Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.05.2004 at 13:18 #502852
Sæll.
FLott að sjá að þig langi að sýna honum Pajeró á 44. Tek þetta til mín, því ég á annan þeirra bíla sem er búið að breyta fyrir svo stór hjól. Frúin er oftast á bílnum í vinnunni upp í Gylfaflöt og síðan er hann heima á kvöldin. Mátt hringja ef þú vilt (891 7131) og ég skal upplýsa þig um staðsetningu á honum. Geri ráð fyrir að hinn 44 tommu Pajeróinn sé heima hjá Aroni.
Kv
Palli
10.05.2004 at 11:47 #501765Sælir félagar.
Fín hugmynd með að útbúa þátt. Fullyrði það hér að ein milljón dugar fyrir fínum þætti. Auðvitað er enginn vandi að eyða fimm milljónum líka. Svo mætti örugglega finna einhverja með í þetta verkefni sem kostendur. Kannski ekki galið að leggja þetta til á aðalfundi í kvöld ? Veit til þess að menn eins og Birgir Þór og fleiri væru klárir.
Varðandi flutningabílana, þá er endalaus barátta að halda þeim við efnið. Hluti af þessari vinnu lendir á mér í starfi mínu hjá Flytjanda. Þegar nýjir menn eru ráðnir, þarf að fara með þeim í gegnum marga hluti og menn þurfa að læra að hinum reyndari. Einnig eru þessir reyndari að gera misstök, bæði stór og smá. Aðalatriðið í þessu er að fá alla með, allir þurfa að vera meðvitaðir um að það er verið að fylgjast með þeim, og taka á hverju einastu kvörtun sem berst. Þannig er hægt að halda þessu niðri.
Síðustu ár höfum við farið þá leið að líma aftan á flutningabílana, örstutt skilaboð til annara vegfarenda, hvað umræddur bílstjóri ætlar að leggja að mörkum í umferðinni. Skilaboð eins og "alltaf í belti", "á löglegum hraða" og fl. Það segir sig sjálf að ökumaður sem er með slíkan límmiða aftan á bílnum sínum vill með engu móti láta hanka sig á því sem stendur á límmiðanum.
Það væri því hugmynd að allir þeir sem sjá jeppamenn haga sér eins og kjánar í umferðinni / á fjöllum / eða annar staðar, gætu sent inn upplýsingar til Ferðaklúbbsins um atvikið. Hægt væri að taka á þessu innan stjórnar og tekið ákvörðun um að setja sig í samband við viðkomandi. Og aðallega til þess að sýna mönnum fram á það að það er berið að fylgjast með. Og er viðkomandi er ekki félagi í klúbbnum, eigum við líka að hafa samband og benda honum á þau mistök sem hann kann að hafa gert.
Ég hef td haft það sem venju, ef hringt er í mig vegna bílstjóra, hef ég samband við bílstjórann og fengið hans hlið á málum. Einnig hef ég náð saman í einu símtali, umræddum bílstjóra og þeim sem kvartar og heyrt þá báða lýsa sama atvikinu og oft munar þá ekki miklu. Það eru nefnilega þrjár hliðar á öllum málum. "mín, þín og síðan sú rétta".
Kv
Palli
07.05.2004 at 13:43 #501671Sælir félagar:
Opið er í Smáralindinni frá kl:
16 – 19 í dag föstudag
Laugardag kl 11 – 18
Sunnudag kl 13 – 18Beggi og Soffía ætla að taka nokkra tíma, þannig að það vantar ekki mannskap til að hanga þarna alla helgina, bara 2 – 3 tíma í einu…
Þetta verður bara gaman…Og allir saman nú…
P
29.04.2004 at 09:46 #194280Sælir félagar.
Vegna þeirra umræðu sem hefur verið hér á spjallinu okkar og víðar set ég saman þennan pistil. Held fyrst og fremst að við séum að hræra í lítilli skál þar sem örfáir eru í raun að segja sitt álit. Jú kannski má segja að þessir fáu sem hafa áhyggjur af hegðun jeppamanna og breyttu jeppunum hafa verið að láta heyra í sér uppá síðkastið. En athugið að varla er þetta samsæri allra þeirra sem hafa látið í sér heyra. Svo erum við á þessum litla vef okkar að væla út í eitt og æsa hvort annað upp með svörum okkar í milli. Af hverju eru þið ekki að svara mönnum beint í blöðin ? Á þessum vef eru mest bara við jeppafólkið.
Margt fróðlegt hefur komið í ljós í þessari umræðu, en áttið ykkur á einu, allt það sem við þurfum að hafa í friði, er bara tvennt: „Að mega breyta jeppum og mega ferðast á þeim“. Til þess að svo megi vera þarf bara eitt að vera í lagi og það er heilinn á okkur sjálf. Breyttur jeppi er ekkert hættulegur einn og sér, það hlítur að vera ökumaðurinn og hugarfar hans sem er hættulegt. Það sama hugarfar þarf líka að vera í lagi, þegar þessi sami ökumaður ákvað að láta breyta bílnum sínum á viðurkendu breytingarverkstæði, eða gera það sjálfur heima í skúr.
Einhver sagði hér á spjallinu að ekkert eftirlit væri í gangi með illa breyttum jeppum. Menn gætu jú fengið breytingarskoðun og haldið síðan áfram með að breyta bílnum að vild. Annar sagði að það vantaði löggur til að fylgjast með utanvegaakstri. Þetta má vera rétt, en af hverju gerum við ekkert í þessu sjálf ? Ætlum við þessir aðilar sem teljum okkur vera á vel breyttum bílum, ökum ekki utanvegar og erum til fyrirmyndar í umferðinni að láta þessa örfáu sem eru með allt niðrum sig í þessum málum skemma fyrir fjöldanum ? Gerum eitthvað sjálf, hringum í lögguna (eða Einar Sól okkar mann hjá Frumherja), ef við vitum um bíla sem eru illa breyttir. Hringjum í lögguna (eða beint í þennan aðila), ef við sjáum jeppamenn vera að haga sér eins og asnar í umferðinni, eða á fjöllum. Við bara verðum að taka þátt í þessu sjálf, ef „fjöreggið“ virðist vera að hverfa frá okkur.
Á mínum vinnustað starfa um 200 flutningabílstjórar, flestir mjög ábyrgir og góðir ökumenn. En það eru til í þessum hóp menn sem sjá ekki heildarmyndina við að haga sér vel í umferðinni. Og þessir örfáu búa til vont umtal er þeir hleypa ekki framúr, aka of hratt, víkja illa og eru mjög ógnandi á þjóðvegunum. Það er því verkefni allra hinna að benda á þessa menn, svo fyrirtækið geti brugðist við á réttan hátt. Sýnt mönnum fram á hlutina í réttu ljósi, því ekki vill fyrirtækið fá á sig ljótan stimpil vegna örfáa einstaklinga.
Hvað varðar breytingar almennt á bílum, vitum við það hér að þessi íslenski siður / iðnaður er í ágætum málum, svona almennt. Einhver vildi halda því fram að þetta væri nú meira bullið að breyta bílum hér á klakanum, sem bifreiðahönnuðir væru búinir að eyða miklum tíma og peningum í að hanna. Auðvitað vitum við betur, það er verið að breyta þessum bílum til þess að geta notað þá meira og betur en ella. Við íslenskar aðstæður. Get upplýst ykkur hér að fyrir nokkrum árum síðan voru hér á landi 10 æðstu stjórnendur MMC í Japan. Auðvitað var farið með liðið á fjöll og upp á jökla. Þeir spurðu út í hluti sem við öll þekkjum svör við. Af hverju er verið að hækka upp bílinn ? Af hverju er afturhásingin færð aftur ? Af hverju er hleypt úr dekkjunum ? Og í hvert einasta sinn er svar kom frá okkur, var tekinn upp stóri gerfihnattasíminn og hringt til Japans til að segja frá þessum undamönnum hér á Íslandi. Ég er því ekki í vafa að margt sem okkur hér á landi hefur dottið í hug vegna jeppabreytinga, fer til framleiðandans út í hinum stóra heimi. Enda þekkjum við dæmi þess.
Staðan er þessi og er bara nokkuð einföld. Þið sem eruð þarna úti og eruð að pirra ykkur á umræðunni í fjölmiðlunum, látið í ykkur heyra þar. Umfram allt verum málefnaleg og kurteis. Þið sem eruð að breyta bílunum ykkar, gerið það af skynsemi. Þið sem eruð að ferðast, sýnið tillitsemi, bæði á þjóðvegum og á fjöllum / jöklum.
Kv
Palli
05.04.2004 at 17:13 #495433Slælir félagar. Datt í hug að leyfa ykkur að sjá bréf mitt til ráð"herrans".
Kv
PalliSæl Siv.
Eins og þú hefur væntanlega orðið var við erum við jeppamenn ekki hressir með þær tillögur sem hafa heyrst um lokun umferðar um hluta Vatnajökuls. Ég er einn af þeim fjölmörgu (eða örfáu, eftir því hvernig horft er á hlutina) sem hafa verið að ferðast um Vatnajökul síðustu ár og fer ætíð 2 – 4 sinnum um jökulinn á hverju ári. Tel mig vera mikinn umhverfissinna og tek mikið tillit til annara ferðalanga, þá sjaldan sem maður rekst á þá á þessum stóra skafli okkar, sama hvernig þeir ferðast. Aldrei hef ég rekist á gangandi mann á jökli, en varð var við einn sofandi í skálanum á Grímsfjalli um daginn, en félagar mínir fóru á móti honum kvöldið áður, er hann var að bugast af þreytu upp síðustu brekkurnar upp að skálunum. Hann varð af skiljanlegum ástæðum mjög glaður með þessa aðstoð og má ímynda sér að hann hafi verið sáttur við að það voru fleiri en hann á þessum frábæra en jafnframt óhugnalega stað. Örsjaldan hef ég séð vélsleðamenn á þessum ferðum mínum, einna helst í kringum skálana og á þessum helstu leiðum um jökulinn sjálfan. Bíla sér maður kannski oftast og mest þessa sem eru að ferðast með manni og sjálfsögðu sér maður aðra bíla við skálana á kvöldin.
Get með engu móti skilið það að þessir örfáu sem hafa þrek til að ganga á jökla eigi að hafa þann sérrétt umfram aðra að mega fara á jökla. Ég er td þannig gerður að geta ekki og nenna ekki að ganga alla leið frá sjávarmáli uppá Hvannadalshnjúk. Miklu frekar vill ég fara uppá jökulinn t.d. uppí Hermannaskarð og ganga þaðan á Hnjúkinn. Þetta hef ég td reynt oft síðustu ár en aldrei komist, aðstæður, snjóalög, veður og tími hafa komið í veg fyrir það. Tel ég mig vera svona meðalmann í jeppaferðamennskunni og því varla verið mikið fyrir þeim aðilum sem eru að ganga á Hnjúkinn. Það sama má segja af félögum mínum, við bara sjáum ekki hvers vegna á að hefta umferð um jökulinn. Umferðin er einfaldlega það lítil, að vandamálin eru í raun engin þess vegna.
Allt snýst þetta nefnilega um tillitsemi. Ef það eru skíðamenn á ferðinni er maður nokkuð viss um að þeir vilja ekki mikið af okkur jeppafólkinu að segja, nema að eitthvað sé að og hópurinn þurfi hjálp. Sjálfsögð kurteisi er að senda einn út hópnum og láta vita af sér og skiptast á upplýsingum um ferðaáætlun, gististaði og fl. Síðan bara láta sig hverfa eitthvað út í buskann, því nóg pláss er fyrir alla þarna uppi. Ég get nefnt sem dæmi ef einn bíll verður viðskila við hópinn í góðu veðri og er orðinn 2 – 4 km á eftir hinum, verður maður ekki mikið var við hávaða frá þeim bíl, er maður bíður í góða veðrinu eftir þessum aðila. Ein lítil þúst í fjarska sem þokast nær og heyrir maður fyrst í bílnum er hann á eftir einhverja tugi metra í hópinn. Í vondum verðum skiptir þetta ekki neinu máli, ekkert heyrist, ekkert sést og enginn verður var við neitt veðursins vegna.
Eðlilegasti hluturinn í þessu öllu saman er að góð stjórn komist á umferð um jökulinn og sjálfsögðu á félag eins og Ferðaklúbburinn 4×4 að koma að slíkri undirbúningsvinnu.
Ég skora á þig að kynna þér sjónarmið allra í þessu viðkvæma máli, svo allir megi sáttir við una.
Bestu kveðjur.
Páll Halldór Halldórsson
05.04.2004 at 17:13 #502755Slælir félagar. Datt í hug að leyfa ykkur að sjá bréf mitt til ráð"herrans".
Kv
PalliSæl Siv.
Eins og þú hefur væntanlega orðið var við erum við jeppamenn ekki hressir með þær tillögur sem hafa heyrst um lokun umferðar um hluta Vatnajökuls. Ég er einn af þeim fjölmörgu (eða örfáu, eftir því hvernig horft er á hlutina) sem hafa verið að ferðast um Vatnajökul síðustu ár og fer ætíð 2 – 4 sinnum um jökulinn á hverju ári. Tel mig vera mikinn umhverfissinna og tek mikið tillit til annara ferðalanga, þá sjaldan sem maður rekst á þá á þessum stóra skafli okkar, sama hvernig þeir ferðast. Aldrei hef ég rekist á gangandi mann á jökli, en varð var við einn sofandi í skálanum á Grímsfjalli um daginn, en félagar mínir fóru á móti honum kvöldið áður, er hann var að bugast af þreytu upp síðustu brekkurnar upp að skálunum. Hann varð af skiljanlegum ástæðum mjög glaður með þessa aðstoð og má ímynda sér að hann hafi verið sáttur við að það voru fleiri en hann á þessum frábæra en jafnframt óhugnalega stað. Örsjaldan hef ég séð vélsleðamenn á þessum ferðum mínum, einna helst í kringum skálana og á þessum helstu leiðum um jökulinn sjálfan. Bíla sér maður kannski oftast og mest þessa sem eru að ferðast með manni og sjálfsögðu sér maður aðra bíla við skálana á kvöldin.
Get með engu móti skilið það að þessir örfáu sem hafa þrek til að ganga á jökla eigi að hafa þann sérrétt umfram aðra að mega fara á jökla. Ég er td þannig gerður að geta ekki og nenna ekki að ganga alla leið frá sjávarmáli uppá Hvannadalshnjúk. Miklu frekar vill ég fara uppá jökulinn t.d. uppí Hermannaskarð og ganga þaðan á Hnjúkinn. Þetta hef ég td reynt oft síðustu ár en aldrei komist, aðstæður, snjóalög, veður og tími hafa komið í veg fyrir það. Tel ég mig vera svona meðalmann í jeppaferðamennskunni og því varla verið mikið fyrir þeim aðilum sem eru að ganga á Hnjúkinn. Það sama má segja af félögum mínum, við bara sjáum ekki hvers vegna á að hefta umferð um jökulinn. Umferðin er einfaldlega það lítil, að vandamálin eru í raun engin þess vegna.
Allt snýst þetta nefnilega um tillitsemi. Ef það eru skíðamenn á ferðinni er maður nokkuð viss um að þeir vilja ekki mikið af okkur jeppafólkinu að segja, nema að eitthvað sé að og hópurinn þurfi hjálp. Sjálfsögð kurteisi er að senda einn út hópnum og láta vita af sér og skiptast á upplýsingum um ferðaáætlun, gististaði og fl. Síðan bara láta sig hverfa eitthvað út í buskann, því nóg pláss er fyrir alla þarna uppi. Ég get nefnt sem dæmi ef einn bíll verður viðskila við hópinn í góðu veðri og er orðinn 2 – 4 km á eftir hinum, verður maður ekki mikið var við hávaða frá þeim bíl, er maður bíður í góða veðrinu eftir þessum aðila. Ein lítil þúst í fjarska sem þokast nær og heyrir maður fyrst í bílnum er hann á eftir einhverja tugi metra í hópinn. Í vondum verðum skiptir þetta ekki neinu máli, ekkert heyrist, ekkert sést og enginn verður var við neitt veðursins vegna.
Eðlilegasti hluturinn í þessu öllu saman er að góð stjórn komist á umferð um jökulinn og sjálfsögðu á félag eins og Ferðaklúbburinn 4×4 að koma að slíkri undirbúningsvinnu.
Ég skora á þig að kynna þér sjónarmið allra í þessu viðkvæma máli, svo allir megi sáttir við una.
Bestu kveðjur.
Páll Halldór Halldórsson
07.02.2004 at 13:20 #487264Sæll Ofsi.
Hvað kemur til með að þú ert ekki á ferðinni í þessari "blíðu" ? Ætlar kannski enn einu sinni að slá í gegn á morgun, er þú ferð á móti einhverjum með spottann fína og nærð þér þannig í þennan fína björgunartúr. Þú er alveg ótrúlegur í þessum útpældu ákvörðunum þínum… En ef þú ferð, hringdu í mig og segi bara eins og Freysi: "Maður sleppir ekki góðu basli".
Annars er maður alltaf jafn hissa á að vakna á morgnana hér í borginni og góða veðrið ætlar að gera mann alveg brjálaðan. Svo er vitlaust veður allt í kring, bílar fastir, útaf og allt í mega brasi og logn í bænum.
Hann Ingó var ekki svo galinn hér í denn að velja sér þessa vík til að búa í. Sjáið td Keflavík, alltaf rok og þegar það kemur loksins logn, detta allir beint á andlitið.
Baráttu kveðjur til allra í fjöllunum.
Palli
05.02.2004 at 14:07 #487170Sælir félagar.
Langar til að koma því hér að, að hjónakornin hafa bæði hringt í mig og komið þannig sjónarmiðum sínun á framfæri. Met ég það og virði.
Þar kom fram að þau höfðu áhuga á því að leysa vandamál mitt og kannski er það eðlilegast að taka þannig hvert mál fyrir sig, þeas að hafa samband við viðkomandi.
Þau sögðust vera búinn að skoða þann möguleika á að svara þessum þræði, en auðvitað getur það virkað sem olía á eld, fyrst svona er komið.
Hvet ég menn til að passa hvað þeir setji inn á þræði sem þessa, skítkast er ekki neinum til gangs, en réttmæt gagnrýni hlítur að vera öllum til góðs.
Kv
Palli.
04.02.2004 at 08:53 #487156Sælir félagar.
Ekki ætla ég að gerast dómari í þessu máli, hvort um ásetning sölumanns sé um að ræða eða hreinlega vankunnáttu, þegar þessi hlutur var seldur.
Sakna þess þó að hafa ekki séð eitthvað frá þeim Fjallasporthjónum hér á þessu spjalli. Svona þráður getur gengið endalaust, ef ekki er svarað fyrir.
Þó er annað mál sem hefur pirrað mig miklu meira síðan á fundinum okkar á mánudagskvöldið var. Þar var Freyr frá Arctic Trucks að segja okkur frá því að þeir væru komnir með DC umboðið og gætu farið að bjóða okkur þau dekk á næstu dögum/vikum. Þar kom fram (og ekki ætla ég að rengja þann góða dreng Frey) að enn er ekki farið að framleiða nýja 44 tommu dekkið með þrengri hringnum, svo þau haldist betur á felgunni. Eins og vitað er þá hafa menn verið að lenda í því að felgan spóli hreinlega inn í dekkinu, þegar mest á reynir. Kanarnir hefðu einfaldlega ekki treyst sér í nýja framleiðslu vegna þess magns sem þeir áttu enn óselt.
Ég man nefnilega eftir kynningu á mánudagsfundi á Loftleiðum i haust, þar sem Reynir og Stína fullyrtu yfir fullan sal af fólki, að sú nýja sending sem væri á leiðinni til landsins yrði með þessum þrengri hring og þar með þetta vandamál úr sögunni. Einnig kom þetta fram í símtali mínu til Fjallasports, að ég ákilaði mér rétt til þess að skila dekkjunum aftur, ef ég færi að spóla inn í þeim. Nú er ég búinn að fara á fjöll nokkrum sinnum og kem ætíð heim með eitt og eitt hjól snúið, með tilheyrandi ballanseringarveseni. Ekki á ég von á því að ég geti skilað þessum dekkjum, nógu illa gekk að fá þau í upphafi.
Skora ég á Fjallasport að gera grein fyrir þessu máli hér á spjallinu.
Kv
Palli.
02.02.2004 at 13:04 #486370Hó..
Eiki.
Við fórum niður í Flosaskarð (efst í því) og ókum síðan sem leið lá, alla leið "ragnsælis" (er þetta ekki skrifað svona ?) að Flosaskarði hinu megin. Fórum með klettunum alla leið og fundum meira að segja staðinn sem við fórum hérna um árið uppá jökulinn (með Pæju að sjálfsögðu).Ísmaður.
Hélstu að ég væri fastur ! Maður verður bara hálf foj… Ég fór uppá skaflinn frá götunni (yfir stóru steinana) þegar ég lagði bílnum. Einhverjir voru búnir að segja að ég kæmist ekki alla leið (þar á meðal félagarnir ..), en auðvitað fór ég áfram yfir hauginn og niður á plan. Segi bara eins og Hlynur…"kemst allt á lóló…"Kv
Palli
29.01.2004 at 16:18 #193605Sælir félagar.
Mig langar að minna ykkur á jeppasýninguna um helgina í HEKLU. Þar verða til sýnis þeir Pajeróbílar sem hafa verið breytt síðustu mánuði og að auki aðrir bílar, nýjir og notaðir. Boðið verður uppá reynsluakstur á bílnum hans Óskars Óla, bíll með framlás, milligír og fl og fl. Einnig verða til sýnis framdrifslæsingin og nýji skriðgírinn frá Kára.
Aron, Bjössi, Palli, Jói og allir hinir verða á staðnum, þannig að hægt verður að hlusta á sögur. Þeir sem hafa ekki áhuga á svoleiðis grobbsögum geta séð glænýja mynd okkar félaganna, sem tekin var um síðustu helgi, er við skruppum uppá Langjökul með með smá hringakstursútidúr utan um Eiríksjökul. Intersport verður með kynningu á sínum vörum og Ferðaklúbburinn 4×4 er með smá aðstöðu til að minna á sig.
Svo verða veitingar fyrir okkur á laugardagsmorguninn og fl og fl þannig að ég hvet alla til að kíkja við…
Kv
Palli
21.01.2004 at 10:42 #485118Hó..
Ég held að ástæðan sé líka að hluta vegna þess að eigandi skálans hafi verið að pressa á um hvort ekki væri allt klárt, því aðrir voru búnir að hafa samband við hann og vildu þessa helgi…
Þess vegna var betra í ljósi alls þessa að hætta við núna og engir eftirmálar. Ömurlegt að hætta við í næstu viku og fá það svo í hausinn að borga tugi þúsunda fyrir ónotað hús.
Við eigum svo inni helgina á eftir seinna blótinu, ef okkur langar eitthvað…
kv
Palli.
21.01.2004 at 08:22 #485110Sælir félagar.
Ella hringdi í mig í gærkvöldi og flautaði af blótið í Hólaskógi. Einungis einn hafði formlega samband. Síðan eru einhverjir búnir að spá, bæði í síma og hér á spjallinu. Til þess að svona þorrablót geti orðið að veruleika þarf einfaldlega miklu meiri þátttöku, þannig að í ljósi þeirra staðreynda sem uppi voru (fáir sýna áhuga, þurfum að fá um 40 manns, svo ekki verði tap á blótinu) var ákveðið að flauta það af í tíma, einnig svo eigandi hússins gæti átt sjens á að koma því í útleigu til annara. Fátt er leiðinlegra en að flauta svona uppákomu af með eins – tveggja daga fyrir vara. Seinna blótið lofar góðu og það er alveg um 60 manns búnir að hafa samband. Nú þarf bara að gera upp við Ellu og rígfesta sér plássið.
Kv
Palli
20.01.2004 at 08:26 #193509Góðan daginn félagar.
Eins og sést hér til hliðar í tilkynningu, þá er ekki mikil þátttaka í fyrra blótinu í Hólaskógi. Held að það sé í raun aðeins einn bíll + nefndin. Það segir sig sjálft að slík þátttaka er ekki næg og ef ekki rætist úr á næstu dögum þarf að endurskoða þessa hugmynd, sem fyrir ári síðan var á allra vörum, eftir „hrakfarir“ sumra uppí Setur. Hugmyndin var s.s. sú að ekki þyrfti að fara langt til þess að komast á blót og jafnvel hægt að fara þangað á óbreyttum jeppum og þannig ná inn fólki sem hefur ekki átt sjens á að koma fyrr.
Setursblótið er að verða fullt, en tæplega 50 manns hafa bókað sig nú.
Setrið er laust (held ég) bæði 31. jan og einnig 14. feb, þannig að kannski þarf að stúdera færslu á fyrra blótinu inn í Setur og þá spurning um dagsetningu.
Kv
Palli.
08.01.2004 at 13:37 #483418Hó
Eru ekki þeir bræður Óskar Óla og Jói að keyra túrtestum á þessum bílum út í eitt ? Já og meira að segja löglega með 6 farþega. Svo var Óskar á ferðinni á Hveravöllum um daginn með nokkrum 44 tommu bílum í þungu færi og dreif bara fínt. Gott ef ekki bara mest af öllum!
Það er því ekki þannig að menn hafi ekki verið að nota þessar skvísur, þótt BÞV sé hér á spjallinu og æsi menn upp hægri vinstri. Honum leiddist svo heima í gær, frúin úti og ekkert að hafa heima… Aldrei heyrist í þeim bræðrum á þessu spjalli, þeir eru bara úti að aka og BÞV fúll að hafa ekki tíma til þess að fara með…
Það þarf því að fara í einn stóran Pajeró túr og stand´ann ógurlega… ,svo BÞV fari af spjallinu…
KV
Palli
06.01.2004 at 17:11 #483520Hó.
Eruð þið virkilega að tala um það að Ferðaklúbburinn 4×4 þurfi að standa fyrir þorrablóti hér í borginni ? Þá lítur þetta þannig út, 35 – 44 tommur í Setrinu, 33 og minna í Hólaskóg og framdrifnir í hádeginu á fimmtudaginn í Múlakaffi.
Kv
Palli
29.12.2003 at 12:17 #193357Sælir félagar og gleðilega hátíð.
Já nú er bara hægt að fara í jeppaferð í Breiðholtinu….
Kv
Palli.Ps Fórum á Snæfellsjökul á laugardaginn var og þar var nægur snjór. Fórum nánast alla leið uppá topp, en snerum frá vegna þess að það var komið myrkur kl fimm…og búið að vera í lóló í fimm tíma…
P
23.12.2003 at 12:44 #482738og ég sem hef ætíð haldið að rás 9 á CB væri neyðarrás.
P
23.12.2003 at 12:27 #482632Sælir félagar.
Hann Gunnar vinur minn í síma 893-4451 á eina af fyrstu Jótunum sem breytt var á 38 tommur. Bíllinn er 89 módel og er ekinn ca 160.000 km. Túrbó, interkúler, lóló, loftlásar, stýristjakkur, aukatankur, plasthús og fl og fl…
Kallinn er búinn að eyða aleigunni í bílinn og hefur átt hann frá upphafi.
Þið þarna Toyotu-fan, hringið í´ann og bjóðið hressilega í bílinn, því hann veit það ekki enn að ég er að reyna að kom´onum á alvöru bíl…
Ef einhver nær að kaupa þennan bíl, fær sá hinn sami koníaksflösku frá mér, því Gunnar hefur bara ekki viljað tala um að selja gripinn…
Kv
Palli
11.12.2003 at 11:55 #482542Hæ.
Nei, það þarf ekki að finna kvittunina. Við sjáum þetta. Bara koma og kvitta fyrir viðtöku. Sumir eiga eftir að borga, en þeir eru velkomnir líka. Svo eru hinir sem pöntuðu ekki bók á sínum tíma líka velkomnir, það eru til ca 300 – 400 aukabækur…
kv
Palli
-
AuthorReplies