Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.05.2005 at 21:38 #522658
Ég ætla hér með að lýsa því yfir að þetta mun vera í síðasta skiptið sem ég skrifa inn á þetta vefsíðudrasl, ég mun mögulega hugsa mig um ef að stjórnin vaknar til lífsins og grýti þessu drasli út í hafsauga ásamt höfundunum.
Takk fyrir mig og veriði sælir.
19.03.2005 at 00:41 #519342Ég tel að þú hafir verið að grafa eigin gröf með þessum pósti. Reyndar gefur nafnið þitt svolítið til kynna að þú sért að leita eftir því.
M. kveðju og von um að þú verðir skotinn í kaf.
Pattletti
06.03.2005 at 23:27 #5183100-50 þús. Þetta er nú bara Toyota. Það er nú ekki hægt að fara fram á mikið meira. Annað mál ef þetta væri Nissan.
Kv.
Pattletti
06.03.2005 at 23:25 #518300Er það það sem BGS.is stingur upp á að eigandinn borgi með bílnum???
Kv.
Pattletti
21.02.2005 at 23:30 #517456Þetta var nú skot úr glerhúsi frá Toyotu manni. Ég vet nú ekki betur en að flest allar breyttar toyotur á landinu hafi annað hvort brotið driflið,öxul eða drif. Svo ef að fréttist af einni pæju með bilaðan öxullið þá hlakkar í toyotu mönnum. Það mætti halda að þeir væru að leita sér að þjáningabræðrum. Þær eru nú ekki margar pæjurnar sem eru breyttar og gaman væri að sjá hversu mörg prósent hafa brotið eitthvað miða við Toyotur.
01.02.2005 at 22:19 #514796Mér finnst hálf sorglegt að sjá hvernig karlpeningurinn lætur fara með sig til þess að konurnar geti skroppið á fjöll eina helgi. Menn liggja sveittir við að skipta um vélar og kassa og drif til þóknast konunni í einu og öllu. Ég spyr er þetta eitthvað trix til þess að menn fái að eyða eihverju í bílana sína??? Eða eru menn bara svona bugaðir af konunum sínum? Ef mig vantar eitthvað í minn bíl kaupi ég það bara. Annars finnst mér gott mál að senda konurnar á fjöll einu sinni á ári.
Ps.ætli það verði mælanlegur munur í sölu á vodkaflöskum á meðan kvennaferinni stendur?
02.01.2005 at 21:17 #512218Þú er hugaður að koma hér og hæla þessu drasli!! Þetta hefur áður verið rætt og rifist yfir þessu. Það eru verkfræðingar búnir að reikna þetta fram og til baka og það að setja þrengingu í loftinntak getur engann veginn staðist sem aflaukning af neinu tagi. Aflaukningin er að öllu leyti sálræn.
Kveðjur
PattlettiPs. Þú getur alveg eins sett þetta í púströrið hjá þér þú finnur sömu aflaukningu.
13.12.2004 at 15:32 #510956Ég myndi nú ekki trúa mikið á þennan snjódýptarmæli í setrinu. Sést hefur til manna eins og Patrolman vera moka snjó undir mælin til þess að geta nú heldur betur sagt okkur frá svaðilförum helganna.
Með snjókveðjum
Pattletti
11.12.2004 at 01:45 #510860Ég myndi nú fara varlega í að segja þessa bíla betri gagnvart þægindum heldur en explorer eða patrol.En ég vona nú samt að þessir bílar séu aðeins skárri heldur en hilux. Ég myndi ekki vilja borga margar miljónir fyrir bíl sem þarf síðan að keyra með nýrnabelti eins og þessar toyotur eru. Ef að menn færu að verðleggja patrolinn eða explorerinn eftir þægindum eins og toyotumenn gera greinilega þá ætti enginn efni á að kaupa svoleiðis bíla.
Kveðjur
Pattletti
10.12.2004 at 19:58 #510846Þá er nú komið annað upp á teninginn. Þegar þessir bílar eru með dieselvél og eknir til tunglsins og til baka þá þykir mönnum 3+ miljónir bara eðlilegt verð.
Hvað er að?? Mér finnst þessi toyotu verðlagningar vera alveg langt út úr korti hvort sem það eru bílar eða varahlutir. Eru þessir bílar úr gulli? Ég gæti keypt mér tvo patrola í varahluti fyrir minn á þessum verði.
Menn eru farnir að ganga of langt.Kveðjur
Pattletti
10.12.2004 at 18:37 #510838Maðurinn er nú ekki heilbrigður að fara út í það að breyta svona bensínbíl. Hann er nú alveg búinn að skjóta sig í fótinn strax með því.
Það verður álíka auðvelt fyrir hann að losa sig við þetta eins og fasteign á Ísafirði.Með sölukveðjum
Pattletti
09.12.2004 at 23:54 #510824Eru menn alveg gengnir af göflunum????Ætlaru virkilega að fara að selja gamalt 44 tommu fjós fyrir 2,9 miljónir???
Ekki á það bætandi að þetta er með bensínhák í húddi. Ég spyr nú bara: Eru menn alveg í skýjunum með að verðmeta þessa bíla?Kveður
PattlettiPs.Það er sér auglýsingadálkur fyrir svona lagað.
25.11.2004 at 00:16 #509454Ég skal nú alveg bjóða þér aðstoð mína við að ýta mmc bílnum þinum. En ég get nú líka alveg hengt hann aftan í pattann minn og þú getur fengið að finna hvernig patrol virkar. Þú sérð vonandi ljósið einn daginn og færð þér jeppa.
kveðjur
pattletti
24.11.2004 at 23:48 #509448Ég stóð nú alltaf í þeirri merkingu að menn keyptu ekki mmc. Ég var nú nokkuð viss um að menn þyrftu að borga með þessum bílum til þess að losna við þá. Ég myndi allavegana ekki kaupa svona bíl. Ástæðan fyrir því að menn eru að selja gömlu patrolana er að þeir eru orðnir svo öfundsjíkir út í okkur á nýju bílunum að þeir verða að vera eins.
kveðjur
pattletti
Ps.
I would rather push my Nissan than drive a Mitsubishi
16.11.2004 at 23:51 #508794Afhverju? Því er auðsvarað:af því það eru bestu jepparnir. Toyoturnar koma alltaf í spottum af fjöllum eins merkilegt eins og það nú er. hvað segja Toy menn við því? hvort kemur hlutfallslega oftar í spottum heim af fjöllum?
Kveðjur
pattletti
15.11.2004 at 23:53 #508742Ég myndi halda að þetta komi úr litlu membrunni sem skrúfast í hliðina á sátrinu og tengist við governorhjólið þegar þu ert í átökum niður í móti. Eða kannski eitthvað í sabandi við bremsuna á sólhjólinu í öðrum plánetugírnum.
Ég myndi segja að það borgi sig bara að flegja bílnum og fá sér Patrol. Það er miklu betra.
Kveðjur
Pattletti
11.11.2004 at 18:18 #508520Eru menn alveg orðnir ruglaðir af snjóleysi og ætla að fara að breyta sænskum drullumallara. Það væri örugglega flottara ef einhver tæki sig til og setti hásingar undir baðkarið sitt.
Með kveðju
-
AuthorReplies