Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.01.2010 at 01:46 #680098
Ágætu félagar.
Ég gerðist svo djarfur að senda eftirfarandi póst til nefndarmanna í umhverfisnefnd Alþingis til að upplýsa þá um hvað er að fara fram hjá okkur og hvernig okkur er innanbrjósts. Ég held að það sé kominn tími til þess að þeir fái að vita okkar hug og hvaða stöðu við erum komnir í.::Ágætu háttvirtu alþingismenn, nefndarmenn í umhverfisnefnd.
Ég leyfi mér að senda ykkur slóð á vef okkar old.f4x4.is og blogg okkar: https://old.f4x4.is/index.php?option=com_jfu … =5&t=19209
vegna bréfs Umhverfisstofnunnar til klúbbsins sem hljóðar eftirfarandi:Góðan daginn
Umhverfisstofnun hefur borist ábending um árshátíð 4×4 í Setrinu þann 29.janúar -1.febrúar 2010. Umhverfisstofnun vill árétta að akstur utan merktra slóða í friðlandinu Þjórsárverum er bannaður og vísar í 4. tölulið auglýsingar um friðlandið í Þjórsárverum þar sem segir:
„Umferð ökutækja er óheimil utan merktra ökuslóða og skal merking háð samþykki ráðgjafarnefndar (Þjórsárveranefndar). Þó skal heimilt að nota snjóbíla og vélsleða á jökli og einnig á snjó og hjarni þegar gróðri stafar ekki hætta af“
Virðingarfyllst
Fyrir hönd UmhverfisstofnunarÞetta bréf er með ólíkindum og sýnir hvers konar hug þessi stofnun ber til félagsskapar okkar sem að mínu mati hefur lagt sig fram í lima við að umgangast hálendið með virðingu og verið fyrirmynd allra ökumanna sem ferðast um á bifreiðum um hálendisvegi okkar.
Við höfum margsinnis boðið fram aðstoð okkar við að skipuleggja hálendið við alla þá sem koma að þessum málum og sérstaklega reynt að fá að koma á samstarfi við umhverfisstofnun með grátlega litlum árangri.
Ég skora á ykkur að kynna ykkur starfsemi okkar og fara inn á vef okkar eða hafa samband við félagið og fá upplýsingar um starfsemi okkar.Með virðingu og kveðju
Sverrir Jónsson
16.09.2009 at 22:58 #657518Sverrir Jónsson
TK 975
Isuzu crew cab
33" dekk
Talstöðvar Vhs og cb
892 0638
Garmin 192C
Loftdæla "drullutjakkur" dráttartóg ofl..
Aukafélagsm eiginkonu: Rannveig Guðmundsdóttir (1721)
Aðstðarökumaður Sigurjón Eyjólfsson
Nokkrum jöklaferðum og í Setrið að vetralagi.
01.11.2007 at 12:41 #601532Get ekki orða bundist þegar ég las ummæli Þengils um Bílanaust.
Var að koma frá Ítalíu þar sem ég keypti rafgeymi í lítið mótorhjól sem tengdasonur minn á þarna úti.
Geymirinn kostaði 10 evrur. Var í gær í Bílanaust og furðaði mig á því hvað verðin hafa hækkað síðan þeir fluttu upp á Höfða. Rak síðan augu í samskonar geymi og ég keypti á Ítalíu (ekki sama merki) en verðið hér var stórt KR: 10.000- skrifa: tíuþúsund krónur.
Var ekki einhver prófessor að tala um okurbúlluna Ísland í þætti um daginn?Kveðja Sverrir
-
AuthorReplies