Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.05.2005 at 19:55 #522368
Ég tók nokkrar myndir frá mótmælunum í dag og eru þær komnar inn í albúmið!
Kv.
Óskar Andri
09.05.2005 at 10:26 #522336Auðvitað mætir maður!! og vonast til að sjá sem flesta!
Kv.
Óskar Andri
03.05.2005 at 11:56 #522128Ég lenti í því þegar ég var að færa skráninguna mína frá gömlu síðunni yfir á þá nýja að gleyma að haka við valmöguleikan að ég væri félagsmaður í F4x4, ég hef því ekki getað tekið þátt í spjallinu, sett inn auglýsingar eða lagað myndaalbúmið fyrr en fyrst í gær þegar Emil tilkynnti að það væri orðið mögulegt að skrá inn félagsnúmerið sitt eftirá.
Ef ég skil þetta þá rétt þá geta aðilar sem ekki eru félagar í F4X4 ekki tekið þátt í spjallinu, þetta þykir mér mikill missir fyrir spjallið á vefnum og þætti mér gaman að sjá könnun sem myndi sýna skoðun annara félagsmanna á þvíKv.
Óskar Andri
03.05.2005 at 08:29 #522100Takk fyrir mig!
31.03.2005 at 21:00 #520144Sælir félagar
Ég held að menn verði seint sammála um það að klafar sé fjöðrunarbúnaður sem hennti jeppa sem á að nota sem jeppa!
Það hefur þó sannast að klafar er ekki veikur búnaður og bera stór hjól ágætlega en klafar hafa líka sína slitfleti líkt og hásingar en klafar hafa bara öðruvísi slitfleti.
Ég sjálfur ek um á bíl með klafa að framan og finnst mér þeir frábærir á þjóðveg 1, á hálendisvegum á sumrin og í harðfenni, en ég er orðin ferlega þreyttur á því hvað hann leggst á magan í þungu færi á veturnar. Fyrir mér kemur þetta einhvernvegin þannig fyrir sjónir að ef þú keyrir þig á bólakaf í skafl væri hásinga bíll líklegri til að geta bakkað út úr skaflinum en klafabíll myndi búa til vegg fyrir framan sig og trúlega vera bara þar þangað til einhver kemur með skóflu eða spotta!
Það má velvera að þetta sé að virka eitthvað betur á stærri hjólum eða að sjálfstæð gormafjöðrun sé að virka betur en sjálfstæð vindufjöðrun???
Þetta er allavega mín reynsla og verður minn bíll röraður að framan fyrr eða síðar.Kv.
Óskar Andrip.s.
Við þetta má bæta að ég hef aldrei heyrt nokkurn jeppamann tala um það að hann vilji setja klafa undir bílinn sinn að framan/aftan til að fá meira jeppa eiginleika eða drífa betur =)
23.03.2005 at 14:10 #519618Veit einhver hvernig færið – vegirnir eru upp í jökulheima?
Kv.
Óskar Andri
R-3237
16.03.2005 at 20:40 #519168Ég sé það núna miðað við fréttirnar á stöð tvo í gær það var auðvitað algjör misskilningur hjá mér að vera að hækka Hiluxinn (hvernig datt mér þetta í hug!!) ég átti auðvitað að lækka hann og setja á hann Túrbínu!, ég gæti meira að segja rifið úr honum framdrifið og millikassan, það er auðvita vita gagnslaust og þingir bara bílin. Svo fer maður bara á Hilux Turbo! á 17" á skjaldbreið næst!
Annars fór ég inn á leitarsíða til að athuga hvort það væri vit í þessu hjá mér og þá sá ég að Amerikanin er auðvitað laungu búinn að átta sig á þessu, sniðugir þessir þarna í ameríkunni, ég set in tengil á það sem ég var að spá í.
[url=http://minitruckinweb.com/features/0409mt_tacoma/:1ukjh5s4]MiniTrucks[/url:1ukjh5s4]
P.s.
síðan í smá alvöru…. hvað ætli að það verði margir fastir fólksbílar á skjaldbreið næstu helgi…
18.01.2005 at 08:29 #513718Enn hvað segið þið með felgur, 12",13" eða 14" felgur. Eru 14" felgur orðnar of breiðar fyrir þennan bíl? Er það betra eða verra að vera með breiðari felgur á þetta léttum bíl? 1780Kg
Kv.
Óskar Andri
17.01.2005 at 12:58 #195272Sælir Félagar
Ég er að fara að setja Hiluxinn á 38″. Hvaða dekk og hversu breiðar felgur hafa verið að reynast vel undir þessum bílum. í dag vigtar bíllinn 1780kg á 35″ dekkjum.
Dekkin yrðu trúlaga einungis notuð sem vetrar dekk og síðan 35″ á sumrin.
Vitið þið jafnvel um einhverja eldri þræði þar sem þetta hefur verið tekið fyrir?
Kv.
Óskar Andri
R-3237
13.01.2005 at 18:04 #513362Það er alveg óþarfi að fara að flytja einhvern snjóskafl til eða frá fyrir ykkur… ég held þessi litli snjóri sem er á planinu hjá Benna sé alveg nóg fyrir ykkur 😉
Stuð!
Óskar Andri
29.12.2004 at 21:18 #511908Hæbbs…
Ef þú ert að tala um 2,4 bensín þá er hér sanleikurinn sem ég get sagt þér um minn bíl sem er á 35" með 5/29 hlutf.
Sumar akstur með c.a. 23 pund í dekkjunum virðist innanbæjareyðsla vera nokkuð standard 14 komma eitthvað semsagt c.a. 14-15 L/100.
Vetrarakstur með c.a. 17-18 pund í dekkjunum eykst eyðslan innanbæjar um 3-4L þá er líka miðað við að bílinn er í lokunum og verið að hita hann á morgnanna og svona..
Í síðustu þrjú skipti sem ég tankaði bílinn mældi ég eyðslu á bilinu 17-18 LKv.
Óskar Andri
29.12.2004 at 20:59 #511966Hæbbs…
Það er ekki sjálfsali heldur er vaktmaður í veðurstöðinni sem dælir, best er fyrir þig ef þú ert að huga að ferð að hafa samband við hann til að hitta öruglega á hann. Það var tekið framm í þræði undir "Ferðir" í gær eða fyrradag að vaktamaðurinn er þarna alltaf um helgar en hefur leyfi til að bregða sé frá í allt að 2 sólahringa á virkum dögum.
Kv.
Óskar Andri
29.12.2004 at 20:47 #511982Hæbbs….
Er á 35" hilux, er með c.a. 17-18 psi, það hefur reynst mér ágætlega en eyðslan greynilega eykst….
Kv.
Óskar Andri
28.12.2004 at 12:57 #511824Ég var á Hveravöllum í gær og þar var hægt að fá bæði bensín og dísel…
Kv.
Óskar Andri
14.12.2004 at 20:56 #509644Myndir af dekkjum og felgum… piff allar eins……
Enn ég er sammála því að breitinga myndir eru góðar…
Kv.
Óskar Andri
12.12.2004 at 23:40 #509628Sælir félagar
Maður getur ekki orðið annað en bara grænn af því að fylgjast með þessum myndum af breytingunum hjá Birdie…. Ég sé bílinn minn alveg í hillingum núna á bílaliftu með Dana 60 hásingum, snorkel og 44"….. þótt ég hugsi nú að það þurfi að bæta einhverju við í hesthúsið hjá mér til að geta yfir höfuð snúið þessum hásingum hehe….
Jæja, mér finnst eins og ég þurfi að fara að gera eitthvað…
Kv.
Óskar Andri
22.11.2004 at 14:46 #509234Sæll aftur….
Eitt sem ég tók eftir með bílinn sem þú ert að spá í, það er hverki tekið framm hvort það séu lækkuð hlutföll í honum, eyðslan á mínum bíl sem ég nefndi hérna að ofan miðast við 5/29 hlutf. Ef hann er á original hlutföllum gæti eyðslan verið meiri, tékkaðu á þessu.
Ef það er diskalæsing í honum stendur (venjulega) með stórum stöfum LSD aftan á afturhásingunni.
Kv.
Óskar Andri
21.11.2004 at 23:03 #509222Sæll
1. minn eyðir c.a. 12 1/2 til 13 utanbæjar. 14 innanbæjar ekki í lokunum. Á veturnar getur hann farið í 17 innanbæjar þegar verið er að hita hann á morgnanna og svona, í torfærum….. eee… alveg helling.
2. Það er Original rafmagnslæsing að aftan í dieselbílnum (ég held alveg öruglega í flest öllum Hilux diesel) en LSD læsing að afta í bensínbílnum.
3. veitiggi….
4.Það munar töluvert um það að vera með 100% læsingu að aftan, LSD virkar fínt og gerir mikið gagn upp brekkur í snjó og í snjóakstri enn hún á það til að svíkja þegar maður festir bílinn.
Þetta eru mjög fínir bílar með bensín vélinni og það er alveg óþolandi hvað þetta drífur á 35", enn ef þú færð þér Hilux DC bensín mæli ég með að þú reynir að fá hann með aukatank, original tankurinn er óþægilega lítill þegar maður er kominn í erfit færi þar sem eyðslan er meiri.
Kv.
Óskar Andri
18.08.2004 at 19:31 #504456Það er verulega gaman af þessum þræði…
Hilux fjósið er nýkomið í 183.000 km, hann hefur mest alla sína ævi verið á 33-35" dekkjum, hann hefur einusinni druknað og oltið í krossá hjá fyrri eiganda en ég veit ekki hvort eitthvað hafi verið endurnýjað þá.
Það er búið að skipta um tímakeðju og kúplingu
Ég lét stilla bílin hjá Björn Stefensen í vor, ásamt því er búið að endurnýja nokkuð í krami t.d. fjaðrir, gera upp bremsudælur, renna diska, herða á hjólalegum, skipa um stírisupphengju og núna er það nýjasta að það er byrjað að leka olía meðfram pakdós í millikassanum.
Hann eyðir um 12 1/2 – 14L á langkeyrslu við góða skilirði og ef ekki er ekið hraðar en 90 km á klst. enn ef bílinn er þungur og/eða færið vont, vill hann meira bensín……kv.
Óskar Andri
25.07.2004 at 23:07 #505050Góða Kvöldið
Ég lenti í samskonar vanda fyrir um ári síðan á Suzuki Sidekick. Ég tók vatnskassan úr, fór með hann í stjörnublikk og lét mæla hann. Hann reyndist vera, eins og starfsmaður stjörnublikks orðaði það "Kakk stíflaður" ég endaði með að kaupa nýjan vatnskassa.
Enn, eins og hefur komið framm í þessum þræði er margir aðrir einfaldari og ódýrari hlutir sem gæti borgað sig að útiloka áður en farið er í að rífa vatnskassan úr.
Gangi þér vel
Kv.
Óskar Andri
-
AuthorReplies