Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.03.2005 at 23:11 #518990
Já, nú er ég sammála þér. Klúbburinn á að hætta með þessar ferðir á sýnum vegum. Hef þá skoðun að þetta eigi eftir að vinda uppá sig, eins og hefur gerst síðustu ár. Sumt fólk hagar sér með ólíkindum í ferðum sem þessum og ekki prenthæft allt það sem ég hef upplifað sem umsjónarmaður á vegum 4×4. Einhvern daginn kemur skellur á klúbbinn okkar sem hefur það að markmiði að vera hagsmunafélag, en ekki ferðafélag.
Sjáið bara þennan þráð !
P
15.03.2005 at 23:04 #518988Sæll Siggi Frikk.
Þú ert nú meiri vælukjóinn ! Að nenna þessu endalausu væli hér á spjallinu…
Mig langar að benda þér á þá staðreynd að þegar þú þurftir að hætta við þátttöku þína í nýliðaferðinni fyrir tveimum árum var þér sagt að þú fengið endurgreitt. Ástæður væru allar til þess réttmætar. Ég meira að segja heyrði í þér aftur eftir þessa helgi til að íta við þér, hvar ég mætti leggja inn aurana…og spurði þig þá um leið hvernig systir þín hefði það eftir slysið. Og þú ætlaðir að láta mig vita, ekkert lægi á…, þú ættir eflaust eftir að ferðast meira með okkur (4×4)
Og veistu það félagi, að það var meira að segja gert ráð fyrir þessu í uppgjöri ferðarinnar til stjórnar. En man þó ekki nú í svipin, hvort 4×4 skuldar þér þennan aur, eða hvort ég hélt þessum pening eftir á mínum reikning. Rétt að skoða það með stjórninni… (Skúli, getur þú fundið þetta með gjaldkera ?)
En mér finnst hallærislegt af þér að halda fram einhverju hér sem ekki stenst…
Kv
Palli. (sími 664 2103)
30.12.2004 at 21:16 #511866Jæja félagar.
Er nú Sindri að lenda í því aftur að týna bílnum sínum í skafli… Hvar er Ella, er hún ekkert hér á spjallinu, eða er hún að lesa kallinum pistilinn í símann ? Já Ella, nú missir hann réttinn á að aka næstu helgarnar. Ekkert smá fastur…bara skilinn eftir.
En mér sýnist að hér sé að bresta á hin mesta framhaldssaga sem hægt verður að fylgjast með langt fram á næsta ár.
kv
Palli.ps. Alveg með ólíkindum að heyra þetta með Pajeróinn…, bara vissi þetta ekki að þeir væru að stoppa svona….. :o)
P
22.12.2004 at 14:17 #511388Hæ.
Mér myndi leggja til að þú breyttir bílnum fyrir 38 tommu hjól. Það munar engu, fyrst þú ert í þessum pælingum hvort sem er. Færa afturhásinguna eins aftarlega og hægt er…
Ég færði mína um 16 cm og fæ með því alveg frábæra fjöðrun. Er með orginal demparana (þessa stillanlegu) og ekki væri galið fyrir þig að stúdera gorma undan öðrum tegundum, td picupjeppa, þar sem meiri burður er standard.
Að vísu þarftu að minnka olíutankinn um 10 l við þessar æfingar…
Kv
Palli
26.11.2004 at 11:25 #509514Hæ aftur.
Alveg típist.. Á meðan ég var að skrifa póstinn hér áðan, fékk ég tvö meil, þar sem fólk er að forfallast….og helvítis flensan að eyðileggja helgina fyrir fólki.
Þannig að það er laust fyrir 2 bíla, eða fjórar persónur.. Fyrstur "kemur" fyrstu fær. Sendið mér línu… phh@askjan.is
Kv
Palli
26.11.2004 at 11:10 #194940Sæl öll sömul.
Nú styttist í ferðirnar þrjár um helgina, en hér er staðan á okkar ferð í Jökulheima, en hópurinn telur um 38 manns á 18 bílum.
Undirbúningur hefur að mestu farið fram á tölvupósti, en einnig hittist hópurinn á síðasta mánudagskvöld til að fara yfir eitt og annað sem snýr að ferðalögum almennt og einnig að undirbúning bíls, akstursmáta og fl.
Þó nokkur stemming hefur myndast innan hópsins og má ímynda sér að einhver vinskapur myndist nú um helgina sem heldur áfram í náinni framtíð.
Fararstjórarnir Páll H H og Halldór Ásmunds hafa haft í ýmsu að snúast og eru síðustu minnispuntkarnir að klárast, svo allt megi fara sem best í ferðinni.
Áætlun hópsins er að fara inn í Jökulheima í kvöld og gista þar tvær nætur. Laugardagurinn verður auðvitað nýttur í hefbundna jeppaferð um nágrennið og ef aðstæður leyfa verður kíkt á stóra skaflinn, en annars um nágrenni Jökulheima. Heimferð á sunnudag er áætluð um Breiðbak, ef veður er gott og Tungná fær.
kv
Palli.
22.11.2004 at 13:06 #509260Sælir félagar.
Jú, við ætlum að hittast í kvöld í HEKLU klukkan 19:30 – 21:00, nánar tiltekið á bílaverkstæðinu, beint fyrir ofan Bílaþing.
Kv
Palli.ps
Gott væri líka að heyra í þeim sem eru skráðir, en hafa ekki látið heyra í sér, svo biðlistinn geti styttst, ef þeir ætla ekki með.P
09.11.2004 at 11:31 #194813Sælir félagar.
Nú eru um tuttugu bílar skráðir í ferðina og ljóst er að stemmingin er bara fín. Langflest er þetta fólk sem ég þekki ekki (en ætla mér að kynnast), fólk sem hefur ekki mikið verið að ferðast með klúbbnum, en væntanlega einhverjir þó.
Er þó í pínu brasi með að ná á þrjá menn, sem einn maður skráði. Bið ég þess vegna þann aðila eða þá sem þekkja til þessa hóps um að koma til þeirra skilaboðum. Þau eru einföld: Hringja í mig, eða senda mér meil… Síminn er 824 2085 og meilið er phh@askjan.is
Og nöfnin eru:
Rangar Pálmason
Stefán Ólafsson
Kalli.Kv
Palli
05.11.2004 at 15:07 #507738Já, ég segi nú ekkert annað en hummmmmm.
Hvað gerðu menn eiginlega áður en netið var fundið upp ?
Finnst eins og Benni sé bara hér til að væla um skráninguna sem hann heldur að hann sé að missa af ! Benni minn. Sendu mér línu, það er enn pláss eins og ég sagði í fyrra bréfi mínu.
Svo væri hægt að hringja ! Úr því að þú fannst gamla meilið mitt hér á síðunni (sem ég er reyndar búinn að biðja nokkrum sinnum um að breyta / taka út), þá er símanúmer þar líka ! Viss um að Ási vinur minn sem svarar í því númeri gefur þér upp mitt nýja númer.
Svo er ég sá eini á landinu sem heiti mínu fallega nafni, svo það ætti líka að vera auðvelt að finna heimasímann minn !
Mér finnst mjög eðlilegt að þeir sem mæta á fundi félagsins fái þann heiður að skrá sig þar, enda erum við jú öll sömul að vera í svona félagsskap til að kynnast hvoru öðru og hittast. Mér finnst það amk miklu skemmtilegra en að vera endalaust að tjá sig hér um málefnin (þó að það sé gott svona með).
Annars bara góða helgi.
Palli
05.11.2004 at 12:01 #507726….var formaðurinn að skrifa svar jafnt og ég…
P
05.11.2004 at 12:00 #507724Sælir félagar.
Ég held að erfitt sé að gera öllum þeim þúsundum sem eru í klúbbnum okkar (og einnig þeim sem eru ekki í klúbbnum) til hæfis er snýr að skráningum í ferðir sem þessar.
Hér á heimasíðunni hefur verið minnst á þessar nýliðaferðir undir liðnum "Vetrar-starfið". Væntanlega gátu netverjar undiðbúið sig síðan í maí sl vegna þessa. Í síðasta Setri er talað um ferðirnar og að þær verði kynntar á mánudagsfundinum sem síðan var gert. Á þeim fundi skráðu sig um 16 bílar (og tveir hafa síðan hætt við). Síðan hafa komið meil til okkar Bjössa, enda nefndir í Setrinu sem hugsanlegir fararstjórar. (en Björn fer síðan ekki með, vegna anna).
Einungis komast með í Jökulheimaferðina um 18 – 22 bílar og miðast fjöldinn út frá tvennu, annarsvegar að vont er að vera með tvo vana og tuttugu óvana og hins vegar svefnpláss í skálum.
Held að allir séu sammmála því að erfitt sé að ákveða og gera öllum til hæfis er snýr að hvar á að byrja skráningar, hér á vefnum eða á fundi ! Að sama skapi má segja um þá sem eru ekki nettengdir og koma á fundi til að njóta þess sem þar gerist, að þeir aðilar yrðu varla ánægðir með að vita það þar að skráning hafi verið á netinu daginn áður og allt orðið fullt.
En endilega sendið mér meil phh@askjan.is og kannski komist þið með. En er pláss fyrir einn eða tvo bíla….og ef einhver vill gista í bílnum er það svo sem líka möguleiki sem vert er að skoða.
Held að sá hópur sem er nú búinn að skrá sig sé þannig samansettur að með mjög góðri samvisku sé hægt að segja að 90 % þátttakenda séu nýliðar í þeirri skilgreiningu (fólk sem hefur ekki verið að ferðast mikið um td jökla ein á ferð) og vill læra meira.
Bestu kveðjur,
Palli.
27.10.2004 at 08:41 #507182Góðan daginn.
Það er nú um ár síðan að einum Pajeró 96 módel var breytt á 44 tommur. Þegar honum var breytt var einungis notaðið hlutir úr bílnum sjálfum og öðrum svipuðum. Orginal fjöðrun að framan og aftan og orginal hlutföll 1:4,9. Afturhásing færð rúma 16 cm aftur og boddy upp um 10 cm. Aukamillikassi smíðaður úr millikassanum og annar svipaður settur þar fyrir aftan.
Núna eftir 20 þús km hef ég endurbætt tvo hluti, annarsvega framskaptið (sem var ætíð að fara illa með fremri hjöruliðinn) og setti nú á dögunum auka gírkassapúða undir aftari millikassann. Eitthvað sem ég hefði átt að gera strax.
Svo var ég að setja í Algrips-framlás.
Svo er Aron með sinn 2000 módel á 44 líka, síðan í des sl. Allt orginal.
Veit ekki til þess að þessir bílar hafi komið með skottið á milli lappana í bæjinn ofan af Hellisheiðinni. Prufutúrinn hans Arons var þar (og ég með) og áttum við fínan dag og komum heilir heim….
Annars er myndir af mínum hér í albúminu en bílarnir eru notaðir daglega í og úr vinnu (enda búið að aka báða bílana um 20.000 km á einu ári). Minn er fyrir utan Heklu og Arons bíl fyrir utan Jeppaþjónustuna.
Kv
Palli
21.10.2004 at 15:58 #506608Sæll.
Er það ekki hér til hliðar, undir Vetrarstarfið ?
P
21.10.2004 at 15:56 #506436Hæ Lúddi.
Ertu hættur við að koma, nei, andskotinn hafi það… Ertu ekki í nefndinni…
En svona í alvöru.. hvað eru margir búnir að skrá sig og hve margir eru búnir að borga..
kv
Palli.
21.10.2004 at 08:52 #506430…..ætlar Jóhannes að vera með verklegt námskeið um hvernig eigi að bóna bíla. Ætlar hann að vera með þyngri útgáfuna, þeas að sýna fram á það að hægt sé að bóna bíl í gjósku-gosi. Er verið að útbúa séstakan klefa á Hótel Grand….
…..ætlar Óskar Óla að opna sig algjörlega hvernig mannsheilinn virkar. Sérstaklega verður komið inn á það sem heitir fyrirlitning. Eða eins og allir vita VORU Datsunar í hans huga einu bílarnir sem komust á fjöll, en nú bara man hann ekkert eftir þessum tímum, enda glaður með sinn Pajeró….og bara þolir ekki Datsuna sem verða fyrir honum á fjöllum…
….ætlar Björn að vera með ökukennslu, þar sem farið verður sérstaklega inn á hvernig á að bakka í myrkri….
….ætlar Bjarki Waage að leika fyrir áhorfendur, hvernig eigi að festa Toyotur á haustdögum í miðjum slóða. Þarf jafnvel að sýna þennan atburð hægt, því Pajeró var svo snöggur framfyrir til að draga kvikindið upp. Náðist ekki einu sinni á mynd….
….ætlar Jóhann Rúnar að vera með fyrirlestur um bílaviðskipti. Fer hann djúft í málefnið, hvernig má skipta Alfa Romeo upp í jeppa….
Sjáumst á laugardaginn.
Kv
Palli.
19.10.2004 at 12:50 #506368Hvað eru margir miðar seldir ?
kv
P
02.07.2004 at 12:12 #504396Pajero 1996 módel, ekinn 198.000 km. Ekkert búið að gera fyrir mótor, drif, né kassa (samkvæmt uppl frá Heklu, varahlutakaup lítil í heildina og örsjaldan farið inn á verkstæði þar). Bara keyra…
Ég eignaðist hann í des sl, þá var km staðan 190.000 og setti þá á 44 tommur. Bara rétt tilkeyrður. ´
Rúnar vinur minn (sem vinnur í HEKLU) var að eignast einn 1999 módel og sá er ekinn 300.000 km.. Aldrei verið kíkt á vél þar á bæ…
Palli.
09.06.2004 at 11:48 #503712En ætla að fara betur ofan í það hvað myndirnar heita. Það komu nefnilega 3 myndir frá þessum frábæra jökli. Sennilega er það þó þannig að myndin sem lenti í öðru sæti, sé rétt nefnd. Þarf þá væntanlega að laga það á aðalsíðunni.
P
09.06.2004 at 11:28 #503710Sæll Einar.
Ef þú hefur verið með bæði eyrun opin á mánudagsfundinum, þá var bæði talað um Drangjökul og Drangajökul. Við Ofsi vorum búnir að stúdera þetta, en gátum ekki tekið fram fyrir hendurnar á höfundum, sem ákveða nöfn á sínar myndir. Þetta var myndbandasamkeppni, ekki réttritunarkeppni.
Það væri svo sem eftir þér að hafa viljað hafna myndum sem vorum sem stafsetningarvillum í, eða hvað ?
kv
Palli.
25.05.2004 at 15:00 #486916Sæll Halli.
Þetta er nefnilega spurning hvort þessi krossar frá Fálkanum séu bara ekki helvítis drasl. Það eru tveir búnir að fara hjá mér síðan í nóv. s.l. Báðir á framskapti og upp við millikassann.
Hélt að það væri stóru hjólunum mínum að kenna, því auðvitað má leiða líkum að því að erfiðara sé að snúa þessum gleðigúmmíum.
P
-
AuthorReplies