You are here: Home / Óskar Andri Víðisson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Sælir félagar
Ég er í smá vanda, súkkan hitnar orðið hjá mér
í lágum snúning ekkert frekar undir miklu álagi.
Þetta byrjaði skindilega fyrir um ári síðan og var
viðráðanlegt en er nú farið að vera til vandræða.
Ég hef getað haft stjórn á þessu með því að annaðhvort
að setja miðstöðina á og/eða halda bílnum á háum
snúning .
Semsagt, he….. beljan má ekki lengur sjá ómalbygðar brekkur á góðviðrisdegi án þess að fara að hitna.
Er einhver með góða ráð eða tilögur um hvað þetta gæti verið.
Þetta er 5d. bíllin með 1600cc, 16 ventla vélinni og A/C
1994
Kveðja
Óskar Andri
Sælir
Ég sá svona V8 bíl svartan, gott ef ekki á 38" eða stærri dekkjum fyrir nokkrum árum. Útlitslega séð verð ég að segja
að hann er nokkuð vel heppnaður hjá Toyota og sá ég þessa svörtu Tundru á 38"+ stinga óbreyttan LandCruiser 100 AF! á leiðnni upp brekkuna við hveragerði.
Ég hef síðan þá velt því mikið fyrir mér hvers vegna
eru ekki fleiri svona breyttir bílar á götunni hérna ( miða við hvað allir aðrir jeppar frá Toyota eru áberandi og breyttir hérna á götunum) og hvers vegna er hann ekki á heimasíðunni hjá P. samúels?
Maður sér þá stöku sinnum óbreytta…..
Þetta tæki hlýtur að vera að skila sér í snjó? eða hvað?
V8 4,7-liter 240hp
Kveðja
Óskar Andri
Ég er að fara að setja á Sidekickinn minn brettakanta
frá samtak (f. 33″ dekk).
Mig vanntar nokkrar ábendingar.
Það er nokkuð ljóst hvað það er sem á að klippa en þar sem að ég hef ekki gert þetta áður vanntar mér eiginlega að sjá hvernig aðrir hafa gengið frá hjólaskálum eftir úrklippingu, þá sérstakleg að framan.
Svo er það eina sem ég er ekki viss um, hvað hafa menn verið að klippa mikið úr brettum að aftan við aftur hurðina?
Getur einhver bennt mér á hvað á að gera að er einhver sem jafnvel á til myndir af frágangi á svona löguðu?
Takk,
Óskar Andri
oskarandri@islandia.is