Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.02.2010 at 11:29 #683916
Hjólastillingar ehf … fast verð 10.900 fyrir hjólastillingu og vottorð.
17.02.2010 at 09:20 #210808Tegund : Toyota Carina E
Árgerð : 1995
Litur : Vinrauður
Skipting: Beinskipting
Ekinn 285.000 km.
Vél : 2000cc
HeilsársdekkBíll í þokkalegu standi og svínvirkar.
Tilboð 250.000kr.
Upplýsingar í síma : 892 – 4728 (Arnar)
17.02.2010 at 09:19 #210807Tegund : Ford F150
Árgerð : 1990
Litur : Svartur
Skipting: Sjálfskiptur
Ekinn 168þús mílur
Vél : 5.0L V8Lítur vel út, góður fyrir sleða
Tilboð óskast !
Upplýsingar í síma : 892 – 4728 (Arnar)
17.02.2010 at 09:05 #210806Tegund : Nissan Almera SR
Árgerð : 2000
Litur : Rauður
Skipting: Beinskipting
Ekinn 195.000 km.
Þokuljós í stuðara
Vél : 1600cc
Heilsársdekk með nöglumNý kúpling, nýbúið að laga púst, skipt um bremsudælur að aftan + rör, allar bremsur liðkaðar upp, nýsmurður.
Ásett verð 450þús, fæst á 380 þúskr
Upplýsingar í síma : 892 – 4728 (Arnar)
12.02.2010 at 21:19 #682326Okkar pakki á hiluxinum var 75 í efni og síðan 200kall fyrir lokasjæningu í spörslun og sprautun. Bíllinn var sprautaður stykki fyrir stykki, allt frá lömum upp í skúffu. Boddíið var sprautað á grindinni, þannig að þetta voru þónokkrir klefar.
Vinnan við að skera úr og sjóða í, ryðvinna, pússa allt upp, grófspartla osfr. Mörg hundruð tímar.
12.02.2010 at 17:22 #682610Engin spurning að skella sér á hásingu að framan.
[img:1fz5p3fo]http://photos-e.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs130.snc1/5573_1142023123939_1628287440_358575_4942205_n.jpg[/img:1fz5p3fo]
Munurinn sést vel á þessari mynd :þ Eins og fram hefur komið er auðveldast að fá LC70 hásingu með öllu, en það er alltaf að minnka framboðið af þeim. Hilux diesel hásingar ganga líka en það er meiri vinna og aðeins meiri kostnaður, þá aðallega í arminum ofan á hægra liðhúsið fyrir togstöngina sem þarf að vera vottaður. Man ekki hvað hann kostar en hann fæst hjá Árna Brynjólfs í Hafnafirði.
Við erum með hilux diesel hásingu , patrol stífur en síðan gátum við fengið stýrisbúnað úr LC70.
30.01.2010 at 22:40 #679908Atli benti á Grím :þ
En við ætlum að taka pústskynjaran næst, það þarf smá aðgerð til að ná rónum af til að losa hann þar sem þær eru ryðhaugar.
30.01.2010 at 22:20 #679880Við fengum aðra vél, eftir að okkar gaf upp öndina, frá Atla í Knarrarholti. Settum flækjur á hana sem var á fyrstu vélinni okkar og þessi sama vél er að gefa eyðslutölur sem hann hefur ekki séð áður, þaes 25-30lítra.
EGR og mengunarvarnabúnaður er tengdur skv toyota bókum. En mig grunar, eins og þú nefnir, að lægri mótþrýstingur sé að rugla þetta kerfi. Orginal pústkerfið er náttúrlega allt allt öðruvísi og gefur miklu meiri mótþrýsting, sérstaklega á hægri hluta kerfisins.
Núna eru ekki margir sem kunna að mappa vélatölvur. Spurning hvort það séu ekki einhverjir þarna úti sem hafa sett flækjur á þessar vélar án þess að eyðslan rjúki svona upp?
29.01.2010 at 14:21 #679888Við erum með samskonar pústkerfi og þetta á 3vze í Hilux 38", með hvarfakút reyndar því hiluxinn er 96 árgerð. EGR dótið var sett í flækjurnar og ennþá tengt. Hann er 27-30 í ferðum hjá okkur fullhlaðinn,, fer sennilega í 2,6 tonn.
Gallinn er að hann eyðir litlu minna ólestaður :þ Ætlum að prufa skipta um pústskynjara því við eigum einn sem er góður.
Eina sem mér dettur í hug er hvort það þurfi að kveikjustilla þessar vélar aftur þegar búið er að breyta pústkerfinu svona mikið frá orginal?
28.01.2010 at 12:10 #6796903vze í 90+ runnerum eru gefnar upp sem 145 og 150hestöfl uppfærð útgáfa.
25.01.2010 at 12:11 #679268Þarft væntanlega dælur, diska og höbbinn sem diskurinn skrúfast á af t.d. bensín hilux 90-96, gengur líka af 4runner. En þú þarft að fá diskinn utar til þess að dælan hitti á diskinn, til þess þarf að renna spacer sem er settur milli bremsudisksin og höbbsins sem hann festist á , og lengri bolta.
En þá er auðvitað búið að auka sporvíddina að framan um 2,5-3cm miðað við aftan. Veit ekki hvort það er til þægilegri lausn fyrir þig en þetta.
Þetta er allavega gert þegar verið er að setja diesel hilux / lc70 hásingar undir 4runner og hilux klafabíla
16.01.2010 at 21:51 #677182Mín reynsla er sú að þetta stillir samþjöppun líka, þeir eru harðari saman eftir því sem maður skrúfar upp í honum. Finnst best eins og tilraunauppsetningin er hjá mér núna, harðasta (9) að framan, mýksta (1) að aftan, þegar maður keyrir yfir þessi sýnishorn af hraðahindrun. Alltof harður saman að framan núna, ætla setja þá í 5-6 og halda áfram með 1 að aftan.
Sjá einnig [url:3tytxkyk]http://www.summitracing.com/search/brand/Rancho/Product-Line/Rancho-RS9000-Shocks/?autoview=SKU[/url:3tytxkyk]
[url:3tytxkyk]http://www.bc4x4.com/pr/2000/rs9000/rs9000.cfm[/url:3tytxkyk]
Á báðum stöðum er talað um compression og rebound :þ
15.01.2010 at 23:55 #677174RS9000 … eru með 9 stillingum sem hægt er að stilla með höndum eða tengja við loftkerfi og stýrikerfi.
Allar aðrar tölur eins og RS9*** XL eru lengdir á dempurunum og tegund festinga,, auga /pinni osfr
15.01.2010 at 22:53 #677170Rancho 9000 … stillanlega.. og málið er dautt. Er með RR gorma líka, er með demparana á mýkstu stillingu þegar bíllinn er tómur,, herði aðeins á þeim þegar maður hleður í bílinn og von er á miklum ójöfnum til að minnka líkur á samslætti.
12.01.2010 at 17:58 #675656Búinn að prófa úrhleypiaðferðina? Hún krefst nú ekki mikils hraða.
10.01.2010 at 21:08 #675578Mæli með Koni stýrisdempurum.
10.01.2010 at 15:15 #675574Þessar poly fóðringar eiga að vera í lagi eftir 20.000km. Þar sem þær eru stífari en orginal fóðringarnarnar þá leiða þær víbring betur. Þannig að líklega er best að byrja á að athuga spindillegurnar og stýrisdemparan.
03.01.2010 at 11:51 #644098Við vorum með 2,4 bensín í hiluxinum. Til þess að koma v6 ofan í þurfti að færa og skipta um mótorfestingarnar á grindinni og skipta um gírkassabita.
Liturinn er dökkgræni toyotu liturinn bara án sanseringar.
02.01.2010 at 23:42 #672008Nú eru menn að sjóða skorin dekk hægri vinstri og segja það í lagi meðan menn eru ekki að keyra á því úrhleyptu, er það eitthvað rugl?
30.12.2009 at 14:48 #673542Setja stífur og gorma að framan í staðin fyrir fjaðrirnar :þ
Annars eru til margar umræður um hásingavæðingu að framan hérna á spjallinu og þar kemur allt fram sem þú þarft að vita.
-
AuthorReplies