Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.03.2011 at 07:41 #724454
Blessuð sé minning Deutz Ligthmotor
Á hvorum staðnum ætli sál hennar lendi? Það sem ég hef séð til skálanefndar er að enginn prestur sinnir betur söfnuði sínum en hún skálanum.
Hafið þökk fyrir
Kv
Pétur
04.03.2011 at 21:45 #721652Og síðan hefur þessari ójöfnu á landinu verið breytt í bílastæði. – Eða hvað?
04.03.2011 at 15:51 #722040Ég heimsótti fyrirtækið. Sveinn Hrafnsson framkvæmdastjóri varð fyrir svörum og sagði mér eftirfarandi: Tækið sendir vetnið inn á lofthreinsarann og á að auka hitann á brunanum sem þá losar sót og hreinsar vélina. Þar með nýtist eldsneytið betur og líkar því sem það gerði þegar vélin var ný. Vélin skilar þá meira afli og sparar eldsneyti. Ef þetta er sett í bíl núna ætti stórferðin að verða mun ódýrari á þeim bíl en ætla mætti. Hann sagði frostlög vera saman við vatnið. Ef tækið er eins og hann lýsir því væri skynsamlegt að setja það í bíl hið bráðasta og prófa. Hann sagði mér líka að skilaréttur væri á apparatinu í heilan mánð.
Er þetta vert nánari skoðunar?
Kv. Pétur
23.02.2011 at 17:37 #719150Þarf ekki hótelgistingu á Akureyri.
Kv. Pétur
19.02.2011 at 00:37 #719128Sæll Sigurður.
Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni að ég sé meðal bestu bílstjóra klúbbsins. Mér hefur samt stundum tekist að gera aðra að ágætum bílstjórum. En takk samt. Það er víst að við erum sammála um að stunda ekki kappakstur í fjallaferðum. Það er heldur lítið í það varið. En að fara um hálendið á góðum degi í góðum félagsskap og njóta útsýnisins og náttúrunnar. það er í mínum huga aðalmálið.
Kv. Pétur
18.02.2011 at 23:42 #719126Sæll Stefán. Ekki spurning. Við höldum (úlfa)hópinn.
Kv. Pétur
18.02.2011 at 21:10 #719116Fyrir misskilning skráði ég Hjálparsveit sem minn hóp. Eins og sjá má á lista er ég einn í þeim hópi og er því stakur. Ef einhver hópur hefur áhuga fyrir að fá mig til liðs þá vinsamlega látið vita. Ég er á Jeep Comanche 38" með driflæsingar að framan og aftan og spil. Að öðru leyti þetta venjulega, drullutjakk, járnkarl, spotta ofl.
Kv. Pétur s. 892 7480
16.02.2011 at 07:09 #719092Er hægt að breyta skráningu sinni, td. hvað varðar hópa? Vantar að komast með "Jeepinn minn" í hóp með ámóta bílum. Bíllinn er Jeep Comanche, 38", læstur framan og aftan, spil og fl.
Vill einhver taka svona munaðarleysingja inn í sinn hóp?
Pétur
02.02.2011 at 18:44 #718146Eingföld skilgreining:
Jökull – Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Jökull er massi íss sem ekki nær að bráðna milli árstíða. Þeir eru stærsta forðabúr jarðarinnar af ferskvatni og hegða sér líkt og hægfara ár sem hreyfist …
is.wikipedia.org/wiki/Jökull
26.01.2011 at 22:04 #717534Eg held ég sé skráður í klúbbinn sem Þengill nefndi. Kemst því miður ekki á morgun en vildi gjarna fylgjast með.
Kv. Pétur
22.01.2011 at 23:13 #717212Ég er með 600 watta converter. Dugar
20.01.2011 at 10:30 #716620Sæll Óli
Takk fyrir að senda þessar athugasemdir.
Eg sendi núna á tölvupósti til ráðuneytisins eftirfarandi athugasemdir:[size=85:1718vkjf]Umhverfisráðuneytið
Skuggasundi 1
150 ReykjavíkHér fyrir neðan er afrit af bréfi Ólafs Magnússonar til ráðuneytisins dags 17. jan 2011
Vil taka undir allar þær athugasemdir sem þar eru skráðar og gera að mínum..
Ég hef heyrt að vel grundaðar athugasemdir fái á stundum litla athygli innan ráðuneytisins sem er mikil óhæfa þegar um mikilvæg mál og umdeild er að ræða.Virðingarfyllst,
Pétur Friðrik Þórðarson
Búagrund 1
116 Reykjavík
kt. 2505512749[/size:1718vkjf]
12.01.2011 at 00:16 #716014Ég er að verða mjög spenntur að lesa tilskrifin.
Kv. Pétur
12.11.2010 at 08:09 #709670Svona varnaðarorð verður að taka til greina. Ég geymi ferðina þar til í sumar.
Pétur
09.11.2010 at 22:19 #709660Er áhugasamur um að fara þessa leið. Hef oft leitt hugann að því enda bý ég á Kjalarnesi.
Pétur s. 892-7480
01.11.2010 at 09:07 #708530Sama tafla og ég notaði við að reikna yfir í lbs og fann þá út ca 0,16 lbs – 0,2 lbs fyrir hverja 100 metra. Já og takk fyrir tilvísunina í útreikninga fyrir burðarþol íss. Gott að hafa þetta í huga ef fara þarf yfir frosin stöðuvötn.
Kv. Petur
31.10.2010 at 21:21 #708526Takk fyrir innleggið Steinmar.
Ég veit að margir þættir koma inn í þrýstingsbreytinguna í dekkinu. . Ég er að velta fyrir mér hvernig þetta er ef litið er fram hjá öllu slíku.
Kv. Pétur
31.10.2010 at 17:49 #215509Smápæling!
Veit einhver hversu mikið loftþrýstingur breytist fyrir hverja 100 metra?
Ég var að reikna út frá töflu sem ég fann á netinu að þrýstingurinn breyttist uþv. 0,16 – 0,2 lbs fyrir hverja 100 metra. Ef það er rétt þýðir það þá að minnka þurfi um ca, 0,2 pund í dekkjum fyrir hverja 100 metra þegar ofar dregur og auka samsvarandi við þegar niður er farið?
Er rétt að hitastig breytist um ca 0,6°C fyrir hverja 100 metra hæðarmun?
Enn eitt: Er hægt að finna út hversu mörg kíló hver þykktarsentímeter af ósprungnum ís ber td á stöðuvötnum? Mér finnst sem ég hafi einhvern tíma fundi fróðleik um þetta á gömlu vefsíðunni. Finn þetta ekki núna.+
Kv. Pétur fáfróði en fróðleiksfúsi
29.10.2010 at 09:43 #708120ÉG hef fengið kröfuna í heimabankann. Þarf ekki greiðsluseðli. Ég fæ árgjaldið ágætlega til baka frá klúbbnum. Þarf ekki að greiða sérstaklega af talstöðinni. Klúbburinn sér um það. Hef mikla ánægju af skipulögðum ferðum ss. Litlunefndar á veturna og annarra nefnda á sumrin. Fleira mætti telja. Ég borga árgjaldið með brosi út í bæði.
18.10.2010 at 20:06 #705328Veðurfræðingarnir eru gengnir í lið með okkur. Snjór verður líklega til fjalla um helgina. Þetta verður flott ferð.
-
AuthorReplies