Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.03.2009 at 10:23 #640112
Góðan daginn félagar.
Um 55 bílar eru skráðir í ferðina og ég á von á ca 10 bílum til viðbótar frá Ísafirði. Svo þetta verður góður hópur sem fer vestur. Snemma í næstu viku mun ég senda meil á alla þátttakendur og fólk þarf þá að staðfesta þátttöku sína með að greiða fyrir mat og gistingu.
Enn eru nokkur pláss laus í ferðina, svo nú er um að gera að senda mér meil… phh@askja.is
Kv,
Palli
11.03.2009 at 15:41 #643272Eddi og Sigurjón hjá Heklu eru að selja þessi dekk. Var bara síðast í morgun að kaupa 4 stk fyrir félaga minn vestur í Gilsfirði.
Kv
Palli
11.03.2009 at 09:05 #642934Sem betur fer er flóra bíltegunda hjá björgunarsveitum jafnmikil og hjá okkur jeppaeigendum. Og nú er kominn einn góður kostur í viðbót, bíll sem er svipað þungur og 44 tommu Patrol, hefur meira innanrými en Econoline og heitir Mercedes Benz Sprinter ;o)
Kv
Palli
09.03.2009 at 09:32 #637826Já, takk fyrir frábæra helgi. Þetta var bara asskoti skemmtilegt. Maður fann fyrir ákveðnu stolti, þegar ég kom inn á miðju kl 12:45, þar voru komnir nokkrir bílar, aðallega norðan menn og svo sá maður bíla streyma að úr þremum áttum í einu. Minnti á þegar víkingar til forna voru að mæta á Þingvöll.. Séra Hjörtur Magni og frú Ebba voru alveg í skýjunum með ferðina og nutu hverrar mínútu. Þau báðu fyrir góðar kveðjur til allra. Kv Palli.
ps. Ef einhver á til mynd af "Skólabílnum / Rútunni / Kastenwagen" á fartinu, þá væri gaman að fá slíkar myndir á meili… phh@askja.is
Kv
Palli
06.03.2009 at 23:25 #637816Hó.
Nú eru komnir um 50 bílar hingað í Hrauneyjar og 20 bílar í Hálandi. 5 bílar eru komnir í Illugaver, 19 bílar í Páfagarði…. svo það má halda því fram að ferðin hefst vel. Jón Snæland er meira að segja kominn hingað. Ræs kl 7 í fyrramálið.
Kv Palli
05.03.2009 at 17:00 #637772Sælir.
Hafliði Ólafsson stórbóndi í Garpsdal og frú bætast við hóp no 6, Kafbátar. Náði að semja við Stebba um þetta í morgun, Kv Palli
Hópur 6 Kafbátahópinn
41 Stefán Baldvinsson +1 38t Pajero hópsstjóri
51 Jón Svan +1 38t Hilux
65 Bjarki Clausen +1 38t GMC submarine
66 Samúel Úlfr Þór +1 44t Runner
47 Hafliði S Magnússon +1 38t Navara
84 Stefanía Guðjónsdóttir Runner
85 Pétur Friðrik Þórðarson 38t Comanche
Hafliði Ólafsson + 1 36 tommu Patrol
04.03.2009 at 12:25 #642288Sælir.
Já, flottur fundur. Flottar kynningar frá Fúla Genginu og frá Föstum og félögum.
En það stóð uppúr myndasýningin frá þeim félögum okkar sem skutust á Suðurpólinn… Ekkert smá sem hefur gengið þar á… og enn og aftur sannast það, að Íslenskir ökumenn og jepparnir okkar eru á heimsmælikvarða. Og ég vill endurtaka það hér sem ég sagði við þá félaga:, "Það eru bara alvöru menn sem klára svona túra…"
kv Palli
26.02.2009 at 23:30 #641984Þetta er sem sagt alvöru rallý með sérleiðum og ferjuleiðum ? Og bílar þurfa að vera með búri og því öllu saman ? Ertu með annað keppnisgjald fyrir Íslendinga ?
Þetta er spennó..
26.02.2009 at 21:51 #641980Sæll Steini.
Fyrst vil ég óska þér til hamingju með þetta allt saman…. það er ekkert smá sem þú ert búinn að leggja í þetta…. lítur vel út..
Og nú er maður ekki viss, hvort maður eigi að bjóða fram aðstoð við framkvæmd, eða bara drífa sig í skúrin og smíða… ;o)
Amk er ég búinn að taka frá dagana. Má mæta á rútu ?
Ertu kominn með erlenda keppendur ?
Kv
Palli
23.02.2009 at 09:14 #641762Þessi heyrðist í 30 bíla ferð, langt uppá jökli og var þetta kall frá síðasta bíl sem hafði lent út úr förum: "Viljiði stoppa þarna fremst, ég fór útaf…"
20.02.2009 at 09:31 #641478Verstu bílaviðskipti mín voru hér í denn er ég bjó á Ísafirði. Var búinn að kaupa mér gamalt hús og nú átti að fórna sportbílnum, ægilega fín Mazda 121. Bíllinn auðvitað sendur suður til Rvk með Ríkisskip og svo fékk ég frænda minn til að sjá um þetta í Rvk. Tilboð barst, að taka Mözdu 616 uppí og monný og 5 víxlar í milli.
No 1, þá grét ég þegar hvaddi bílinn á hafnarbakkanum.
No 2 þá fékk ég sjokk þegar ég fékk hinn til baka með skipinu… dísesssss. Meiri druslan..
No 3, þá fékk ég aldrei alla víxlana greidda, vélin hafði hrunið í millitíðinni í sportbílnum… svo þetta var algjört rugl og vesen…Kv
Palli
19.02.2009 at 09:41 #641370Sælir.
Að aka á ís er alveg ótrúlega gaman. Og alveg synd að menn skuli ekki gera þetta meira hér heima. Og ég sé að amk annar bíllinn er á íslenskum númerum og þekktur úr rallinu héðan.
Og til marks um það stemmingsleysi rallýmanna á vetrum (eða blankheit), þá er ég sá aðili sem vann síðustu tvær keppnirnar sem voru haldnar hér á landi. Önnur í mars 1989 (íscross), var þá á Subaru RX Turbo 87 módel og hin keppnin var tímataka (einn bíll í braut í einu, án veltibúrs) 1993 eða 1994, þá einnig á Subaru, reyndar án túrbúnu… Báðar keppnir löglegar af hálfu LÍA og haldnar á Leirtjörn við Úlfarsfell.
Og síðan hafa ekki verið haldnar keppnir…. En eins og stendur hér annarstaðar á spjallinu, þá vorum við félagarnir með 120 manns frá Good Year á Sandkluftarvatni í des sl. 6 bílar í braut í einu, brautin frábær eins og þessi á videoinu.
Kv
Palli
17.02.2009 at 16:51 #640110Hópur
xx
xx
xx
xx
Rotta
xx
xx
xx
Willis People
Willis People
Willis People
Vesturlandsdeild
Vesturlandsdeild
Vesturlandsdeild
Vesturlandsdeild
Vesturlandsdeild
Stjórnin
Stjórnin
Stjórnin
yy
yy
yy
zz
zz
zz
zz
Sóði
Sóði
Sóði
Sóði
Sóði
Sóði
Vestfjarðadeild
Vestfjarðadeild
Vestfjarðadeild
Austfjarðadeild
Austfjarðadeild
Sterarnir
Sterarnir
Sterarnir
Sterarnir
Sterarnir
Sterarnir
Sterarnir
09.02.2009 at 12:28 #640108Sælir félagar.
Nú eru 40 bílar skráðir.
kv
Palli
05.02.2009 at 22:22 #640202Jú, þetta vissi ég… enda varð rallýbíllinn okkar Jóa ætíð ansi kraftlaus á efsta hluta Kaldadals. Urðum stundum að bæta við túrbínuna við ræsingu, til að hafa búst í 700 m. kv Palli
05.02.2009 at 22:16 #640104Dekkja
stærð
38
44
38
38
38
44
38
44
38
44
44
44
46
49
46
46
44
44
44
44
44
38
38
44
38
38
38
38
05.02.2009 at 18:01 #640102Sæll.
Skoðaðu fréttina á aðalsíðunni. Þá finnur þú hvernig á að skrá sig.
kv
Palli
05.02.2009 at 14:27 #640098Já, og skilaðu því til Bjössa, að hann verði að koma með, amk á móti uppá fjall. Hann er langflottastur.
kv,
Palli
05.02.2009 at 13:37 #640094Hæ Óli.
Þeir Ísfirðingar (og auðvitað Bolvíkingar, Hnífsdælingar, Flateyringar og allt heila klabbið) sem ætla bara að koma á móti okkur á föstudeginum uppá Glámu, þurfa auðvitað ekki að skrá sig. Ekki er verra að vita af þeim mönnum sem ætla einungis að gera slíkt. Við þurfum engan aur í púkkið frá þeim aðilum.
En þeir sem ætla að gista með okkur í Reykjanesi og koma í mat og balli, þurfa auðvitað að skrá sig hjá mér.
Svo má vera að einhverjir að vestan vilji bara koma í smá jeppatúr á laugardeginum og fylgja okkur í matinn og ballið, þá þarf ég auðvitað að vita af því fólki líka.
Allt opið… Td veit ég um einn aðila sem fer sennilega beint til Reykjavíkur á föstudagskvöldið og greiðir okkur bara fyrir gistinguna í Reykjanesi.
Þú þegar er einn Ísfirðingur skráður. Og ég trúi ekki öðru en að þið verðið með 20 bíla amk.
Kv
Palli
05.02.2009 at 09:19 #640088Varstu búinn að skoða viðhengið sem er með fréttinni á aðalsíðunni ? Þar er ferðalýsing og fyrirkomulag sem á að vera nokkuð skýrt. Menn hreinlega ráða sjálfir hve norðarlega verður farið. Hver og einn hópur ákveður dagleið sína. Og að sjálfsögðu getur einn hópur verið eina nótt í Grunnavík, eða annarstaðar ef menn undirbúa slíkt sjálfir. Skipulag hópsins miðast þó við að gista 2 nætur í Reykjanesi og 2 nætur á Ísafirði.
Kv,
Palli
-
AuthorReplies