Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.03.2008 at 15:34 #616366
Ég er með
16.02.2008 at 17:56 #614308Takk fyrir góð svör.
Ég hef nefnilega verið að hugsa að fjárfesta í LC 80 á 38" dekkjum í þeim tilgangi að nota á fjöllum á veturna og á sumrin.
Þeir jeppar sem ég hef átt hingað til hafa allir verið á 38" og 12" breiðum felgum en mér hefur alltaf fundist 12" felgurnar aðeins of mjóar.
Er ekki hættan að þungur bíll eins og LC80 fljóti illa á 12" felgum?Ómar
15.02.2008 at 16:51 #201877sælir félagar
Hef verið að velta fyrir mér dekkjastærð á Landcruiser 80.
Nú er þetta frekar stór bíll og hef ég heyrt að það þýði ekkert annað en að vera með hann á 44″ dekkjum ef hann á að nýtast eitthvað í snjónum.Mér þætti gaman að heyra hvaða álit og reynslu menn hafa af slíkum bílum á 38″ dekkjum.
kv.
Ómar
05.02.2008 at 12:21 #201805Sælir félagar
Ég hef verið að íhuga það hvort ég eigi að fá mér eitt stykki Landrover Discovery.
Vandamálið er bara að mér finnst ég sitja alltof hátt í honum.
Veit einhver ykkar hvort það sé hægt að lækka sætin í honum og hugsanlega færa aftar?
Eða þá hvort þetta væri mikið vandamál að gera?kv.
Ómar
31.03.2007 at 13:38 #200035sælir félagar
Nú fór heldur illa fyrir mér. Ég er á Pajero 97 módel og hafði ætlað mér að festa VHF stöðina mína í hólfið fyrir neðan útvarpið.
Það fór nú ekki betur en svo að þegar ég er að reyna að festa hólfið aftur við plastgrindina sem er utanum þetta allt saman þá vill ekki betur til en svo að plastgrindin brotnar og er nú ónýt.
Mín spurning er því sú hvort einhver ykkar eigi þessa plasgrind og geti séð af henni til mín.
Ef svo er þá endilega svarið þessum þráð eða hringið í mig í síma 840-9178kv.
Ómar
22.03.2007 at 18:00 #585714takk fyrir svörin.
Ég mæti á opna húsið í kvöld og fæ að skoða þetta hjá þér Stefán.kv.
Ómar
22.03.2007 at 15:10 #199978Sælir félagar
Ég keypti mér um daginn vhf stöð en er í bölvuðu basli með að finna góðan stað fyrir hana í bílnum hjá mér. Bíllinn er af gerðinni Pajero og er 97 módel.
Er einvher ykkar pajero eiganda búinn að koma slíkri stöð fyrir í bílnum hjá sér? Gott væri að fá upplýsingar um hvar henni var komið fyrir. Ekki verra ef einhver ætti myndir.kv.
Ómar
31.01.2007 at 14:18 #578318sælir
Systir mín hún Sigga er grafískur hönnuður og hefur verið að hanna eitthvað af logoum fyrir ekki of mikinn pening.getið sent henni email á systaharpa@gmail.com eða í síma 861-0305
22.11.2006 at 11:50 #568994Sælir og takk fyrir góð svör
Bíllinn er 97 módelið þannig að þá eru skynjararnir hugsanlega ekki að klikka.
Það er millikassaljósið sem er að blikka en ég er að hugsa um að prófa ráðið hans Vals um að snúa hjólinu. Nú ef það er ekki hægt að snúa því þá má þetta ljós bara blikka áfram. Aðalatriðið er að læsingin virki.Ómar
21.11.2006 at 13:33 #199011Sælir félagar
ég er í smá vandræðum með Pajeroinn, ekki svo að slíkur bíll bili oft.
málið er að þegar ég læsi millikassanum þá blikkar ljós í mælaborðinu sem sýnir að hann er læstur. Væntanlega á þetta ljós að vera stöðugt, leiðréttið mig ef svo er ekki, og millikassinn því ólæstur.
Kannast einhver ykkar við slíkt vandamál í sínum bíl og ef svo er, hvað var gert til að laga þetta.kv.
Ómar
30.10.2006 at 10:21 #198846Sælir félagar
Ég keypti mér um daginn Map source kortið frá R. Sigmundssyni og var að velta því fyrir mér hvort einhver ykkar vissi um leiðbeiningarbækling sem hægt væri að nota til að læra á kortaforritið.Ómar
-
AuthorReplies