Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.03.2002 at 00:08 #458950
Sælir
Ég er líka búinn að breyta, þeas. 4cm á boddy 3cm á gormum og úrskurður,var að prófa hvernig breytingin passaði um helgina. eini staðurinn sem hann rekst í, er framan í frammbrettinu í fullri beygju og fjöðrun… þannig að færa frammhásingu aftar er bara bull. Ég þurfti að láta breyta pústinu að að framan við grindina og svo rakst afturdekkið í pústið að aftan. Ég er á innvíðum felgum og slikkum.
Ætli ég bæti ekki 1cm undir gormana þegar ég fæ mér ný dekk.Svo þarf að færa aftu´hásinguna aftar fyrir næsta vetur, ætli ég panti mér ekki bremsuskál á drifskaftið til að bremsa með, og þá þarf ekki að lengja það heldur!
Ef þú "Cruiser" ætlar að panta 5.29 í frammdrifið, þá er ég með í þeirri pöntun.
25.02.2002 at 00:15 #191356Þó ég sé ekki enn orðinn félagi, þá ætla ég að vera svo frekur að leggja framm tillögu um það að sett verði umm leitarvél fyrir þræðina og auglýsingarnar.
Þar sem það er svo mikil hreifing á þessum hlutum síðunnar er nær ómögulegt að finna auglýsingar og annað sem maður sá vikuna á undan. Auk þess sem nær alltaf er verið að spyrja um svipaða bíla í „bílar og breytingar“ og eru menn að verða dálítið þreyttir að svara alltaf sömu spurningunum.
(að mér finnst)Þetta myndi auka nýtni heimasíðunnar og flýta mikið fyrir mönnum.
Einnig datt mér í hug að það mætti vera möguleiki á því að vekja upp gamla spjallþræði & að auglýsingarnar hefðu takmarkaðann líftíma.…bara hugmynd
Kv.
19.02.2002 at 00:42 #45893819.02.2002 at 00:34 #458936Það var samt eitt sem ég klikkaði á, og það var að láta saga fyrir mig auka kubba fyrir "hleðslukubbana" þeas. kubbar sem eru undir "skottinu" og þegar bíllinn er hlaðinn sest boddýið á grindina.
Svo kubbarnir sem þú þarft eru 12 en ekki 10 !
18.02.2002 at 00:29 #459158Ég heyrði svipaða sögu uppí benna um daginn,
og þá sagði afgreiðslumaðurinn að nær öll 38" dekk kæmu ú sömu verksmiðjunni(nema Pirelli jones(10kg þyngri pr.dekk))Og vandamálið væri það að þeir vildu ekki selja dekk út nema að sá sem keipti þau myndi ábyrgjast þau ef e-h kæmi fyrir.
Það sem gerðist hjá firestone var það að það voru sett of stór dekk undir explorerinn og dekkin skárust og á endanum sprungu, með tilheirandi slysum.
18.02.2002 at 00:15 #458932Ég var að hækka um helgina.
Efnið sem ég þurfti voru:
10 plastkubbar sagaðir niður í Málmtækni 2500kr
bolta 10*140 8stk 10*180 2stk þurfti að bæta auka skinnum á 4 festingum, þar sem gengjurnar náðu ekki, fyrir full herslu.
gúmmíslöngu með innramál 8mm 50cm af því
og aðra 10mm 50cm/ þær eru fyrir diesel leiðslurnar.
15mm(að mig minnir) 37cm fyrir vökvastýrið.bremsuleiðslur 2stk 22cm(gúmmilengdin) fara í rör öðrum megin og T-stikki hinum megin. 5000kr
svo færði ég jartenginguna á vélinni bílstj. megin í gat fyrir ofan.
með vatnskassan þá tók ég bara úr hlífinni.
annars gekk þetta bara vel.Það er alltaf verið að tala um að það sé hægt að fá 5.29 í frammdrifið úti, en HVAR nákvæmlega?????
Kv Player1
14.02.2002 at 12:16 #45891814.02.2002 at 12:15 #458916Er að byrja að breyta sambærilegum bíl eas. Millilanga cruisernum.
Hef ákveðið að bæta 10mm við 30mm klossa sem eru undir gormunum fyrir, og svo hækka á boddy um 40mm.
Svo ætla ég að skera úr,
að framan ætla ég að setja plast innrabretti frá skrúfunum sem eru í hjólaskálinni og hnoða svo yst í brettið
(í nýjan kant sem ég beygla)
Að aftan hef ég ekki ákveðið nákvæmlega hvernig úskurðuinn verður, en það verður e-h svipað.Ef þú "klikkar" á notendanafnið mitt, þá sérðu grein þar sem ég var að spyrja að svipuðu efni. En svo er mál með vexti að það er alltaf verið að spyrja hvernig eigi að breyta hinum og þessum jeppum og menn eru einfaldlega orðnir þreyttir á að pikka. (að mér sýnist)
Hafðu samband, svo ég geti látið þig fá nánari uppl um hvað þurfi að síkka í ofl.
01.02.2002 at 00:15 #458736Nei því miður er ég ekki orðinn félagi ennþá, en er alltaf á leiðinni…. verð að fara gera e-h í þessu! :/
31.01.2002 at 00:24 #191308Sælir
Mig langaði bara að forvitnast hvernig það væri með þennan „GPS gagnagrunn“ sem verið er að tala um undir https://old.f4x4.is/gps/
Þar hefur verið sama efnið síðan fyrir uþb. 2 árum
(eða þegar ég byrjaði að smitast af jeppaveikinni)Hvernig gengur vinnslan á þessum grunni?
Og hvenær er áætlað að þeirri vinnu ljúki?Kv player1
28.01.2002 at 00:45 #458608Hvernig er það, nú er verið að tala úm að boddyhækkanir
jagi boddyin, en hvernig er það þegar ef boddyfestingarnar eru hækkaðar upp, er þá ekki þetta vandamál ú sögunni?Einnig hef ég heyrt að lámarkið´sé að hækka c.a. helming af boddyfestingunum, og þá er vandamálið úr sögunni?
28.01.2002 at 00:45 #458606Hvernig er það, nú er verið að tala úm að boddyhækkanir
jagi boddyin, en hvernig er það þegar ef boddyfestingarnar eru hækkaðar upp, er þá ekki þetta vandamál ú sögunni?Einnig hef ég heyrt að lámarkið´sé að hækka c.a. helming af boddyfestingunum, og þá er málið úr sögunni?
28.01.2002 at 00:43 #458604Hvernig er það, nú er verið að tala úm að boddyhækkanir
jagi boddyin, en hvernig er það þegar ef boddyfestingarnar eru hækkaðar upp, er þá ekki þetta vandamál ú sögunni?Einnig hef ég heyrt að lámarkið´sé að hækka c.a. helming af boddyfestingunum, og þá er málið úr sögunni?
19.01.2002 at 02:54 #45839411.01.2002 at 12:51 #458280cheroki wagoner er 1600kg í skráningaskýrteininu m 4.0 vélinni árg 1988
11.01.2002 at 12:48 #458048Já, sorry- -gleymdi mér með þungaskattinn, en hann er 6,4kr fyri ökutæki 0-4999kg
Og fast gjald fyrir bifreiðar 1500-1999kg 139.409kr sem skiptist í 2. greiðslur.En ég get allveg verið sammála því að verðmunurinn á milli benzín og diesel fer stöðugt minkandi. En svo eru nýju diesel vélarnar sumar hverjar orðnar kraftmeiri en benzín.
Og þar sem að ég ek 30.000km + á ári þá er diesel ódýrara fyrir mig. En nú erum við komnir út í allt aðra umræðu, og slaginn hvort diesel eða bensínbílar séu betri á fjöllum.
Mín reynsla er sú að síðasta vetur fór ég með vini mínum á Lyngdalsheiði í frekar mjúku og blautu færi, við vorum báðir á eins LC á 33" með það sama í dekkjunum,en hann var á bensín. Ég skildi ekkert hverslags auli hann væri, alltaf fastur, það var ekki fyrr en ég reyndi að keyra bílin hans sjálfur! Þar sem færið var svo þungt, þá var 2.4 bensín með blöndung og næm niðri svo bíllinn spólaði sig alltaf niður.
Þetta endaði allavega þannig að á leiðinni aftur niðu þá hafði ég bara teygjuspottann fastan í bílnum hans og reglulega kipptist í.
09.01.2002 at 20:35 #458038Sem dæmi, en þá fór ég með vini mínum í fyrra vetur í landmannalaugar(ein nótt) þar sem ég var á litla gamla LandCr. með 2.4 turbo diesel 33" ’86 (verð 350þ)(17/100) og vinur minn á extracap 2.4bensín á 36" ’92 (verð 600þ)þegar við komum svo á selfoss var ég búinn með 90l af diesel en hann búinn með 110l af bensíni sem var helmingi dýrara, svo ef þú ætlar að fara e-h á fjöll og leika þér, þá liggur við að þungaskatturinn borgi sig sjálfur á fjöllum!!!
En núna er ég á öðrum eins LandCr(’89) (verð370þ)sem er eins og er á 33" en hann er bara að eyða 12.5/100 þannig að eyðslan getur verið mismunandi á milli bíla, þó svo að þeir séu með sömu vélina og svipaðan akstur, en hvaða vit hef ég, ég er bara 19ára!
varðandi viðhald, ´þá voru mínir bílar eknir um 250þ og viðhaldið hefur verið hjá mér síðastliðið 1 og hálft árið c.a. 0-15þ á mánuði….En breyttur hilux án turbo er hundleiðinlegur í aksti og umdeilt hvort hann þoli í raun og veru turbo, þar sem sveifaráslegurnar eru mun minni en í turbo vélum, auk þess sem gíkassi og stiplistangir er ekki hannað fyrir turbo. En turbo hilux er mun sprækari en gamli LandCr (70 bíllinn)(’85-’93) orginal turbo.
Af minni reynslu og vina minna þá myndi ég fá mér LandCr ef þú finnur þannig breyttan, auk þess er hann mun sterkari heldur en hilux,
annars myndi ég fá mér Suzuki Vitara (12/100 á 33") og þá lengri bílin, því eldri gerðirnar af stutta eru með rafmagnsblöndungi og eyða meira og eru máttlausari en bílarnir með innspítingu, auk þess sem það er auðvelt að breyta þessum bílum og það er til endalaust mikið af þeim á sölu, svo þú ættir´að geta fengið góðan bíl á góðu verði.
(vinur minn keypti ’92 á 33" ek127þ á 500þ stgr)
Síðnan er einnig möguleiki á Daihatsu Feroza, en hann á fjöðrum að aftan, en aftur á móti með "toyotu vél". Léttir bílar eru með lægri tryggingar og bifreiðagjöld.
Ástæðan fyrir því að ég fékk mér LandCr aftu var sú að ég vildi STERKAN fjallabíl & er að byrja að breyta honum fyrir 38" en það kostar mikinn pening sem ég fæ alldrei til baka!Einnig skaltu hafa það í huga, að ef þú mætir með beinharða peninga á sölu og ert að spá í að ganga frá sölu eftir að hafa prófað, þá er ÓTRÚLEGT hvað það er hægt að pína menn niður, sem dæmi lækkaði ég bílinn minn niður um 210þ frá ásettu verði, en meira er miðað við ásett verð þegar verið er að skipta(finnst mér).
09.01.2002 at 20:35 #458036dísel er alls ekki dýrari en bensín !!!
Ég átti síðast hilux D/C diesel á 36" ’90 (verð 400þ)hann var að eyða svona 19/100 (enginn sparnaðarakstur)
Þar sem dísel er helmingi ódýrari en bensín er hann eins og bensín bíll sem eyðir 9/100 + þungaskattur, og miðað við bíl á mæli
(ef þú ekur undir 20þ km á ári annars 2×69þ + 10þ í bifreiðagjöld)
þannig á 100km kostar það 19*45kr/l + 6kr á km í þungaskatt = 855kr
á móti bensín bíl t.d. 2.4f sem er í kringum 20/100
20*89= 1780kr
þannig að munurinn á bensín og dísel hilux er 925kr á hverja 100km. Hvers virði er krafturinn?
Svo skulum við ekki gleyma því að menn villja alltaf trúa því að bílarnir þeirra eyði minna en þeir gera í raun og veru!
05.01.2002 at 20:26 #458218hversu mikið á þá að setja af tvígengisolíu með steinolíunni?
24.12.2001 at 17:16 #458176Já, þar sem ég er þegar með 25mm undir gormunum og svo að prófa 65mm á boddy; þar sem þeir bílar sem ég hef skoðað hafa allir verið hækkaðir um 100mm á doddy.
Og ég næ 25 -30 mm í úrskurði, en vandamálið er aðalega að framan.En hvernig er það er ekki alltaf lengt í gírstöngunum þegar það er hækkað á boddy? (einhver)
Það er rétt að það er reverse drif að framan, veitu nokkuð nánar hverjir framleiða hlutföllin?
Ég hugsa nú samt að það sé ekki þörf á auka tank þar sem aðaltankurinn er 85-90l og eyðslan á 33" er 12.5l/100km,
en sverara púst og millikælir skal það vera !!Takk fyrir upplýsingarnar.
-
AuthorReplies