FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Páll Halldór Halldórsson

Páll Halldór Halldórsson

Profile picture of Páll Halldór Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 336 total)
← 1 … 13 14 15 … 17 →
  • Author
    Replies
  • 10.03.2003 at 13:34 #461354
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hó.

    Hefur bankinn ekki bara prentað þinn seðil á hefbundinn máta og ekki notað form Ferðaklúbbsins ???

    Farðu með seðilinn í Mörkina á miððvikudagsmorguninn og hittu Sólveigu starfsmann okkar! eða kíktu á opið hús á fimmtudagskvöld… Þar verður Jóhann Rúnar og ætti að geta kippt þessu í lag…!

    Kv
    Palli





    10.03.2003 at 10:20 #470204
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Jæja nú er kominn mánudagur og loksins er maður að fá máttinn aftur, eftir stuttar svefnnætur síðustu viku. Ég held að ég tali fyrir hönd okkar allra og segi að þessi dagur hafi heppnast eins vel og hægt var að hugsa sér. Við náðum þó ekki 1000 bílum en get þó staðfest það að um og yfir 600 bílar voru í þessari ferð með okkur. Þá er ég búinn að telja alla frá 4×4, það fólk sem kom á brottfarastaðina (og fór í bíltúr) og einnig þá sem höfðu samband við mig á laugardeginum og voru á eigin vegum td upp á Langjökli og víðar. Þar voru nokkrir hópar sem ætluðu að koma í Kringluna, en það var svo gaman upp á jökli að þeir hættu við að koma tímanlega í bæjinn.

    Mig langar að nota þetta tækifæri og þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn til að þessi ferð gæti orðið að veruleika. Sérstaklega Benna Eyjólfs, Heiðari, Helgu og Gumma hjá B & L, Jóni Trausta og félögum í Heklu, Sigþóri og hinum hjá IH og skálanefnd 4×4 (og vinum þeirra) sem voru flottir í Kringlunni með kranan hans Gulla 40 metra upp í loft. Bræðurnir Friðrik og Sveinbjörn voru öflugir að vanda og þeirra hópur einnig. Aðrir staðarstjórnendur (Jói Jó MMC, Jói blikk Nizzan, Maggi Sturlu Land Rover …) og hópstjórar sanna það, að það sem klúbburinn tekur að sér, er gert með stæl.

    Sérstaklega skal þó minnst á þá sem lögðu til aur í púkkið (beint til 4×4), svo ferðin gæti orðið að veruleika. Skeljungur lagði til góða upphæð sem átti að standa straum af auglýsingum á Bylgjunni og skaffaði okkur límmiðan góða og lagði til kerru undir loftpressur. Kringlan greiddi okkur upphæð sem stóð undir öðrum kostnaði. Takk kærlega fyrir.

    Hekla lagði til sendibíl allan föstudaginn til að sækja búnað og Flytjandi lagði til sendibíl á laugardeginum undir súkkulaðið og snúðana. Reynir og Kjartan á Hótel Loftleiðum útbjuggu súkkulaðið sem Nói Síríus gaf okkur og var þessi drykkur alveg ótrúlega góður (og var heitur allan daginn). Mjólkursamsalan lagði sitt af mörkum, lét okkur hafa mjólk á mjög góðu verði og lánaði tanka undir herlegheitin. Kexsmiðjan seldi okkur snúða á góðu verði og Borgarhella lét okkur hafa pappaglös. Síðan skiluðum við öllu því sem var í heilum pakkningum.

    Stelpurnar sem sáu um allt í Kringlunni, voru frá Vesturlandsdeild og eins og þeim er von og vísa stóðu sig flott og ætluðu meira að segja að sjá um að laga Súkkulaðið, ef enginn annar hefði fundist. Alvöru stelpur !

    Setrið okkar var enn stærra og vandaðra en venjulega og þar komu margir að með styrktarlínur og auglýsingar, þannig að sá kostnaður við að gefa það út í stærra upplagi stendur undir sér. Ritnefndin og Litla Prent stóðu sig með prýði, eins og búast mátti við. Einnig útbjó Biggi fyrir okkur miða í alla undanfara bíla.

    Vífilfell gaf okkur gos til að láta starfsmenn ferðarinnar hafa og Ásbjörn Ólafsson gaf íste og fl í alla bíla sem ræstu frá Kringlunni.

    Ég er örugglega að gleyma að nefna einhverja og man td nú eftir Bylgjumönnum, sem stóðu sig vel í þessu samstarfi.

    Einnig er hægt allmennt að tala um þessa fínu heimasíðu okkar, sem gegnir stóru hlutverki í uppákomu sem þessari. Vefstjóri á heiður skilið að þessi síða er sem hún er.

    Bestu kveðjur,

    Palli.

    ps. Nú er bara að klára 4ra ferðahelgina…..

    P





    06.03.2003 at 17:32 #470018
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Já, eigum við ekki að gera ráð fyrir að 35 tommu sportari passi vel í Ferð A…

    kv
    Palli





    06.03.2003 at 12:57 #470038
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Það er að segja……. að við öll lendum í óhöppum sem þessum. Ef mér telst rétt til, þá er þarna slóði sem endar í polli / mýri / drullu. Þá myndi þetta flokkast sem slys, sem allir læra af. En ef þetta er ekki slóði, þá er eigandinn kjáni á tvo vegu. Annars vegar að búa til þessi för og síðan að birta myndina á síðu sem þessari.

    Það er kannski rétt að viðkomandi svari fyrir sig…

    P





    06.03.2003 at 12:50 #470036
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Eins og stendur hér á öðrum þráðum eru menn velkomnir á alla staði. Greinilegt er að Benni hefur mikinn áhuga á að fá Toyota eigendur, en því miður hefur gleymst í auglýsingu hans að minnast á Kringluna, þar sem við verðum að sjálfsögðu líka.

    Já, ég er að verða asskoti spenntur líka…..!

    P





    06.03.2003 at 12:05 #470032
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Siggi.

    Já ég sá hana í gærkvöldi og félagar mínir Frikki og Sveinbjörn líka. Það er búið að hitta Benna út af þessu. Allir eru sammála um að þessi auglýsing hefði mátt orðast betur, en það eru líka punktar í henni sem eru klúbbnum og ferðinni í hag. Td þetta með að hann segir frá öðrum umboðum…..

    KV
    Palli





    06.03.2003 at 09:17 #470028
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Eik.

    Það var haft samband við bæði Ræsi og Suzuki á seinni tímum málsins. Þeas eftir að upp komst að Toy ætlaði ekki að vera með… En þeim var boðið þar á síðustu stundu að gera eitthvað með okkur, en þá hefðu hópar þeirra þurft að koma til Jóns Snælands og félaga í Kringlunni og fara síðan með þeim. En ég fékk engin viðbrögð…! Kannski þeim hafi fundist það vera of seint, voru klárlega ekki með á sama máta og hinir (þá aðallega vegna þess að sama kvöld og ég skrifaði þeim, var Setrið að fara í prentun.

    En ég ítreka það að þessi uppákoma helgarinnar (1000 bíla ferð), er ekki fyrir umboðin, hún er fyrir félagið okkar. Þeir aðilar sem koma að þessu með okkur eru að gera það fyrir félagið og fá vonandi eitthvað til baka.

    Allir jeppaeigendur eru velkomnir í allar brottfarir. Ef hætta er á því að sá sem á Bens jeppa sjái sér ekki fært um að fara í annað bílaumboð, þá er hægt að fara í Kringluna og hitta skálanenfdina og vini þeirra þar.

    Annað mál Einar. Varstu búinn að skrá þig hjá Sveinbirni, sem hópstjóra…? Það vantar nefnilega alltaf góða menn.

    P





    06.03.2003 at 00:45 #470024
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Ég get upplýst það að þeir hjá Brimborg fannst þetta ekki sniðug hugmynd og vildu ekki vera með. Það kom fram í fyrstu heimsókn og þrátt fyrir að þeim var leyft að fylgjast með áfram á meilum og slíku, urðu þeir ekkert spenntari.

    En auðvitað með þessa tegund eins og aðra, eru eigendur slíkra ökutækja velkomnir á hina staðina. Ég veit td að Jón Snæland og félagar í Kringluhóp ætla að vera alveg sérlega vel undirbúnir og láta sér detta í hug eitt og annað skemmtilegt, svo fólk geti kynnst félaginu á einstakan máta. Enda held ég að þeir séu búnir að vera í leiðaskoðun síðustu kvöld langt fram á nótt til að finna bestu festurnar…..!

    Kv
    Palli





    06.03.2003 at 00:37 #470012
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Vals.

    Já veistu að við lentum í smá vandræðum með að undirúa og setja upp 15 ferðir, hugsandi um það að ekki má búa til langar bílalestir og það gert með 3ja vikna fyrirvara, vitandi ekkert um snjóalög. Þess vegna eru allar leiðir hugsaðar út frá vegum og slóðum.

    Þú getur bókað það, ef fer sem horfir (frost og kannski smá snjór….), þá verða þessar leiðalýsingar að sjálfsögðu þverbrotnar og stefnt eitthvað út fyrir veg, amk hjá þeim sem velja A ferðir………

    Hvet þig að sjálfsögðu að mæta í Heklu á laugardagsmorgun.

    Kv
    Palli





    05.03.2003 at 17:31 #192276
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hæ.

    Bara að minna á „Fólk með Sirrý“ í kvöld á Skjá einum. Kjartan formaður og Soffía fá að masa um klúbbinn og kannski fæ ég eitthvað að segja um 1000 bíla ferðina á laugardaginn.

    Vonandi verðum við ekki okkur til skammar….!

    Kv,
    Palli





    28.02.2003 at 08:20 #469682
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hó.

    Það er að sjálfsögðu hægt að koma með snepilinn og biðja Jóhann gjaldkera að stimpla. Upplagt á næsta mánudagsfundi, eða á opnu húsi…

    P





    27.02.2003 at 18:04 #469518
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir austan menn…

    Mér þykir þið vera góðir með ykkur… Æða svona á fjöll yfir hásumarið, þegar við hér fyrir sunnan erum að setja niður híasínturnar og túlípanana. En hvað um það…þið skuluð ekki reyna að slá met Suðurlandsdeildar á dögunum í hægakstri..leyfum því að standa í nokkra daga enn. Bara að biðja ykkur að láta ekki Rúnar vin minn Gunnarsson uppgjafatrukkakall vera fyrstan. Hann myndi bara villast og enda hér fyrir sunnan á Mímisbar, því þar þekkir hann allt og alla.

    Kv
    Palli





    27.02.2003 at 17:55 #469506
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hæ skvís…

    ég var nú reyndar að meina að frúin í búðinni hefði farið vitlausu megin fram úr…..

    P





    26.02.2003 at 22:50 #469498
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hó.

    Verið ekki að dæma heilt fyrirtæki vegna þess að ein fröken fór eitthvað skakkt út í rúminu um morgunin.

    Minn hópur er búinn að panta peysur (reyndar í gengum 4×4 (hjá Jóa…)) og það verður örugglega rosalega flott að sjá "tímið" í eins dressi…

    Hins vegar er það rétt að svörtu VIND PROOF peysurnar eru á leiðinni (held ég..) því ekki er mikið til af þeim nú.

    Kv
    Palli





    26.02.2003 at 22:17 #469402
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Ég verð að segja að mér finnst við gera allt of mikið úr þessu. Auðvitað er þetta hundfúlt, en þetta skiptir klúbbinn engu máli. Akkúrat engu máli. Við náum bara til Toyotueigenda á annan máta ! Annað hvort í gegnum Bylgjuna, eða bara maður á mann. Þeir bræður í Bílabúð Benna hafa gefið það út að allir Toyotueigendur eru velkomnir til þeirra. Einnig eru allir velkomnir í önnur umboð, eins og fram hefur komið áður. Einnig erum við með ferð frá Kringlunni, þar sem Jón Snæland, Gulli, Kjartan, Kalli, Einsi Sól og fl koma til með að sprella eins og þeim er einum lagið.

    Þurrkum tárin, hættum að sýta og brosum……

    Þeir á Nýbílaveginum eru ekki hættir að standa með klúbbnum, þótt þeir séu ekki með núna……

    Kv
    Palli





    25.02.2003 at 20:16 #469378
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    ég skil vel að þú vildir eiga Pæju…, en ekki þetta með hina tegundina……. Nei bara djók, Datsun er fínn…

    P





    25.02.2003 at 00:14 #468874
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Já ég sé það nú…auðvitað á Datsun…
    Jú, þú ert örugglega flottur með Gumma Hæ, Jóa Blikk og öllum hinum…

    P





    25.02.2003 at 00:09 #468870
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Emil.

    Já veistu að ég er bara orðinn nokkuð spenntur. Missti reyndar af 10 ára afmælisferðinni, en hef heyrt marga segja frá þeim degi með lotningu. Því segi ég nú, að eftir nokkur ár segja menn (og konur) : Ég var í 1000 bíla ferðinni…. Já vonandi heppnast þetta allt saman vel og það gerist einungis með hjálp félagsmanna, sem ég veit að ætla að taka þátt og skemmta sér vel…

    Svo kom upp hugmynd, hvort við ættum ekki að flykkjast á Kringlukránna um kvöldið og fá sér einn… ! Úr því að helgin er farin í þetta…, því ekki bara "dettíða" um kvöldið…?

    P





    24.02.2003 at 23:48 #468864
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Ég get ekki svarað því, en ef þú sendir Sveinbirni línu, er ég viss um að hann tekur þínar óskir á nóinu…..

    P

    ps. Ég reyndar skil ekki alveg, lýsinguna á fullorðnum bíl… Er hann stór, eða bara gamall !

    P





    24.02.2003 at 23:44 #468862
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    maður er svo bissý að svara að maður hefur ekki undan….

    Jú Kringlan leggur sitt af mörkumog metnað í að gera þetta vel með okkur. Þeir eru búnir að hóa saman nokkrum aðilum sem eru með búnað og þh fyrir okkur jeppafólkið. Þessir aðilar verða með bása inni í Kringlunni og sýna eitt og annað sem snýr að ferðamennsku. Einnig leggur Kringlan til aur, svo við getum verslað eitt og annað vegna þessa dags. Snúðar og fl…

    Bylgjan verður með beina útsendingu frá Kringlunni og einnig frá umboðum, er menn ræsa um morguninn. Einnig verður upphitum alla vikuna í þætti Ívars Guðmundssonar, þar sem við fáum vonandi mikla athygli. Svo fáum við kannski að koma í Morgunsjónvarpið og fl….

    P





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 336 total)
← 1 … 13 14 15 … 17 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.