Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.12.2002 at 09:30 #461620
Aron er að sjálfsögðu í JEPPAÞJÓNUSTUNNI, beint fyrir ofan Sólningu…
P
05.12.2002 at 09:16 #461618Hó hó…
Þetta er sá lífseigasti þráður sem ég man eftir á þessu spjalli. Það sem ég var að leita eftir, er að fá lengri fjöðrun að framan á gamla seig, því fjöðrunin er nú uppskrúfuð að fullu og gerir lítið gang í uppslaginu. Sammála mönnum um að búnaðurinn sjálfur er mjög sterkur og bílanalítill.
Varðandi nýja bílinn Skúli, þarf þú aðeins að passa hvað þú segir, því ekki er bíllinn grindarlaus. Grindin er inn í boddíinu sjálfu, kann samt ekki að skýra þá hönnun hér, en bíllinn er hannaður upp úr þeim keppnisbílum sem hafa unnið París Dakar rallið sem oftast síðustu ár.
Menn sem hafa vit á jeppabreytingum, hafa frekar haft áhyggjur af öxulhosunum í drifbúnaðnum að aftan, heldur að grind og boddý sé ekki nógu gott ! Og þá er verið að tala um, ef menn ætla að nota bílinn á fjöll og lenda í miklum krapa. Aron Árnason í Jeppasmiðjunni er búinn að skoða hugsanlegar breytingar á þessum bíl og segir þær lítið mál, ekki meiri mál en að breyta Barbý…. (vona að ég sé að hafa þetta rétt eftir honum).
Kv
Palli.
04.12.2002 at 09:06 #464814Sæll Toni.
Mér finnst eins og þessi þráður þinn eigi heima sem fyrirspurn til stjórnar, því ekki geri ég ráð fyrir að allir þeir sem eru hér á spjallinu geti vitað svör við þessu. Mér finnst einnig eins og þú hafir verið eitthvað hálfúldinn við tölvuna eftir miðnættið í nótt og vona að þú sért í skárra skapi nú í morgunsárið.
Mig langar þó að segja þér frá því, af hverju ég er í félaginu. "Fyrst og fremst til þess að hafa gaman af því". Hitta fólk, ferðast, fá Setrið sent heim, mæta á fundi og opið hús. Það er bara bónus fyrir mig að fá afslátt í búðum hér og þar og snöggur er maður að fá fyrir 3.900 krónunum.
Vel má vera að 4×4 fái ekki sömu afslætti en aðrir klúbbar. Kannski er það vegna þess að þeir sem gefa okkur afslátt, viti að við verslum ekki mikið, eða erum við kannski leiðinlegir kúnnar. Hvað veit ég um það. Legg til að þú takir að þér fyrir hönd klúbbsins, að semja við alla þessa aðila á næsta hausti, því þú ert greinilega harður í horn að taka. Svo ég tali ekki um að þú gætir verið búinn að gera umfangsmikla könnun á því hvað við verslum og hvað aðrir versla. Þannig gætir þú verið búinn að eyða svona einum og hálfum mánuði í þetta verkefni fyrir okkur hin í klúbbnum.
Varðandi þetta með heimabankann í tölvunni, þá væri gaman að sjá póstberann banka heima hjá þér og kanna hvort talvan þín væri heima og reyna svo að troða öllum þínum prívat pósti inn í tölvuna þína. Bara spurning hvort hann fari inn um floppy drifið, eða inn um geisladrifið.
Það eina sem ég veit, er að þú ert væntanlega skráður í félagið. Félagaskráin er send til bankans og þeir senda út gíróseðla. Hugsanlegt er að þeir keyri saman skránna við þjóðskrá, þannig að sem flestir fái sinn seðil heim til sín, því ansi margir trassa það að láta vita, ef þeir flytja á milli húsa.
Annars vona ég að þú sért búinn að jafna þig á þessari fílu og mætir hress á bjórkvöldið hjá Bílanaust á föstudagskvöldið.
Kv
Palli
19.11.2002 at 11:11 #464402Sælir félagar.
Ég held að það eina sem við getum gert nú, er að liggja á bæn um að það komi eitthvað hvítt úr lofti.
En að öllu ganni slepptu þá hefur það ekki verið rætt enn, að fresta ferðum. Látum amk. líða fram í miðja næstu viku….
Kv
Palli
14.11.2002 at 16:47 #461526Finn ég einhver hlutföll á móti því sem er að aftan nú þegar, eða geri ég eitthvað róttækara, og hvar finn ég dótið á viðráðanlegu verði ?
P
14.11.2002 at 16:44 #461522Þetta er flott, vísur og alles… Nei ég læt ekki bugast og held mig við gamla seig…, enda stutt í að hann verði gjaldgengur í Fornbílaklúbbinn…, (frí gjöld..!!..)…
Já, líst vel á kvennaferðina og sendi fulltrúa…
P
14.11.2002 at 15:03 #461514Hó..
Aðeins farið að hitna.. Flott…
Bjarni, komdu nú með útgáfuna sem ég á að smíða undir…
Ég er nefnilega (og nú er ég að segja þér "soldið" sem er bara okkar á milli) algjör rati í þessum málum. Kann bara að keyra þessar tíkur, en ekki að smíða neitt…P
14.11.2002 at 09:33 #461504Sælir félagar.
Ég sé mig knúinn til að svara þessu aðeins….
Varðandi Datsuninn hérna um árið, þá hlít ég að hafa verið á lyfjum á þeim tíma, því ég á bara ekki orð yfir vitleysunni í mér að eiga slíka bifreið…………##!!
Varðandi hina tegundina, þá eigum við frúin prinsip í lífinu, hún vill ekki eiga Toy og ég fer ekki í flugvél með Ómari Ragnarssyni(þó að það komi þessu máli ekkert við). Þannig að það þarf ekkert að ræða þetta meir.
Jú, "Eiríkur" verður örugglega ekki verri við að fá rör að framan. ég átti bara eftir að segja þér/ykkur frá því að ég ætla um leið að taka flatjárnin undan að aftan….. Eftir þessar breytingar hætti ég að drífa mest og dríf þá bara "lang" mest…..
Jú Bjössi minn, ég segi ekki neinum frá óreiðunni í dótakassanum þínum og held alveg kjafti yfir hrúgunni á borðinu…
Annars er ég bara í stuði….eins og sést… Sjáumst í nýliðaferðunum um mánaðarmótin….
P
12.11.2002 at 11:22 #461496Sælir félagar.
Þar sem ég er einn af þeim sem dreymir um að setja hásingu undir minn bíl, langar mig að vita hvort menn hafa gert það sem hér er sagt frá í fyrri pistlum. Ef svo er væri gaman að heyra og fá síðan að sjá herlegheitin hjá viðkomandi.
kv
Palli.
04.10.2002 at 14:16 #191714Jæja.
Þá er búið að smíða nýja skemmtinefnd.
Í henni eru:
Lúter formaður
Þorgils
Siggi Frikk
ÁrniStrákar, ég veit að þið hafið ekki spjallað saman, en væruð þið ekki kannski til í að byrja á að senda línu á johannes@wurth.is því Jói var aðeins byrjaður á að undirbúa árshátíðina 2.11 nk.
Annars….. til hamingju með nýtt starf…
Kv
Palli
19.09.2002 at 08:34 #463122Sæll PÁVER.
Já, okkur vantar fólk í skemmtinefnd…, ég hélt að það lægi alveg ljóst fyrir, að þú skildir hverju ég væri að gauka að þér…. Skemmtilegir menn eiga að vera í skemmtinefnd… Ég veit þó að einhver hefur gefið sig fram í stað Einars, en margar hendur vinna létt verk…
P
18.09.2002 at 16:59 #463114Sælir félagar.
Mikið er ég búinn að skemmta mér yfir þessu spjalli…..
Já þessi Páver er asskoti góður…legg til að umræddur gefi sig fram við stjórn og við erum með verkefni fyrir manninn / konuna..Kv
Palli
16.08.2002 at 11:19 #462796Sæll Jón.
Finnst þér vera einhver misskilningur á ferð….?
Það er búið að reyna að tala við kallinn prívat….P
16.08.2002 at 09:42 #462792Jú, það hefði svo sannarlega verið best….., en þegar menn mæta ekki á boðaða fundi (þar sem á að leysa málin) og byrja síðan á þessu hér á spjallinu… þá verður bara að upplýsa félagsmenn um stöðu mála………..
Ég segi nú bara eins og Davíð sagði: "Ég bara veit ekki hvað hefur komið yfir drenginn", því Einsi Sól hefur staðið sig vel í því sem hann hefur verið að gera. Finnst eins og einhverjir séu að espa kallinn út í þessa vitleysu….., en það er bara mín skoðun.
P
15.08.2002 at 22:46 #462788Sæll Einar minn.
Mér er spurn….hvað gengur á……, hefði ekki verið nær að koma á þann fund, sem þú varst boðaður á kl 20:15 í kvöld….
Fyrir þá sem ekki vita, þá hefur Einar hætt í skemmtinefndinni og ef ég skil rétt, þá er það vegna þess að honum finnst mjög rangt af stjórn Ferðaklúbbsins fari fram á það við hann eins og aðra, að skila inn kostnaðaráætlun fyrir því sem hann stendur fyrir í nafni klúbbsins og hvað þá uppgjöri eftir á.
Einnig er Einar nokkuð súr vegna þeirrar umræðu sem fór í gang fyrir stuttu, hvort það hefði ekki verið skemmtilegt að breyta um sal, hljómsveit og jafnvel skipt um sósu, með lambakjötinu. Ég nefnilega man þá umræðu, um tilbreytingaleysi vegna ákvörðunar okkar í fyrra að hafa hátíðina á sama stað, þriðja árið í röð.
Ástæða þess að ég skrifa persónulega þessar línur, er vegna þess að mér blöskrar þessi leikur Einars að vera upp á kant við stjórn, síðustu daga, setjandi inn á netið upplýsingar um að árshátíðin ætti að haldast sömu helgi og við værum á landsfundinum í Setrinu. Einnig vegna þess að ég veit til þess að Einar hefur verið að hringja út og suður í menn til að rakka niður stjórnarmenn, sem hafa það eitt gert, að biðja kallinn um uppgjör til þess að upplýsa okkur hin, hvað varð um þá peninga sem við borgum í hitt og þetta.
Einnig læðist að mér sá grunur, að umrædd hátið, sem hann er/var að skipuleggja, væntanlega í okkar nafni, áður en hann ákveður að smella þessu á sitt nafn, að þeir aðilar sem sponsa hann viti ekki allir af þeirri ákvörðun hans að hætta að starfa fyrir klúbbinn.
Ég er ekki að þessum skrifum til þess að vera með einhvern æsing, það gerist bara annað hvort ár, og það gerðist í fyrra, svo ég er ekkert æstur nú.
Vil aðeins segja við fólk, þetta er ekki hátið á vegum 4×4. Honum var boðið að koma á stjórnarfund kl 20:15 í kvöld, en ákveður að skrifa þetta frekar nokkrum mínútum síðar, í stað þess að koma skikk á málin. Árshátíð 4×4 verður haldin fyrstu helgina í nóvember, ef við finnum sal í tíma.
KV
Palli #77
07.08.2002 at 08:33 #461832Sæll Óli og þið hin.
Já gaman væri að gera eitthvað svakalegt….
Þú veist að ég er til í allt nema uppvask og giftingu…
Kv
Palli
06.08.2002 at 12:14 #461828Sælir félagar.
Rakst á þetta í eldra spjalli….
Þar sem félagið á 20 ára afmæli á næsta ári, tel ég líklegt að eitthvað verði gert í þessum málum. Á ég þá við eitthvað "svakalegt" svo eftir verður tekið. Væntanlega skipar stjórn einhverja nefnd, sem tekur að sér afmælisuppákomur.
Fara td um og eftir næstu páska, flottar ferðir sömu helgina…td eitthvað sem héti 10 ferða helgi… Allt frá því að skreppa á Grímsfjall eða bara að skreppa Nesjavallaleiðina. Er þá að hugsa um að allir félagsmenn kæmust með í ferð, sem passar hverjum og einum…..
Halda flotta sýningu um vorið í nýju höllinni í Grafavoginum, kannski í samstarfi við aðra…(Sportbílamenn, fornbílamenn, keppnismenn, tjaldvagna innflytjendur og að sjálfsögðu þá aðila sem hafa verið á okkar sýningum ???)
Gaman væri að fá 1000 bíla í smá bíltúr á sumardegi… Úff..þá þyrfti þetta vera eins og í rallýkeppni, ræst út með mínútu millibili…, en djö.. væri gaman að finna eitt stórt plan undir allann flotann áður en ræst væri út… Allir rauðir bílar saman í hóp…, eða eftir tegundum…..
Þar fyrir utan væri klókt að halda upp á afmælið bara svona fyrir okkur. td upp í Skíðaskálanum í Hveradölum heilan laugardal, þar sem fólk gæti komið við um daginn í kakó og vöfflum og kynnst félaginu og starfi þess. Um kvöldið alvöru stórveisla þar sem færru kæmust að en vildu. Bjóða þangað velunnurum félagsins, embættismönnum og fl. Í leiðinni væri upplagt að einhverjir gamlir jaxlar væru gerðir að heiðursfélögum og fleira í þeim dúr. Reynt sem sagt að snobba út í eitt…
Nú er ég kannski kominn allt of langt í þessu bulli mínu og kveð að sinni…
Palli
24.07.2002 at 13:16 #462114Sælir félagar.
Ég verð nú að segja það að við fjölskyldan skemmtum okkur bara vel, þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska…, en þó var nokkuð hlítt allan tíman. Einnig var hópurinn minn nokkuð stór á svæðinu og allir staðráðnir að hafa gaman alla helgina.
Einhver umræða var þó á svæðinu, eftir að sumir menn hrukku í kút, er vaskir menn mættu í tjöldin til að rukka 3.500 kr þátttökugjald fyrir fjölskylduna. Ég hef svo sem ekkert um það að segja annað en það, að það hefði alveg mátt segja frá því í Setrinu, því hefð er fyrir því að kosnaður við undanfarnar hátiðir hafa verið kostaðarlitlar fyrir félagsmenn. Hafa ber þó það í huga að kostaður við stóra samkomutjaldið var þó nokkur…
Einnig var ekki mikil stemming fyrir bíltúr í mínum vinahópi, því jú við vorum að koma úr 2 vikna bíltúr. Sennilega er þó heppilegra að fara í 3 – 4 tíma bíltúr á stundum sem slíkum, en 7 tíma.
Annars var bara gaman….Maður er manns gaman…
kv
Palli.
02.06.2002 at 17:28 #461646Er þetta ekki með eindæmum, ég bara nærri búinn að missa af svona líflegum umræðum um blikkdósir….. Er alveg undrandi á B Þorra að vera ekki búinn að svara og klukkan orðin rúmlega 17 á sunnudegi….
Svona áfram nú…..
Við bíðum öll….
kv
P
02.06.2002 at 17:17 #461386Sælir strákar.
Takk fyrir þetta, set í nefnd….
P
-
AuthorReplies