Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.11.2009 at 13:21 #660892
Skúli.
Þetta er nákvæmlega hárrétt hugsun hjá þér….var að lesa þetta hjá Ómari í morgun.
P
01.11.2009 at 18:39 #664596Fáðu Óla á Ljónstöðum til að klára þetta fyrir þig. Renna utan af diskum, færa bremsudælur innar… steinliggur.
kv
P
31.10.2009 at 22:48 #660686Já, þú ert spenntur þykir mér ;o)
Ætli við hittumst ekki kl 20:00 þessi miðvikudagskvöld.
Kv
Palli
31.10.2009 at 22:45 #664492Góða kvöldið.
Takk fyrir fínan dag. Mælingar frá Daimler segja, að ég ók 350 km, tók mig 12 tíma, meðalhraði 24 km og eyðslan 18,4 l / 100 km,
Kv
Palli
30.10.2009 at 17:56 #660682Hæ og hó.
Það er búið að ákveða að standa fyrir annari Nýliðaferð í Setur sömu helgi. Ég mun senda biðlistann á þá sem ætla að sjá um ferðina. Og þeir verða í sambandi við viðkomandi.
Kv,
Palli
28.10.2009 at 19:11 #660680Úpps, gleymdi einu….. þeir úr þessum hóp sem eiga heima út á landi, þurfa auðvitað ekkert að mæta þessi miðvikudagskvöld, við heyrum bara í þeim í síma…. ;o)
Kv
Palli
28.10.2009 at 19:09 #660678Hæ öll sömul.
Var að senda meil á hópinn sem stefnir á að koma með (og auðvitað á hina sem eru á biðlista)
Bið ykkur um að taka frá miðvikudagskvöldin 11. og 18. nóvember, við stefnum á að hittast þá og fara örstutt yfir ferðaplan og fl. Nauðsynlegt er að amk einn aðili úr hverjum bíl komi (og helst með bílinn líka)
Kv,
Palli
27.10.2009 at 10:01 #660676Góðan daginn.
Vildi bara leyfa ykkur að vita af því, að þátttaka í ferðina er alveg frábær og nú eru um 14 aðilar / 6 bílar á biðlista. Flestir sem eru inni, eru búnir að leggja inn aurinn, einn eða tveir klára það um mánaðarmótin.
Það er því enn smá sjens fyrir þá sem eru á biðlista að komast með, skýrist fyrstu dagana í nóv.
En listinn er ca svona:
Bjössi
Palli
Jói
Óskar
Bragi
Rúnar
Sigurður B S
Leynigestur
Kristján H
Magnús B S
Logi M S
Árni F R
Hafliði Ó
Jóhann S
Bergur B
Páll A
Sigurður F Á
Pálmi A
Sturlaugur A
Gísli G S
Steinn K R
Baldvin Z
Kristinn V WBiðlisti
Aðalsteinn V
Sigurður H B
Jón S
Ingólfur H
Ásgeir P G
Ómar AÉg var búinn að nefna það við formann klúbbsins að það gæti verið möguleiki á að standa fyrir annari ferð sömu helgi, td í Setur. Spurning er hvort vilji er fyrir því ?? Og þá vantar einhverja góða til að taka það að sér.
Kv
Palli
19.10.2009 at 09:53 #660674Góðan og blessaðan.
Skráning gengur afar vel og það er kominn biðlisti.
Þess vegna biðjum við þá sem hafa fengið svar um að þeir séu inni, að greiða þátttökugjaldið.Nú, ef einhver er að lenda í því að þurfa að hætta við ferðina, þá viljum við líka heyra í þeim eins fljótt og hægt er.
Þannig fáum við hámarks nýtingu á ferðina, en allt hangir þetta saman við fjölda gistiplássa í skálunum.
Kv
Palli
16.10.2009 at 17:48 #660672Sælir.
Það er enn leyndó hver kemur með sem slóðameistari.
En enn er pláss fyrir 2 – 3 bíla, svo förum við að setja á biðlistann. Og um leið að íta við þeim sem eiga eftir að greiða.
En við erum asskoti grobbnir með þá sem eru búnir að skrá sig. Eiginlega allir eru nýliðar, eða amk þekki ég þá ekki og kannast ekki við nöfnin. Flestir eru í klúbbnum og aðrir ekki. Sumir að byrja í bransanum, svo þetta verður bara skemmtilegt.
Kv
Palli
13.10.2009 at 14:44 #660668Og til fróðleiks, þá vorum við að fá einn helsta slóðasérfræðing landsins til að koma með okkur og lóðsa okkur græningjana um óbyggðirnar… Það verður spennó, eins og alltaf þegar hann er með í för.
13.10.2009 at 14:15 #660664Hún liggur bara beint yfir Tungná. Og vonandi verður áin ekki farartálmi á þessum tíma.
Kv
Palli
13.10.2009 at 09:25 #660660Góðan daginn.
27 manns skráðir.
Nokkrir höfðu samband og spurðu út í viktartöfluna fínu. Og það upplýsist hér með að ferðin er hugsuð sem "meðal" erfið ferð.
Kv
Palli
08.10.2009 at 22:45 #660658Hó.
Vildi bara leka því í ykkur að skráning gengur mjög vel, um 20 manns eru búin að skrá sig á 9 jeppum.
Lítur bara vel út.kv
Palli
07.10.2009 at 17:58 #660648Heyrðu nafni… algjör óþarfi að rifja þetta upp núna… ;o)
Jú, við stefnum á góða og skemmtilega ferð..
Kv
Palli
07.10.2009 at 14:54 #660642Hæ. Jú "meðal" er í lagi. Amk get ég opnað þennan 4×4 þráð…
P
07.10.2009 at 10:31 #660638Sælir.
Hér eru viktartölur:
https://old.f4x4.is/index.php?option=com … tig#p59076
Og hér líka:
http://www.utivist.is/ferdaaaetlun/
http://www.utivist.is/utivist/ferdaaaet … unartafla/Kv
Palli
06.10.2009 at 21:00 #207118Sælir félagar.
Við Sóðarnir kynntum á félagsfundi í gær drög að nýliðaferð. Kynningin er hér á forsíðunni og skráning er hafin. Sendið okkur meil á phh@askja.is Nú þegar eru komnir 7 bílar í ferðina.
Meira síðar.
kv Palli
23.09.2009 at 23:08 #657560Góða kvöldið.
Datt í hug að leka því í ykkur að nú eru um 30 manns skráðir og þar af um 6 lið. Væri ekk sniðugt, ef einhverjir félagar 4×4 myndu skrá sig til keppni og mynda lið Ferðaklúbbsins ? Koma svo, skrá sig á http://www.brautin.is
kv Palli
17.09.2009 at 13:22 #657556Hæ.
Hér er gróf tímasetning:
10:00, brottför Hekla Laugarvegi
10:30, inn á Frakkarstíg
11:00, komið niður á Grafningsveg
11:05, Nesjar, smá stopp í fjörunni..
11:30, Aftur uppá Grafningsveg
11:50, bílaplan þar sem Valhöll stóð. Smá stopp
12:20, Úlfljótsskáli, grill og tilheyrandi
13:50, brottför eftir grill
14:30, 1000 vatna leið
15:00, Heimsókn í HellisheiðarvirkjunKv
Palli
-
AuthorReplies