Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.09.2009 at 12:04 #657550
Sælir félagar.
Skil ekki alveg þetta komment með að ferðaklúbbar verði að tala saman… td vissi ég af ferðinni hjá Litlu Deildinni og öfugt. Vona að þeir fái 100 bíla eins og stefnir í hjá okkur.
Önnur ferðin er heavy ferð í Þórsmörk, ætluð öllum bílum. Hin hér í nágrenni Reykjavíkur, ætluð Pajero eigendum og á vegum Heklu. Og enginn ágreiningur okkar í milli. Td er ég viss um að Útivist og Ferðafélagið eru með ferðir þennan dag, enginn að amast við því.
Fólk verður auðvitað að velja á milli alls konar hluta í lífinu. Það er td meira en eitt bíó niður í bæ, fleiri en einn pöbb og miklu meira en ein kelling á lausu… ;o)
Kv
Palli
15.09.2009 at 17:00 #206518Sælir félagar.
Bara að leka í ykkur, að Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni verður haldin laugardaginn 26 sept nk. Kíkið hér inn á Brautina:
http://www.brautin.is/birtasidu.php?sidaid=29
Kv
Palli
15.09.2009 at 16:55 #206516Sælir félagar.
Þeir sem eiga Pajeró (eða L200) eiga að vera búnir að fá póst frá Heklu um Pajeróferð næstkomandi laugardag. Og þeir Mitsubishi eigendur sem ætla ekki með LitluDeildinni í Þórsmörk, geta auðvitað komið í þessa ferð. Sjá nánar hér: http://www.mitsubishi-motors.is/pajeroklubburinn/index.asp
Kv
Palli
20.08.2009 at 12:22 #654564Sælir félagar.
Ég lenti í svipuðu máli í sumar, þeas þegar bóndinn á Snorrastöðum á Mýrum fór hamförum er ég ók í gegnum hlaðið hjá honum. Hann er samt ferðaþjónustubóndi og vill fá fólk til sín. En ég hafði ekið framhjá bænum og ca 100 m lengra að útihúsum sem hann er að byggja. Þar vorum við að glápa í kringum okkur, nutum útsýnis, fjöll og jökull skörtuðu sínu fegursta. Vorum búnir að vera stopp þarna í ca 10 mínútur og vorum ekki komin út úr bílnum. Þarna er góður vegur og framundan slóði og grindahlið sem hann hélt örugglega að við ætluðum að aka. Hann kom með djöfuls kjaft, sagði að við hefðum ekið í gengum læst hlið og framhjá skilti sem stæði á að vegurinn væri í einkaeigu og lokaður. Ég sá þetta skilti og reyndar hliðið líka (sem var opið allan tímann), en mín kunnátta í skiltamálum sagði mér að þetta væri botlangi.
En dæmigert fyrir ferðaþjónustubónda að haga sér svona. Ég var að spá í að fara út og lesa honum pistilinn, en var ekki klár í slíkt, því börn voru með í för. Sendi í staðinn Jóa félaga minn út og hann talaði við kallinn, enda er Jói snillingur að tala við svona bjána og um leið halda allir haus og virðingu sinni. Hef ætíð dáðst af Jóa í þessum aðstæðum. En ömurlegt að lenda í svona köllum. Engin ástæða var fyrir þennan mann að haga sér svona. Hann gat miklu frekar sagt: [i:u3qg653l]"Góðan daginn strákar, hvaða ferðalag er á ykkur. Eruð þið að spá í að fara þennan slóða ? Æ, hann er ekki góður og hann er reyndar á mínu prívat landi. Og ég er ekki klár að leyfa mönnum að fara þangað á þessum tíma…. " [/i:u3qg653l]
En við auðvitað snerum bara við, en ég var fúll allan daginn. En þessi bjáni er búinn að stimpla sig rækilega inn hjá mér sem kjáni ársins.
Kv
Palli
17.08.2009 at 15:50 #654242Hæ.
Fara út í Skálavík og uppá Bolafjall.
Fara niður í Keflavík, af afleggjara út á Látrabjarg.
Rauðisandur, alltaf flottur.
Svo er víst gaman að fara Kirkjubólsdal (á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar) Aldrei farið þennan veg sjálfur.Og það er auðvitað skilda að fara Kjaransbraut (út í Lokinhamra)
Kv
Palli
07.06.2009 at 23:41 #648438Hæ Arnar.
Jú, ekkert mál… vona að einhverjir nýti sér þetta hjá þér. Hér þarf engann afslátt, bara gott verð ;o)
Kv
Palli
05.06.2009 at 14:23 #204472Sælir félagar.
Ég datt óvart inn í verslun Jóhanns Ólafssonar í Sundaborg í morgun. Þarna eru til mjög ódýr Hella ljós og tilheyrandi rafmagnsbúnaður fyrir okkur jeppamenn. Sýnist að um sé að ræða 2ja ára gömul verð… Hvet þá sem þurfa ljós og fl að kíkja við… ég gerði amk asskoti góð kaup….
Hvatti sölumanninn til að setja hér inn línu, en ég bara geri það hér með fyrir hann ;o)
Kv
Palli
22.05.2009 at 16:04 #648042Ég keypti litla rúllu hér í denn frá Wurth. Alveg skothelt… Dugaði á 5 – 6 bíla..
Kv
Palli
02.05.2009 at 20:22 #646720Sæll.
Ef þú leitar hér í þráðum, þá eru margir þræðir sem fjalla um kraftaukningu á Pajero. Er ekki góður að skrifa um það hér.. Skoðaðu myndir og síðuna hjá Jóa í Grindavík, hann er þekktur hér inni sem Jóhann. Svo er Rúnar Már Jónsson hjá KS verkstæðinu á Sauðárkróki aðal maðurinn í þessu.. Kv Palli
30.04.2009 at 09:24 #646716Hæ.
Jú, það er til Pajeroklúbbur… Jóhannes Jóhannesson er formaður. Þessi klúbbur var stofnaður af nokkrum Pajero eigendum (flestir þá starfsmenn Heklu) og eigendur Heklu voru svo almennilegir að koma að þessu með okkur. Hekla hefur staðið á bak við klúbbinn fjárhagslega, td er snýr að frímerkjum, nesti og fl í þessum dúr. Félagar eru um 600 talsins. Stundum hefur verið sent út bréf á alla Pajero eigendur, þegar staðið hefur til að fara í ferð… en klúbburinn hefur farið í ferðir í 10 ár ca. 1 – 2 ferðir á ári. Sjá http://www.mitsubishi.is þar er linkur inn á Pajero klúbbinn.
Kv
Palli
24.04.2009 at 23:32 #646518Halló halló. áætlað er að hópurinn fari frá ísafirði kl 8.30, laugardagsmorgun. Hópurinn telur 30 bíla frá Reykjavík auk um 20 bíla frá Ísafirði sem ætla að slást í hóp. Heyrst hefur um bíla sem ætla að koma bæði frá Hólmavík og frá Dölum og vonandi koma Patreksfirðingar líka. Veðurspáin er góð
Kv. Rebekka Palladóttir
22.04.2009 at 15:37 #640142Hæ.
Þeir sem fara Dalina, er bent á að Skeljungseldsneyti fæst á Skriðulandi. Og það er opið til kl 22.00 í kvöld, ef menn vilja kaffi að auki.
Erum með formlegt leyfi að aka um Arnkötludal frá Reykhólasveit, yfir á Hólmavík, ef menn vilja fara þá leiðina. Þessi vegur er í smíðum en Ingileifur verktaki leyfir okkur að fara. Drulla er efst á heiðinni.
kv
Palli
22.04.2009 at 14:44 #640140Hæ.
Styttist í brottför, og nú eru 43 bílar skráðir. Veðurspáin hefur aðeins verið að pirra okkur, en misvísandi spár hafa sést sl daga.
Einn nýr skráði sig rétt áðan og það er pláss fyrir nokkra enn, ef menn vilja með. Hringið í okkur, ef þið viljið koma með, eða bara mætið í Reykjanes í kvöld. Sameiginlegur kostnaður við gistingu og einn kvöldverð á laugardagskvöldið er 11.000 kr per mann.
Vonandi verður einhver á fréttavaktinni um helgina.
kv
Palli sími 664 2103, 854 6088, Jói sími 892 7800, 852 7800.
14.04.2009 at 22:48 #640138Hæ aftur.
Um 30 manns mættu á fundinn í kvöld og tókst hann vel. Farið var yfir ferðaplan, brottför rædd, sagt frá ferðum helgarinnar, snjóalögum fyrir vestan, björgunartúrum, olíunotkun, sýndar nokkrar myndir, svarað spurningum og fl og fl.
Rétt er þó að minnast á að hægt er að fá morgunmat í Reykjanesi (kostar 800 kr á mann per morgun) og kvöldmat (hugsanlega steikt ísa og súpa) á 1900 kr. Einnig er hægt að fá uppbúin rúm, en þetta þarf að panta í tíma hjá þeim í Reykjanesi. Þeir eru komnir með þennan lista eins og hann stendur í dag, en reynar eiga margir eftir að greiða (19 áhafnir hafa greitt nú þegar) Það setur skipulag aðeins úr skorðum, td gagnvart hópamyndun og fl. Hvet ég því ykkur sem ætlið pottþétt með, að greiða sem fyrst.
Jópal ehf, kt 610597-2389, banki 0313 26 009779. Setjið í skýringu nafn/nöfn þeirra sem greitt er fyrir.
Búið er að hringja í alla sem við eigum númer hjá og hafa ekki greitt, sumir svöruðu ekki. Menn detta út af lista kl 20 á fimmtudagskvöld. Amk treysti ég mér ekki að vera með listann lengur opinn fyrir svo marga sem raun ber vitni. Að 1 – 5 bílar væru óákveðnir á fimmtudag og ég veit af þeim aðilum, þá get ég beðið með slíkan fjölda fram á hádegi á sunnudag. Ég á nefnilega líka eftir að útbúa bíl og það allt saman. Og munið að vinir okkar í Reykjanesi eru ekki alveg í næsta nágrenni við bakarí og fl, svo mér finnst sanngjarnt að hafa þetta allt saman í tíma.
Hugsanlega erum við að tala um 4 – 5 hópa. Skýrist um leið og fleiri greiða. Minni menn á að taka með sér ísvara, en næg olía er til á Reykjanesi, bíllinn fyllti þar á tanka fyrir ca 2 vikum síðan. Sú olía á að vera góð ;O) Búast má við að tankurinn dugi daginn, en auðvitað líður öllum mjög vel með auka 20 L á brúsa ;o)
Miðar eru klárir og eru þeir afhentir af mér í Öskju Krókhálsi, ef menn eiga leið hjá. Einnig geri ég ráð fyrir að vera á opnu húsi á fimmtudagskvöld (gæti klikkað hjá mér…, langaði á þetta hér: http://www.heimilin.is/varnarthing/inde … =56:fundir ) Hvet ykkur líka að hlusta á Bjössa vin okkar í fyrrmálið, en hann verður á Bylgjunni uppúr kl 8:00.
Nóni og fl eru fóru vestur á jökul í dag til að ná í tvo bíla sem voru skildir eftir fyrir viku síðan. Einnig eru fleiri á leið á jökul um næstu helgi á sleðum, og þá fáum við góðar fréttir af færð. En eins og staðan er í dag, þá tel ég víst að við munum öll fara uppá jökul frá Blævardalsvirkjun rétt fyrir utan Hallstaði. Mikill og erfiður snjór er á Ófeigsfjarðarheiði og á jökli. Kaldalón er ófært jeppum (hliðarhalli og einn mikill skafl alveg niður í fjöru..) Að sama skapi tel ég að allur hópurinn mun fara af Hestkleif (Eyrarfjalli) upp að/á Glámu og fara niður á Hrafnseyrarheiði. Laugardagurinn verður óvissuferð að hætti Ísfirðinga.
Jói mun senda í fyrramálið þau trökk sem eru í boði á meili til þátttakenda.
Annars bara allt fínt.
Meira síðar.
Kv
Palli
13.04.2009 at 22:32 #640136Sælir félagar.
Ég skrapp vestur um páskana og kíkti á Glámu og Sjónfríð. Fór af Dynjandisheiði uppá Glámu, færi ágætt og nægur snjór. Komst uppá topp Glámu, skyggni var þá ekki mikið. Ágætis veður, en himinn og jörð runnu saman í eitt og lítið annað að sjá en beint niður með bílstjórahurðinni. Stefnan var tekin beint yfir á Snjónfríð, en það mistókst alveg hjá mér og endaði ég að lokum með að slá undan beint niður hlíðar Glámu, til að koma mér úr púðursnjó sem var hlémegin í fjallinu. Það var því asskoti erfitt að koma sér beint uppá Sjónfríð á ný, upp þennan púðurpitt…
Til að gera langa sögu stutta, þá komst ég ekki þangað upp, þrátt fyrir mikla þolinmæði ökumanns og ekki síst farþeganna. Hringdi ég þá í Sigga Óskars á Ísafirði til að koma á móti mér og búa til för niður að bílnum mínum. Hann ætlaði að koma eftir 3 – 4 tíma, en komst ekki heldur upp á Sjónfríð hinu megin frá. Með honum í för voru gamlir félagar mínir og vinir úr Björgunarsveitinni Tindum í Hnífsdal (Maggi Helga, Gummi Páll, Eyjólfur og Sæmundur), bæði á eigin bílum og bíl sveitarinnar. Enda sleppa menn þarna fyrir vestan ekki góðu basli ef það bíðst.
Og á meðan við famelían biðum eftir aðstoð, tók ekki betra við hjá mér eftir 6 tíma lóggírsvinnu við brekkuna góðu. Bíllinn steindauður og vill ekki í gang aftur. Og þá var lítið annað að gera en að bíða eftir Sigga og co. Og það endaði þannig að við fórum labbandi þessa 600 m sem voru á milli okkar, og frúin og stelpurnar voru fegnar að komast í koju á Ísafirði kl 5 á aðfararnótt laugardagsins. En kallinn þurfti að vakna aftur eftir 2 tíma, því Ísfirðingar voru búnir að ákveða að fara uppá Glámu og því upplagt að breyta þeirri jeppaferð í björgunartúr. Þar voru fremstir í flokki, Barði Önundar, Einar Már, Árni Þór, Bjössi Finnboga, Toggi, Raggi Gámur, Eyjólfur og fl góðir. Og viti menn, þessir öðlingar létu sig ekki muna um að kippa mér með og kippa bílnum upp brekkuna góðu og draga mig niður á veg. Við vorum reyndar með viðgerðatölvu með okkur, en hún sagði okkur að bíllinn væri í lagi, enginn bilun væri til staðar. Svo var Sprinter settur í hús á Ísafirði og fór auðvitað í gang daginn eftir heitur og fínn. Hugsanlegt er að ég hafi fengið einhvern vibba í tankinn er ég fyllt´ann snemma á föstudaginn langa. Það má því segja eins og er, að þessi föstudagur var mér langur. Ég vill nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim sem hjálpuðu mér um helgina. Án ykkar væri ég ekki kominn suður. Og flott er myndin sem ég á, þar sem 7 jeppar í röð koma mér uppá brúnina. Set hana inn við tækifæri.
En þetta segir okkur að það er nægur snjór enn fyrir vestan og mig hlakkar til að komast á Glámu á ný og klára túrinn ;o) Einnig er nægur snjór á Drangajökli og á svæðinu þar í kring. Ég vona reyndar að hann blotni smá næstu daga, svo færið verði okkur hagstæðara. Frétti af mönnum sem voru þarna á ferðinni fyrir nokkrum dögum og gekk ferðin seint, vegna púðurs á jökli.
Skráningu líkur á morgun þriðjudag og það er fundur með öllum þátttakendum kl 19:30 í Öskju Krókhálsi, þar sem raðað verður í hópa og farið yfir eitt og annað. Minni alla á það enn og aftur, að skráning telst ekki gild, fyrr en upphæðir vegna gistingar og fl hafa verið lagðar inn á viðkomandi reikning. Sjá meil síðan á þriðjudaginn var.
Kv Palli.
Ps, svo er ég afar stolur af eiginkonu minni, en hún hélt við drullutjakkinn í 40 mínútur, þegar ég í klaufagangi mínum affelgaði vinstra megin að framan efst á Glámunni. Og heppinn var ég að koma dekkinu einn á aftur… og bíllinn ruggaði allan tímann…
P
08.04.2009 at 23:42 #640130Mussó
Ram
Patrol
xx
Landcruiser 90
xx
4runner
Willis
Willis
Willis
Wrangler
Rubiicom
Ford
Ford
Pajero
Hilux
Izuzu
Izuzu
Trooper
Patrol
Landcruiser
Patrol
Hilux DC
Partol
Landcruiser 100
Landcruiser 120
Landcruiser 120
Patrol
Landcruiser 80
Patrol
Sprinter
Pajero
Pajero
Pajero
Pajero
Landcruiser 100
Patrol
Landcruiser 80
Musso
Patrol
Patrol
Hilux DC
Navara
Tacoma
Hilux ExtraCap
Patrol
Landcruiser 80
Landcruiser 80
Landcruiser 90
Tacoma
Landcruiser 120
Landcruiser 80
Patrol
Landcruiser 90
Wagoneer
Chevrolet
08.04.2009 at 19:46 #640128Jú, við erum að tala um þá helgi.. Annar í sumri…. Og sumardaginn fyrsta á jökli…
Ertu að taka feil ? Þú mátt ekki alveg fara á taugum, þótt ég sé á Patró í dag ;o) Og djöfull er að sjá Datuninn, standandi svona á skurðarskífunum…
En ég ætlaði mér að fara héðan á föstudag og til Ísafjarðar, veit ekki hvaða leið ég fer,amk verður Hrafnseyrarheiðin ekki fær. En Vegagerðarmenn sneru frá vegna snjóflóðahættu..
Kv
Palli
08.04.2009 at 13:02 #640124Sælir heimamenn.
Ég vissi að ég myndi hrista uppí ykkur ;o)
Óli, átt þú ekki trökk ? Líka yfir í Skálavík, uppá heiði, út að Galtarvita ? ég þarf þetta allt, stefnum á að eiga góðan Laugardag :o)
Ég veit að Siggi Óskars ætlar með og Barði. Er með Gunnar Þór og Brynjar skráða. Heimamenn að sunnan, er ég og Róbert bróðir (reynar á sama bílnum), Vagn Jóhannes og fl.
Búi á Patró hitti mína fögru frú í Kaupfélaginu áðan, talaði um að hann langaði…
Kv
Palli
08.04.2009 at 12:06 #640118Góðan daginn.
Um 60 bílar eru skráðir í þessa ferð. Sumir hafa hætt við á síðustu vikum og aðrir skráð sig í staðinn, þannig að smá breytingar hafa orðið á þeim lista sem til er. Í gær var sent bréf á alla þátttakendur og fólk beðið um að staðfesta skráningu með því að greiða fyrir gistinguna og matinn á Ísafirði. Og ég sé að margir hafa þú þegar greitt sinn hluta. Takk fyrir það.
Enn er hægt að skrá sig, það er pláss fyrir örfáa bíla. Og ég er hissa á því að sjá aðeins 2 skráða heimamenn, en veit jú um fleiri sem ætla að koma. En ég þarf að vita af þeim mönnum sem ætla að koma uppá Glámu, eða uppá jökul. Mig langar til þess að lauma heimamönnum í hópana, svo við SAS mennirnir (sérfræðingarnir að sunnan) fáum meira úr ferðinni en ella. Hvernig er þetta með ykkur Hólmvíkingar ? Ætlið þið ekki með okkur á jökul ? Og nú er ég á Patró, og hér er einn sem ætlar að koma af Dynjandisheiði, eða Þingmannaheiði og hitta okkur. Og svo treysti ég á ykkur á stór Hnífsdalssvæðinu að koma líka ;o) Enginn kostnaður er að taka þátt í ferðinni sjálfri, svo ef menn eiga olíu á brúsa, og vilja koma einn dag, þá er það meira en velkomið…
Svo er Jói félagi minn að safna trökkum, til að senda á hópinn. Endilega sendið á hann skemmtileg trökk. joi@bus.is
Kv Palli og co. sími 664 2103, phh@askja.is
ps. Það snjóar á Patró….
Jú, það er hægt að komast í Bolungarvík og Reykjafjörð á snjó, en rétt er að menn viti hvar Friðlandið er og hvar ekki.. P
07.04.2009 at 13:34 #645314Sælir.
Held að ég sé ekkert að ýkja með það mál, þegar ég held því fram að Aron og Biggi í Jeppaþjónustunni Breyti séu þeir bestu í þessu verkefni. Þeir eiga til allt í þetta, kanta og fl..
kv
Palli
-
AuthorReplies