Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.10.2016 at 12:06 #940964
Þó svo að fjölmörg fyrirtæki séu á listanum þá væri gott framtak að fá fleiri sölu- og þjónustuaðila inn með afsláttarkjör. Dettur mér þá helst í hug verslanir sem selja verkfæri og svo auðvitað varahlutaverslanir. Mér er sérstaklega hugleikið að fá Sindra inn, mér finnst ég sífellt vera að kaupa hjá þeim verkfæri:)
25.11.2015 at 17:55 #934852Eru margir þátttakendur og hópsstjórar? Gaman væri að sjá hverjir hafa skráð sig.
16.09.2015 at 11:27 #929263Þetta verður flott ferð en gaman væri að fá að sjá lista yfir þátttakendur og hópstjóra.
Er ekki skipulagið eins og áður, hópstjórar mæta kl. 8:00 til undirbúnings?
05.06.2015 at 10:04 #780073Ég mæti að morgni laugardags og kem þá beint á vinnusvæðið sem ég veit ekki hvar er. Get ég fengið hnitin á þeim stað svo ég finni ykkur?
Einnig verður í samfloti með mér einn félagi okkar með tvo vaska sveina. Verða ekki í matnum.
27.05.2015 at 19:37 #779966Gamla kirkjan á Fáskrúðsfirði
30.01.2014 at 13:45 #445432Ég keypti teygjuspotta í Hampiðjunni fyrir 6-8 árum sem reyndust mér ekki vel. Hann gaf svolítið högg í lok átaks. Sá spotti var rauður að lit en kannski er komin önnur betri tegund núna.Mér fannst sjálfum sem nýgræðing á þessum tíma að spottinn væri bara góður en þeir sem drógu mig ú festu voru hreint ekki sama sinnis.
mér fannst rétt að vekja athygli á þessari reynslu minni.Kv EHJ
09.10.2013 at 12:31 #379094Endaði á því að kaupa tóg frá Ísfelli sem er 8mm en með kápunni þá er það 12 mm að þykkt.
Svo er bara að koma því á og bíða eftir snjónum.
03.10.2013 at 14:58 #379092Hampiðjan er með Dynexið kápuklætt í þeim tilgangi að það klemmist síður inn á milli í spilinu.
Í því er tógið 5/16″ (8mm) sem átakið er á en eitthvað sverara í heildina. Sennilega er það nægjanlega sterkt með slitþol upp á yfir 5 tonn.
90 fet kosta um 37.000 hjá þeim.
En hvernig er það ef það er teygja upp á 3,5% í Dynex hversu mikil gæti hún verið í vírnum. Veit það einhver?
Allavega er Dynex þannig að ef það slitnar þá dettur það niður dautt sem er mikill kostur.
27.09.2013 at 11:19 #379085Takk fyrir það, ég ætla að athuga verðið hjá Ísfelli.
Ég er að spá í að setja Dynex á spilið hjá mér til að létta bílinn og svo er Dynexið meðfærilegra en stálvírinn. Vírinn gæti verið til sölu ef einhver hefur áhuga. 125 fet ónotaður.
25.09.2013 at 12:16 #226598Hvar er best að kaupa Dynex tóg á spilið? Hvort á maður að taka 5/16″ eða 3/8″ þykkt?
Er einhver sem veit hvað best er i þessu máli?
-
AuthorReplies