Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.09.2007 at 09:13 #597796
1) Tvöfalda í það minnsta, fjölda nýrra auglýsinga sem sjást á forsíðu. 2)Stofna fólksbílaflokk 3) Takmarka fjölda auglýsingar (spam) í það minnsta í reglum, þó það væri ekki sjálfvirkt. Það er frekar þreytt, þegar menn setja sömu auglýinguna inn á hverjum degi.
24.09.2007 at 00:25 #597648Eins og myndin hja Baldri sýnir, þá skiptir ekki hvort vægi frá hásingunni, kemur frá 4-link , eða radius arm (Range-rover).
Því endanlega myndar 4link krafta sem eru þeir sömu og í Radius arm (í sömu átt). Reikningarnir enda því allir í því, hvar skerlína 4link stífna eða stefna radius-arm stefnir (hæð). Hæð í þyngdarmiðju skiptir máli (mjög erfitt að ákveða í bíl, sem er alltaf með mismikla hleðslu) .
Hlutfallsleg hæð., þar sem stýfustefna sker þyngdarmiðju línu (lóðréttu) Er það hlutfall hversu mikil þyngd kemur niður í hásinguna. Þetta eru allt málamiðlanir því það sem er best við inngjöf er verst við bremsun, en algeng málamiðlun í götubisnessnum, þá sker stýfulínan 1/3 hæðar frá massamiðju.
Um þetta má svo deila, hvað sé best í snjó. ég man ekki nöfnin á þeim skruddum sem ég hef lesið. En ekkert er hin fullkomna lausn í þessum efnum.
12.09.2007 at 23:57 #596568Ég hef heyrt að það sé mjög gott að keyra ´aþessum dekkjum. En úrhleypingar eru annað mál, undir 2T bíl, þá ef þú tekur píluna úr , þá standa þau eins og GH m 6 Psi
10.09.2007 at 15:27 #596350Það eru olíukældir stymplar í 2L, 3L .
Kúpplingin á 2L-T er jafn stór og ’95 + (að mig minnir)
10.09.2007 at 11:33 #596342kúpplingshúsið er ekki öðruvísi milli t.d. ’85 2L-T og ’95 hilux 2L.
um c.a. ’90 kemur ný kynnslóð véla sem eru aflmeiri en það sem fyrir var.
08.09.2007 at 18:01 #5961526602992.
hafðu bara samband, þér er velkomið að skoða, prófa, eða prufa.
06.09.2007 at 23:33 #596148Ég er með gamlan LC og hann var orginal 2L-T og sá mótor hafði það varla yfir hraðahindranir, hvað þá meira.
Þá skipti ég yfir í 2L +T og það var skömminni skárra, en sveifarásinn í henni yfirgaf samkvæmið ári seinna og ég keypti nýja 2,8 (3L) +T sem er skv. netsíðum 10hp og 30nm kraftmeiri en 2L+T eða 115-125hp og 260nm (sama og nýr Hilux 2.5l)
Það munaði um það sérstaklega í brekkum og frammúrakstri út á vegi. Og aflið, það svona dugar eyðsla 10-15 L/100km á 38" 4.88hlutföll.
Mótorinn er alveg eins til sölu (300þ), ef þú ert að leita þér af svona hreyfli.
Hedd olíudæla og vatnsdæla eru líka nýtt hjá mér /ek 35þkm í dag. Upptekið olíuverk og spíssar/ plugnplay
14.08.2007 at 09:51 #5945706602992
13.08.2007 at 19:44 #594564Ég fékk svona leka á hilux sem ég átti einusinni, þá var það o-hringur með inngjafaröxlinum.
Ef það er ekki málið hj´aþér, þá á ég nýupptekið oliuverk á 15þ.
04.08.2007 at 23:00 #594388Eitt innskot við skrif Valgeirs.
Einn félagi minn sem lifir á því að temja hesta, hefu þá reglu, að ALLA hesta sem hann temur, hvort sem er í styttri eða lengri tíma, "teymir" hann hrossin á fjórhjóli nokkra Km til þess að venja þau við vélhjólahávaða.
Þeta er auðvitað snilldin ein og eykur öryggi eigenda hesta töluvert, sérstaklega þar sem "hávaða"-farartækjum hefur fjölgað til muna síðustu ár ss. hippar og sport-bíla og enduróhjól .Annars þarf nú ekki meira en reiðhjól til þess að fæla mörg "borgarhrossin"
04.08.2007 at 22:44 #594406Hvort ertu að leita af bensín eða dísel hreyfli?
Hvað mega hlutirnir kosta?…2L-T er ekki vinnunnar virði að mínu mati, hundlatur and$%&
01.08.2007 at 19:25 #594178…reyndar er Alp með í það minnsta 4stk af Defender á 38" sem túristar leigja.
En í mörgu fé er misjafn sauður.
29.07.2007 at 22:52 #594154Ég myndi taka þessari fréttamensku með miklum fyrirvara.
Í fyrra var svipað spaug í gangi hjá Lögreglunni á Hvollsvelli, þar sem hópur mótorhjólamanna átti að hafa ekið utan vegar, og kallaði Lögreglen þá eftir þyrlu og fann hópinn á vegi, og leituðu þeir svo á þyrlunni eftir ummerkjum um utanvegaakstur, en fundu ekki neitt, svo þeir sendu tvo lögregluþjóna á jeppa daginn eftir að leita, án árangurs!
Í fréttunum þá var líka sagt að skálaverðir/landverðir hefðu kallað eftir lögreglu, en við nánari eftirgrenslan kom svo í ljós að Lögreglan hafði verið að hlera samskipti skálavarða, sem voru að tala um hjólahópinn, en engan utanvegaakstur, enda höfðu engin brot átt sér stað.
"Sekir uns sakleysi er sannað"
29.07.2007 at 15:46 #200590Nú lítur það út fyrir að enn eitt „utanvegaakstursmálið“ sé komið upp.
http://visir.is/article/20070729/FRETTIR01/70729009
Ég myndi taka þessari fréttamensku með miklum fyrirvara.
Í fyrra var svipað spaug í gangi hjá Lögreglunni á Hvollsvelli, þar sem hópur mótorhjólamanna átti að hafa ekið utan vegar, og kallaði Lögreglen þá eftir þyrlu og fann hópinn á vegi, og leituðu þeir svo á þyrlunni eftir ummerkjum um utanvegaakstur, en fundu ekki neitt, svo þeir sendu tvo lögregluþjóna á jeppa daginn eftir að leita, án árangurs!
Í fréttunum þá var líka sagt að skálaverðir/landverðir hefðu kallað eftir lögreglu, en við nánari eftirgrenslan kom svo í ljós að Lögreglan hafði verið að hlera samskipti skálavarða, sem voru að tala um hjólahópinn, en engan utanvegaakstur.
Sekir uns sakleisi er sannað.
25.07.2007 at 23:58 #593962Sprengisandur, er frekar grófur og stórar holur inná milli, þar sem léttur brúnn sandur kemur uppúr.
Ég fór á sliddara með lint í dekkjunum, samt var farangurinn kominn í gegnum lakkið á pallinum eftir ferðalagið, sem að lýsir ástandinu best.Vegurinn að Dettifoss, er einstaklega skemmtilega eitt heildar þvottabretti, en er fínn á góðum hraða, annars hristist hausinn af mönnum, aumingja túristarnir á 10kmh að keyra hverja hvern hól fyrir sig.
Það er líka flott skilti á þeim vegi, eða holottur vegur næstu 43km!
20.06.2007 at 00:34 #592672Hlöðufellsleið er einnig lokuð skv. gildandi korti, en ég þekki einn sem fó frá Kaldadal línuveginn að Hlöðufelli og þaðan suður á Laugarvatn, og það var allt í góðu, bara einn skafl við Hlöðufell engin aurbleyta eða neitt þesslags.
(það var verið að spyrja um þetta í síðustu viku, ég nennti ekki að leita að þræðinum)
Hann var reyndar á mótorhjóli og það stígur auðvitað mjög létt til jarðar.Í fyrra þegar Fjallabaksleið Syðri var opnuð, þá var enn mikill snjór í nággreni hrafntinnuskers og Mógilshöfða, og voru menn að þvælast á milli Fjallabaks Syðri og Nyðri og gekk mönnum misvel að finna slóðann eftir snjóbreiðurnar, núna eru þessar leiðir komnar inná kortið hjá vegagerðinni, þó svo þær séu ekki í þeirra umsjá.
Það gæti allveg verið ástæðan fyrir því að ekki er búið opna Fjallabaksleið-syðri.
19.06.2007 at 21:05 #592650Sagan segir á lágu hlutföllin, séu nú ófáanleg í heiminum. Heldur slæmt ef það brotnar drif.
23.05.2007 at 11:39 #59067023.04.2007 at 09:48 #589136Poulsen er komið m Bilstein umboðið
20.04.2007 at 12:38 #588876Það er greinilega e-h miskilningur hér á ferð N-1 stendur fyrir:
Enn einn eða
Neinn.
-
AuthorReplies