Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.02.2009 at 22:19 #640084
Þú ert svo erfiður… laga þetta á eftir.. þeas, ef það er hægt.. P
04.02.2009 at 21:41 #203742Eins og stendur hér á aðalsíðunni, þá er ætlun okkar að fara seint í apríl vestur á firði í jeppatúr. Nú þegar eru skráðir um 20 bílar í ferðina, flestir frá Reykjavíkur“deild“, nokkrir frá Vesturlandsdeild, einn frá Vestfjarðardeild og einn frá Vestmannaeyjum (hvaða deild er þar??).
Svo fékk ég eina umsókn frá manni sem vantar bæði bíl og ökumann. Vill endilega koma með, er klár að borga helming í eldsneyti, ef einhver er klár og ekki búninn að finna coara.
Endilega senda mér línu á netfangið phh@askja.is og skráið ykkur. Vill fá nafn allra sem ætla með, tegund bíls, stærð dekkja, símanúmer og eitthvað fleira…
Svo kynnum við listann seinna meir hér á spjallinu.
Kv
Palli og co
04.02.2009 at 09:37 #639402…þá ætlaði ég að segja frúnni frá þessari ferð, en get ekki með neinu móti fundið dagsetningu á ferðinni. Stúlkur, væri sjens að fá þær upplýsingar ?
kv
Palli
18.01.2009 at 21:43 #638420Góða kvöldið.
Ég var að aðstoða Good Year í des sl með test á nýjum dekkjum. Þeir létu okkur aka hverju setti um 200 km á aðeins 50 km hraða á malbiki. Bannað að beygja snöggt, bannað að hemla snöggt og bannað að spóla… Með þessu sögðu þeir (og væntanlega réttilega) að naglar myndu setjst betur en ella og ná þannig festu við gúmmíið.
Mágur minn var í þessu í heila viku, ók uppí Hvalfjörð og var alveg að sofna….
Kv,
Palli
18.01.2009 at 20:22 #638174Góða kvöldið félagar.
Það er gott að Ólsarinn og fl eru á svipaðri línu og ég í þessu máli. Hvet hér með stjórn að leita sér aðstoðar í þessu máli. Amk styð ég það heilshugar að setja aur í verkefnið. Er alls ekki að gera lítið úr þeim sem hafa hingað til með þessi mál að gera, þeir hafa svo sannarlega staðið plikt sína.
Við megum ekki við því að það sé valtað yfir okkur, félagið deyr auðvitað, ef menn mega ekki breyta jeppum áfram, eða mönnum bannað að ferðast. Það er allt of margir sem vilja okkur þann farveg.
K
Palli
18.01.2009 at 12:44 #638294Góðan dagin. Já þetta sýnir að það þarf ekki að fara langt til að ná í fjör…. og auðvitað fá menn jafnmikið út úr því að fara í svona hóp, eins og að fara á jökul með stóru bílunum.
Eru menn farnir að sækja þessa tvo bíla ? Kannski að maður skelli sér með ? Sól og blíða.. og þá þori ég ;o/
Kv
Palli
16.01.2009 at 23:15 #638158Hæ Jón.
Ertu ekki sofnaður enn ?
Ég styð þig 100 %, þú ert flottastur. En því miður á ég (og margir aðrir) ekki mikinn tíma, amk ekki á milli kl 8 og 18 virka daga. Það er eiginlega vandamál okkar flestra.
Ég er td formaður í tveimum félögum og ég fæ ansi oft bakþanka um eitt og annað, helst vegna þess að mér finnst ég ekki standa mig nógu vel og sé ekki að gefa þessu mikinn tíma. Sum mál þurfa að vinnast í dagvinnu og vinnuveitandinn ekki of hress með allt skrópið. Þá er fínt að geta gefið skipanir og menn æða í verkin ;o)
kv P
16.01.2009 at 22:08 #638150Sæll Jón Ofsi.
Það er ekki of sögum sagt, að þú ert ofvirkur…
En ég er búinn að halda því fram um nokkurt skeið, að þetta mál er það stórt að hinn venjulegi Jón hreinlega ráði ekki við það. Eini sjensinn okkar í þessu er að ráða okkur LÖGMANN sem fer í málið að fullum krafti. Klúbburinn á til nóga peninga í að halda uppi okkar sjónarmiðum. Það er rétt sem hér kemur fram, að það er verið að svæfa málin og halda okkur úti í horni, því þá ná önnur öfl því í gegn sem þeir vilja. Stjórnin á að finna einhvern góðan lögmann í þetta á mánudaginn, setja í þetta eina eða tvær millur, svo rödd okkar heyrist. Í félaginu okkar eru auðvitað lögmenn, en þau eins og við hin getum ekki gert svona í sjálfboðavinnu. Hér er ég td að tala um Soffíu eða Björn Þorra, sem þekkja klúbbinn afar vel.
Öll hin öflin eru með fólk í þessu á launum.
Kv
Palli
16.10.2008 at 12:56 #630090Er ekki alltaf pláss fyrir nokkra á dansgólfið ? Svo ég tali nú ekki um snilling eins og mig, sem fór á tvö námskeið hjá Heiðari Ástv fyrir reyndar 35 – 40 árum síðan…
Við Sóðarnir eyddum allri hýrunni í bón fyrir síðustu helgi og verðum bara að vera heima og naga gamalt brauð og drekka vatn með.
Amk er ég að vinna í því að fá nokkra sóða til að koma á ballið… sjáum til.
Kv
Palli
16.10.2008 at 08:48 #630084Er hljómsveit ? Og er hægt að mæta bara á ballið ? Og hvað kostar miðinn þá ?
Kv
Palli
15.08.2008 at 09:08 #627428Góðan daginn.
Staðfesti hér með að ég mun koma og aðstoða við sýninguna og undirbúning. Sveinbjörn, þú boðar mig, phh@askja.is Geri ráð fyrir að aðrir Sóðar muni vera til taks, amk sýningarhelgina.
kv
Pallips. Við Sóðarnir gætum verið með keppni í því, hver yfirgefur skála á sem sóðalegastan hátt. Ekki bara skilja eftir uppvask, heldur líka sleppa því að skúra. ;o) P
08.08.2008 at 13:26 #626662Hæ Lella.
Ég bara veit ekki símanúmerið þitt, en hef svo sem ekki verið að leita að því heldur. En þú mátt hringja í mig ;o) 6642103 Og það má vel vera að ég skelli á og hringi svo til baka, ég gæti átt til nokkrar krónur í það verkefni ;o)
Ég hef bara áhuga á því að klúbburinn lifi þetta af, lýst bara ekki á ástandið…
Over and out.
Kv
Palli
08.08.2008 at 09:50 #626652Sæl öll sömul.
Eins of fram kemur á öðrum þræði mínum með kveðjum til Agnesar, þá langar mig aðeins að leggja orð í belg hér, þrátt fyrir að þekkja ekki vel til málavaxta.
Lella. Hættu nú að skrifa hér á netið á 30 mínútna fresti, einhvern veginn fer allt á hliðina eftir þessi skrif. Taktu upp símann og hringdu í þá menn sem eiga að setja fundargerðir inn og pirraðu þá útí eitt, þú ert örugglega með munninn fyrir neðan nefið, eins og vísifingurinn er öflugur á lyklaborðinu.
Sendu okkur hinum svo fréttir af og til, hver staðan er ;o) Held að allir hafi gott af því að fá faglegar fréttir af málum sem þurfa að fá dagsins ljós.
Hvorki ég né aðrir (stjórn og fl) erum hér inni mörgum sinnum á dag og ég skil ekki alveg þræði sem innihalda setningu sem þessa sem maður sér stundum: " ætlar stjórnin ekkert að svara…". Ef stjórn ætlar / þarf / vill svara, þá þarf hún að halda fund, er það ekki ? Og þarf stjórn að vakta alla spjallþræði ? Sendiði erindi á stjórn, biðjið um skrifleg svör, upplýsið okkur hin, ef þörf er á.
Maður spyr sig, hvers vegna er ástand svona almennt í þessum klúbb, hvað veldur ? Hvað þarf til þess að lægja öldur ?
Hver og einn svari fyrir sig.
Og ég skil ekki alveg þetta stóra "fundargerðamál", hvað og hvernig á að laga hana núna. Fundargerð á að vera nákvæm upptalning á því sem fór fram á fundi og síðan eru einfaldar reglur til, hvernig á að lesa upp fundargerð og menn hafa þá tíma strax til að leiðrétta eitthvað sem á ekki heima þar inni. Td eitthvað sem kom ekki fram, eða var ekki sagt, eitthvað sem vantar eða mistúlkun fundarritara á því sem fram fór. En ég er ekki viss um að menn geti munað það núna, hvað var sagt á fundi í vor og hvað ekki.
Kv
Palli
08.08.2008 at 09:25 #626740Sæl Agnes og þið hin.
Kannski að það skiljist sem svo að maður sé að setja sig í flokk með einum og um leið vera á móti öðrum, með því að taka þátt í spjallinu þessa dagana. En svo er þó ekki.
Og veit ekkert um þessi mál (og er heldur ekki að leita að svörum), sem virðast herja á klúbbinn okkar og allt að því ganga að honum dauðum. Í svona klúbb á bara að vera gaman að starfa. Og þannig hef ég persónulega upplifað samstarf mitt við Agnesi. Takk fyrir Agnes.
Kv,
Palli
30.07.2008 at 10:47 #625946Mikill og langur þráður hér.
En ég vil bara þakka Húsvíkinugm fyrir mig og mína. Vel að öllu staðið á tjaldstæðinu og gott veður.
Og Lella, ég tilheyri Reykjavíkurdeild og var þarna. Sofnaði síðastur eftir kvöldvökuna og vaknaði fyrstur á sunnudeginum og var farinn áður en allir hinir vöknuðu.
Takk fyrir mig.
kv
Palli
12.03.2008 at 15:51 #617422Síðasta stórferð var farinn fyrir 5 árum og var partur af 20 ára afmæli Ferðaklúbbsins. Sent var bréf á öll umboðin og þeir sendu út bréf á sína viðskiptavini og boðuðu þá til sín í morgunkaffi. Við lögðum síðan til fararstjóra í hvert umboð og farið var í allar áttir, út frá borginni og voru brottfarir á ýmsum tímum, langar ferðir, stuttar ferðir svo fólk gæti valið á milli. Stefnt var að ná 1.000 bílum og allir áttu að enda í Kringlunni seinnipart sama dag í veislu á vegum 4×4. Eitthvað um 800 – 850 bílar tóku þátt, en það munaði mestu um að Toyota sá sér ekki fært um að vera með í þessum degi, svo boðun á Toyota eigendum var ekki góð, og menn áttuðu sig ekki á því að mæta auðvitað í næsta umboð. En dagurinn var góður fyrir alla, sérstaklega lögregluna, sem hafði miklar áhyggjur af umferðaöngþveiti, en allt fór þetta vel og sennilega vegna þess að ekki komu allir hópar inn á sama tíma í Kringluna.
kv
Palli
19.02.2008 at 12:55 #614508Hæ.
Nei, það er ekki enn búið að setja þetta á blað, ekki enn. En það stendur til.
P
18.02.2008 at 14:18 #614488Sælir félagar.
Jú, Stál og stanzar smíðuðu lóggírinn í bílinn sem fór á Eiríksjökul. Ægir smíðaði í minn gamla 44 tommu bílinn (sem Jóhann á núna) og svo var Kári búinn að smíða í nokkra bíla (Bjössa bíl, Jóa bíl og fl) og ég held að Breytir sé með nokkra gíra í smíðun úti í bæ þessa dagana.
kv
Palli
15.02.2008 at 09:30 #613896Sæll Þorgeir og þið hin.
Vantar ekki sendibíl ? Ég gæti lummað á litlum lyftubíl, sem myndi smellpassa í verkefnið. Gæti komið sjálfur, ef ég verð ekki í "hraðamælisbreytingarísmíðisverkefni" eða í "plastbrettakantaásetningum". Veit þetta fyrir kvöldið. En bíllinn er klár, bara sækja hann fyrir kl 18 í dag á bílasölu á Höfðanum. Hringdu í mig, ef það vantar bíl(a).
Kv
Palli 664 2103
18.01.2008 at 18:04 #610272Hæ þið.
Ég hélt að fullorðið fólk áttaði sig á því, að ekki er endilega sniðugt að tilkynna hér á spjallþráðum, hverjir eru að fara á fjöll um helgar. Það er alveg eins hægt að senda línu í Moggann og segjast ekki vera heima og það verði opið hús heima fyrir þá sem eiga kúbein.
Þess vegna hef fullan skilning á því, að nöfn viðkomandi séu ekki birt nú á föstudegi, en sennilega lekur það allt út á mánudaginn…
Og ég tók þátt í síðustu þingmannaferð, bara asskoti fín verð og ég borgaði olíuna sjálfur og allt nestið í bílinn. Held að ég hafi ekki verið rukkaður um gistingu innfrá og einhver mætti með nokkur læri, svo kostnaður klúbbsins var ekki mikill. En hafa ber í huga að klúbburinn á nú til einhverja peninga og um að gera að nota þá í eitthvað gott. Amk treysti ég Agnesi og hinum til að passa vel uppá. Góða ferð.
kv
Palli
-
AuthorReplies