FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Guðbrandur Þorkell Guðbra

Guðbrandur Þorkell Guðbra

Profile picture of Guðbrandur Þorkell Guðbra
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 1,412 total)
← 1 … 11 12 13 … 71 →
  • Author
    Replies
  • 02.01.2009 at 13:16 #635966
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Jæja, hvað sem segja má um manngerða fossa og fegurð, þá fann ég með því að gúgla þær upplýsingar, að hæð Öxarárfoss sé um 20 metrar. Það var víst það sem félagi Olgeir var að velta fyrir sér. – Annað sem kom upp í huga minn við að lesa þetta allt saman var, að þegar ég var drengur í skóla, var mér kennt að skrifa að fjörður einn fyrir norðan héti Axarfjörður en ekki Öxarfjörður, eins og mér skilst að heimamenn kalli hann og gefi sig ekkert í því efni. Málvöndunarliðið (málfarsfasistar) hefur hinsvegar ekkert að athuga við að þessi títtnefndi foss sé nefndur Öxarárfoss og áin Öxará. Ég ætla svo sem ekki að fara að kveða upp neinn dóm í málinu, en ég hef alltaf haft tilhneigingu til þess að nota þá orðmynd, sem það fólk er vant, sem er alið upp á viðkomandi svæði.





    29.12.2008 at 18:07 #635646
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Eins og Skúli tekur fram, þá kemur ekkert í staðinn fyrir venjulegan kompás. Hann á að vera skyldubúnaður í öllum ferðum, hvort sem menn eru akandi eða gangandi. Rafeindatæki, hversu góð sem þau eru, verða alla tíð háð bæði sínu eigin rafmagni og svo hinu, að búnaðurinn, sem þau byggja á, bili ekki. Fáðu þér góðan vasakompás, t.d. Silva, sem skátar nota mikið. Lærðu grundvallaratriði í því að taka stefnur og miða staðsetningu þína og setja út í kort meðan þú sérð hvar þú ert. Alveg gríðarlega góð öryggisráðstöfun, jafnvel þótt GPS-tækið sé í góðu lagi.





    23.12.2008 at 12:54 #635288
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Hann á meira skilið en einn Thule frá kókveldinu, ég myndi vilja láta hann hafa kassa af Premier frá Agli!





    22.12.2008 at 20:52 #635182
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Hann Freysi hannaði einu sinni snjóakkeri, og við létum smíða svoleiðis fyrir okkur á ágætu verkstæði. Þetta var að mér skilst einföld smíði fyrir þá sem hafa góðar græjur og kunnáttu til að sjóða ál. Ég á allavega mitt ennþá og síðast þegar ég vissi átti Freysi sitt. Þannig að mér þykir líklegt að hægt sé að fá teikninguna hjá Freysa, hann kannski tekur einhverja þóknun fyrir afnotin, sem er náttúrulega bara eðlilegt, því þetta er niðurstaða af R&D vinnu hans.





    21.12.2008 at 15:06 #635076
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það þótt félagsfólk velti fyrir sér útgjöldum á borð við félagsgjöld. Staðan er þannig hjá ansi mörgum, að það verður nánast að velta hverri krónu í lófa sér áður en henni er ráðstafað og ansi margir þurfa að raða útgjöldum í forgangsröð, því ekki eru til aurar fyrir öllu sem helst þyrfti að greiða. Staðan er því miður þannig hjá mörgum. Hitt er svo annað mál, að mér hefur til þessa fundist mikils virði varðandi þennan félagsskap, að hann skuli vera afl, sem mark er á tekið, varðandi hagsmunamál félagsmanna. Seint verður metið eða þakkað til fulls það starf, sem stjórnir og nefndir hafa unnið í þágu félagsmanna hvað varðar að fá yfirleitt að breyta bílum og að samræma reglur, sem um það gilda. Það starf hefur einnig skilað sér í auknu öryggi og vandaðri vinnu hvað þetta snertir. Vegna þessa markvissa starfs eru breyttir bílar nú mun öruggari, en þeir voru á fyrstu árum breytinganna.





    20.12.2008 at 17:35 #634968
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Sá grunsamlega auglýsingu í Fréttablaðinu í dag, er það kannski einhver bölvuð vitleysa í mér?





    20.12.2008 at 17:33 #635044
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þetta rifjar upp nostalgískar minningar frá Bronco-árum undirritaðs.





    19.12.2008 at 11:08 #634962
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Í fyrsta lagi; Gerfihnattasamband fiskveiðiflotans á fyrst og fremst við stærri skipin, þ.e. togara og nótaveiðiskip. Strandveiðiflotinn er sáralítið kominn í þetta enn sem komið er. En vonandi kemur verðið til með að lækka og fyrirferðin og rafmagnsþörfin á móttökubúnaðinum þar með. Hinsvegar kemur Izan með athyglisverðan punkt í þessa umræðu, þ.e. að NMT-stöðvar hafa verið að detta út vegna þess að Síminn hefur annað hvort ekki séð ástæðu til að viðhalda kerfinu eða ekki fengið varahluti. Þetta veit ég reyndar að er hárrétt og ekki bara austanlands. Ég var að ýja að því hér í fyrra innslagi mínu að það þyrfti að hyggja að kostnaði. Það er best að orða það bara beint út; Mann uggir að þarna séu eigendur Símans (Skipti ehf./Exista/Bakkavör) að finna sér mótiv fyrir að hækka verðið á þjónustunni.





    19.12.2008 at 07:23 #634928
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Mér sýnist allt benda til að þarna sé farin bæði grind og rör og þarna sé ein helvítis slyddutíkin enn komin, gjörsamlega ónothæft til alvöru brúks. Er það þá ekki bara Jeep Rubicon Unlimited og svo gamli Land Rover Defender sem eru eftir? Sagan endurtekur sig! Við nánari skoðun þetta:
    It is expected that the new Patrol will remain body-on-frame, and that it will pick up a 4.8L V8 for the engine bay. Other engine options will likely include a 4.0L V6 and 3.0L V6 diesel (co-developed with Renault) that is rumored to produce 265 hp and 405 ft-lbs of torque. Thanks for the tip, Eb! Þannig að grindin fer ekki strax.





    19.12.2008 at 04:53 #634954
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    NMT-kerfið er mikið öryggistæki og brýnt að hægt verði að láta það hanga inni sem lengst, en það má auðvitað ekki kosta hvað sem er. Það sem er helst að bögga mann núna er, að ef símar bila, er örðugt að fá varahluti og viðgerðir.





    13.12.2008 at 17:18 #634616
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þakka þér upplýsingarnar, Benedikt. Þetta er þá greinilega í góðum málum. Það er ljómandi gott að fá að lesa þarna svart á hvítu hvað tækninefndin er að gera, það kemur í veg fyrir misskilning.





    13.12.2008 at 13:47 #634612
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Já, gott fólk, við þurfum einmitt að ræða málið og velta upp sem flestum spurningum. Enn og aftur, flott hjá Bazza að hefja þennan þráð. – Mér var nú að detta í hug hvort einhver í forystunni myndi ekki vilja hringja í hann Örn Thomsen hjá Arctic Trucks í Noregi. Hef grun um að reynslan af nokkurra ára starfi í bransanum í því landi, þar sem allt er bannað sem ekki er sérstaklega leyft, hafi kennt honum sitt hvað ómetanlegt. Hver er formaður tækninefndar núna?





    12.12.2008 at 22:46 #634598
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Flott hjá þér Bazzi að vekja athygli á þessu. Þetta segir manni að klúbburinn okkar þarf að hafa frumkvæði að því að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við nefndina, en ekki bíða eftir að verða boðaður á fund. Stjórnarfólk, nú þarf að vinna hratt og fá okkar færasta fólk til að semja bréf og greinargerð til nefndarinnar!





    12.12.2008 at 22:42 #634558
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Einhvernveginn fannst manni þegar þungaskattur var fluttur yfir í eldsneytisverðið að fæstir hafi áttað sig á því trixi fjármálaráðuneytisins, að tekjuaukinn yrði ekki síst í því falinn, að þar með varð þungaskatturinn virðisaukaskattsskyldur, sem hann var ekki áður. FÍB nánast krafðist þess að þungaskatturinn yrði fluttur með þessum hætti og föttuðu þetta trick alls ekki hjá blýantsnögurunum í ráðuneytinu. Ég sagði mig úr FÍB á sínum tíma út af þessu rugli. Ég verð hinsvegar að segja eins og er, að þótt mér þyki gott að kíkja í glas stöku sinnum og fá mér öllara með grillinu á sumrin, þykir mér alls ekki við hæfi að hækkun á áfengi hafi þau áhrif, að verðtryggðu lánin hjá fólki hækki. Það er blátt áfram glæpur í mínum huga. Hér í eina tíð var til nokkuð sem hét lánskjaravísitala, sem verðtrygging var miðuð við. Það þótti einhverjum hagfræðingum óhæft og ekki stóð á bönkunum að samþykkja að neysluvísitala yrði notuð til að byggja verðtrygginguna á. Lánskjaravísitalan miðaðist við allt aðra hluti en neysluverðsvísitala og mældi breytingar á þeim verðmætum, sem áttu meira skylt við fjárskuldbindingar.





    09.12.2008 at 21:04 #634386
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Talaðu allavega við hann Árna Pál á Eldshöfða 15, sími 567 3444 áður en þú ferð að æða til Akureyrar í þessum erindum. Held hann eigi flest sem til þarf og yrði ekki lengi að þessu, enda búinn að breyta fleiri 80 cruiserum en ég hef tölu á.





    07.12.2008 at 12:46 #633600
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Mér sýnist að tveir IH Scout séu á "beit" hér rétt við Helluland í Skagafirði. Veit ekki hver á þá. En þeir virðast úr fjarska nokkuð heillegir, en ég veit svo sem ekkert um þá að öðru leyti. Ef einhver er að leita að svona bílum, er ekkert sjálfsagðara en reyna að komast að því hver á þessa og koma á sambandi milli aðila, sem gætu þá komist að raun um hvort einhver grundvöllur væri fyrir framhaldi.





    04.12.2008 at 17:34 #634054
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er nefnilega málið. Ertu ekki annars sammála mér í því, Hafsteinn, að ástæða sé til að skoða það áður en menn fara í kostnaðarsamar breytingar, eða kaup á bílum hvort ekki sé alveg ástæða til að skoða bensínvélar? Að frátöldum verðmun á eldsneytislítra, þá eru bensínvélar nú alltaf snarpari, hljóðlátari og léttari?





    04.12.2008 at 16:41 #634050
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Benedikt, er þessi 5,4 L Triton ekki basically sama vél og 351 vélin, er það ekki aðallega eldsneytiskerfið og aðrir ventlar sem ber í milli?





    03.12.2008 at 20:15 #634056
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    að hringja á morgun í Gunnar í síma 825 4574, hann á ýmislegt í þessa bíla.





    03.12.2008 at 19:59 #634044
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Ég var nú svo illa upplýstur að ég hélt satt að segja að Ford væri ekki enn farinn að bjóða diesel í Expedition og F 150, en Benedikt M. veit þetta áreiðanlega betur en flestir aðrir eins og annað sem Ford varðar. Hitt er annað mál, að ég hefði nú spurt hvort ekki væri bara miklu skynsamlegra að vera með Expedition með 351w vélinni. Ég er ekki viss um að meðaltalseyðsla yrði mikið meiri í lítrum talið. Auk þess er sú vél léttari en diesel sleggjan. Verðmunurinn á eldsneytinu, diesel í óhag, er orðinn gríðarlega mikill og olíuinnkaupamenn segja að hann komi ekki til með að minnka, því eftirspurnarkúrvan þróast öll í þá áttina, enda er notkunarsvið dieselolíu svo mikla víðfeðmara en bensínsins og aukningarlínan miklu brattari þar. Framboðið á dieselolíu er hinsvegar mjög nálægt því að vera hið sama og af bensíni, það kemur ámóta mikið úr hverri rúmmálseiningu af jarðolíu af diesel og bensíni.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 1,412 total)
← 1 … 11 12 13 … 71 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.