Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.01.2013 at 15:04 #762189
Daginn
Ég var búinn að skrá mig og greiða en er ekki á listanum.
Vonandi ekki búið að tína mér?kv.
Ómar
24.10.2012 at 11:29 #224732Daginn
Hvernig er það getur maður ekki keypt sér VHF stöð í Ameríku og notað hérna heima? Er eitthvað sem kemur í veg fyrir það?kv.
Ómar
15.09.2012 at 14:22 #22437424.08.2012 at 00:13 #224183Daginn
Ég er með 2002 módel af LandCruiser 90 með common rail vélinni og hef undanfarið verið að lenda í því að hann er að drepa á sér allt í einu.
Venjulega er þetta að gerast eftir að ég hef ekið bílnum í töluverðan tíma, þá vanalega í lagnkeyrslu og ég stoppa einhversstaðar og drep á honum. Síðan þegar ég set hann í gang aftur eftir nokkrar mínútur þá gengur hann í smá stund, venjulega innan við 30 sekúndur og síðan deyr á honum. Þá þarf ég vanalega að starta í svona 5 til 10 sekúndur áður en hann fer aftur í gang.Er einhver sem kannast við þetta vandamál og gæti sagt mér hvað sé að?
kv.
Ómar
30.04.2012 at 13:03 #223388Daginn
Getur einhver sagt mér hvað Landcruiser 100 dísel 1999 til 2001 módel er að eyða?kv.
Ómar
17.11.2011 at 11:32 #221281Sælir
Veit einhver hvernig færðin er yfir Sprengisand þessa dagana?
Það má vera að ég verði þar á ferð á sunnudaginn og gott væri að vita hvernig aðstæður hafa verið undanfarið.kv.
Ómar
22.04.2011 at 13:50 #728375Það mun vera Valahnúkur sem er á bakvið bílinn.
18.04.2011 at 10:10 #218608Daginn
Ég vildi aðeins forvitnast um breytingar á Pajero, þá sérstaklega á boddýinu sem kom eftir 2000.
hvernig hafa þessir bílar verið að reynast á 38″ dekkjum.
Eru þeir að virka vel í snjónum og hvernig er með viðhald á þeim. Eitthvað sem þarf að gera við reglulega sem ekki er hægt að telja sem venjulegt viðhald?Gaman væri að heyra frá þeim sem eiga og hafa átt svona bíla.
kv.
Ómar
24.06.2010 at 20:27 #694390Mig langar aðeins að blanda mér í þessa umræðu um verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Ég hef mikinn áhuga á að ferðast um Ísland og fer ég ýmist gangandi, akandi á jeppa og á mótorhjóli. Ein regla gildir hjá mér og það er að aka ekki utan vega.
Eitt ber þó að nefna áður en lengra er haldið að hvort sem fólk er gangandi, á ferð á bíl, á mótorhjóli eða hesti að þegar farið er utanvega þá er jarðvegurinn skemmdur. Því getur enginn neitað.
Skemmdir þessar eru misjafnlega miklar en skemmdir samt sem áður.Umræðurnar sem ég hef lesið fara margar hverjar út í það að vera skítkast á milli aðila sem vilja banna allt nema göngufólk og þeirra sem vilja ferðast um á vélknúnum ökutækjum.
Ég get ekki séð hvaða máli það skiptir hvernig menn kjósa að ferðast um landið svo lengi sem þeir fara eftir þeim lögum og reglum sem hér gilda.Þegar kemur að verndaráætluninni verð ég að segja að mér finnst of langt gengið að loka þeim slóðum sem nefndir hafa verið. Margir hverjir af þeim hafa verið eknir í tugi ára og ég get ekki séð hvaða tilgangi það þjónar að banna umferð um þessar vegi annan en að vernda vegina.
Ennfremur finnst mér stórskrýtið að leyfa ferðaþjónustufyrirtækjum að fara um þessa vegi með trúss fyrir sína kúnna á meðan hinn almenni göngumaður má ekki láta trússa fyrir sig. Þetta kalla ég mismunun og á ekki að lýðast hér.
Samkvæmt áætluninni er tilgangurinn meðal annars að veita fólki tækifæri til að njóta fjölbreyttrar útivistar en ég spyr hvernig er það hægt ef banna á öllum nema ákveðnum hóp að ferðast um viss svæði.
Er þetta ekki gagnstætt hlutverki áætlunarinnar?Annað sem ég vill nefna og hefur verið nefnt áður er sú staðreynda að ekki er öllum kleyft að ferðast um landið fótgangandi. Þetta á sérstaklega við um eldra fólk, börn og fatlaða.
Er rétt að þessir aðilar geti ekki ferðast um landið á vélknúnum farartækjum þar sem eru slóðar til að njóta þeirrar náttúru sem gangandi fólk fær að njóta?Umhverfisvernd á ekki að snúast um boð og bönn heldur um skynsamlegan aðgang að náttúru landsins. Í stað þess að banna umferð vélknúinna ökutækja um slóða sem eknir hafa verið áratugum saman ætti frekar að búa svo um hlutina að öruggst sé hvar slóðinn liggur. Þetta felur í sér að merkja þarf slóðann með stikum og inn á kort.
Ef ökumaður veit alltaf hvar hann á að keyra þá eru minni líkur á því að hann fari að finna sér nýja leið.Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðar er alls ekki slæmt plagg en það er á margan hátt gallað plagg sem vert er að bæta úr.
kv.
Ómar
05.02.2010 at 12:40 #210507sælir félagar
Ein smá fyrirspurn varðandi dekkjakaup erlendis frá.
Þeir sem hafa verið að flytja inn dekk sjálfir, hvaðan hafið þið verið að kaupa þau?Er einhver sem getur bent mér á síðu sem hægt er að versla í gegnum.
kv.
Ómar
23.11.2009 at 14:56 #208511Sælir
Hef verið að íhuga að láta smíða fyrir mig kastaragrind á 2007 módel af L200.
Getur einhver sagt mér hvort það séu einhverjar reglur sem gilda um smíði slíkra grinda?
Einhverntímann heyrði ég að slíkar grindur mættu ekki vera smíðaðar úr flatjárni heldur yrðu að vera smíðaðar úr rörajárni.
Eitthvað til í því?kv.
Ómar
01.11.2009 at 16:08 #207900sælir
Getur einhver sagt mér hvar er hægt að fá kastaragrind á 2007 módelið af L200?
Eða þá hvar sé hægt að fá slíka grind smíðaða.kv.
Ómar
27.10.2009 at 09:35 #662912Takk fyrir þessar upplýsingar, en hvað segja menn um 15" breiðar felgur?
Er það orðið of breytt fyrir 36" dekk?
kv.
Ómar
19.10.2009 at 14:32 #207531Sælir
Hvað mæla menn með breiðum felgum fyrir 36″ dekk að því gefnu að þau eiga að fara á 15″ háar felgur?kv.
Ómar
15.10.2009 at 16:21 #207400Sælir félagar.
Getur einhver ykkar sagt mér hvort 15″ felgur passi undir 2007 árgerðina af L200.
Bíllinn er 35″ breyttur og ég er með þau dekk á 17″ felgum. Mig langar svolítið til að athuga hvort það passi 36″ dekk undir hann á 15″ felgum en hef heyrt að þær felgur passi ekki undir nema maður skipti út bremsubúnaðinum.
Er einhver sem getur sagt mér hvort þetta sé rétt?kv.
Ómar
03.03.2009 at 20:21 #203955sælir félagar
Langaði að benda ykkur á eitt varðandi Skeljung á Vesturlandsvegi.
Ég var það fyrr í kvöld að taka bensín og lagði við dæluna sem er fremst vinstra megin, þar sem vöruflutningarbílarnir stoppa alltaf.
Á skilti fyrir framan dæluna stendur að þetta sé sjálfsafgreiðsla. Ég byrjaði að dæla og þar sem ég stend þarna er mér litið á verðið sem dælan sýnir á 95 oktana bensíni, en þar stóð 149,3 kr.
Ég hélt fyrst að verðið hefði hækkað en þegar ég leit á stóra auglýsingarskiltið sá ég að bensínið í sjálfsafgreiðslu átti að kosta 144,4 kr.
Eftir dælingu fór ég inn og benti stúlkunni á kassanum að þarna væri verið að rukka fullt verð á sjálfsafgreiðslu dælu.
Hún leiðrétti verðið fyrir mig en tók það fram að þetta væri þjónustu dæla.Ég verð nú að segja að mér finnst mjög einkennilegt að vera með skilti fyrir framan dæluna sem segir sjálfsafgreiðsla en rukka svo fullt verð, enda er ég fullviss um að það taka ekki allir eftir því að þessi dæla rukkar fullt verð.
Því vildi ég benda ykkur á að ef þið dælið á sjálf á þessari dælu að athuga með verði svo þið séuð ekki að borga fullt verð.kv.
Ómar
12.09.2008 at 15:20 #629272þessi mynd er tekin í Ásahverfinu í Hafnarfirði í átt til Reykjavíkur.
kv.
Ómar
16.07.2008 at 09:38 #202672Sælir félagar
Er að velta því fyrir mér að kaupa Tacoma pallbíl.
Hvað geta þeir sem eiga eða hafa átt slíka bíla sagt mér um þá.
Sá sem ég hef í huga er 33″ breyttur.
Hvernig er eyðslan á þessum bílum. Maður verður víst að pæla í því í dýrtíðinni í dag.kv.
Ómar
03.04.2008 at 16:43 #618986Kerrunni sem linkurinn hér að neðan vísar á var stolið frá Smiðjuvegi 11 þann 25. síðastliðinn.
http://omarorn.bloggar.is/mynd/46689/967745
Þeir sem hafa séð hana, endilega hafið samband við mig í síma 840-9178 eða sendið tölvupóst á omar@straumur.net
kv.
Ómar
25.03.2008 at 20:01 #202180Kerrunni á myndinni á linknum hér að neðan, var stolið frá Miðhrauni 14 í Garðabæ aðfaranótt 25. mars 2008.
Endilega áframsendið þennan póst til sem flestra ef einhver kynni að hafa orðið hennar var.
Ef þið rekið augun í hana hafið endilega samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000 eða sendið tölvupóst á hjalti@median.is
http://omarorn.bloggar.is/album/46689/
-
AuthorReplies