FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Páll Halldór Halldórsson

Páll Halldór Halldórsson

Profile picture of Páll Halldór Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 336 total)
← 1 … 11 12 13 … 17 →
  • Author
    Replies
  • 11.12.2003 at 10:16 #193313
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæl öll sömul.

    Hvernig er þetta með félagsmenn. Eru menn (konur eru líka menn) búnir að ná sér í eintak, eða bíður það kvöldsins ?

    Svo langar mig að minna alla á að koma í Mörkina í kvöld, er við grobbum okkur pínulítið af bókinni.

    Kv
    Palli.





    26.11.2003 at 14:38 #193229
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hæ.

    Fékk þetta meil áðan og ég held að þetta sé fyrir alla og ákvað að leka þessu í ykkur. Mér sýnist að þarna sé hægt að kaupa fullt í skúrinn sem gaman er að eiga. Og 90% afsláttur er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi.

    Kv
    Palli.

    LAGERSALA

    Laugardaginn 29. nóvember kl. 09.00 ? 14.00 verður haldin ævintýraleg lagersala á hinum ýmsu tækjum og tólum frá Sindra Stáli. Lagersalan verður hjá Sindra Klettagörðum 12, Reykjavík.

    Á lagersölunni verða meðal annars:

    Rafmagnsverkfæri, handverkfæri, lyklar og tangir, smíðavesti og buxur, flöskutjakkar, bílatjakkar, fatnaður, vinnuskór, vasaljós,bílskúrshurðaopnarar, skúffur og box, skerverkfæri, snittverkfæri,fræsitannasett, snittsett og margt, margt fleira.

    Komið og gerið góð kaup.
    Ævintýralegur afsláttur, allt að 90 % !!!

    Boðið verður upp á Sindra Svala, kaffi og kleinur meðan á lagersölunni stendur !!!

    Allir velkomnir

    Sindra-Stál hf
    Klettagörðum 12 – 104 Reykjavík





    24.11.2003 at 13:59 #480954
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Ólsari.

    Ég hef ekki enn ákveðið hvort ég ætla á minni dekk á sumrin. Þau eru amk ekki til nú. Er á ónelgdu, þannig að þess vegna er í lagi að nota þau allt árið um kring. Konan notar þennan bíl í vinnuna á hverjum degi og það er ekki svo hátt upp í hann. Mér sýnist að hún sé svona sæmilega sátt við þetta allt saman. Bíllinn er ekinn 190.000 km og ef "helvítis" vélin ætlar að yfirgefa þetta líf, mun ég panta mér vél að utan úr nýrri Dömu.

    P





    24.11.2003 at 12:52 #480946
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Úpps, þurftuð þið að hitta svona beint í hjartastað…

    Er ekkert búinn (enn) að eiga við aflið.., en ætla að setja KN síu og skrúfa smá upp olíuverk og túrbóið. Síðan er einhver fjandans ventill sem ég ætla að loka. Mér skilst að þessi ventill sjái eitthvað um hitastýringu í soggrein. Þegar bíllinn hitnar (og erfiðar), tekur hann öll völd og gerir þessi fáu hestölf að folöldum. Ekki spyrja mig nánar út í þetta, taliði frekar við Jóa, hann var að "ljúga" þessu að mér…

    kv
    Palli





    24.11.2003 at 08:44 #480940
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Sölvi (og þið öll hin).

    Ég er nú svo gamladags að ég var ekkert að skipta um hásingar. Er bara með sama búnaðinn og kemur orginal frá verksmiðjunni. Hlutföll eru orginal í þessum bíl (2,8 diesel, sjálfskiptur) 1 : 4,88. Hækkaði boddý upp um 10 cm og færði afturhásinuna um 16,1 cm (svo að hún sé einum millimetra lengri á milli hjóla, en "dömurnar"). Fékk Renniverkstæði Ægis til að smíða aukamillikassa úr dóti sem ég átti og verslaði mér brettakanta hjá Bílabúð Benna. Var reyndar búinn að leita lengi að einhverju sem passaði best og datt niður á Dodge Ram kanta fyrir 44. Felgur fékk ég í fyrra hér á spjallinu og eru þær 16 " breiðar. Svo þurfti ég að sneiða ca 10 cm aftan af olíutankinum, því hásingin er komin asskoti aftarlega. 2,5 " púst sem lagt er í miðju og ætla svo seinna (þegar ég á meiri pening) að fá mér tvo aukatanka og kannski framlás, ef ég dríf ekkert svona útbúinn. Drifsköft voru lengd og stytt (eftir þörfum) og ég setti tvöfaldan lið á afturskaft. Þurfti síðan að síkka bitann (og minnka hann aðeins) undir bílnum sem heldur uppi búnaðnum sem sér um að hækka upp bílinn að framan. Því framdrifsúrtakið á aftari millikassanum þurfti endilega að hitta á móts við þennan bita. Það var með ólíkindum hvað lítið þurfti að klippa inn í bílinn, en við fórum mest inní hann h/megin að aftan.

    Lofa myndum úr prufutúrnum seinna í dag.

    Til að ganga í Pajeróklúbbinn er einfaldlega haft samband við Heklu, eða fara inn á heimasíðu MMC á Íslandi og skrá sig þar. (mitsubishi.is)

    Kv
    Palli





    23.11.2003 at 18:23 #480934
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Já eru menn farnir að örvænta. Set myndir inn á morgun. Við Óskar Óla (sem var að fá nýja dömu) fórum í gær í smá rúnt til að prófa græjurnar. Að sjálfsögðu fórum við bara tveir, svo ekki yrði hlegið er við værum fastir hér og þar. Verðum báðir að viðurkenna það að nýju leiktækin okkar eru aðeins öðruvísi en gamla dótið, en við verðum bara að læra…

    Kv
    Palli





    21.11.2003 at 11:03 #481138
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Mér hefur fundist síðustu ár að félagsmenn vilji fá meiri þjónustu en áður, bara rétt eins og við hin, þegar við erum að fá pípara heim til að laga stíflu. Þróunin er bara þannig að allir vilja fá meira í dag en þeir fengu síðast.

    Þetta er svo sem skiljanlegt og kannski bara fínt og flott. En eins og Skúli segir (sem er nú oftast bara asstoti flottur hér á spjallinu) að þetta er bara áhugamannaklúbbur. Ég er í varastjórn og veit alveg hverskonar vinna er á herðum stjórnar. OG svo er hellings vinna á nefndarmönnum og fleirum.

    Kannski ættum við að atvinnuvæða klúbbinn og gera hann að alvöru hagsmunafélagi, svona eins og Frami er fyrir sendibílstjóra, eða VR fyrir verslunarmenn. En allt slíkt kostar pening.

    kv
    Palli





    20.11.2003 at 14:07 #481056
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Hó..

    Pípist hvað sumir eru miklir snillingar og nenna að troða hinu og þessu inn á heimasíðna okkar. Ég hélt að síðan ætti að vera um jeppa, ferðalög og okkur sjálf.

    Að menn skuli nenna að setja inn ca 10 myndir af sama hlutnum sem er til sölu, er bara til skammar og auðvitað mest fyrir þann sem setur inn. Enda eru þetta oftast einhverjir sem eru ekki undir nafni á þessari síðu.

    Ef mönnum finnst vænlegt að selja gamlan Galant hér, er örugglega bara nóg að setja eina mynd, jafnvel þessa sömu og hefur birst í DV síðustu 10 árin. Við vitum jú öll hvernig svona Galant lítur út.

    Hef komið þeirri skoðun minni á framfæri hér áður, að síðan ætti að vara lokuð öðrum en félagsmönnum, en sennilega er það ekki raunhæft, því þessi síða hefur svo sannarlega náð í nýja félagsmenn. Einnig væri umræðan og virkni síðunnar ekki sú sama ef svo væri.

    Þá er bara tvennt í stöðunni:

    A. Að loka myndaalbúminu á einhvern máta.
    B. Að láta yfirfara allar myndir einu sinni í viku og henda út öllu þar sem ekki á heima í slíku myndaalbúmi.

    Báðar þessar hugmyndir kosta vinnu og að mínu viti þarf stjórn að drífa sig í að ákveða eitthvað í þessum málum, því ekki er spennandi að upplifa eftir 3 mánuði, eða 9 mánuði að allt diskapláss er orðið fullt með tilheyrandi veseni.

    Kv
    Palli





    27.10.2003 at 14:24 #479204
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Já þetta er skrítinn heimur og einnig jeppabreytingaráráttan okkar. Hver hefur ekki lent í því að fá ekki neitt fyrir breytinguna er maður loksins selur bílinn.

    Veit að Aron í Jeppaþjónustunni er með góð verð í þessar breytingar, en hann er örugglega sammmála mér í því að það er nánast sama vinna og peningur að breyta bíl fyrir 35 eða 38 tommur.

    Td er ég að reyna að selja minn gamla á 450.000 kr og sumum finnst það mikið, en eru samt að spá í að kaupa sér einn svipaðan (óbreyttan) á 250 – 300.000 kr og breyta sjálfur.. Þetta skil ég ekki heldur. Notuð dekk og felgur á 120.000 kr. Eiga þá allt hitt eftir og enda svo í 900.000 kr.

    Kv
    Palli





    27.10.2003 at 09:47 #479030
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Eins og fram hefur komið var hugsunin við stofnun 4×4 að standa vörð um hagsmuni jeppamanna. Auðvitað hafa hlutirnir þróast í gegnum árin og menn farnir að nota félagið sem ferðafélag og allt í góðu með það. En af hverju taka menn sig ekki til sjálfir og standa fyrir einhverri ferð fyrir minna breytta jeppa í stað þess að spá í að stofna nýtt félag ? Þá er ég að tala um að sá sem á slíkan jeppa og er að pirra sig á því að "ekkert" sé í boði fyrir hann í félaginu (sem er nátturulega ekki rétt) seti upp eina ferð, td uppí Húsafell, sofa þar í fimm sumarhúsum og fari svo í jeppaferð uppá Kaldadal, eða reyni að komast í Surtshelli. Endalausir möguleikar, en auðvitað er þessi aðili að bíða eftir að þetta sé matreitt ofan í hann eins og svo margt annað…. Setjið upp ferð á vegum 4×4, fáið til þess leyfi frá stjórn og framkvæmið. Verið ekki að pirra ykkur á því að þeir sem eru virkastir í félaginu, séu margir á stórum hjólum og þess vegna er þeirra stefna í þá átt. Svo er líka hægt að bjóða sig fram í stjórn á næsta aðalfundi og ná því þar í gegn, sem menn vilja. Komið með hugmyndir um framkvæmd, ekki bíða eftir að einhverir aðrir séu að undirbúa eitthvað sem þeir eru ekki með hugann við.





    23.10.2003 at 08:17 #478406
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Góðan daginn.

    Já, BÞV og Jói Jó eru báðir búnir að fá framlæsingar og hlutföll í sína bíla. Aron í Jeppaþjónustunni setti þetta í fyrir þá og ég veit ekki betur en þetta sé sama læsingin og var sett að framan í Barbý.

    Síminn hjá Aron er 587 2930.

    P





    15.10.2003 at 16:13 #478116
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sæll Agnar.

    Það verða örugglega farnar nýliðaferðir. Minnir að það sé á dagskrá fyrstu helgina í des.

    En það vantar enn einhverja til að sjá um þær. Þetta var kynnt á síðasta félagsfundi á Loftleiðum.

    Geri ekki ráð fyrir að þessi linkur sé virkur, því ekki hefur þessi nefnd tekið að sér að standa fyrir ferðum.., en hver veit hvort það gerist..

    kv
    Palli





    14.10.2003 at 11:32 #477860
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Já, greinilegt að Sveppurinn er kominn á skrið…!

    Veit ekki hvort ég lofi því að bjóða þann gamla upp í Hveradölum, en hver veit…

    Nú eru um 80 manns búnir að skrá sig og pláss er fyrir nokkra í viðbót. Síðasti sjens til að fá miða er á opnu húsi á fimmtudaginn kemur. Ætlum ekki að leyna því að okkur langar að fá rúmlega 100 manns á hátíðina og í fordrykkinn hjá BENNA.

    Endilega festið ykkur miða hjá Ellu í síma 898 7080 og við lofum góðri stemmingu. Ommi Ragg verður pottþétt í stuði.

    Kv
    Palli





    10.10.2003 at 11:07 #477666
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Ég er einn af þessum Pajeró mönnum sem aðstoða Heklu í þessari Pajeróferð.

    Gerum ráð fyrir að það verði fært fyrir alla Pajeró / L-200 bíla þarna inneftir.

    Auðvitað verður spáð í að breyta ferðaáætlun, ef veðrið verður alveg kreisý, bara eins og almennt getur talist.

    Mín reynsla er sú að á þessum tíma komast flestir það sem þeir ætla sér að fara, sérstaklega ef vel útbúnir bílar eru með í för.

    Kv
    Palli.





    17.09.2003 at 08:30 #192878
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Góðan daginn.

    Bara að minna á bjórkvöldið hjá B & L á föstudagskvöldið. Get lekið því í ykkur að það verður tekið vel á móti okkur og vonandi mæta sem flestir. B & L ætla að sýna okkur alla nýjustu jeppana frá þeim, Land Rover, Hyundai, BMW og fl. Held að ég fari ekki með rangt mál, er ég segi að það verði þarna nýr 38″ bíll, sem er að detta úr breytingu þessa dagana.

    Við erum þó í nettum vandræðum með að áætla þann fjölda sem hugsanlega lætur sjá sig. Það hafa nefnilega verið að mæta á þessar uppákomur allt á milli 100 – 350 manns. Vitað er um stóran hóp frá Vesturlandsdeildinni og heyrst hefur af „Slóðrík“ og félögum, að þeir ætla að fjölmenna.

    Sjáumst í góðum „gír“ hjá B & L stundvíslega kl 20:00.

    kv
    Palli





    28.08.2003 at 10:29 #192824
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Hann Hinrik í Heklu var að hringja og bað mig um að setja hér inná spjallið að 37 tommu dekkin eru komin. Hann komst ekki inn á síðuna (eitthvað frosið..!) og biður þá sem voru búnir að panta dekk að renna við í Heklu Klettagörðum. Svo mega að sjálfögðu allir hinir koma líka….

    Kv
    Palli





    14.08.2003 at 13:51 #475470
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Get tekið undir orð Emils hér á undan að öllu leiti og vill bæta því við að það er skiljanlegt að einn maður, sem er að auki framkvæmdastjóri í stóru fyrirtæki getur að sjálfsögðu ekki staðið í þessu einn. Veit þó það að sonur hans (og kannski fleiri) hefur verið að aðstoða við að halda úti þessari frábæru síðu.

    En það verður að segjast eins og er að myndirnar eru það sem gera síðuna enn skemmtilegri en ella og vont að þessi staða sé uppi að geta ekki sett inn myndir. Þarf greinilega að leggja mikla vinnu í að henda út "rugl" myndum sem eiga þar ekkert erindi.

    Er ekki bara það sem vantar að Oddur útdeili verkefnum til þeirra félagsmanna sem vilja vera með í að viðahaldi á síðunni ? Auðvitað skil ég það vel að síðan er hans að mestu leiti og kannski erfitt fyrir hann að "sleppa barninu" í hendur annara.

    En miðað við það aðdráttarafl sem síðan hefur á félagsmenn og aðra er ekki spurning að eyða í hana peningum, því þeir marg skila sér til baka.

    Hvet félaga sem kunna / vilja aðstoða okkur í þessu, að setja sig í samband við Odd eða stjórn 4×4.

    kv
    Palli.





    24.07.2003 at 10:16 #474960
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Já takk fyrir skemmtilega helgi. Ég veit að ég tala fyrir hönd okkar Ellu og Lúthers, er ég segi að okkur fannst þetta takast mjög vel. Höfum ekki formlega tölu á þeim sem mættu, en getum þó vel haldið því fram að á milli 200 – 300 manns hafi mætt á svæðið, frá langflestum deildum. Það sem stóð uppúr að mínu mati var þetta góða veður sem var á laugardeginum og 4×4 leikarnir, sem fóru vel fram og allir skemmtu sér vel. Auðvitað var rokið á laugardagskvöldið og aðfararnótt sunnudags ekki skemmtilegt, en samt sem áður búum við jú hér á þessum klaka þar sem svoleiðis bara gerist án þess að maður hafi neitt um það að segja.

    Börnin skemmtu sér vel í Go-cartinu og í hoppikastalanum, svo ég tali nú ekki um í öllum hinum leikjunum.

    Fyrir hönd skemmtinefndar (og afmælisnefndar) þakka ég öllum þeim sem komu á svæðið og sérstaklega stórum hóp frá Skagafirði. Einnig þakka ég ábúendum á Bæ í Reykhólasveit fyrir alla hjálpina (öll símtölin, allt hvabbið, góðan aðbúnað, labbitúrinn í Eyjuna, leyfa krökkunum að fara á bak á hestunum og fl og fl).

    Þetta var síðasta formlega uppákoma í tilefni 20 ára afmælis klúbbsins og enn einu sinni erum við svo heppin að fá aðstoð frá góðu fyrirtæki til að framkvæma uppákomu sem þessa. Ingvar Helgason stóð sem sagt vel á bak við okkur með myndarlegri upphæð til að standa skil á kostnaði við tjaldstæðin. Þökkum við þeim kærlega fyrir góða aðstoð. Einnig voru aðrir sem gáfu okkur nokkra vinninga í happadrættið, takk fyrir það líka.

    kv

    Palli





    24.07.2003 at 09:47 #475008
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    sælir félagar.

    Jú það er rétt að ég ætla að skipta um bíl og vona að það sé ekki mikil frétt. Sumir vina minna skipta um bíl eins og naríur.

    En get staðfest það að okkur hjónum langar í eitthvað sem hægt verður að sofa í, en er ekki enn búinn að ákveða neitt, né finna neitt sem mig langar í. (frúin sagði nefnilega um daginn: "Jæja Páll" (þegar hún segir Páll, þá er eitthvað alvarlegt að og eins gott að hlíða strax), "nú nenni ég ekki lengur þessu tjaldveseni..!")

    Hins vegar vona ég að ég finni einhvern sem vill kaupa þann gamla, sem er eins og þið vitið bara asskoti góður og hefur reynst mér vel. Þið kannski væruð vísir til með að aðstoða mig með að selja gripinn og segið öllum sem ykkur þykir vænt um frá þessum grip.

    Ég er sannfærður um að nýr eigandi á eftir að líka vel við Eirík, því hann er viljugur að drífa og hlíðinn mjög.

    Bestu kveðjur,

    Palli.

    ps. Lúther, ég á ekki von á því að fara í Toyotuna strax… Það eru jú takmörk fyrir öllu 😉
    P





    15.07.2003 at 11:52 #192723
    Profile photo of Páll Halldór Halldórsson
    Páll Halldór Halldórsson
    Member
    • Umræður: 37
    • Svör: 609

    Sælir félagar.

    Var í Bílabúð Benna áðan og rakst á þessa fínu bók frá félaga okkar Jóni Snæland. Hún er alveg djö.. flott og fín. Til hamingju Jón með þetta framtak. Veit að ég á eftir að nota hana helling við mína ferðamennsku.

    Kv,
    Palli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 336 total)
← 1 … 11 12 13 … 17 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.