Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.01.2008 at 17:38 #608468
Hæ, smá innlegg í þetta.
Ég segi eins og Tryggvi, af hverju þurftu þau að gera þetta svona, aka í breiðfylkingu þarna niður og ég hugsaði strax, hvaða kjánar eru þetta á þessum bílum.
En allir hinir svo voru að horfa með mér (konan, bróðir minn, konan hans, mamma og pabbi, öll börnin), tóku ekki eftir neinu.
Sem segir mér það, að við jeppaliðið erum svo sannarlega að pæla í þessum hlutum og sennilega er þá þetta minna mál í hugum hinna sem eiga ekki jeppa og fara ekki mikið á fjöll.
Og þá er staðreyndin um utanvegakstur svona, ef marka má mína reynslu heima þetta kvöld:
Einhver framkvæmir, örfáir sjá, flestum er sama, enn færri vilja kæra, jeppakallinn fær sting að sjá. En samt hefur sýsli viljað eltast við þá…P
21.12.2007 at 16:18 #607466Já, gleðileg jól öll sömul.
Palli og co
07.12.2007 at 08:58 #201335Góðan daginn.
Veit einhver um 4 stk DC dekk á 15 tommu felgum með gömlu 8 gatadeilingunni fyrir Ford, sem ég gæti fengið lánað um helgina, til að máta undir Sprinterinn minn. Er því miður ekki að fara í prufurúnt, einungis að máta til að ákveða með hæðina á bílnum, sjá hvort ég sé á réttri leið með klippivinnu og þess háttar.
Amk er ég búinn að hringja í nokkra og þeir eru allir strand. Nú reynir á ykkur, félagar… ;o)
kv,
Palli sími 664 2103 phh@askja.is
04.12.2007 at 09:16 #201312Góðan daginn félagar.
Mig langar að nota þetta tækifæri til þess að óska mönnum til hamingju með nýjan samning við Skeljung, sem kynntur var á félagsfundi í gærkvöldi.
Það er greinilegt að þeir Skeljungsmenn hafa mikla trú á félaginu okkar og vilja með góðum hætti styðja okkur í því mikla starfi sem fram fer.
Vona að ég fari rétt með tölur, en við fáum allt að 12 kr/ lítr afslátt frá hæsta verði, auk annara afslátta / tilboða. En höfðinglegur stuðningur beint til félagsins er uppá 10.000.000 kr á ári í 5 ár = 50.000.000 kr takk fyrir.
kv
Palli
03.12.2007 at 16:43 #605212Hæ þið.
Alveg með ólíkindum hvað menn geta endalaust þrasað um þessi mál. En hér virðist alveg gleymast hvað viðkomandi samningur hefur gert fyrir félagið okkar. 2 kr á líter fer beint til okkar. x lítrar á ári á tankinn í Setrinu, auglýsing hér á síðuna gefur klúbbnum eitthvað, svo eitthvað sé nefnt.
Menn verða að vita allar staðreyndir áður en þeir gaspra.
Og ég held að stjórnin sé örugglega að gera sitt besta, nú sem áður. Vona að nýr samningur (ef hann er að líta dagsins ljós í kvöld) sé enn betri fyrir alla aðila, klúbbinn, Skeljung og félagsmanninn.
kv
Palli
30.11.2007 at 10:03 #605038Sælir félagar.
Jú, ég er búinn að kaupa 44 " DC, þorði ekki að fara í stærra, veit ekkert hvað krafturinn dugar í þessum mótor í svona stór hjól… svo langaði mig í hljóðlát dekk….
kv
Palli
18.10.2007 at 09:44 #600262Hó.
Fínt mál að hækka þessi gjöld, amk sé ég ekki eftir þessum aurum, þeir koma margfalt til baka..
kv
Palli
31.08.2007 at 08:48 #594988Góðan daginn félagar.
Eins og staðan er núna kl 8:42 á föstudagsmorgni, þá er ætlunin að við Björn Bóndi í Sylgjufelli verðum á ferðinni um helgina á þessum slóðum. En maður veit aldrei hvernig allt endar þegar Björn er annars vegar, hann gæti verið kominn hálfa leið einhvert annað áður en maður er varla hálnaður með að kaupa kostinn. En hann gerir ráð fyrir að gista í óðalinu og ég á eftir að skoða hvort Sprinterinn kemst lengra inneftir en Jökulheimar…
Amk má búast við að það verði smá líf í Sylgjufelli…
Kv
Palli
09.08.2007 at 18:02 #594478Hér á landi er ekkert formlegt umboð, en ég veit að Ræsir á til eitthvað af varahlutum.
Askja hefur ekki tekið inn þetta umboð og mun ekki úr þessu, fyrst Chrysler deildin er skilin við Daimler.
P
16.04.2007 at 10:35 #588428Sæll Agnar.
Jú, það er rétt, hann á að enda á 44 tommu DC hjólum. Ætla mér að nota Dana 60 hásingar. Minn bíll kom ekki með millikassa, né framdrifi. Það er reyndar væntanlegur slíkur búnaður frá Benz á næstu mánuðum, en hefur ekki verið tilbúinn enn í þetta nýja boddý.
Kv
Palli
14.04.2007 at 10:40 #587696Sælir félagar.
Kannski ætti þessi þráður að vera betur kominn undir innanfélagsmál, en ég læt gossa…
Það er bara eitt í stöðunni, þeas að stjórnin fái núverandi tækninefnd til að klára þessi mál. Ég man þessa sömu umræðu fyrir nokkrum árum, þegar BÞV var formaður og þá ætlaði þáverandi tækninefnd að koma með tillögur (og væntanlega er þetta enn á dagskrá og oft rætt síðan)
Kannski eru menn bara mikið uppteknir við annað, en hér er á ferðinni þannig mál, sem þolir ekki mikla bið í viðbót. Því skora ég á núverandi tækninefnd að klára þessi mál, til þess er hún kosin. Og um leið geta þeir einfaldlega kallað til menn, boðað þá bestu á einn fund og biðja þá um að hafa með sér tillögur. Síðan að vinna úr þeim hugmyndum sem þar koma og senda frá sér í nafni klúbbsins til þeirra sem ráða.
Það eru til þrenns konar fyrirtæki / félög / einstaklingar og stundum er sagt á þennan hátt:
Þeir sem tala um að láta hlutina gerast.
Þeir sem heyrðu af því að eitthvað hafi gerst.
Þeir sem hafa ekki hugmynd um að eitthvað gerist.
Þeir sem láta hlutina gerast (og þar eigum við að vera, nú sem fyrr).Kv
Palli
12.04.2007 at 23:40 #587678Sæll "gamli" ;o)
En getur þú ekki verið sammála um að það séu klárlega nokkrir breyttir bíla (og væntanlega óbreyttir líka) sem eru á ferðinni ? Ég hef farið í túra með mönnum á bílum sem ættu bara alls ekki að vera á númerum.
Það má klárlega laga þessar reglur sem eru til í dag, færa þær til nútímans, enginn er að tala um einhverjar kollsteypur, bara að koma á blað því sem við þekkjum sjálfir. Bara td eitthvað á þennan máta:
Skylda sé að allir bílar sem eru breyttir fyrir x tommur eða meira, skulu hafa stýristjakk.
Í öllum breyttum bílum sem eru hækkaðir upp meira en x cm, skulu vera með x margar upphækkaðar boddýfestingar….
Fullt er til af svona þekktum staðreyndum sem fínt er að koma inn í skoðunarferilinn. Og auðvitað er það rétt að framfarirnar og hönnunin fer fram heima í skúr, enginn er að tala um að banna þær, bara að það sé vel gert og þær séu teknar út á réttan máta.
Við vitum allir hvað gerist þegar einhver tekur sig til og vill banna breytta jeppa og apparatið fer í gang gegn okkur. Á slíku hef ég engann áhuga, vill gera hlutina vel svo ég fái að njóta sportsins áfram. Sjáið bara hvað gerðist í kringum Hvannadalshnúk, þar gleymdum við okkur smá og misstum spón úr aski okkar.
kv
Palli
04.04.2007 at 00:18 #587198Sæll Ólsari og takk fyrir hlý orð í minn garð.
Jú, þetta er auðvitað rökrétt pæling hjá þér. Og hver getur svo sem áttað sig á því hvað Sýsli á Selfossi er að pæla. Persónulega hef ég meiri álit á Oddi löggu, en sýsla sjálfum, þekki þá báða frá veru þeirra á Ísafirði. En það má vera að Sýlsi sé að finna glufur á allt og öllu, eftir að hafa fengið á baukinn í málaferlum sínum nýverið.
Eins og ég skildi þáttinn í gær var aðalatriðið það, af hverju má það vera að bíll sem fær ekki skoðun vegna ryðs, fær síðan skoðun mánuði seinna og er síðan í tvennt eftir árekstur við annan bíl. Þetta eitt og sér er alveg nóg til þess að allir eigi að fara hugsa sín mál, hvað má fara betur. Ég mun bara tapa á því að reyna að stinga hausnum í sandinn, því þetta mun koma í bakið á okkur jeppamönnum seinna meir. Auðvitað má skoða jeppana okkar betur, auðvitað má smíða þá betur, auðvitað eru til jeppamenn sem verða að hugsa sitt ráð betur.
En að þættinnum í kvöld. Hann var svo sem ágætur, en ég held að þeir Sigmar og Runólfur hafi nú helst viljað fá mann í heimsókn sem hefði verið meiri öfgamaður en ég, þeas maður sem á druslu, finnst hlutirnir bara í góðu lagi eins og þeir eru, og væri bara með kjaft við þá. Bara steitt hnefa. Við hinir vitum alveg hvernig það hefði endað, enn eitt kjafthöggið fyrir okkur jeppamenn.
En það er svo skrítið þegar maður er kominn í svona þátt og þykist sæmilega undirbúinn, þá fer umræðan kannski eitthvað annað en maður átti von á og um leið gleymir maður einhverju sem stóð til að segja, eða að það passar ekki að tala um það þegar næsta spurning er komin. Td ætlaði ég að segja mína skoðun á því að breyttur jeppi sem er bíll no 3 á heimilinu, virðist vera betur tilbúinn á fjöll, en sá jeppi sem er notaður í vinnu alla daga. Þá á ég við, það er oft tími til að dudda eitthvað í þeim bíl sem er lítið notaður, en þeim sem er í notkun alla daga. Bara mín skoðun.
Einnig var ég með á blaði að tala um Íslensku bílana sem hafa farið til Grænlands, á Suðurpólinn, til Afganistan og víðar. Þessir bílar og eigendur þeirra hefðu aldrei farið eitt né neitt, nema vegna þess að fyrir all mörgum árum datt mönnum í hug að breyta jeppum í fyrsta sinn.
Svo eru einhverjir sem telja að mín orð í kvöld hafi ekki verið gáfuleg, að viðurkenna svona vandann. Við þá menn vil ég bara segja eitt. Ef við gerum ekki eitthvað sjálfir í þessum málum, þá gera það einhverir aðrir fyrir okkur og þá erum við ekkert með í ráðum.
Annars bara allt fínt, gleðilega páska og vonandi koma allir heilir heim eftir ferðir helgarinnar.
kv
Palli
02.04.2007 at 23:11 #586872Sælir félagar.
Ég verð nú að játa það að það sem kom fram í þessum þætti í kvöld fór ekki fyrir brjóstið á mér, amk ekki á þann veg að ég ætti að taka þetta til mín persónulega, þótt ég sé jeppamaður. Menn mega ekki fara á taugum og heimta að klúbburinn sem hagsmunafélag fari af stað með predikun þótt svona umfjöllun fari af stað, hún á alveg rétt á sér.
Hef fyrst og fremst samúð með fólki sem missir sína nánustu í slysum og skil það vel að það vilji skoða og velta fyrir sér ástæðum slysa. Og ef það er rétt að viðkomandi Patrol jeppi hafi verið að detta í sundur í skoðun einhverjum mánuðum á undan, þá hefur hann væntanlega ekkert batnað á þeim dögum sem liðu fram að slysi. Amk hef ég ekki séð ryð batna af sjálfsæðum. 20 ára gamall bíll, hugsið út í það og kannski breyttur fyrir 16 árum síðan og jafnvel ekki á þann máta sem við þekkjum í dag.
Og ég get tekið undir það að skoðun á þessum jeppum okkar á að vera miklu betri og ítarlegri en hún er í dag. Og jafnvel ætti að skoða þá oftar á ári en einu sinni. í rallinu, þurftum við að mæta með bílinn í skoðun fyrir hverja einustu keppni og menn þar keppast við að hafa þar alla hluti í lagi fyrir rall, svo sem minnstar líkur séu á að mennn dyttu úr keppni þá helgina. Mér finnst á sumum/nokkrum/mörgum jeppamönnum að menn vilji helst komast af með sem minnstan kostnað við allt, vælandi yfir félagsgjöldum uppá nokkra þúsundkalla, en fá allt félagsgjaldið til baka með kaupum á einu kastarasetti hjá einhverjum velvildarvini klúbbsins. Og þessir sömu menn eru tilbúnir til að gagnrýna allt og ekkert. Og jafnvel gorta sig á því að hafa sloppið með jeppann í gegnum skoðun, vitandi af nokkrum atriðum sem hefði mátt vera í betra standi. Þetta vitum við öll.
Farið nú frekar út í skúr, skoðið jeppann ykkar sjálfir og kannið hvort þið séuð sáttir við alla smíðina, allar festingarnar, alla upphækkunarklossana, allar suðurnar og fl í þessum dúr. Amk er þetta það sem ég geri fyrir hvern einasta túr sem ég fer í. Og í einum túr sem við Ella og fl fórum í fyrir tveimum árum hrökk í sundur stýrisendi við högg. Þá var farið og keypt allt nýtt í stýrisganginn, upphengjur og legur. Svoleiðið á að vinna þetta, ekki skítmixa hlutina. Sumir laga bara það sem er brotið, svo hægt sé að leggja af stað í einn túr enn, en ekki að stúdera kemst ég heim ?
Ég treysti Oddi Árnasyni lögreglumanni á Selfossi, hann er maður orða sinna og það sem hann sagði í Kastljósinu er bara nákvæmlega eins og hlutirnir eru. En þetta með hásinguna á bílnum sem valt uppí Þjórsárdal, hvort það gerðist áður en hann valt eða ekki, get ég ekki sagt til um. Að sama skapi veit maður ekkert um það hvort höggið gæti hafa orðið miklu meira beint framan á bíl strákanna ef þessi Patrol hafi ekki dottið í sundur. Þessum spurningum verður sennilega seint svarað.
Kv,
Palli
15.03.2007 at 18:56 #584634Rögnvaldur Stefán Helgason Lagarfell 18a
26.02.2007 at 23:21 #582342Já Ofsi, þetta líkar mér að heyra, hafa trú á sínum mönnum….
kv P
ps. Ég seldi Pajero í dag…og fékk nýjan með skipi í dag…, vann svo spurningakeppnina hér áðan… og hlít að fá að sofa hjá frúnni á eftir… (þá meina ég sko "sofa hjá" frúnni…)
P
26.02.2007 at 23:07 #582338Já, maður klikkar ekki á Sæluhúsinu, sem ég hef ekið ca 1200 sinnum fram hjá (en auðvitað er það uppgert og fínt nú). Hef reyndar bara komið einu sinni uppí Siglufjarðarskarð og þá var það í Þoku. En kveikti strax, er minnst var á foss…
Kv
Palli
26.02.2007 at 22:05 #582326Goðafoss ?
26.02.2007 at 21:34 #582322Oddskarð…
26.02.2007 at 21:33 #582320Brýr….. Brúarhlöð ?
Fjallvegur…. Siglufjarðarskarð
Hús…. Steingrímsfjarðarheiði
Kv
Palli
-
AuthorReplies