Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.07.2003 at 14:11 #474838
Sæll Sveppur.
Já, eru menn nú menn farnir að auglýsa veðbanka með símanúmerinu mínu ! Allt svo sem mjög gott mál, en menn verða að athuga það að ég tek 10%. En ég er ekki í vafa að BÞV tekur Jón í pulsuátinu, enda í miklu betra "formi".
En ég get lekið í þig að nú verður formlega hægt að skrá sig hjá Skemmtinefndinni í "4×4 Olympics games" sem haldin verður eftir hádegi á laugardeginum. 6 stykki í liði og það verða verðlaun í boði, sem afhent verða formlega á kvöldvökunni….
Kv
Palli
27.05.2003 at 17:05 #473540Sælir félagar.
Hef því miður ekki mátt vera að því að hér að skifa á þennan þráð, en hef lesið flest alla þræði, enda málefnið þarft. Tek heilshugar undir það, að það þarf að ræða þessi mál og stúdera frá öllum hliðum. Þannig verður til rödd þeirra sem eru umhugað um þessi mál. En eins og flestir eru jú á, er að klúbbur sem okkar verði að gæta sín hvað er sagt í nafni hans út á við.
Hins vegar sé ég ekki alveg ástæður þess að EIK vinur okkar virðist vera með BÞV á heilanum og er með alskonar dylgjur um ástæður skrifa hans á þessum vettvangi. Ég bara átta mig alls ekki á því hvað EIK er að fara með þessum málflutningi. Að vera halda því fram að BÞV sé málsvari Landsvirkjunar í þessu máli er nú meiri rakalausa þvælan og auðvitað vita það allir sem þekkja Björn að svo er að sjálfsögðu ekki.
Auðvitað getur BÞV svarað fyrir sig sjálfur og fer létt með, en þar sem ég þekki drenginn mjög vel og sennilega best af öllum sem hér eru að tjá sig, frábið ég mér skrif sem þessi. Björn sem er fyrrverandi formaður okkar, hefur ætíð hugsað um hag félagsins, bæði þá sem nú.
Það er líka umhugsunarefni ef menn í félaginu eru farnir að hringja í mig á vinnutíma til þess að tjá sig um skrif Einars um BÞV á þessum þræði. Menn sem ég þekki ekki mikið.
Kv
Palli.
25.05.2003 at 13:55 #473760Sæll Ofsi.
Ég get staðfest það að bjórkvöldið er í Championskaffi á miðvikudagskvöldið kemur, hitt er prentvilla.
Skemmtinefnd er að skoða alla möguleika á að hafa Þorrablótið þannig að sem flestir jeppaeigendur geti komið. Meira um það síðar.
Var ekki alveg búinn að átta mig á því að hugmynd væri til að hafa árshatíðina í Setrinu…þarf að fá meiri uppl, til að svara þessu.
Undir liðnum "20 ára" er komið smá um Sumarhátiðina sem haldin verður nú í Bæ í Reykhólasveit, hálfum mánuði fyrir Verslunarmannahelgi.
Þetta með vörðuferðina á Hvervelli er ekki alveg komið á hreint, en áætlað er að fara laugardaginn 14 júní, ef allt gengur upp. Aðalhvatamaður þessarar ferðar er Hafsteinn Sigmarsson frændi Hafþórs heitins Ferdinandssonar (Hveravallaskrepps), en Hafsteinn og félagar hans hafa fengið leyfi frá Svínavatnshrepp, Náttúruverndarráði og Veðurstofunni um að reisa eina myndarlega vörðu á Hveravöllum til minningar um Hafþór sem lést langt um aldur fram. Hafþór var einn af stofnendum Ferðaklúbbsins 4×4 og var einn af þeim mönnum sem lögðu grunn að þeim ferðamáta sem við hin njótum nú í dag.
Auðvitað eru allir velkomnir með í þessa ferð og sérstaklega þeir sem þekktu Hafþór og einnig þeir sem nenna að halda á grjóti. En eins og áður segir, þá er ekki alveg búið að skipuleggja þetta og hvort farið verður á föstudagskvöldi uppeftir eða á laugardeginum.
Áhugasamir geta sent mér meil, ef þeir hafa áhuga á að koma með. (palli@flytjandi.is) Við erum sem sagt þrír að skipuleggja þetta, Hafsteinn, Arnar sonur Hafþórs og ég.
Kv
Palli.
13.05.2003 at 12:29 #471644Sæll Maggi.. og þú verður að afsaka það að ég hef ekki svarað þér fyrr…, því þessi þráður fór bara í heilu lagi fram hjá mér…
Þú sem Pajero eigandi og félagi í Pajeróklúbbnum okkar, færð væntanlega bréf frá Heklu um þessa ferð okkar. Hins vegar held ég að ég sé ekki að brjóta neinn trúnað, er ég lek í þig nú að fyrsta ferð Pajeroklúbbsins verður farin laugardaginn 31 maí, nk í Þórsmörk. Eitthvað skemmtilegt verður gert, gönguferðir, grillað og fl…
Kv
Palli
06.05.2003 at 12:36 #473122Sæll ólsari.
Það sem Björn á við er að það á að sækja um fjárveitingar á aðalfundi fyrir þeim verkefnum sem er verið að fara út í. Þ.e.a.s ef menn ætla að framkvæma eitthvað…..
P
29.04.2003 at 11:17 #472794Sælir félagar.
Já það er margt skrítið í kýrhausnum. Get staðfest það hér að enginn póstur frá þessum ágæta manni hefur borist stjórn. Skil heldur ekki alveg hvað málið er, maðurinn hættir barasta að vera á þessum vef, hættir að mæta á fundi og borgar ekki næsta gíróseðil. Þá dettur maður bara sjálfkrafa úr félaginu. Ekki er um það að ræða að viðkomandi fái endurgreitt félagsgjaldið. Er þá ekki nær fyrir manninn að fá amk Setrið sent í pósti heim, úr því að hann er búinn að greiða sitt félagsgjald.
Svo væri líka hægt að hringja í félagið á þeim tíma sem starfsmaður er þar til staðar, sem er þrisvar sinnum í viku fyrir hádegi.
Já, menn verða bara að kveikja á sellunni og nota hana rétt.
Kv
Palli.
23.04.2003 at 08:58 #472526Sæll Valdi og þið hinir.
Eftir að hafa lesið þennan þráð, finnst mér að menn séu aðeins að tapa sér. Get engan veginn lesið það úr skrifum formanns að hann sé að reyna að ritstýra spjallinu, heldur að menn tapi sér ekki í skrifum. Eins og sést hefur á spjallinu er oft á tíðum misvitrir menn að tjá sig, jafnvel í bræði og það er þeim mönnum ekki til framdráttar.
Sjáðu td þettta:
"vil ég benda mönnum á að versla annarstaðar
og sneiða hjá þessu fyrirtæki"Þessi skrif dæma sig sjálf og hefði þessi ágæti maður að anda í poka í tvær mínútur og skrifa svo. Einnig hefur hann á öðrum þræði verið með svipuð skrif sem varla eru svaraverð, enda hefur hann ekki fengið neitt svar þar enn.
Eflaust eru há verð í þessari verslun og örugglega er hægt að finna mjög lág verð líka. Sem betur fer fyrir alla aðila er eðlileg samkeppni á þessum markaði, svo fólk hefur val, án þess að þurfa að setja þræði sem þessa í gang.
Vil minna menn á að Bílanaust bauð okkur félagsmönnum í heimsókn til sín í des sl, þar sem rúmlega 400 manns mættu og þáðu veitingar, sem heppnaðist mjög vel að flestu leiti. Ekki hefur verið talað um eftirmála þess kvölds ! Nei og þar megum við svo sannarlega skammast okkar. Þar voru nokkrir aðilar hnuplandi vörum um leið og þeir þáðu bjór og snittur. Þetta er til skammar og einnig það að menn hengu þarna inni til miðnættis, þrátt fyrir að boðið væri auglýst frá 18 – 21 (ef ég man rétt). Það skal tekið skýrt fram að ég vinn ekki í Bílanaust, en sjaldan hef ég skammast mín meira á ævinni en fyrir suma félagsmenn í klúbbnum þetta kvöld.
Óska ég öllum gleðilegs sumars og sérstaklega starfsfólki Bílanausts.
Kv
Palli.
15.04.2003 at 09:37 #472466Hó.
Það sem ég veit um þessa ferð, er að lítill áhugi var fyrir ferðinni. Væntanlega er það sama ástæða og við erum að upplifa almennt, að áhugi fyrir ferðalögum þennan veturinn hefur ekki verið mikil. Spilar þar helst inn í að aðstæður hafa ekki verið sem bestar og út frá því vantar stemminguna til að peppa svona hópa í gang………! En eins og við vitum hefur verið hægt að ferðast um öll fjöll. Bara hefur þurft að gera þetta á annan máta, en að sprauta beint af augum…
P
25.03.2003 at 13:11 #471252Sælir félagar.
Eins og sést hér á tilkynningum til hliðar, er þetta allt að smella saman….
Það eina sem eftir á að klára að undirbúa, er LLL ferðin. Væntanlega verður þessi ferð fjölmennust, enda hægt að ákveða að fara upp á Langjökul á síðustu stundu. Gerum ráð fyrir að menn mæti á ákveðinn stað og síðan bara bruna upp á skaflinn og drífa ógurlega…..
En fararstjórar verða tilkynntir á fimmtudagskvöld, á opnu húsi í Mörkinni.
kv
Palli.
22.03.2003 at 18:00 #471336Hó…
Já asskoti eru þær eigulegar þessar kellur okkar (ykkar)…, því mín elskuleg er nú bara hér í fanginu á mér nú… Reyndar við ég vara við því að á einni myndinni hjá Begga í albúminu sést Jóhannes á Pæjunni og ég veit til þess að hans fagra frú er í sveitinni og væri kallinn til alls líklegur að standa "fjósið" yfir jökul í kvöld, bara til þess að grobba sig innan um aðrar pæjur…., sem hann á ekkert í…
P
22.03.2003 at 17:16 #467778Sælir félagar.
Ég sé að skemmtinefndarformaðurinn Lúther er að fara á taugum í dag, enda frúin á fjöllum og hann í húsmóðurshlutverkinu og slíkt er bara ekki fyrir hvaða eiginmann sem er……!
Svo er kallinn einnig að fara á límingunum,vegna þess að einhver hér að framan hefur nefnt að Pæja sé að koma á 44 tommur og auðvitað er það skiljanlegt, því enginn hefur enn þorað að fara á 44 tommu Barbí. Nú er búið að breyta tveimum 38 Pæjum og eru þær bara flottar. Auðvitað á eftir að koma í ljós hvort græjan drífi við erfiðustu aðstæðurnar.
Að mínu mati skiptir það engu hvort grindin er inn í boddíinu eða hvort hún er á gamla mátan, ef menn ætla að troða undir bílinn stór hjól ! Allt hlítur þetta að komast undir og snýst um hönnun og burð. Geri bara ráð fyrir því að þeir skáeygðu hafi vitað hvað þeir voru að hanna í byrjun og eins og með aðra bíla er barasta ekkert mál að setja 44 tommu hjól undir af alvöru mönnum, eins og við þekkjum hér heima. Til stuðnings þessu máli, er hægt að skoða torfærubílinn hans Halla Pé með sinni sjálfberandi grind. Held að bíllinn sá arna sé nú heldur betur eiganda sínum til sóma, bæði hvað varðar hugvit og smíð.
Svo kastar Lúther stórum steinum úr glerhúsi og íjar að því fullt að smáhlutum eigi eftir að leysa……þegar hann og hans félagarar á Nýbílaveginum eru enn með grundvallarbreytingarnar á nýja Barbí niðrum sig, ef marka má þann tíma sem hönnun, smíði og þess háttar hefur tekið hjá þeim ágætu mönnum. Átta mig þó á því að þetta er skrifað á persónulegum nótum, en ekki fyrir hönd vinnuveitandans.
Til upplýsingar fyrir alla, þá eru bara pöntuð hlutföll í bílinn að utan og fyrsta settið er bara ekki komið enn. Einhver sagði að það hefði komið tvö framsett á dögunum, þannig að þetta er allt að koma. Þekki ekki til framlássins, en væntanlega er bara hægt að panta hann frá Rallý-Art, sem gerir út þá bíla sem hafa unnið öll heimsins erfiðustu rallkeppnir heimsins, s.b. París Dakar og fl. Þar er líka hægt að panta úrhleypibúnað, sem er bara skrúfaður í bílinn……Ekkert mix takk fyrir….Svo ég tali nú ekki um alltar tegundirnar að kraftsettum, sem auka tog / hestöfl og fl. Búið var að fá eitt slíkt sett og er það í gamla Pajero hans Jóa.
Hins vegar vill ég fullyrða að annar eins hraði á breytingum á bíl, hefur ekki átt sér stað fyrr, amk ekki að hálfu umboðsaðila. Aron fékk fyrsta bílinn til skoðunar 4 vikum áður en tveir bílar litu dagsins ljós í 1000 bíla ferðinni. Byrjaði hann þó ekki strax á breytingunni, en ein vika leið áður en hafist var handa. Þar að auki veit ég ekki til þess að umboð / breytingaraðilar hafi nokkru sinni áður ákveðið að breyta tveimum pródótýpum jafnt. Slíkt er aðdáunarvert og lýsir hug og ákveðni manna í verkefninu.
Annars óska ég þeim félögum mínum Jóa og Bjössa til hamingju með "ógeðslega" flotta bíla. Get líka játað það hér að ég er pínu öfundsjúkur, en líka stoltur að þeim að þora þetta……! (en ég jafna mig, vonandi..
Kv
Palli
19.03.2003 at 08:46 #471074Góðan daginn Flippi.
Nú er spurning að slá tvær flugur í einu höggi….! Ég hef akkúrat ekkert vit á gasi til að tjúnna mótora. Svo vantar þig viftur…!
Ég myndi tala við Jamil á partasölunni við Rauðavatn. Hann á örugglega til allan fjandann til að selja þér. Einnig var sá ágæti maður að keppa í torfærunni fyrir nokkrum árum síðan og veit örugglega eitt og annað er kemur að gas málum. Kannski á hann eitthvað til í pokahorninu.
Kv
Palli.Gott hjá þér það sem þú nefnir í síðustu setningunni.
P
18.03.2003 at 13:28 #471034Þið eruð nú meiri "njólarnir". Hér rétt fyrir neðan er allt um KVENNAFERÐINA (í rauðum ramma). Veit ekkert um hvort það plan standi, en Stína í Fjallasport veit allt um það..
P
18.03.2003 at 10:38 #471024Sæll Ágúst.
Ég sá þennan bíl líka í gær á sama stað. Veit ekki betur en eigandinn hafi verið hjá Aroni í Jeppaþjónustunni. Þú ættir að tala við Aron, sem er orðinn opinber breytingaaðili MMC á Íslandi, fyrir hönd Heklu…..
P
18.03.2003 at 00:15 #470920Sælir félagar.
Ég hef áður skrifað um þetta efni á þræði sem þessum. Var reyndar svo harður á því þá að halda því fram að síðan ætti bara að vera fyrir félagsmenn og enga aðra. En er komin á aðra skoðun nú. Auðvitað á þessi síða að vera fyrir alla, svo fólk geti kynnst félaginu og síðan gengið í það, ef því líkar við það sem gerist hér. Hins vegar finnst mér hálf hallærislegt þegar einhver snillingur er að setja myndir inn á heimasíðuna sem eiga engan vegin heima á 4×4 síðu. Sjáið fyrir ykkur Völu Matt að dásama klósett í vesturbænum í Mótor….! Held líka að Kalli Gunnlaugs myndi líka fljótt vilja klippa það út úr sínum þætti. Og það er kannski bara það sem við eigum að gera. Biðja vefstjóra að skutla þeim myndum út úr safninu.
Einnig er ég sammála mönnum hér að auglýsingar á þessum vef virka alveg djöfull vel. Ég hef selt allt sem ég vil losna við (bíð reyndar eftir að einhver bjóði í Eirík !) og hef einnig verslað mikið hér. Hins vegar mættu menn taka til í sínum auglýsingum og henda út því sem ekki á við lengur. Að sama skapi er með ólíkindum bjánalegt af mönnum að setja inn sömu auglýsinguna aftur og aftur, bara til að vera á forsíðunni. Ég er þó ekki það heimskur að sjá ekki að slíkt hlítur að sjást betur en ella. Þeir snillingar sem haga sér þannig og hafa tíma til að gera slíkt, ættu amk að hafa tíma til að henda gömlu auglýsingunni út.
kv
Palli
17.03.2003 at 23:57 #470704Sæir félagar.
Eins og sést hér á síðunni til hliðar, hefur stjórn og afmælisnefnd ákeðið að breyta þeirri ákvörðun um að hafa afmæliskaffi í Setrinu og hafa þess vegna hefbundna 4ra ferða helgi. Aðalástæða þess er að hann spáir þessum sama hita áfram og sennilega verður ekki fært úr mörgum áttum í Setrið. Eins og talað var um í upphafi, var ætlun okkar að menn myndu nýta alla skála í grendinni og skreppa síðan í kaffi í Setrið. Væntanlega verður ekkert "skrepp" færi á milli A og B, miðað við óbreytt ástand. En ég er ekki að draga úr fólki við að ferðast, einungis er þetta talið ráðlegt svona vegna undirbúnings.
Hins vegar skulum við vera snögg að melda okkur í þær ferðir og staðfesta það síðan fljótlega, því manni virðist sem að mikill áhugi sé fyrir þessum ferðum.
Ein nýjung er þarna á ferð, en það er "LLL" sem mætti túlka sem langur laugardagur á Langjökli.
Ef allt verður upppantað í þessar ferðir eigum við Jökulheima upp í erminni og einhverja fleiri staði, ef menn finnast til að sjá um.
Kv
Palli.
17.03.2003 at 23:16 #471018Sæll Flippi.
Mér þykir það leitt, ef þú sérð þér ekki fært um að vera í klúbbnum okkar. Veit svo sem ekkert um þessar persónuárásir sem þú nefnir hér í pistli þínum, en verð þó að viðurkenna það að skrif þín á öðrum þræði á dögunum, er varla þér né öðrum til sóma. Án þess að ég geti hjálpað þér í þínum deilum við aðra, get ég þó sagt þér það sem hún mamma mín segir ætíð um uppákomur sem þessar: "Það eru nefnilega að minnsta kosti 3 hliðar á öllum málum, þín, þeirra og sú rétta sem er einhverstaðar þar á milli". Ef deilur þær sem þú ert í, eru ekki leysanlegar innan þess hóps sem eru að pirra þig á þessu spjalli, myndi ég ráðleggja þér að umgangast aðra félaga og kynnast öðru fólki þannig. Svo myndi ég líka hætta að skrifa á þessa heimasíðu, amk á meðan öldur eru að lægja. En ef þú ert alveg ákveðinn í að segja þig úr 2000 manna félagi, vegna þess að einhver sem skrifar á þessa síðu (og er kannski ekki félagi, því spjallið er víst opið fyrir alla) fer í taugarnar á þér, þá er bara að senda stjórninni póst og segja sig formlega úr því. Síðan verður þú væntanlega að hætta að skoða þessa síðu, því félagið hefur bara ekkert um það að segja hvað er skrifað á spjallið. Vona ég að þú setjir málið í nefnd í nótt og eigir góðan dag á morgun.
Kv
Palli
13.03.2003 at 13:54 #470694Það er stjórnarfundur í kvöld kl 19:30. Eftir það gæti eitthvað skýrst í þessu ??!!
En það vantar enn aðila til að taka að sér störfin..!
P
10.03.2003 at 21:03 #469734Jæja félagi.
Heyrst hefur að þú hafir látíð Pæjuna hafa fullan mótor á leið um fjöllin blá á laugardaginn ! Veist þú ekki að gott er að tilkeyra mótora smá áður en að full gjöf er prófuð. Frétti líka að græjan hafi fengið að finna fyrir því í miklum ójöfnum. Á ekkert að segja félögum sínum frá fjöðruninni ???
Kv
Palli
10.03.2003 at 15:40 #470378Kíktu á annan þráð sem sama nafni !!!!
P
-
AuthorReplies