Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.04.2006 at 21:39 #550620
… þá skilaði síðasta sýning rætt tæplega tveimum millum til 4×4, en Hausverkur tapaði um einni og hálfri millu…
Þannig að 500.000 kall er ekki mikill peningur fyrir stóran klúbb, þar sem margir leggja fram krafta sína. Ég hugsaði sem snöggvast að ég hefði betur verið klár í að leggja fram 5.000 kall og hinir hundrað sem unnu á sýningunni líka… :o)
Þannig að hárrrétt er, að það er ansi hæpið að halda sér sýningu þar sem breyttir jeppar eru einungis til sýnis..það eru breyttir jeppar í hverri götu nú orðið. Fínt að lauma sér inná svona sýningu með öðrum, þetta gefur okkur mikla kynningu og um leið skrá sig alltaf nokkrir í klúbbinn…
Svo mætti alveg ímynda sér að það væri hægt að vera með einhverskonar fjáröflun í þessum bás, happadrætti, eða hlutaveltu… Eitthvað sem gæti gefið okkur aur. Td vera með tvo bauka í básnum, annar merktur sérstöku verkefni í landgræðslu og hinn til að standa straum að einhverju öðru verkefni, td til að bjóða langveikum börnum í stuttan jeppatúr.. ?
kv
Palli
30.03.2006 at 18:10 #547810Sælir félagar.
Ég ætla á námskeið, búinn að ákveða það fyrir löngu. En ég hugsaði þetta eins og fleiri, ætlaði á námskeið no 2 eða 3. Fannst eins og það væri svaka stemming. Lella á náttúrulega að vera kosin heiðursfélagi fyrir að hafa þennan kraft og vilja að setja svona í gang. Kannski þarf að hafa skránigu á annan veg, þeas, nú er ég ákveðinn að fara á námskeið og ætti að draga einn með mér. Sá aðili ætti líka að draga annan með og síðan koll af kolli. En því miður er þessi helgi vonlaus fyrir mig, ferming heima…
kv
Pallips. Hvet þig Lella til að klára þetta mál með stæl… hringdu bara í menn og fylltu fyrsta námskeiðið…
P
26.02.2006 at 00:01 #544488Maður getur varla gert sér í hugarlund hvaða kringumstæður eru þarna á jöklinum. Greinilegt er miðað við tímann sem hefur liðið frá því um miðjan dag, að björgunaraðgerðir eru mjög krefjandi og erfiðar.
Langar mig því að senda góðar og hlýjar hugsanir til allra sem standa í björgunaraðgerðum og einnig til allra þeirra sem bíða eftir að fá frekari fréttir af afdrifum mannanna.
Bestu kveðjur,
Palli
14.02.2006 at 18:40 #542588Hæ aftur. Takk fyrir hrós í minn garð.
Langar að bæta smá við.
Aron og Benni í Jeppaþjónustunni (nú J.Þ. Breytir). Takk fyrir að breyta bílnum fyrir mig. + allir hinir vinir mínir sem komu líka og voru með, hann hangir enn saman, eftir 2,5 ár.
Frú Kristín. Þú færð hrós fyrir að umbera mig alla daga, elska mig og leyfa mér að fara út að leika með stákunum. Það eru forréttindi að fá að vera vinur þinn.
Bjössi, Jói, Óskar og aðrir Sóðar. Þið eruð flottir, takk fyrir að vera ferðafélagar mínir og takk fyrir að vera á svona fínum og góðum bílum :o)
P
13.02.2006 at 22:54 #542570ÍKTUR fær líka hrós fyrir að hafa hækkað, lengt, og breikkað bílinn sinn. Hve margir hafa gert þetta ? Flottur.
Freysi fær hrós, fyrir að hafa hannað og látið framleiða íslenskt dekk. Freysi, alvöru maður.
Svo fær Ómar Ragnarsson hrós frá mér. Það er bara til einn svona. Ætti í raun að friða kallinn.
Kv
Palli
13.02.2006 at 21:58 #197308Sælir félagar.
Hér langar mig að stofna þráð, þar sem við hælum félögunum, vinunum, eða hverjum sem er. Legg til að hver aðili setji inn amk þrjú stykki „hrós“ í hvert innlegg, það er jú ókeypis að hrósa.
Langar að byrja á því að hrósa Jóni Snæland fyrir óbilandi áhuga á jeppaferðum, slóðum og klúbbnum. OFSI allaf flottur.
Einnig verð ég að hrósa Hlyni Snæland fyrir að vera virkur á spjallinu, hvet hann til að vera enn virkari. „DATSUN **st í heimi“.
Svo verð ég að hrósa Gunnari Egils að hafa látið sér detta það í hug að segja já, þegar félagar hans höfðu samband frá útlöndum og sögðust vilja láta hann aka með sig á Suðurpólinn. Einnig að láta setja það í gestabók á pólnum, að bíllinn sem kom fyrstur á pólinn hafi verið Íslenskur. Áfram ICECOOL.
Kv
Palli
13.02.2006 at 21:40 #542548….á enginn mynd af bílnum. Það er reyndar hálf hallærislegt að segja frá því hér, að ég hef ekki séð hann, ekki síðan að hann kom hingað til mín í heimsókn í nóvember (og þá á skurðaskífunum).
Þá sagði sonur hans (sem verður 6 ára á þessu ári): "Palli, það er soldið ósanngjarnt að pabbi sé á svona litlum hjólum og þess vegna ætlar hann á alvöru hjól eins og þú".
Ég held að þessi vísindi séu frá þessum litla dreng, Björn þurfti ekki að sannfæra frúnna um þessi kaup, henni fannst ætíð lítið til koma útgerðin á 38 tommu bílnum.
:0)
Kv,
Palli
13.02.2006 at 21:03 #542542er hann ekki frá þeim sama og er að smíða fyrir okkur framlásana ?
P
13.02.2006 at 20:36 #542538Á einhver mynd af græjunni ?
P
05.02.2006 at 20:35 #197245Sælir félagar.
Hafa menn komið í nýju frjálsíþróttahöllina í Laugardalnum ? Þar væri sko gaman að setja upp sýningu. Spurning er hvort ný liðið ár með metsölu á bílum og hófleg bjartsýni landans fyrir þetta ár, gæti verið klúbbnum og félagsmönnum heppilegt til að standa fyrir sýningu td nú fyrir vorið ?
Síðasta sýning gaf klúbbnum um tvær milljónir í tekjur og var haldin í október ef ég man rétt. Eftir þá sýningu kom upp hugmynd um að fá fleiri sýnendur með í lið, td fellihýsasöluaðila, sportbátamenn, rallý / torfæru, mótorhjólamenn, kvartmíluklúbbinn, sportbíla, fornbíla og fl og fl.
Að minnsta kosti er þarna nægt pláss og hægt að hafa allt inni, bæði í gömlu Höllinni og þeirri nýju. Og nú eiga bílaumboðin og fl til smá aur til að leggja í svona verkefni.
Kv,
Palli
05.02.2006 at 20:35 #197244xx
05.02.2006 at 20:35 #197243x
05.02.2006 at 20:18 #541556Sælir félagar.
Eftir að við félagarnir fórum með Pajeróinn á Eiríksjökul og það spurðist út, komumst við að því að við höfðum "óvart" valið leiðina upp (og niður) klettabeltið þá sömu og flugvélaflakið var tekið niður á sínum tíma.
Kv
Palli
25.12.2005 at 19:30 #536944Mæti..
Læt einhverja félaga mína vita, ef ég næ þeim frá steikinni..
Palli, PF305
25.12.2005 at 14:06 #533690Góðan daginn félagar og gleðilega hátíð.
Í mínum huga er Gunnar einn af þeim mönnum sem lætur ekki duga að tala um hlutina, heldur framkvæmir að auki. Gunnar er líka sú týpa sem nær sínum takmörkum. Hver man ekki eftir kalli í torfærunni ? Hver man síðan ekki eftir málaferlum sem hann ákvað sjálfur að fara út í, málaferli sem hann náði sínu fram gegn LÍA. Og svo þessir gæsilegu bílar sem hann hefur smíðað og brunar síðan á Suðurpólinn okkur öllum til sóma.
Þetta gera bara alvöru menn !
Skrif Hjartar hér á síðunni er honum einum til minnkunar og fróðlegt væri að sjá þennan sama mann standa upp á fundi td hjá 4×4 og leggja til það sama og hann skrifar hér. Guð hjálpi þeim manni við slíkar aðstæður.
Honum til fróðleiks, þá er það rétt eins og kemur hér fram ofar á þræði, að fyrsti sólarhringurinn er erfiðastur, svo getur maður staðið "vaktina" auðveldlega í tvo – þrjá í viðbót. Þetta þekki ég af eigin raun, er ég starfaði við akstur á flutningabílum hér í denn á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Og ég er ekki einu sinni kaffimaður, hvað þá prófað tópak :o)
Og ég hvet alla jeppamenn að mæta í kvöld / nótt / fyrramálið til þess að hilla "skipstjórann" er hann mætir á klakann. Okkur munar ekki um það að vaka eina nótt til þess að bíða eftir honum. Þurfum að finna góðan stað til þess, vera með öll ljós kveikt, allar flautur á fullu og fána uppi. Ég mæti og skiptir þá ekki máli, hvar staðsetning er….
Geri passlega ráð fyrir að sjónvarpstöðvar, blöð og þess háttar apparöt verði á staðnum, þetta er þannig árangur… (Skúli, við jeppamenn treystum á þig í þessu..)
kv
Palli
15.09.2005 at 09:02 #52684608.09.2005 at 00:02 #526424góða kvöldið.
Ja hérna hér. Allt er nú farið að gerast í heiminum, við EIK orðnir sammála :o) og nú er bannað að reka niður stikur til að vísa mönnum veginn. Hvað gengur fólki til með að banna þá eðlilegu vinnu að sjálfboðaliðar taki sig til og merki slóða og loki villuslóðum ? Veit ekki þetta fólk að með þessari vinnu tekst okkur að koma í veg fyrir utanvegaakstur ? Endilega sleppum þessu bara og ökum um allt á næstu árum…. nei kommonn, ég er orðlaus…
Er einhver að vinna í því að koma þessari vitleysu í fréttir ?
kv
Pall
02.05.2005 at 20:34 #522078Ertu til í að leggja undir þetta með hvort umboðið borgi vélina eða ekki ? Það sem ég á við, er að auðvitað vona ég að umboðið (eða framleiðandinn) aðstoði við svona uppákomu.
Eða er það eitthvað sem er pottþétt ? Getur framleiðandinn eitthvað gert að því, þótt hosa detti af túrbínu, hosa sem kannski hefur verið tekin af nokkrum sinnum bæði af eiganda eða verkstæðinu ? Nei, ég segi bara svona, hef ekki hugmynd um hvað gerist nákvæmlega. Þótt þið Datsun snillingarnir látið bjóða ykkur það að vera á 3ja mótor, þá finnst mér ömurlegt að lenda í svona, bæði fyrir bíleigandann og innflytjandann.
Nú, ef þessi mótor er ónýtur og MMC / HEKLA ætli að kleima pakkann, samglest ég vini mínum með það. Og það ætti þá að sýna að þeir sem stýra þessum málum hjá HEKLU, hafa áhuga á að standa sig gangvart jeppaeigendum.
Kv,
P
02.05.2005 at 18:14 #522070Sæll Hlynur.
Ég man ekki betur en þú sért ekkert voðalega brattur með þig, þegar þú kemur frá IH er búinn að versla eitthvað í Datsuninn, jafnvel þegar þú hefur brotið og bramlað sjálfur.
Nú þegar maður lendir í því að þurfa kaupa einn mótor takk fyrir og væntanlega borga hann sjálfur (án þess að vita það svo sem hvort hann lendir í því eða ekki), því mér skilst að hosa fyrir framan túrbínu hafi ekki verið til staðar í vetur í nokkurn tíma. Nú ef HEKLA ætlar að aðstoða hann með þetta mál, er það auðvitað frábært.
Þegar svona hosa losnar, má búast við því að túrbínan vilji ekki vera lengur "memm" og yfirgefur partíið, beint inn á vélina. Þá er um að gera að slá því svona skemmtilega upp á spjallinu og slá sjálfan sig til riddara um leið. En veistu það vinur, að það kemur manni oftast í koll, þegar maður veit bara ekki rassgat um hvað málið snýst.
Ég persónulega hef ekki talað við eigandann, en geri ráð fyrir að ekki sé gaman að standa frammi fyrir því að þurfa að opna veskið uppá gátt, þegar svona slys eiga sér stað. Það er því akkúrat ekkert sameiginlegt með þeim tveimum vélum sem hafa farið í þessum "frábæru" bílum, annað en það að þeim finnst ekki gott að bryðja járn, sem kemur inn í brunahólf.
Kv
Palli.
16.03.2005 at 00:20 #518994… þá vildi kappinn ekki aurana, er ég bauðst til að leggja þá inn á hans reikning, hann vildi þá ekki að svo stöddu. Það er því ömurlegt að lesa þetta hér á þræði núna, eins og maður hafi verið að stela þessum pening. Kannski að Jóhann Rún eigi þetta uppgjör, ég skal senda honum línu, það kannski auðveldar málið.
Svo hefði það verið mjög einfalt mál fyrir Sigga að hafa samband við mig seinna meir, við þekkjumst jú ágætlega, eða gerðum það amk hér í denn. Ja, ég bara spyr, hvert hefur hann verið að leita eftir endurgreiðslunni, sem hann segist bara ekki fá.. Kannski hjá Ferðafélagi Íslands ?
P
-
AuthorReplies