Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.01.2006 at 10:57 #537840
Sælir ferð á renniverkstæði og lætur renna fyrir þig plast klossa 6-7 cm háa tvískipta. Færð þér 10 mm bolta og múffu rær fínsnittað. Allt kostar ca. 15 þús. Losar upp á stýrislegg og lyftir boddýinu. Færð þér síðan 4 cm klossa hjá Hellusteypunni í Hafnarfirði og setur undir gormana. ca. 10 þús. Þá er bíllinn nógu hár fyrir 33-35". Síðan er það sleggjan og smá suðuvinna að framan. Rennir upp í Samtak og kaupir flottu kantana á bílinn kostar um 60 þús minnir mig. Lætur sprauta þá og kýttar þá á. Hringir síðan í Halla Gulla í KT á Akureyri og pantar flækjur í gripinn ca. 35 þús. Þá eru bara dekkinn og eitthvað smotterý eftir. Þá er kominn alvöru jeppi sem gefur 38" ekkert eftir en passar illa í slóðina. (o:
Já og síðan þarf að vanda sig við að hækka gírstangirnar. Gírstöngina jafn mikið og klossana en millikassa má bæta við 3 cm. Eina verksæðið sem ég man eftir er hér fyrir norðan er Bílvirki.Kveðja að norðan Pétur
29.12.2005 at 21:27 #196953Sælir var að spá hvernig ég bý til myndaalbúm og set myndir inn í þau. Er síðan með 3 albúm en aðeins 1 þeirra er virkt, langar að henda hinum..
Pétur
28.12.2005 at 19:04 #535926Sælir ég og bubbi erum með… Verst fyrir bubba að ég er á Suzuki.. Hann þarf þá að taka 100 kg. (o: Ég skal í staðinn taka pontuna…
Kveðja Pétur
25.12.2005 at 19:24 #535914Ja ef maður ber allar veðurspár saman þá lýtur fimmtudagurinn langtum best út. Frá miðvikudags seinniparti þegar verður komið frost og fram á föstudaginn, logn og léttskýjað.
En Halli átt þú ekki að vinna í einhverjum bíl í vikunni? (o:
Ég ætla ekkert að tjá mig um "brennuefnið" ég gæti bara móðgað einhvern og það vil ég ekki.. (o: Ég skil samt hvaða hagsmuna þú hefur að gæta í þessu,, He he he heÞAð er allavega best að blanda sér úrvals tóbak svo að maður verði klár fyrir fimmtudaginn.
Kveðja Pétur
25.12.2005 at 09:37 #535908Fyrir þá sem eru smeykir við veðrið. Það er spáð froststillu og sól í Bárðardal 29 des. (reyndar öllu norðurlandi). (o: Já og gleðilega hátíð.
23.12.2005 at 18:48 #535894Bubbi manaði mig…. (o: Þú átt bjór inni hjá mér, þetta var undir beltisstað…
23.12.2005 at 18:43 #535890"Bubbi litli" er klár 29 des en um að gera að fara upp eftir 29 með efni eða kíkka á fljótið. Síðan er Eiður Jónsson öruglega klár líka, þannig að þá erum við komnir með brennuefni á hjólum. (o:
Pétur
23.12.2005 at 18:20 #536074Sælir
Ég á Suzuki 1600 og þekki nokkra sem hafa átt svoleiðis bíla á 33". Þeir eru að eyða um 12 lítrum að jafnaði en fara hæglega í 15-20 lítra í snjóakstri. Ég myndi nú gera ráð fyrir að það sé eitthvað undarlegt við vélina hjá þér þótt ég þekki ekki 2000 vélina. En hún er frá Suzuki og á þá ekki að eyða eins og 4runner. (o: Bíllinn hjá mér sem er með 1600, 8 ventla vélinni var að eyða 10-11 að jafnaði fyrir breytingu en er um 12-13 núna, ath breytti honum í haust þannig kuldinn eykur líka eyðslu töluna. En þetta er blandaður akstur, fær yfirleitt að hitna. Síðan fæ ég mér flækjur og K&N síu og verð voða happý… (o:
23.12.2005 at 18:11 #535882Var að spá hvort menn séu ekki harðir á að fara upp í Réttartorfu 29 des. Var líka að velta því fyrir mér hvort maður fengi ekki að fljóta með ykkur "stóru jeppaköllum".
Jóla kveðja Pétur (o:
12.03.2005 at 15:11 #195652Óhapp í Vonarskarði í gærkvöldi. Vilja menn vara við svæðinu í norðanverðu Vonarskarði. # 64°43´490-17°43´744 #
Sjá meira á http://www.dalbjorg.is
Kveðja Hjálparsveitin Dalbjörg
-
AuthorReplies