You are here: Home / Óskar Örn Arnarson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Það er alltaf talað um að flugeldasala sé eina (eða ein af sára fáum) fjáröflunarleiðum björgunarsveitanna, hvað um jólatrésölu. Svona til gamans að þá er ekki hægt að fá jólatré á öllu höfðuðborgarsvæðinu fyrir jólin. Yrði fólk ekki brjálað ef að björgunarsveitirnar væru með einkasölurétt á jótrjám (ég held það). Og einhverstaðar heyrði ég að björgunarsveitirnar fengju úthlutðar 700 miljónir á ári í ríkisstyrk. Ef að það er ykkur svona mikið hjartans mál að styrkja björgunarsveitirnar af hverju leggið þið ekki bara 1000 – 2000 kall á mánuði eða eitthvað álíka sem frjáls framlög til þeirra, það kemur út a það sama og að versla einn fjölskyldupoka (sem er bara fullur af einhverjum stjörnuljósum) og 2 rakettur.
3 af hverjum 4 sem að sitja inni um áramótin fyrir sölu á ólöglegum flugeldum eru einhverjir skátar, þeir sprengja bílana sína í tætlur vegna þess að þeir eru óvarkárir og sprengja húsin sín í tætlur vegna þess að þeir virða ekki reglur um að geyma sýningarefni aðskilt frá söluefni.
Það voru ekki einu sinni björgunarsveitirnar sem að byrjuðu á flugeldasölu á íslandi, Ellingsen var með flugeldasölu í mörg ár og byrjuðu vel á undan björgunarsveitunum og sama má segja um Gullborg. Hvað væri gaman við það ef að björgunarsveitirnar væru með einkarétt á flugeldasölu, það væru allir með sama efnið og engin fjölbreytni.
Ég styð frjálsa verslun og versla þar sem að ég vill, og læt ekki skikka mig til þess að stunda viðskipti við einn aðila.