Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.07.2007 at 22:49 #593060
Takk fyrir það Örn… prófa kanski að hringja í þig eftir vinnu á morgun ef það er í lagi.
Kv.
Óskar Andri
29.06.2007 at 22:21 #200484Sælir félagar
.
Hvernig er að breyta Hilux 2004, s.s. ekki nýjasta plast Hiluxnum heldur boddyinu á undan sem var komin með common rail dísel vél. Eru einhver vandamál t.d. með að koma 15″ felgum á hann. Ég kíkti undir svona bíl um daginn og sýndist mér undirvagnin vera ótrúlega líkur gamla bensín Hiluxnum mínum…. bara minna riðgaður (c:þ
.
Kv.
Óskar Andri sem er að hugsa um að yngja um 10 ár eða svo…
20.06.2007 at 22:37 #553906Mér lýst vel á þetta. Finnst alltaf gaman að sjá þegar menn þora að gera öðruvísi og breyta eftir sýnu höfði. Finnst ekkert jafn óþolandi og sú hugmynd að allt eigi að vera í föstum skorðum, ef menn sjá brettakanta sem lýta ekki eins út og öllum hinum jeppunum sem standa í stöflum á bílasölum í RVK þá er það bara ljótt af því að það er ekki eins.
.
jeppar eiga að vera fyrst og fremst notagildi og á ekki fórna því fyrir einhverja fagurfræði, finnst hann nú samt nokkuð flottur þessi cruser.
.
Kv.
Óskar Andri
17.06.2007 at 22:25 #592120Ég hafðu hugsað mér að fara af stað eftir vinnu á föstudag… svona um 7-8 leytið væri alveg til í að vera í samfloti með einhverjum.
.
Annars veit ég ekki hvort sé búið að plana að fara á einhverjum ákveðnum tíma?
.
Kv.
Óskar Andri
12.06.2007 at 00:50 #592386þeir koma manni alltaf á áfangastað þessir bílar þrátt fyrir vonlausar vélar, enga fjöðrun, vond sæti, D/C með of stutta skúffu, riðga í haug já og var ég búinn að nefna vonlausar vélar! Ég hef að a.m.k. ekki upplifað það ennþá að þurfa að skilja fjósa minn eftir uppá fjöllum eða úti á landi og er hann nú orðinn 13 vetra og bara rétt tilkeyrðu eða 249 þús. km. á orginal fjöðrun og orginal vél og alla tíð hefur honum verið misboðið af eigendum sínum með loftköstum á fjöllum, hamrandi yfir fjallaslóða á methraða, keyrandi í botn snúning lengi, lengi, lengi, drekkjandi í ám og starfa við það í 2-3 ár að draga 2-3 tonna kerru í hverri viku….
. Fyrst ég er byrjaður þá er nú ekki úr vegi að ég segi nú svona eins og eina frægðarsögu af honum fjósa mínum. Það gerðist á síðasta gæsaveiðitímabili að við vorum þrír félagar að keyra slóða í hrunamannaafrétt sem ég hafði farið margsinni áður og þekkti, að ég hélt, bak og fyrir og keyrði þess vegna doldið geyst. Það sem ég hinsvega reiknaði ekki með var að við vorum þrír í bílnum og ég var með úrhleypt í 15 pund og var bíllin þessvegna töluvert lægri en venjulega. Síðan kem ég að lægð/holu í veginum þar sem að það stendur steinn aðeins uppúr hryggnum, ég hafði keyrt margsinnis yfir þetta áður og hélt þessvegna áfram minni fleygiferð ofan í lægðina en nú fjaðri bíllin niður og lenti á grjótinu og skellurinn var svo svakalegur að þetta vera eins og ég hefði keyrt annan kyrrstæðan bíl plús það að höggið reif grjótið upp úr jörðinni sem reyndist síðan vera á stærð við 35" dekk og bíllin lyftist upp og rúllaði yfir grjótið með ólýsanlegum látum. Áður en að ég steig út úr bílnum var ég eiginlega búinn að ákveða í hvern í ætlaði aði hringja til að fá aðstoð ég var svo viss um að ég myndi sjá allan undirvagnin á bílnum fyrir aftan bílin…. en nei, örlítil dæld á spyrnufestingu og bogin demparafesting var allt holan eftir grjótið var nógu stór til að ég gæti sest ofaní hana…. síðan var keyrt í bæinn á mannlegum hraða….
11.06.2007 at 11:52 #592044Dagur, ég sendi þér E-mail á föstudaginn en ég sé að ég er ekki kominn á listan, getur verið að E-mailið hafi ekki skilað sér??
.
Ég kem plús tveir fullorðinir….
.
Kv.
Óskar Andri
R-3237
25.04.2007 at 09:34 #589322enga vitleysu… þetta er örugglega fínt undir 2,4 Hilux…
24.04.2007 at 16:30 #588140Jæja… fyrst hér eru samankomnir allir Jeep áhugamenn á 4×4 vefnum langaði mig að varpa framm einni saklausri jeep spurningu… Er hægt að koma fyrir aukatank í Jeep Grand Cherokee c.a. árg 99+ þ.e.a.s. með 4,7 vélinni
.
Kv.
Óskar Andri alltaf að láta sér dreyma…
24.04.2007 at 15:56 #589264Já þetta er vonlaust…. ég ætlaði einmitt að fara á morgun að kaupa sumardekk… enginn ástæða lengur til að vera tína nöglunum úr vetrardekkjunum.
.
Kv.
Óskar Andri
18.04.2007 at 16:51 #200151Veit einhver hvernig skilirði eru á langjökli núna? harðfenni, púður eða ???
.
Kv.
Óskar Andri
18.04.2007 at 11:38 #588648Fann á heimasíðu vegagerðarinnar að það sé hægt að fara frá Húsafelli upp á langjökul
http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faer … og-astand/
18.04.2007 at 10:07 #588646Hvernig er að komast upp að jöklinum núna hjá Húsafelli? er vegurinn opinn?
.
Kv.
Óskar Andri
13.04.2007 at 22:20 #588302Ég hef nú ekki beint svör við þessum spurningum hjá þér en dettur í hug að telja upp nokkra sem eru í brettakantabisnes
.
[url=http://www.alltplast.net:2kx2etbo][b:2kx2etbo]Allt Plast[/b:2kx2etbo][/url:2kx2etbo]
.
[url=http://www.brettakantar.is:2kx2etbo][b:2kx2etbo]Gunnar Ingvi – Bílasmiðja[/b:2kx2etbo][/url:2kx2etbo]
.
[url=http://www.formverk.is:2kx2etbo][b:2kx2etbo]Formverk[/b:2kx2etbo][/url:2kx2etbo]
.
[url=http://www.samtak.is:2kx2etbo][b:2kx2etbo]Bátagerðin samtak[/b:2kx2etbo][/url:2kx2etbo]
.
Kv.
Óskar Andri
12.04.2007 at 17:51 #587806Mér dettur nú bara í hug að nefna t.d. vélarnar sem eru í Toyotu Tacoma, eru þær ekki 3,4 eða 3,5 245 HP og síðan nýju dieselvélarnar í LC120 og nýja Hilux 160-173 HP svona ef við höldum okkur við Toyotur. Hef séð báðar þessar vélar í action í 38" bílum og get ekki annað sagt en að þeir bílar hafi verið þræl sprækir. Enn þetta eru auðvitað nýjar vélar.
12.04.2007 at 11:45 #587772Fyrir mitt leyti… Ég er nú á Hilux með vonlausri bensín vél sem eyðir alltof mikklu miðað við það sem hún skilar. Ég er mikið búinn að vera að pæla að skipta um vél og var ég sínum tíma ákveðin í setja í hann 2,4TDI, sætta mig við að hún væri kanski ekkert rosalega kraftmikil en kanski ekki eins mikklar breytur í eyðslu. Nú þegar verðið á diesel er eins og það er í dag er ég búinn að skipta um skoðun og er að leyta mér af Chevy 4,3 Vortec. Vonandi verð ég búinn að láta verða af því fyrir næsta vetur og þá gætur maður kanski brosað eftir að hafa verið tekinn í ra****** á bensíndælunni.
.
Í stuttu máli, ég er alveg til í að sætta mig við 20l eyðslu ef vélin skilar einhverju fyrir þessa 20l….
.
Kv.
Óskar Andri
05.04.2007 at 01:37 #587044Ég er búin að vera leyta af specum um þessar vélar aðeins á netinu og virðist vera nokkuð margar kynslóðir til af Chevy V6 bæði vortec og ekki vortec (getur verið að munurinn á þessum tvennu sé að Vortec er með CPI en hin, væntanlega eldri sé með TBI innspítingu?). Þetta getur verið allt frá 150 til 280 HP þegar það er komin túrbína og millikælir?? (vissi reyndar ekki að það væri notast við millikæli við bensínvélar??) trúlega væri skemmtilegast vélin úr Chevrolet S-10 c.a. árg 92-94 en hún er á bilinu 180-200HP.
.
Jájá….
.
Enn hvað með þessar toyotu vélar, hvernig er að fá þetta hérna á klakanum. Er ekki bara bilun að fara að kaupa 8 cyl. Toyota vél 1UZ-fe þ.e.a.s. er ekki hægt að kaupa margar amerískar áttur fyrir verð á einni svoleiðis?? hinsvegar er hún öll úr áli sem er spennandi. Ég las aðeins líka um 7M vélarnar á Wikipedia og þar var talað um að það hefði verið eitthvað heddpakningavandamál í þeim [url=http://http://en.wikipedia.org/wiki/Toyota_M_engine#7M-GE:38o26jtr][b:38o26jtr]7M-GE[/b:38o26jtr][/url:38o26jtr]
.
Kv.
Óskar Andri alltaf gaman að láta sér dreyma
04.04.2007 at 20:49 #587036Var aðeins að velta mér upp úr þessu á netinu í dag. Sennilega væri betra/auðveldara að fara í 4,3 vortec vél. Það t.d. til frá downey kit sem er með öllu til að setja chevy V6 vél ofaní þ.e.a.s. kúplingshús, mótorfestingar og jafnvel rafkerfi… tala nú ekki um að sennilega er vortec vélin eitthvað léttari en gamla 318 vélin.
.
Kv.
Óskar Andri ennþá að láta sér dreyma…
04.04.2007 at 11:09 #587028Hvað segið þið um Dodge 318 vél ofan í 4cyl. bensín Hilux? hvernig er eyðslan á þessum 318 vélum. Ég gæti hugsanlega nálgast eina eða tvær 318 vélar úr gömlum dodge ram, man ekkert hvaða árgerð en þetta er úr þessum jeppa: [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/2869/18737:1unjegw8][b:1unjegw8]Dodge Ram [/b:1unjegw8][/url:1unjegw8]
.
Veit einhver hvað þessi vél er í hestöflum?
.
Kv.
Óskar Andri að láta sér dreyma….
18.03.2007 at 19:57 #585068Lenti í þessu á mínum Hilux, þegar ég var að begja eða hann var að reyna að fjaðra eitthvað, þá kom þessi smellur. Ein skinnan á balancestangarpinnanum var gengin upp, svo hef ég líka séð brotin pinna í LC90 sem lýstir sér eins, kom smellur í begju. Ég skipti um pinnan hjá mér en ári seinna voru einhverjar aðrar fóðringar orðnar slitnar í þessu drasli þanni að ég reif balancestöngina bara undan.
.
Kv.
Óskar Andri
16.03.2007 at 18:44 #583308Takk fyrir hjálpina! þetta var leyst með að skipta út millikassanum.
.
Kv.
Óskar Andri
-
AuthorReplies