eftir að ég setti loftun framan á hann.
kv
Runar.
05.06.2008 at 09:05 #623964Með þessum og [url=http://www.gpsbabel.org/htmldoc-development/fmt_unicsv.html:3hgpvww2]Universal csv format"[/url:3hgpvww2] geturðu náð desc-x-y-z inn í nánast hvaða format sem er. Gera replace á "-" í skránni fyrir "," (reyndar aulalegt hjá þeim að leyfa þér ekki að velja seperator).
Ef annar texti er í skránni sem getur ruglast við replace’ið, þá eru flestir svona þungaviktar editorar (ultraedit, textpad og fleiri) með svokallað "column-mode" sem leyfir þér að velja texta innan kassa og framkvæma aðgerðir einvörðungu á þann texta (t.d. velja fyrstu x stafinna í hverri línu). Þá eru þeir einnig flestir með search-replace út frá reglulegum segðum ef menn hafa einnhverntíman nennt að læra þá sýru
Verður væntanlega alltaf eitthvað smá möndl.kv
Rúnar.
04.06.2008 at 11:25 #623958[url=http://www.cadopolis.com/autocad_addons/InfoEra_GpsCad.shtml:2mj2naet]GPS/CAD converter[/url:2mj2naet]
04.06.2008 at 09:34 #623932Sindri er selur einnig járn í massavís. http://www.sindri.is
Járn var ekkert svo dýrt fyrir nokkrum árum en heimsmarkaðsverð á því spólaðist upp ekki als fyrir löngu. Var í umræðunni þá að Kína væri að soga til sín allar járnbirgðir heimsins.
kveðja
Rúnar.
02.06.2008 at 09:23 #623738Það er komið sumar.
kv
Rúnar
22.05.2008 at 11:49 #623310Atli, hvernig er þetta með ykkur þarna í sveitinni, hafið þið barasta ekkert verksvit?
Algjör óþarfi að vera eitthvað að hoppa. Bara ná í stóra hamarinn hans afa í skottið og passlega langt langt járn með ávölum endum, og berja dekkið fast á annan kantinn.
Fyrir utan það eiga menn bara að vera með alvöru felgur, þá eru verulega litlar líkur á að menn afelgi yfir höfuð, hvað þá beggja megin í einu.
kv
R.
15.05.2008 at 22:04 #622954Metan er gas
En þá kemur önnur skemmtileg spurning, hvað ætli metan hjálparinnspýting geri?
Einhverjir eðlisfræðingar hérna? Einar?
Kv
Rúnar.
14.05.2008 at 13:08 #622742Getur ekki verið að hann svari nafninu Kiddi?
Stór maður, meðlimur í HSSK, eins og reyndar flestir sálaverðir í Langadal voru um áraraðir.Rúnar.
09.05.2008 at 10:16 #622612ja, 2.8 lítra sexa er náttúrulega svoddan kettlingur að bóndinn fær aldrei meira en kippu af 250 ml Thule frá mér.
kv
R.
08.05.2008 at 23:11 #622604þú ert eitthvað með rangann misskilning á stýrisvélinni Það er alveg hægt að nota orginal IFS stýrisvélina með hásingu úr 70-krúser, alveg eins og það er hægt nota hana með stýrisvélinni sem fylgir henni.
Svo voru víst nokkrir IFS díesel bílar fluttir inn, Xtra cab bílar.
Og, sá sem kemur 6 cyl línuvél ofaní húddið á Hilux á inni hjá mér kippu af Thule
kv
Rúnar.
08.05.2008 at 22:44 #622644Þessi neðsta frá Magga, held ég að sé tekin í október 1989, á leið frá Álftavatni niður í Fljótshlíð. Ég var þá nýliði í HSSR. Fórum uppeftir í bongó blíðu á föstudagskvöldi, löbbuðum á Háskerðing á laugardeginum og fenntum svo nánast inni aðfaranótt sunnudags. Sunnudagurinn fór í að komast heim. Tók okkur ca 8 klst að komast frá Álftavatni að Hvanngili! Þurftum að moka part af leiðinni (í hliðarhalla) svo múkkinn kæmist. Þurftum að moka eina 1-1.5 metra niður (þá var tæplega 1 meter eftir sem bíllinn lullaði í gegnum í skriðgrínum, keðjaður á öllum). Á meðan skóf að bílnum, og á tímabili náði skaflinn hlíðarmegin upp á þak. Eftir að á sandana kom gekk þetta þó nokkuð vel, mikill krapi í ánum þó (eins og sjá má á stuðurunum á bílunum). Komum niður á Hvolfsvöll um miðnætti. Bílstjóri á múkkanum var Sveinn nokkur sem á þessum tíma (eða örlítið síðar) átti Terreble Green (og sprautaði hann rauðann ef mig misminnir ekki).
Mér fannst alltaf svakalega gaman að keyra þennan bíl. Hafði mikinn karakter. Var vopnaður 8 gíra gírkassa + látt drif + skriðgír. Enginn af þessum 24 gírum sköruðust (8 í lága var lægri en 1 í háa, og 8 í skriðgír var lægri en 1 í láa). Fyrstu 2 gírarnir í háa voru lógírar (tók af stað í 3 yfirleitt). Gjörsamlega klikkuð niðurgírun (sennilega fyrsti bíllinn á Íslandi með alvöru skriðgír Var einnig vopnaður deep-fording pakka, sem þýddi að hásingarnar voru yfirþrýstar svo að vatn kæmist ekki inn í þær. Sama gilti um framljósin!
HSSR keypti hann nýjan 1982 minnir mig (sennilega einn af fyrstu 1300L bílunum frá Benz, allavega var eitthvað vesen með ábyrgðina á honum vegna gífurlegs vélaraflsins, öllum 170 hestöflunum). Var seldur 1995 eða 1996, og keypti Valdi Vípon hann. Hann tók hann allann í gegn, hækkaði, setti undir hann stærri dekk og lengdi hann slatta, en skortur á lengd háði honum alltaf. HSSR keypti í staðinn tvo Land-Cruiser bíla, og verður að viðurkennast að þeir voru margfallt öflugri í nánast öllum aðstæðum.
Eftir að Ársæll seldi MAN’inn sinn er enginn svona alvöru trukkur eftir í björgunargeiranum, eftir því sem ég best veit. HSSR á í dag 22 manna Ateco 4×4 (slökkubílagrind). Þokkalega öflugt tæki þó hann sé enginn múkki. En Múkinn var reyndar alltaf ofmetinn, þó svo að hann hafi sennilega verið einn öflugasti trukkurl landsins á sínum tíma
kv
Rúnar.
05.05.2008 at 16:31 #620712var ég kosinn til eins árs eða tveggja?
02.05.2008 at 10:38 #621974Felgan er einfaldlega stækkuð upp í 15.x tomur…!
Þ.e.a.s. umál felgunar er aukið lítilega, þannig að dekk sem eru rúm á felgunni hætta að vera það.kv
Rúnar.
02.05.2008 at 09:51 #621968Svo er hægt að láta valsa felgurnar sem þú hefur. Þannig helst breiddin, lookið og þyngdin eins. Svo er Smári í skerpingu farinn að smíða alveg snilldarfelgur, svona Hummer style (alvöru beadlock), svona ef þú skyldir nú uppfæra upp í jeppadekk
Annað, í öðrum þræði kemur fram að það sé búið að gera breytingar á drifbúnaðinum í bílnum. Má maður spyrja hverjar þær eru? Kannski komin með aðra afturhásingu?
kv
Rúnar.
28.04.2008 at 17:08 #621618Tek undir með ofangreindum.
Þætti vænt um að heyra röksemdafærsluna bak við þetta.
R2018.
15.04.2008 at 17:52 #620150Bið forláts á stafaruglinu…
kv
Rúnar.
15.04.2008 at 14:28 #620144Þar sem farið verður yfir merka atburði í sögu jeppamensku á íslandi á árum áður verður Weaponin hans Oddgeirs náttúrulega að standa stoltur.
-
AuthorReplies