Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.04.2008 at 18:45 #618812
Þetta var allveg frábært frammtak, og dróg fjöldann af stað. Ég var frekar aftarlega í röðinni og var um 2 tíma að komast að allþingishúsinu, og flautan þá orðin úrbrædd!
Fjöldi bíla var tæplega áætlaður af Lögreglu að mínu mati.
18.03.2008 at 23:59 #618018Ég veit um nissan narvara sem keyrir daglega á 50/50 blöndu.
Hiace á 100% steinolíu
Og í Topgear leiðangrinum, þá keyrðu þeir á 30 ára jetfuel, frá segulpólnum og niðreftir.Það er nauðsynlegt að setja tvígengisolíu í steinolíuna, og bílarnir verða leiðinlegri í gang.
04.03.2008 at 23:21 #616522Og hvert á maður svo að skila upplýsingunum?
12.02.2008 at 18:06 #613988Það sama á við um Safari vafrann, hjálpartólin virka ekki í honum.
10.02.2008 at 23:02 #611974Ferilhraðinn getur ekki verið mismunandi , affelgunarbúnaðurinn og dekkið snúast alltaf á nákvæmlega sama hraða, ekki nema dekkið spóli á felgunni.
Þetta er eins og að segja að teinn á gjörð snúist ekki jafn hratt inni við nafið og úti við gjörðina.
.
Þetta er bráðsniðug lausn, og er örugglega hægt að útfæra fyrir breiðari felgur með smá saumaskap. Þetta er margfalt léttari búnaður en bedlock og hefur þann kost umfram, að virka á báðar hliðarnar. Það er þó ekki víst að það sé nægur þrýstingur til þess að koma í veg fyrir að laus dekk spóli á felgunni, en það er vandamálið á annað borð, þá leysir bedlock bara helminginn af vandmálinu.
Hver ætlar að vera fyrstur til að prófa?
10.02.2008 at 14:33 #613556Þetta var sérverkfæri, ég fékk lánað sérverkfæri f. Mözdu. mig minnir að þetta hafi verið þrýstimælir, sem var skrúfaður í boltagatið milli fjögra röranna til spíssanna, og átti að hafa vissan þrýsting í vissri sveifarásstöðu. ég var með verkstæðisbókina og fylgdi henni, þetta er frekar götótt í minningunni.
09.02.2008 at 11:36 #613548Þessi verka passa á milli, ég var með 2lt verk á 2L mótor.
En tímapunktarnir eru ekki þeir sömu, ég þurfti að mæla(fá mæli og mæla) til að tíma inn verkið.
Þegar 2lt verk var á 2L vél, var tímamerkið(áverkinu) um 3mm nær blokkinni að mig minnir.
Þessi pungur sem er tengdur í kælivatnið, er einskona innsog, ýtir aðeins á olíugjöfina, en svo þegar vatnið hitnar, slakar hann á.
En ég er hræddur um að það þurfi kraftaverk til þess að þú finnir hrossastóð í þessum vélum
25.01.2008 at 10:52 #611106Kristinn, þú ert reyndar svo heppinn að eiga bíl sem er til endalaust af gorma/dempara settum í, svo þú ættir að geta fundið eitthvað sem gæti hentað.
Light raceing:
"Tuning Oil Fill-
Oil level in the JounceShock is set at the factory. The oil level is adjustable, but tuning of oil level is complex. The factory setting for the oil level will work in the majority of applications. "
.
http://www.kingshocks.com/bumpstops.php … _bumpstops
.
24.01.2008 at 23:38 #611102Demparar eins og Davíð er með eru auðvitað ein snilldarlausn útaf fyrir sig, tveir misstýfir gormar, og oft er hægt að stilla hvenær í slaginu seinni gormur tekur við, og dempararnir eru ventlaðir "rétt" úti miðað við gormana, sem að minnkar vinnuna við eftirleikinn.
Guli Commacheinn, hann er með 3" Kings offroad dempar með misstýfum gormum líka.
En demparinn er hinsvegar örugglega stilltur fyrir mýkri gorminn, og þá erum við aftur á bryjunar reit, gott ínu vont í örðru.
K2 eru með samsláttadempara sem að ég held allveg örugglega að séu oliu, því að þeir eru líka stillanlegir þess að stilla hversu hægt sundurslagið er til svo að bíllinn gormist ekki uppí loft eftir lendingu.
.
http://www.k2motorsport.is/default.asp? … lun&fl=175
.
ég áskrifandi að einu ágætu blaði, sem að er með Baja og rock crawling
http://www.dirtsportsmag.com/
Kostar rétt rúmlega 2000kr árið. Tjékkið sérstaklega á linknum vinstra megin "masterpeace in metal"
.
Öhlins er með innbyggðan vökvalás í sýnum rally og raodrace dempurum.
Þeir eru líka með nýja tækni sem heitir PDS, sem eru tveir stimplar í tveim hólfum, og þegar demparin er við það að slá saman, tekur seinni stimpillinn við sér, þannig að demparinn geti gleypt meiri orku.
Með þessu eru við komnir nær hinni "fullkomnu" lausn.
Aðrir dempar sem gera það sama eru þeir sem eru með compression/rebound pípurnar utaná demparnum, þeir eru líka svona þrepastillir, og hafa mjög mikið stillingarsvið.
Flottustu þannig dempara sem ég hef séð eru:
http://ricorshocks.com/
þeir eru líka með svona systemi eins og bilsteinin hjá Gunnari Inga, rancho og fleiri eru með, þeas að taka það fína, en þegar hraðinn á demparanum er orðinn viss mikill stýfna þeir upp.
.
http://www.off-roadweb.com/tech/0111or_ … to_01.html
.
takið eftir litlu marglitu gormunum, þegar þeir leggjast saman stýfnar demparinn í samslaginu.
23.01.2008 at 10:36 #611246Í þeim upplýsingum sem koma frá Jóni og Tryggva, kemur hvergi framm að þeir séu búnir að missa allann vilja til þess vinna fyrir klúbbinn, heldur treysta þeir sér ekki til þess að vinna áfram með núverandi stjórn, ásamt persónulegum ástæðum.
Ég vona ég að þeir eigi afturkvæmt í félagstörfin við breyttar aðstæður.
23.01.2008 at 00:09 #611084Ég er nú búinn að fara hringinn í þessum demparamálum í höfðinu, allt frá flottum sverum dempurum eing og tildæmis Kingschocks og yfir í "ódýra" Bilstein.
En það enginn dempari góður í öllu, svo þá er gott að hafa’ann stillanlega, sem margir demparar sem eru fengnir á ebay og kosta sama og koni hérna heima, en þeir eru ýmist stillanlegir með því að skipta um skíifur í þeim, en með stilli stilliskrúfum utaná og með gasforðabúri, en maður er ekki að fara standa í því að skríða undir bíl í tíma og ótíma til að míkja og stýfa.
Gasið er þar að auki alls ekki gefins ef maður er með þannig dempara.
Því eru bara einir demparar í boði sem er hægt að stilla innan úr bíl, og það eru Rancho, en þá er ekki hægt að skrúfa í sundur, því þarf maður að hitta rancho dempara sem eru kanski aðeins mýkri en orginal demaprnir í mýkstu stöðu, þeas. ef maður er með orginal gorma.
Og svo eykst flækjustigið enn frekar.
Besta lausni væri líklegast að endursmíða Rancho dempara eða setja mótora á stilliskrúfur á t.d. King eða Fox dempara.
.
Reyndar eru komnir Koni demparar sem eru fyrir loftpúða í t.d. smárútum þar sem hleðslan er mjög breytileg, en þeir stýfa sig eftir þrýstingi í loftpúðanum, þeir koma líka sterklega til greina.
.
Olíu samsláttarpúðar eru svo málið, því þessir Fox samsláttademparar hér að ofan, eru örugglega gasfylltir (200psi), en ekki með lofti
22.01.2008 at 23:46 #611228ÉG er allgjörlega sammála Skúla hér að ofan, það versta sem getur komið fyrir klúbbinn er að reka stjórn úr sessi, stór hluti vinnu nýrra stjórnarmann fer í að setja sig inn í málefni, vinnuferli og samskiptaleiðir, og ef skipt er um hana á einu bretti, væri það eins og að fara aftur til fortíðar.
.
Því er örugglega best að láta það í hendur stjórnar og fráfallandi stjórnar manna að binda þannig um hnútana að hagsmunir klúbbsins séu í hávegum hafðir.
Enda gangast stjórnarmenn við þeirri ábyrgð er þeir bjóða sig fram.
22.01.2008 at 19:58 #611080ég held að þessi 30% regla sé bara til þess sé til þess að gera bílana undirstýrða.
Mestu skiptir að velja dempara í samræmi við gorma, og það vantar í rauninni mæligræju til þess að prófa dempara og finna rétt hlutfall, í stað þess að kaupa úr bíl sem er svipað þungur, og þágetur geometrian líka verið allt önnur.
Ég held að N1 séu þeir einu sem eru með mæli, en hversu miklar reynslu utölur eru þar á verkstæðinu, þekki ég ekki, enda nenna fæstir að spá e-h í þetta þegar búið að smíða þetta einu sinni.
ég er tilbúinn að leggjast í og skoða þetta til hlítar ef aðrir hafa áhuga á að skoða það með mér, maður missir nefnilega e-h vegin fókus í öllum upplýsingunum í kringum þetta
22.01.2008 at 00:20 #610928.kom 2svar
22.01.2008 at 00:20 #610926Ég vil þakka fyrir okkur ("Tacomu fólkið") fyrir þessa príðis ferð.
Áætlunin var að reyna að reyna að finna samferðafólk til þess að fara Norður Sprengisand á sunnudeginum að miðju, en það gekk hins vegar ekki þegar á reyndi og var því ákveðið að fara uppí Kerlingafjöll, eftir fréttist af því að Heiðar hefði snúið við.
Ævintýrið byrjaði hjá okkur við Geysi, þar sem Breska heimsveldnu hafði verið kollvarpað skömmu áður og fólkið enn í bílnum. Ekkar amaði af fólkinu, en eftir að búið koma heimsveldinu á rétta hlið komu upp spurningar um það hvort brögð væru í tafli, því Defenderinn hafði ekki einu sinni orginal dældir í hurðunum? það eina sem hafði gegnið til, voru stillingarnara á speglinum!
Við fórum frá Geysi kl 2130
Förin uppeftir voru fersk, logn og stjörnubjartur himinn, svona eins og best verður á kosið, og vorum komin upp í Kerlingafjöll kl0130.
Síðasti hluti heimferðarinnar var svo erfiðastur bæði and- og líkamlega þegar (kl rúmlega 01) vorum við fjórir síðustu bílarnir eftir plóglestinni, það sem að var vandræðalaust í 6psi laugardagskvöldið var þolinmæsðisþraut með allt splittað 3psi, og vorum við rúmlega tvo tíma að komast nokkra vel valda kafla upp Bláfellshálsinn sem voru þó kanski ekki nema 5-600m í heildina.
Við vorum svo komin í bæjinn kl0630
Og vil ég sérstaklega þakka samferðafólkinu í hinum þrem bílunum.
.
En miðaða við fjölda bíla ekna km og alla ógeðis grjót-hnullunga og hraun-nibbur sem keyrt var yfir, þá gekk þetta nú bara prýðis-vel í heildina litið.
Við vorum nú reyndar á lánsbíl, og var ég nú kanski hellst til mikkið að passa upp á að klára ekki drifgetuna úr honum, svo eigandi ætti nú eitthvað inni
Bensín m sjálfbíttara var allveg nýtt fyrir mér og allgjör unun þegar keyrt er svona lengi, 600km og 170l af bensíni Takk fyrir mig!
19.01.2008 at 16:21 #610308Óska eftir samferðafólki til þess að reyna fara að miðju frá Hrauneyjum í fyrramálið.
Aðrar leiðir eða tímasetningar koma líka til greina!
Kv
Kristján
660-2992…ég var endavið að tala við fólkið í Hrauneyjum, þar er víst minni snjór en á láglendinu.
18.01.2008 at 22:09 #610780…aðeins út fyrir spurninguna:
.
Hægt er að kaupa Bilana tryggingu hjá sumum tryggingarfélögum, annars vegar grunnábyrgð sem bætir stór tjón s.s. ef mótor kassi eða drifbúnaður hrinur.
Og hinsvegar alábyrgð sem tekur á t.d. rafmagnsbilunum.…þú tryggir ekki eftirá
18.01.2008 at 20:20 #610274Geri ráð fyrir að gista í Hrauneyjum og fara þaðan sunnduagsmorgun milli 9 og 10.
Verð á hvítri Tacomu 38"s: 660-2992
VHF
18.01.2008 at 16:35 #610264Eru einhverjir sem ætla Norður sprengisand á sunnudagsmorgni?, og jafnvel gista í Hrauneyjum?
Eru einhverjar frétti af því hversu mikið hefur mikið hefur snjóað á svæðinu í vikunni?
18.01.2008 at 16:32 #610646Sammála, hef lent í svipuðu, og ekkert mál, frábær þjónusta.
-
AuthorReplies