Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.12.2006 at 20:55 #571106
Dem! nú verður einhver að hjálpa mér. Ég er of mikill þumbi til að koma þessari árans mynd inn.
Íris er hvort eð er orðin brjáluð þannig að nú er ekki hægt að bakka!!
13.12.2006 at 20:48 #571102Jæja, maður lætur nú ekki biðja sig oft! Hérna hefurðu mynd Íris mín, reyndar soldið gamla en.. what the h…
hehehe [img]http://file:///C:/Documents%20and%20Settings/L%F3l%[/img] [img]http://C:Documents%20and%20SettingsLólóMy%20DocumentsMy%20Picturesvík%2016.%20-17.marsDSCF0023.JPG[/img]
05.12.2006 at 19:35 #570202Held að Ofsi sé nokkurn veginn kominn á sporið hérna því orðrómurinn hérna megin hellisheiðar segir að einhver samleið sé á milli utanvinafélagsins og utanvegafélagsins en það eru þó ennþá óstaðfestar fréttir.
02.12.2006 at 22:26 #569644Þetta eru góðar heimildir strákar, ég hafði ekki séð þessa á rockcrawler áður. En í flestum ef ekki öllum greinum sem ég hef séð um þetta er aðaláhyggjuefnið "quench heigth" (sem mér skilst að sé hæðin sem stimpilkollurinn gengur upp fyrir brún á blokkinni? ekki viss þó) og hvort verði kveikjubank. Svo eru langflestir þessir mótorar boraðir .030. Hefur ekki einhver hérna á klakanum prófað þetta? Minnir að einn svona hafi verið á Akureyri, getur það verið?
02.12.2006 at 01:14 #569898Heyrðu mig heillin, Ertu að biðja um tvíræðar myndir eða bara…myndir, því ég gæti lumað á nokkrum sem þú hefðir gaman að! Hvað stedur annars til? ef maður má spyrja?
02.12.2006 at 01:10 #569624Sammála Gumma með felgubreiddina, allt yfir 14" er bara sóun á tommum. En svona bara til að halda þræðinum á floti verð ég að demba á ykkur einni spurningu enn. hafa menn eitthvað verið að stróka þessa mótora? þ.e.a.s 4.0l mótorinn. Gaman væri nú að heyra í einhverjum sem væri búinn að dudda í þessu, eða allavega kynna sér eitthvað um málið
29.11.2006 at 21:00 #569618Það er nú reyndar mín skoðun að þessar hásingar eru alls ekki það besta sem komið hefur frá vinum okkar í vestri, en ég skal bara hafa það útaf fyrir mig. En heyrðu Arnór það vantar eitthvað uppá að ég geti sett inn myndir hérna þannig að ég reyni að senda þér eitthvað um þetta í máli og myndum á email.
En svo er nú annað málefni sem gaman væri að heyra um svona fyrst þráðurinn er orðinn þetta góður. Aukatankar! Hef reyndar séð svona sílsatanka undir grandinum en ég er búinn að bíta það í mig að allavega 80 lítra tankur komist með sæmilegu móti undir bíl.
Any comments?
28.11.2006 at 18:46 #569608Sammála síðasta ræðumanni! Skál fyrir mopar.
Það sem mér skilst að gerist er að það losnar upp á stýrismaskínuni og þá brotnar eyrað. Svona plata minnkar líklega hreyfingu á grindinni þar sem maskínan skrúfast á og minnkar þar með líkur á að það losni upp á þessu, en best væri að koma stífu á hálsinn á maskínunni til að stoppa mesta vindinginn. Veit bara ekki alveg hvernig.Datt svo í hug að láta ykkur sem eigið Grand vita að ef þið ætlið að smíða prófíltengi sem má kippa hressilega í þá á ég skapalón af sverum festingum á "grindarnefið". (7 boltar hvorum megin)
Heyrðu Arnór er komin niðurstaða hjá þér í stýrismál?
28.11.2006 at 00:54 #569604Hmm sniðug pæling. Maður þarf að fara útí skúr með kaffibolla og sígó og athuga hvort maður smíði bara ekki eitthvað svona.
Takk Ingi.
Var svona undir Grandinum hjá þér?
27.11.2006 at 23:36 #569600Takk fyrir góð svör Gunnar Ingi, já aðeins hef ég orðið var við að þessar maskínur séu að slíta sig lausar, lenti reyndar í því sjálfur við vægast sagt hræðilegar aðstæður. En málið er (allavega með 4.0) að það næst ekki almennilega bein lína yfir í "grindina" hinumeginn því olíupannan er fyrir, þannig að það gæti orðið hálf klúðursleg stífa sem kæmi þarna, held ég.
Ætli það sé frekar að fara útí stýristjakk heldur en svona stífusmíði til að koma í veg fyrir brot? hafa menn eitthvað verið að gera það?
27.11.2006 at 19:56 #569596Sælir piltar, gaman að heyra að það eru fleiri en maður sjálfur að stumra yfir þessum eðaltækjum.
Mig langaði að spyrja hvort einhver ætti mynd af styrkingu fyrir stýrismaskínu í zj. Er soldið forvitinn að sjá hvernig þetta er útfært.
29.10.2006 at 03:01 #565662ok Benni ég kaupi þessa útskýringu, hef samt ekki séð né heyrt af svona græju.
En það er ekkert að marka enda ég lengst útí sveit!
29.10.2006 at 01:02 #565640hahahaha Já það er nú bara ansi góður díll að fá hunter á vhs með! (hefði samt mátt fylgja popp og kók meððí)
En annars finnst mér þetta hljóma eins eitthvað bull gjald, geri ráð fyrir að þetta sé bara prufuakstur sem er búið að finna nýtt nafn (og verð) fyrir.Haa? er ekki búið að hunter testa jeppann þinn?! issss.
29.10.2006 at 00:33 #565634Jæja nú verð ég nú bara að uppljóstra fávisku minni og spyrja: Hvað í ósköpunum er hunter? og hvernig eru huntertest framkvæmd?
15.10.2006 at 16:34 #563450takið eftir því að bakkljósin á pajeronum loga, félaginn hefur bara ætlað að reka í bakk! hann náði þó að bjarga sígarettunum og það er nú fyrir öllu.
Vígalegur cruiserinn hjá flubbó!
09.08.2006 at 20:49 #556986Sæll nafni,kíktirðu undir hann? það ætti ekki að leyna sér hvort það er rafmagn eða barki
24.07.2006 at 22:22 #556684Þökkum fyrir góða helgi og skemmtun, eins vil ég sérstaklega þakka heimamönnum fyrir góðann og fróðlegann bíltúr a laugardeginum.
Örn
Þórunn Lísa
Sindri Þórx 5665
13.12.2004 at 19:37 #195046Sælir félagar. Spurning dagsins tengist reyndar ekkert jeppum og vona ég að mér verði fyrirgefin framhleypnin.
Getur einhver sagt mér (og þá helst með svolítilli vissu)
hvort 2000 galant vél sé sú sama og í hyundai sonata og þá hvort hún passi beint oní sónötuna?
takk.
-
AuthorReplies