Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.01.2006 at 06:36 #197065
Við viljum þakka öllum kærlega fyrir frábæra ferð í Árbúðir. Og þá sérstaklega þeim sem hjálpuðu okkur við að leysa hreifingarvandamál í bílnum í sumum brekkunum
Bíðum spennt eftir næstu ferð með litlu deildinni og vonum að við komumst með í hana.
Kveðja
Óskar og Ástap.s. hér eru myndir frá ferðinni.
Myndir Árbúðir
og ef að linkurinn virkar ekki þá er slóðin:http://ose.smugmug.com/
11.01.2006 at 13:57 #53851006.01.2006 at 17:03 #53805806.01.2006 at 05:37 #196988Sælir, verður einhver ferð hjá litlu deildinni í Janúar?? Sá á síðunni að lyngdalsheiði er sett upp. Er einhver vara ferð ef lyngdalsheiðin klikkar??
Er kominn einhver dags. ??
Kveðja
Óskar
http://ose.smugmug.com
30.11.2005 at 16:50 #534332Glæsilegt video.
Hvað kom fyrir bílinn sem lá á hliðinni og verið var að rétta af??Kveðja
Óskar
ose.smugmug.com
26.11.2005 at 19:06 #534082Þú átt væntalega við myndina sem ég var að setja inn. Mér fynnst notendaviðmótið bara ekki nógu gott á 4×4 síðunni. Vill frekar hafa myndirnar í mínu eiginn albúmi. Ætli letinn komi svo ekki líka smá við sögu.
Kveðja
Óskar
24.11.2005 at 22:35 #533908ok takk, enn hvernig er að fara um tröllháls, uxahryggi.
Hef aldrei keyrt þá leið. Er jafn mikill snjór þar??Kveðja
Óskar
24.11.2005 at 20:01 #196707Sælir, hvernig er færðinn um Kaldadal núna fyrir óbreytta jeppa. Komst ekki í litlu deildar ferðina síðustu helgi og dauðlangar að reyna við kaldadal á laugardaginn. Fara þá frá Þingvöllum í húsafell. Eins ef að færðinn þar hentar ekki fyrir óbreytta bíla eruð þið með einhverjar uppástungur um góða dagsferð(verð að vera kominn í bæjinn um 18:00)
Kveðja
Óskar
MMC L-200
25.09.2005 at 21:21 #527786Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, enginn leið að fylgjast með þessu
25.09.2005 at 20:54 #527782Sælir, þá er er þessi frábæra ferð búinn og fannst mér hún takast vel í alla staði. Vil skila kærri kveðju til þeirra sem skipulögðu ferðina og þeirra sem ferðuðust með okkur. Bið bara spenntur núna eftir næstu ferð.
Myndir frá ferðinni eru á: http://ose.smugmug.com/4×4
(b fjalldal: það voru 7-9 rjúpur við fossinn í Blákvísl)Kveðja
Óskar
20.09.2005 at 18:58 #526828OK takk, sjáumst þá á Laugardag.
20.09.2005 at 18:00 #526824Er ég eitthvað að misskilja litlu deildina, er hún ekki fyrir óbreytta bíla??
Ég er bara að fá mér 32" dekk fyrir ferðina. Er ég kannski á alltof litlum bíl???(einn voða nýr)
20.09.2005 at 17:34 #526818Jæja þá er maður búinn að skrá sig í ferðina.
Ætla á morgun að kaupa undir bílinn Wild Country txr og láta micro skera þau.
Hvernig er með CB er það nauðsynlegt??
Var að skoða President Harry CB stöð hjá aukaraf enn þeir geta ekki sett hana í fyrr enn eftir 2-3 vikur.
Þetta verður fyrsta ferðinn mín með 4×4 og ég treysti á að þetta verði gamann
20.09.2005 at 15:28 #526810Hvernig er það er ekki kominn töluverður snjór þarna upp frá??
Er ekki must að vera búinn að setja vetrardekkinn undir fyrir þessa ferð??
(vonandi er þetta ekki ofheimskuleg spurning, ég er nýr í þessu)
19.09.2005 at 03:03 #527106Hvar munduð þið mæla með að ég verslaði 38" Mudder og 14" felgur??
Og aftur takk kærlega fyrir góð svör.
18.09.2005 at 12:08 #527098Ég með Mitsubishi L-200. Notkun á að vera almennar fjallaferðir
Takk fyrir svörin
17.09.2005 at 23:56 #196269Hvaða 38″ dekk og felgur munduð þið mæla með??
31.08.2005 at 23:54 #196198Sælir, fór í smá bíltúr í dag og kíkti upp í Kerlingarfjöll. Þetta er í fyrsta sinn sem ég keyri þangað upp eftir og það var stórskemmtilegt.
Það sem mér fannst helst sérstakt við daginn var hvað það var ótrulega kalt. Það voru um 2-3°C á kjalvegi og það var nýr snjór í Bláfellinu.Er þetta eðlilegt þarna í Ágúst eða eigum við von á hörðum vetri???
Þið getið skoðað myndir frá ferðinni á
http://ose.smugmug.com/
undir möppunni 4×4.
ég er búinn að reyna að setja inn myndir á ferðaklúbbssíðunni enn það gengur illa.
25.08.2005 at 11:49 #525374Gæsavatnaleið hljómar vel.
Hefði reyndar gjarnan viljað fara í jökulsárlón 12-14 águst enn komst því miður ekki.
Svo er bara að biða ef vinnuskránni og vona að maður komist með í sína fyrstu ferð á vegum litlu deildarinnar í september.
05.08.2005 at 08:53 #196130Er einhver ferð á næstunni á vegum litlu deildarinnar??
Kveðja
Óskar
-
AuthorReplies